Morgunblaðið - 21.04.2008, Side 21

Morgunblaðið - 21.04.2008, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. APRÍL 2008 21 r mánuð fir Egils- erkilegur yti að geysilega leypur 2 mán- llinn gengur fram allt að fimm metra á klukkustund eða um 120 metra á dag. Það eru gríðarlegar hamfarir. Jökullinn er nú staddur mitt á milli framhlaupa, hljóp síðast fram um 9 km í austanverðum Kringilsárrana veturinn 1963-1964. Þá hófst fram- hlaup að því er talið er í byrjun október og var lokið í janúar. Fólk gat beinlínis horft á jökulinn færast fram. Jökullinn er nú að hopa til baka og ná stöðu fyrir næsta fram- hlaup.“ Undraverðar jarðmyndanir Landflæmið sem komið er í ljós frá síðasta framskriði undan Brúar- jökli er gríðarstórt. Í Kringilsár- rana, þar sem hann gengur fram og hopar mest, hefur hann hopað um 5 km síðan 1964. Breidd þess svæðis er um 10 km inn við jökulinn. „Þegar Brúarjökull hljóp fram 1890 myndaði hann mikla jök- ulgarða sem fólk þekkir nú sem Hrauka. Jökullinn myndaði svo nýja garða 1964, u.þ.b. 2 km innan við Hraukana. Síðan hefur jökull- inn verið að hopa að meðaltali um 100 til 120 metra á ári í Kringilsár- rana. Þarna koma í ljós alls konar landform sem mynduðust undir jöklinum í hlaupinu. Þ. á m. eru sprungufyllingar, sem eru mjög fal- leg og eftirtektarverð landform. Þá þrýstist jökulruðningur upp í opnar sprungur í botni jökulsins þegar hann var allur brotinn upp í lok framhlaupsins. Sprungufylling- arnar, sem endurspegla sprungu- mynstrið í jöklinum í lok fram- hlaupsins, geta verið mjög stórar, nokkrir metrar á hæð og gríð- arlangar. Þær liggja sums staðar nokkuð samsíða sporði jökulsins og þvert á flæðistefnuna og mynda mikla og áberandi garða. Annars staðar liggja þær þvers og kruss í landslaginu. Innan um sprungufyll- ingar eru víða jökulkembur, sem líkjast ógnarlöngum strikum í landslaginu. Þær myndast samsíða flæðistefnu jökulsins þegar hann er að hlaupa fram. Þessar eru með lengstu jökulkembum sem fyr- irfinnast á Íslandi og endurspegla að því talið er hinn mikla hraða í framhlaupinu 1963-1964.“ Ívar nefnir einnig malarása sem myndast þegar bræðsluvatn renn- ur í göngum undir jöklinum og set- ur af sér möl og sand í leiðinni. Þeir liggja eins og ormur í gegnum landslagið víðast hvar. Þá er land- form á svæðinu sem lítið er enn vit- að um, en þykir merkilegt. Það eru svokallaðir krákustígsásar sem samanstanda af dauðís, möl og sandi og eru að einhverju leyti myndaðir af vatni. Líklegast vatni sem leitar í sprungukerfi jökulsins, rennur eftir því og myndar mjög sérstaka sikksakk hryggi sem standa eftir í landslaginu þegar jökullinn hefur hopað. Tímabundin náttúruperla Í hinni nýju jökulkvísl undan Brú- arjökli eru nokkrir fossar, en einn langstærstur sunnan við Jökulkvísl og 2-3 km sunnan við Hálslón. Nýja kvíslin hefur komið í ljós á árunum eftir 2000. Hún hefur ratað ofan í gil og fellur þar í fossi, sem er á milli 70 og 80 metra breiður og í kringum 15 metra hár. Hann er þó mjög vatnslítill eins og stendur, því oft er lítið og jafnvel ekkert vatn í litlu jökulánum á vetrum. Ívar segir bræðsluvatn frá Brú- arjökli leitast við að renna í sína gömlu farvegi. Hann telur líklegt að áin hafi áður runnið í þessari sömu kvísl og gilinu sem fossinn fellur nú niður í. Á loftmyndum frá 1945, þ.e. fyrir síðasta framhlaup, má sjá kvíslina og gilið rétt framan við jökulinn. Líklega nær Hálslón inn undir hina nýju jökulkvísl þeg- ar það er fullt, en fossinn stendur það hátt að lónið nær ekki þangað. En hvað verður svo um hið nýja landslag á þeim fjörutíu til sextíu árum sem væntanlega líða þangað til Brúarjökull hleypur á ný? Tölu- vert rof er á svæðinu af völdum vatns og líklegt að áin nái smám saman að rjúfa haft við enda gils- ins, steypast ofan í það frá end- anum í stað hliðarinnar eins og nú er og verður fossinn þá bæði mjórri og kraftmeiri. Núverandi foss er því n.k. tímabundin náttúruperla því Brúarjökull mun eflaust hlaupa fram yfir þetta land á ný. For- vitnilegt verður í sumar að sjá hvort fossinn fagri hefur breytt sér, sem vel kann að vera í hinu sí- breytilega jökulumhverfi. Margar spurningar vakna „Það hefur geysimikið gildi fyrir vísindamenn að geta rannsakað þetta“ segir Ívar. „Brúarjökull og svæðið framan við hann er algjört gallerí fyrir jöklajarðfræðinga. Það sem gefur þessu svo mikið vægi er að þegar jökullinn hörfar hratt eins og nú gerist, kemur svo mikið nýtt land í ljós. Það gerir okkur kleift að skoða setlög og landform sem myndast undir jöklinum, bæði þeg- ar hann hleypur fram og hörfar. Þannig fáum við innsýn í hvað er að gerast undir jöklinum í framhlaup- unum. Hin nýju lönd sem koma í ljós undan Brúarjökli og víðar gera okkur mögulegt að skoða ókannað land og þar með fáum við nýjar upplýsingar um hegðun og sögu jökla landsins.“ Vísindamennirnir verða við Eyjabakkajökul 12.-27. júlí á sumri komanda við frekari rannsóknir. Framhlaupalota hans er aðeins 35- 40 ár og nú eru 36 ár liðin frá því að jökullinn hljóp síðast. Því má ætla að jökullinn hlaupi fram á allra næstu árum. Það gerist þó vísast mun hægar en í Brúarjökli, eða um 2 km á einu ári. fundanna Ljósmynd/Skarphéðinn G. Þórisson landslaginu. Þær myndast er hann hleypur fram. Þessar eru með lengstu jökulkembum landsins. Snæfell í baksýn. Ljósmynd/Skarphéðinn G. Þórisson Vetrarfjötrar Farvegur fossins, sem nefndur er Nýifoss, er í langhlið gljúfursins. Lítið rennsli er nú í Nýjukvísl og fossinn því nær enginn.                                       Ljósmynd/Ívar Örn Benediktsson rann undir Brúarjökli í síðasta framhlaupi veturinn 1963-1964 rauf dældir og farvegi vísindamenn við rannsóknir, en svæðið vekur mikinn áhuga jökla- og jarðfræðinga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.