Morgunblaðið - 21.04.2008, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. APRÍL 2008 31
Krossgáta
Lárétt | 1 falla, 4 hrímið, 7
þvo, 8 þakin ryki, 9 að-
stoð, 11 fiska, 13 lof, 14
ránfiskur, 15 rass, 17
málmur, 20 reyfi, 22 við-
felldin, 23 aflagar, 24
sterki, 25 gamli.
Lóðrétt | 1 ríki dauðra, 2
broddgöltur, 3 einkenni,
4 ströng, 5 endar, 6 nöld-
urs, 10 ljúf, 12 beita, 13
ástæðu, 15 kinnungur á
skipi, 16 oft, 18 dulin
gremja, 19 tré, 20 sund-
færi, 21 blíð.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 fársjúkur, 8 gjall, 9 liðug, 10 uxi, 11 aðlar, 13
torfa, 15 sönnu, 18 ágeng, 21 rif, 22 stirð, 23 aftur, 24
fiðrildið.
Lóðrétt: 2 áfall, 3 selur, 4 útlit, 5 urðar, 6 ugla, 7 egna, 12
ann, 14 org, 15 sess, 16 neiti, 17 Urður, 18 áfall, 19 eitli,
20 görn.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Skildu vinnuna eftir á sínum stað.
Ef þú veist að þú getur ekki tekið hana
með heim, ekki einu sinni tilfinningalega
hlutann, muntu binda alla lausa enda.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú þarft nauðsynlega að huga að
andlega lífinu. Það tekur ekki mikinn
tíma. Snöggur göngutúr á milli staða og
þögul bæn tengir þig sjálfum þér.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert svo upptekinn í dag, þú
sérð að áður varstu að eyða tíma til einsk-
is. Ekki sekúnda má fara til spillis. Haltu
þig við það sem þú verður að klára í dag.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þig langar að nota eitt verkefni til
að forðast annað. Að fresta stressar þig
að óþörfu. Settu hlutina í rétta röð. Síðan
mun tilfinning friðar blása um huga þinn.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Góð samskipti þýða ekki bara réttu
orðin á réttum tíma heldur líka réttu orð-
in eftir það. Fylgdu hlutunum eftir. Vertu
viss um að þú sért með á nótunum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Ástvinir eru mun lagnari við að
fara í taugarnar á þér en nokkur kunningi
eða ókunnug manneskja. Samt muntu
alltaf verja þá. Líka í dag.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Ætlast einhver í alvöru til þess að þú
lesir huga hans? Greinilega. Sambönd
halda áfram að vera ögrandi og eitthvað
mikilvægt gerist í kvöld.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú verður vinur tímans með
því að gera sem mest úr hverri stundu.
Framfarirnar verða snöggar. Í kvöld
lagar steingeit vanda þinn sem snýr að
peningum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Stjörnurnar þínar vara þig
við að leyfa einhverjum að hugsa um þig
þegar þú getur vel gert það sjálfur. Það
mun setja stjórnaröflin úr jafnvægi.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú býrð þig undir það versta
sem gerir það verkum að þú munt ekki
upplifa það. Fólkið sem er hæfast til að
takast á við hindranir mætir þeim sjaldn-
ast.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Öfgar munu ekki hjálpa þér
núna. Hóf er það sem skiptir máli. Leti
getur jafnvel verið jákvætt og skapandi
afl svona endrum og sinnum.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Af öllum hinum merkjunum ert þú
færastur í að sjá heiminn með augum
annarra. Notaðu það núna til að skilja
hvernig þú getur glatt aðra sem mest.
stjörnuspá
Holiday Mathis
1. d4 d5 2. c4 dxc4 3. e3 Rf6 4. Bxc4
e6 5. Rf3 c5 6. O–O a6 7. He1 b5 8.
Bf1 Bb7 9. a4 b4 10. Rbd2 Be7 11.
e4 cxd4 12. e5 Rd5 13. Re4 Rc6 14.
Bd3 h6 15. Bd2 Db6 16. Hc1 g5 17.
Rd6+ Bxd6 18. exd6 Kd7 19. a5
Dxa5
Staðan kom upp í fyrri hluta Ís-
landsmóts skákfélaga sem fór fram
haustið 2007. Guðmundur Gíslason
(2328) hafði hvítt gegn Hrannari
Jónssyni (1830). 20. Hxc6! Bxc6 21.
Re5+ Kxd6 22. Rc4+ og svartur
gafst upp enda drottningin að falla í
valinn. Guðmundur tefldi fyrir Skák-
deild Bolvíkinga sem tryggði sér
sæti í efstu deild Íslandsmótsins
með öruggum sigri í annarri deild.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Leikur að drottningum.
Norður
♠9842
♥Á74
♦KG103
♣107
Vestur Austur
♠107 ♠ÁKG63
♥K8653 ♥D2
♦D762 ♦9854
♣D5 ♣98
Suður
♠D5
♥G109
♦Á
♣ÁKG6432
Suður spilar 5♣.
Sambandsleysið við borðið stingur í
augu og ekki batnar ástandið þegar út
kemur smátt hjarta. „Af hverju sagði
ég ekki þrjú grönd,“ hugsaði Vignir
Hauksson með sjálfum sér og setti
vondaufur lítið hjarta í fyrsta slaginn.
Þetta var í fyrsta leik undanúrslita Ís-
landsmótsins.
Austur fékk á ♥D og spurði út í
sagnir: Vignir hafði opnað á eðlilegu
laufi í suður, Stefán Stefánsson sagði
1♠ á móti, Vignir 3♣ og Stefán 3♦.
Vignir skildi það sem veikleika í hjarta,
sagði því 5♣. Eftir þessar upplýsingar
lagði austur niður ♠Á og Vignir lét eld-
snöggt drottninguna í slaginn! Sjöa
vesturs gat verið frá 1075 og austur tók
♠D trúanlega sem einspil. Spilaði
hjarta.
Vignir drap ♥K vesturs, tók laufin í
botn og ♥G. Austur og vestur stóðu í
þeirri trú að Vignir yrði að finna ♦D og
hentu báðir öllum spöðum sínum.
Vignir spilaði ♦Á og loks ♠5 í þrett-
ánda slag. Fimman var frí.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1 35 Íslendingar ætla að taka þátt í Boston-maraþoninu til styrktar ákveðnu málefni. Hvaða?
2 Óli G. Jóhannsson og Lilja kona hans hafa opnaðgallerí á Akureyri. Hvað heitir það?
3 Óskar Jónasson kvikmyndagerðarmaður hefur hugá að gera kvikmynd eftir sögu Einars Kárasonar.
Hvaða saga er það?
4 Bræðurnir Óskar og Ómar Guðjónssynir ásamtDavíð Þór Jónssyni hljómborðsleikara o.fl. hafa
stofnað ofurhljómsveit. Hvað heitir hún?
Svör við spurningum
gærdagsins:
1. Geir H. Haarde var í Kanada í
vikunni sem var að líða og hitti
þar starfsbróður sinn. Hvað heitir
sá? Svar: Stephen Harper. 2. Að-
ilar í Skagafirði hafa hafið und-
irbúning að nýrri tegund af verk-
smiðju? Hvers konar? Svar:
Koltrefjaverksmiðju. 3. Samein-
aður Iðnskóli Reykjavíkur og Fjöl-
tækniskóli Íslands hefur fengið
nýtt nafn. Hvert er það? Svar:
Tækniskólinn - skóli atvinnulífs-
ins. 4. Hver er nýr formaður Kven-
réttindafélags Íslands? Svar: Mar-
grét Sverrisdóttir.
Spurter… ritstjorn@mbl.is
dagbók|dægradvöl
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
FRÉTTIR
ÝRR Ásbjörg Mörch efnaverk-
fræðingur varði doktorsritgerð sína
frá Norges Teknisk-Naturvi-
tenskapelige Universitet (NTNU) Í
Þrándheimi 7. mars síðastliðinn.
Ritgerðin ber heitið „Novel Alg-
inate Microcapsules for Cell Therapy
– A study of the structure-function
relationships in native and struct-
urallly engineered alginates“.
Verkefnið var unnið við Institutt
for Bioteknologi, umsjónarmaður var
Gudmund Skjåk Bræk prófessor.
Andmælendur voru dr. Igor Lacik,
Polymer Institute, Slovak Academy
of Sciences, Slovakia, og dr. Aileen
King, Beta Cell Development and
Function Group, King’s College,
London, UK.
Algínat er sykursameind unnin úr
þangi og hefur þann eiginleika að
mynda hlaup þegar hún blandast
kalsíumjónum. Algínat hefur víða
verið notað til að umlykja ýmiss kon-
ar frumur í rannsóknum á all-
mörgum sjúkdómum. Dokt-
orsritgerð þessi fjallar í
meginatriðum um
meðferð gegn
sykursýki (insúl-
ínháð, týpa 1) þar
sem insúlínfram-
leiðandi frumum
er komið fyrir í
algínatkúlum.
Algínatkúlurnar
eru gljúpar og
hleypa súrefni,
glúkósa (sykri) og öðrum næring-
arefnum inn í frumurnar sem þær
umlykja. Frumur og önnur efni
ónæmiskerfisins eru hins vegar of
stór til að komast gegnum holrými
hylkjanna. Þessum algínatkúlum
með insúlínframleiðandi frumum frá
líffæragjafa er komið fyrir í kvið-
arholi sykursýkissjúklingsins og eiga
þar að geta starfað í stað eyðilagðra
frumna sjúklingsins. Með þessum
hætti getur sykursýkissjúklingur lif-
að að hluta til eða jafnvel alveg án
daglegra insúlínsprautna.
Ýrr Á. Mörch er fædd 1975 í
Reykjavík, stúdent frá MH, efna-
verkfræðingur frá NTNU í Þránd-
heimi, gift Tómasi Jónssyni, véla-
verkfræðingi í Þrándheimi. Þau eiga
tvo syni, Sindra Mörch Tómasson og
Bjarka Mörch Tómasson.
Doktor í efna-
verkfræði
Ýrr Ásbjörg Mörch
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Verkalýðs-
félaginu Hlíf:
„Fundur í stjórn Verkalýðsfélags-
ins Hlífar 10. apríl 2008 ályktar að
stærsti hluti þeirra launahækkana
sem náðust í kjarasamningunum, sem
undirritaðir voru 17 . febrúar sl., sé
horfinn vegna verðhækkana. Þó eru
þær hækkanir aðeins hluti af því sem
framundan er, því áhrif af erlendum
vöruverðshækkunum eiga eftir að
skila sér út í verðlagið hjá okkur.
Þessu til viðbótar rýrnar almennur
kaupmáttur vegna okurvaxta, verð-
tryggingar lána og lágs gengis ís-
lensku krónunnar. Afleiðing alls
þessa kemur þyngst niður á láglauna-
fólki og við því verður að bregðast
með raunhæfum aðgerðum.
Stjórnvöld verða að taka upp virk-
ari baráttuaðferðir gegn verðbólgu en
hingað til. Þau verða að sýna í verki
að verðbólga lækki og varanlegur
stöðugleiki komist á efnahagslífið.
Þar þarf meira til en vinsamlegar við-
ræður við kaupmenn og heildsala.
Þá verða stjórnvöld að sjá til þess
að íslenskir bankar og lánastofnanir
leggi sitt af mörkum til að minnka
verðbólguna. Spákaupmennska í
kringum mismunandi gengi íslensku
krónunnar á ekki að sitja í fyrirrúmi,
heldur hagur almennings. Það er að
hlaupa undan ábyrgð að kenna er-
lendum fjárfestum um efnahagsvand-
ann og verðbólguna, sem er að mestu
heimatilbúin.
Til að rétta bágan hag láglauna-
fólks verða stjórnvöld að létta skött-
um af lægstu launum sem sannanlega
eru ekki lífvænleg. Hækkun skatt-
leysismarka um sjö þúsund krónur
næstu þrjú árin dugar skammt.
Fyrir nokkrum árum þótti stjórn-
völdum rétt að umbuna hátekjufólki
með verulegum skattalækkunum. Nú
hlýtur að vera komið að því að létta
skattbyrði af lægstu laununum sem
duga ekki einu sinni fyrir eðlilegri
framfærslu.
Vilji er allt sem þarf.“
Hlíf segir að hluti launa-
hækkana sé horfinn