Morgunblaðið - 23.05.2008, Side 12

Morgunblaðið - 23.05.2008, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HVATNINGARVERÐLAUN leik- skólaráðs Reykjavíkur voru afhent við athöfn í Höfða á miðvikudag af Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra og Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur, formanni leikskólaráðs. Markmið þeirra er að veita starfsfólki leik- skólanna í Reykjavík hvatningu í starfi og vekja athygli á því gróskumikla fagstarfi sem það innir af hendi í menntun yngstu borgarbúanna. Verðlaunin komu að þessu sinni í hlut 7 leikskóla og eins leikskólastjóra, en alls barst 41 tilnefning til verðlaunanna vegna 14 nýbreytni- og þróun- arverkefna. Verðlaun hlutu: Leikskólinn Bakki fyrir þrjú metnaðarfull verkefni; Umhverfisverkefnið Flóð og fjöru, alþjóðlega samstarfsverk- efnið eTwinning og heimasíðugerð. Leikskólarnir Klamrar, Nóaborg og Stakkaborg fyrir verkefnið Skilaboðaskjóðan sem unnið var í samstarfi við Háteigsskóla. Leik- skólinn Reynisholt fyrir lífsleikni- verkefnið Líf og leikni. Leikskólinn Gullborg fyrir samstarfsverkefni skólans og samtakanna Blátt áfram. Leikskólinn Hof fyrir verk- efnið Dans-Hreyfing-Tónlist. Kristín Einarsdóttir, leik- skólastjóri í Garðaborg fyrir að skipuleggja námsferðir, veita leið- sögn og koma á tengslum milli ís- lenskra leikskóla og leikskóla í New York. Morgunblaðið/Golli Viðurkenning til leikskóla VEGAGERÐINNI bárust átta til- boð vegna lagningar Dettifoss- vegar. Áætlun Vegagerðarinnar var upp á 624.200.000 krónur og reyndust tilboð þriggja fyrirtækja undir kostnaðaráætlun. Fyrirtækið Árni Helgason ehf. á Ólafsfirði átti lægsta tilboðið sem hljóðaði upp á 564.200.000 kr. Fyr- irtækið Klæðning ehf. í Hafnarfirði átti næstlægsta tilboðið upp á 600 milljónir, Skagfirskir verktakar ehf. á Sauðárkróki buðu 619.350.500 kr. Unnið verður úr til- boðum á næstu dögum. Dettifossvegur liggur frá Hring- vegi norður að Dettifossi og verður um 21,1 km langur. Einnig verður lögð 2,8 km vegtenging að Detti- fossi og 1,3 km vegtenging að Hafragilsfossi. Unnið verður úr til- boðum á næstu dögum. Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. október 2009.                  Átta tilboð í Dettifossveg FÉLAGS- og tryggingamálaráðuneytið hefur til fróðleiks tekið saman upplýsingar um móttöku flóttafólks og er upplýsingarnar að finna á vef ráðuneytisins. Þar kemur fram að rekja má móttöku íslenskra stjórnvalda á flóttafólki í hópum allt til þess að tekið var á móti 52 Ungverjum árið 1956. Síðan þá hefur verið tekið á móti samtals 481 flóttamanni. Síðan flóttamannaráð, nú flóttamannanefnd, var stofnað 1996 hefur verið tekið næstum árvisst á móti flóttamannahópum. Árin 2005 og 2007 var tekið á móti fólki frá Kólumbíu. Eru það einstæðar mæður, börn þeirra og einhleypar konur sem voru metnar í mikilli áhættu. Reykjavíkurborg tók á móti hópunum 2005 og 2007, en alls hafa tíu sveitarfélög tekið á móti hópum. Ríkisstjórnin tekur hverju sinni ákvörðun um að taka á móti flóttafólki. Við þá ákvörðun er tekið mið af tillögu flóttamannanefndar. Móttakan og aðstoð fyrsta árið er síðan samstarfsverkefni félags- og tryggingamálaráðuneytis, utanríkisráðuneytis, móttökusveitarfélags og Rauða kross Íslands. Flóttafólk til tíu sveitarfélaga SPÆNSKIR dagar verða haldnir í Kringlunni í dag og á morgun, 23. og 24. maí, á venjulegum opn- unartíma. Þar verða kynntar helstu nýjungar í spænskri ferðamennsku auk þess sem spænsk menning, tón- list og flamencodans verður áber- andi. Ferðamálaráð Spánar stendur fyrir kynningunni. Ásamt því að kynna það nýjasta sem Spánn hefur upp á að bjóða almennt er lögð áhersla á ellefu ferðamannastaði á Spáni. Þetta eru Katalónía, Barce- lona, Valencia, Murcia, Andalúsía, Madrid, Balear-eyjarnar, auk þess sem Kanaríeyjar eru kynntar í heild sinni með áherslu á Tenerife, Gran Canaria og Lanzarote. Spænskir dagar í Kringlunni NEMENDUR í FSu voru dugleg- astir allra framhaldsskólanema við að gefa blóð í söfnunarátaki Blóð- bankans sem heitir „Gefðu betur“. Verslunarskólinn var í öðru sæti og Menntaskólinn við Sund í því þriðja. Keppnin felst í því að starfsfólk Blóðbankans heimsækir fram- haldsskólana á blóðbankabílnum og safnar blóði. Nemendur FSu fengu afhentan farandbikar í við- urkenningarskyni frá Vodafone sem styrkir Blóðbankann í kynn- ingarmálum. Ólafur Helgi Kjartansson, for- maður Blóðgjafafélagsins, ávarp- aði nemendur við verðlaunaaf- hendinguna og þakkaði þeim veittan stuðning. Duglegir blóð- gjafar í FSu STUTT ÓTVÍRÆÐ merki eru um að farið sé að draga úr vexti eftirspurnar en hins vegar sjást enn ekki skýr merki um samdrátt á vinnumarkaði. Þetta kom fram í máli Davíðs Odds- sonar, formanns bankastjórnar Seðlabankans, er hann skýrði for- sendur fyrir þeirri ákvörðun banka- stjórnar að halda stýrivöxtum óbreyttum í 15,50%. Í kjölfar verulegrar lækkunar á gengi krónunnar á fyrstu þremur mánuðum ársins voru stýrivextir hækkaðir í tveimur áföngum um 1,75 prósentustig undir lok mars og snemma í apríl. „Sem vænta mátti leiddi gengislækkunin til þess að verðbólga jókst í apríl og hún gæti orðið meiri á næstu mánuðum en Seðlabankinn spáði í apríl sl. Aukinn innlendur kostnaður vegna geng- islækkunar, erlendra verðhækkana og hækkunar launa mun ráða miklu um þessa framvindu,“ sagði Davíð. „Í kjölfarið verða áhrif minnkandi framleiðsluspennu og eftirspurnar yfirsterkari og þá dregur úr þrýst- ingi á verðlag. Samkvæmt spá Seðlabankans sem birt var í Pen- ingamálum í apríl sl. dregst innlend eftirspurn verulega saman á næstu árum og húsnæðismarkaðurinn kólnar. Merki um hið síðarnefnda hafa skýrst frá því í byrjun apríl og nú virðist einnig ótvírætt að tekið sé að draga úr vexti eftirspurnar. Hins vegar sjást enn ekki skýr merki um samdrátt á vinnumarkaði.“ Mikilvægt að hemja verðbólgu Sagði Davíð það afar brýnt að aukin verðbólga til skamms tíma leiddi ekki til víxlbreytinga launa, verðlags og gengis. „Háum stýri- vöxtum og öðrum aðgerðum Seðla- bankans og annarra stjórnvalda, þ.m.t. aukin útgáfa ríkisbréfa, er ætlað að stuðla að stöðugleika á gjaldeyrismarkaði, sem er mikilvæg forsenda þess að böndum verði komið á verðbólgu og verðbólgu- væntingar. Gjaldmiðlaskiptasamn- ingar Seðlabanka Íslands við seðla- banka Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar höfðu jákvæð áhrif á fjár- málamarkaði en þeir leysa ekki all- an vanda sem við er að fást.“ Sagði formaður bankastjórnar seðlabankans að ekki yrði unnt að slaka á peningalegu aðhaldi fyrr en sýnt er að verðbólga sé á und- anhaldi, enda fátt mikilvægara fyrir efnahag heimila og fyrirtækja en að sú þróun hefjist og verði hnökralítil. Vaxtaákvarðanir bankastjórnar Seðlabankans taka mið af því, sagði hann. Að sögn Davíðs væri óráð að lækka vexti á næsta vaxtaákvörð- unarfundi bankans í júlí og á næst- unni en vonir standa til þess að vextir fari lækkandi samhliða und- anhaldi verðbólgunnar. En þrátt fyrir merki um að eftirspurn sé að dragast saman þá sé ýmislegt annað sem steðji að. Verðbólguáhyggjur séu ekki bara á Íslandi, heldur víðar í veröldinni. Til að mynda sé verð á olíu komið yfir 135 dali tunnan og í gær hafi Seðlabanki Bandaríkjanna gefið til kynna að stýrivextir yrðu ekki lækkaðir þar á næstunni, held- ur að vaxtalækkunarferlinu væri lokið þar að sinni. Davíð sagði að nú sæjust merki um að sú vantrú sem ríkt hefði í garð íslensku bankanna hefði gjör- breyst líkt og sæist á lækkandi skuldatryggingaálagi bankanna þriggja. Það leiddi vonandi til þess að þeir fengju aðgang að lánamörk- uðum þó svo það væri á verri kjör- um en áður. Um leið og þeir fengju tækifæri til að fjármagna sig myndi starfsemi þeirra verða á ný með eðlilegum hætti. Aðspurður sagði Davíð að ekki væri ástæða til þess að hvika frá spá bankans frá því í apríl um verulega lækkun á verði fasteigna en í henni kom fram að kólnun á húsnæð- ismarkaði hefði þegar komið fram í því að verðhækkun íbúðarhúsnæðis hefði u.þ.b. stöðvast, þrátt fyrir um- talsverða hækkun byggingarkostn- aðar, og velta minnkað hratt. Horf- ur væru á að lækkun ráðstöfunar- tekna, þrengingar á lánamörkuðum og aukið framboð íbúðarhúsnæðis leiddu til umtalsverðrar verðlækk- unar. Gert er ráð fyrir að húsnæðisverð lækki um u.þ.b. 30% að raunvirði til ársins 2010. Morgunblaðið/Frikki Óráð Davíð Oddsson sagði mikið óráð að búast við vaxtalækkunum á næsta vaxtaákvörðunarfundi Seðlabankans þann 3. júní næstkomandi. Merki um samdrátt í vexti eftirspurnar Bankastjórn Seðla- bankans heldur stýri- vöxtum óbreyttum í 15,50% og lækkunar- ferli hefst ekki fyrr en sýnt verður að verð- bólga sé á undanhaldi Í HNOTSKURN » Seðlabankinn hækkaði stýri-vexti sína síðast 10. apríl síð- astliðinn, úr 15,00% í 15,50%. » Bankinn hafði áður, 25.mars, hækkað vextina um 1,25% úr 13,75%. » Sú ákvörðun að halda stýri-vöxtum óbreyttum var að mestu í samræmi við spár inn- lendra greiningardeilda, að greiningu Glitnis frátalinni, en erlendir aðilar höfðu margir bú- ist við vaxtahækkun. VAXTAHÆKKUNARFERLI Seðla- bankans er lokið, ef marka má greiningardeildir Landsbanka og Kaupþings. Í Vegvísi Landsbankans segir að í stað vaxtahækkana verði áherslan lögð á aðrar aðgerðir, sem styðji við virkni núverandi vaxta- stigs, auk frekari styrkingar gjald- eyrisforðans. Þessu til stuðnings nefnir greiningardeild Landsbank- ans að á miðvikudag var greint frá útgáfu allt að 15 milljarða króna stuttra ríkisskuldabréfa, en í tilkynn- ingu frá Seðlabankanum segir að útgáfunni sé ætlað að mæta mikilli eftirspurn eftir bréfum. Á fundi Seðla- bankans í gær sagði formaður bankastjórnar, Davíð Oddsson, að til stæði að gefa út bréf að upphæð 10 milljarðar í viðbót, en það færi eftir viðbrögðum við fyrri útgáfunni. „Þetta er að okkar mati mikilvæg aðgerð sem hjálp- ar til við verðmyndun á skuldabréfamarkaði og greiðir fyrir virkni peningastefnunnar,“ segir í Vegvísinum. Í Hálffimm fréttum Kaupþings segir að á síðustu vik- um virðist hafa tekist að koma á meiri stöðugleika á gjaldeyrismark- aði jafnframt því sem kólnunar- einkenni séu augljós í hagkerfinu. Svo virðist sem Seðlabankinn muni einbeita sér að því að bæta selj- anleika á gjaldeyrismarkaði, enda sé það líklegasta leiðin til að skjóta stoðum undir krónuna. „Seðlabank- inn mun að okkar mati hefja vaxta- lækkunarferlið á seinni helmingi þessa árs. Líklegast er að fyrsta vaxtalækkunin verði í september eða nóv- ember, en tímasetningin mun velta á gengi krónunnar og því hversu hratt kólnunarmerki munu koma fram,“ segir í Hálffimm fréttum. Greiningardeild Glitnis segir að þrátt fyrir að verð- bólga mælist nú meiri en Seðlabankinn hafi gert ráð fyrir í nýlegri spá sinni sé líklegt að yfirstandandi verð- bólguskot sé fyrst og fremst til komið vegna geng- isáhrifa og muni þar af leiðandi verða skammvinnt og að verðbólga hjaðni hratt þegar líða tekur á seinni hluta ársins. Segja vaxtahækkunarferli Seðlabankans lokið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.