Morgunblaðið - 23.05.2008, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 17
MENNING
SKJÖL, handrit og ýmsir munir
sem tilheyrðu eitt sinn skáldinu og
súrrealistanum André Breton voru
seldir á uppboði
í París í fyrra-
dag fyrir 3,6
milljónir evra,
tæpar 418 millj-
ónir króna. Það
verðmætasta í
safninu er upp-
runalegt handrit
stefnuyfirlýs-
ingar súrreal-
istahreyfingarinnar, það eina sem
vitað er um. Söluverðið fór langt
umfram vonir uppboðshaldarans
Sotheby’s.
Alls voru níu handrit seld en
stefnuyfirlýsing súrrealistahreyf-
ingarinnar er 21 blaðsíða að lengd,
yfirlýsing sem skilgreindi í raun
nýja hreyfingu innan listar eða
listastefnu.
Þetta er í fyrsta sinn sem
stefnuyfirlýsingin og önnur skjöl
Breton eru seld úr dánarbúi Sim-
one Collinet, fyrstu eiginkonu
Breton en hún lést árið 1980. Bre-
ton lést 1966.
Stefnuyfir-
lýsing súr-
realista seld
Eigur André Breton
seldar á uppboði
André Breton
BRESKI tónlistarmaðurinn David
Bowie þverneitar því að hafa
leyft danska danshöfundinum
Peter Schaufuss
að nota tónlist
sína í danssýn-
ingu byggðri á
kvikmyndinni
The Man Who
Fell To Earth
frá 1976.
Breska dag-
blaðið Sun hélt
því fram fyrir
nokkrum dögum
að Bowie og Schaufuss ættu í
samstarfi um slíkan söngleik.
Plötufyrirtæki Bowies, RZO Mu-
sic, segir það af og frá, ekkert
slíkt sé í undirbúningi. Schaufuss
sagði hins vegar við fréttavef
BBC að hann hefði fengið að nota
tónlist Bowies í uppfærslu á
söngleik í Danmörku eða dans-
sýningu. Danshöfundurinn vonast
til þess að 15 lög Bowies verði
leikin í sýningunni. Bowie segir
þetta „algjört kjaftæði“ og hann
viti ekki einu sinni hver Schau-
fuss sé. Undarlegt mál í alla
staði.
Bowie neitar
samstarfi
David Bowie
HLJÓÐFÆRAHÚSIÐ, Síðu-
múla 20 efnir til kynningar á
nýútkomnu plötusafni með leik
Halldórs Haraldssonar píanó-
leikara í dag kl. 18. Portret er
yfirskrift safnsins en þar er um
þrjár plötur að ræða með yf-
irliti yfir feril Halldórs. Plöt-
urnar eru í vandaðri pappa-
öskju og fylgir veglegur 44
síðna bæklingur með fjölda
ljósmynda frá ferli Halldórs. Á
plötunum eru einleiksverk, kammerverk og kon-
sertar með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Allar upp-
tökurnar eru úr safni Ríkisútvarpsins. Á kynning-
unni í dag velur Halldór tóndæmi, útskýrir og
spilar. Allir hjartanlega velkomnir.
Tónlist
Halldór Haraldsson
í Hljóðfærahúsinu
Halldór
Haraldsson
NÍNA Lassila verður við Bæj-
arins bestu í dag frá kl. 12.30 til
16. Og hvað með það? Jú, Nína
Lassila er finnsk listakona sem
fremur gjörninga og býður
fólki í hlutverkaleiki á förnum
vegi. Nína spáir í kynja-
hlutverk, menningu, stjórnmál,
kukl, vísindi og ótrúlega margt
fleira. Nína breytir sér í gagn-
rýnanda sem hefur víðtæka
þekkingu, en tjáir sig mest um
sjónræna og pólitíska menningu; kryfur viðfangs-
efni sín frá öllum hugsanlegum sjónarhornum og
sogar áhorfandann á manískan hátt inn í atburða-
rás oftúlkunar. Það verður semsagt „gagnrýnand-
inn“, sem mætir við Bæjarins bestu í dag kl. 12.30.
List
Gagnrýnandi rýnir
við Bæjarins bestu
Bæjarins
beztu
HVAÐ er sjónræn mannfræði?
spyrja mannfræðingar á pall-
borði í Norræna húsinu á
morgun frá kl. 11-14. Með pall-
borðinu lýkur fyrirlestraröð
Mannfræðifélags Íslands í vet-
ur, en þema raðarainnar hefur
verið: frásögn, túlkun, tengsl.
29. maí til 1. júní heldur NAFA
(Nordic Anthropological Film
Association) alþjóðlega heim-
ildamyndahátíð og ráðstefnu
um mannfræðilegar kvikmyndir á Ísafirði. Pall-
borðið er undanfari þessarar ráðstefnu og er því
ætlað að gefa innsýn í fjölbreytileika þeirra við-
fangsefna sem sjónræn mannfræði fæst við. Krist-
inn Schram stýrir umræðum.
Hugvísindi
Hvað er sjónræn
mannfræði?
Kristinn
Schram
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
VATNASAFN, sem hýsir listaverk
bandarísku listakonunnar Roni
Horn, opnaði í Stykkishólmi fyrir
rúmu ári. Í Vatnasafni, sem er í
byggingu sem áður hýsti bókasafnið
í Stykkishólmi, er innsetning eftir
Horn, félagsmiðstöð fyrir bæjarbúa
og íbúð fyrir gestarithöfund. Árs-
afmælis Vatnasafns verður fagnað í
stofnuninni á laugardag og von er á
góðum gestum.
Stofnun Vatnasafns var umtals-
verð framkvæmd. Breska listastofn-
unin Artangel annaðist framkvæmd-
ina og fjármögnun verksins en
fjölmörg samtök, fyrirtæki, stofn-
anir og listamenn studdu verkið.
James Lingwood, framkvæmda-
stjóri Artangel, hefur lagt upp í ófá-
ar ferðirnar til Íslands og þegar
hann svaraði í símann í gær var
hann á flugvelli í London, á leið til
landsins. Hann sagði að það væri vel
við hæfi, þar sem mesti straumur
gesta væri í Vatnasafn á sumrin, að
halda upp á fyrsta árið með hálf-
gerðri enduropnun.
Með talsverðan segulkraft
„Þetta er hljóðlátt verkefni en
hefur engu að síður skapað áhuga-
verðan hávaða,“ segir Lingwood.
„Safnið virðist hafa talsverðan seg-
ulkraft. Fólk hefur heyrt um það og
vill upplifa það á staðnum. Eftir
þetta fyrsta ár gætum við ekki verið
ánægðari með útkomuna.“
Talsvert hefur verið fjallað um
Vatnasafn í erlendum listtímaritum
á liðnu ári. Lingwood segir von á um
fjörutíu erlendum listunnendum á
afmælisdagskrána. Hann ítrekar þó
að hún sé fyrir alla. „Fólk úr Stykk-
ishólmi er vitaskuld velkomið, rétt
eins og aðrir Íslendingar eða erlend-
is gestir. Vorið er góður tími til að
bregða sér til Stykkishólms.
Velgengni verkefnisins byggir á
ýmsu. Eitt af því er þátttaka rithöf-
undanna og þá er mikilvægt að sam-
félagið í bænum nýti sér húsið.“
Lingwood seg-
ir Artangel
styrkja dvöl rit-
höfunda í fimm
ár. Nú er banda-
ríski höfundurinn
Rebecca Solnit
með aðstöðu þar
og þá mun kan-
adíska skáldið
Anne Carson
dveljast þar í nokkra mánuði.
Lingwood segist vera spenntur
fyrir erindi Hélène Cixous. „Cixous
er talin einn af fremstu hugsuðum
samtímans. Hún kallar fyrirlest-
urinn Primal Waters og hann er
undir áhrifum frá Vatnasafni.“
Ársafmæli Vatnasafns með verkum Roni Horn fagnað í Stykkishólmi á laugardag
Gætum ekki verið ánægðari
Morgunblaðið/Einar Falur
Safnbyggingin „Þetta er hljóðlátt verkefni en hefur engu að síður skapað
áhugaverðan hávaða,“ segir Lingwood, framkvæmdastjóri Artangel.
James Lingwood Roni Horn Hélène Cixous
Á LAUGARDAGSKVÖLDIÐ verð-
ur dagskrá í Vatnasafni í Stykk-
ishólmi, sem hýsir verk bandarísku
listakonunnar Roni Horn. Tilefnið
er að fyrsta rekstrarári stofnunar-
innar er lokið. Breska listastofn-
unin Artangel, sem fjármagnar
safnið og starfsemina, býður til af-
mælisfagnaðarins.
Dagskráin hefst klukkan 17.30
með fyrirlestri franska rithöfund-
arins og heimspekingsins Hélène
Cixous. Þetta er í annað sinn sem
Cixous kemur opinberlega fram
hér á landi en árið 2000 hélt hún
fyrirlestur á vegum Rannsókn-
arstofu í kvenna- og kynjafræðum
við Háskóla Íslands.
Á síðustu árum hafa þær Horn og
Cixous unnið verk hvor um aðra.
Hélène Cixous hefur skrifað á
fjórða tug skáldsagna, um 20 leikrit
og fjölda fræðirita. Um 40 ára skeið
var hún náinn samstarfsmaður
heimspekingsins Jacques Derrida.
Eftir fyrirlestur Cixous, klukkan
18.30, verður móttaka og veitingar
í Vatnasafni fyrir gesti en klukkan
19.30 lesa þær Rebecca Solnit, Guð-
rún Eva Mínervudóttir og Anne
Carson úr verkum sínum. Guðrún
Eva hefur síðastliðið ár dvalið og
starfað í Vatnasafni, í boði Ar-
tangel, en Solnit, sem er kunnur
bandarískur verðlaunahöfundur
dvelur þar um þessar mundir. Kan-
adíska ljóðskáldið Carson mun
dvelja í Vatnasafni á næsta ári.
Dagskránni lýkur með tónleikum
Ólafar Arnalds í Vatnasafni og
hefjast þeir klukkan 22.00.
Dagskrá í
Vatnasafni
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
Í NÝJASTA tölublaði Skírnis
skrifa Viktor Smári Sæmundsson
forvörður og Sigurður Jakobsson
jarðfræðingur og efnafræðingur
grein sem þeir kalla Rannsóknir á
fölsuðum málverkum. Þeir unnu að
rannsóknum á málverkunum sem
ákært var vegna í hinu svokallaða
„Stóra málverkafölsunarmáli“ en
sakborningar voru sýknaðir í
Hæstarétti árið 2004 vegna van-
hæfis forvarðar Listasafns Íslands,
Viktors Smára, þar sem safnið var
aðili að málinu. Þeir Viktor Smári
og Sigurður gera hér í fyrsta sinn
á prenti grein fyrir aðferðum sín-
um og niðurstöðum.
Þeir sem sóttu ákæru voru sak-
aðir um skjalafals og fjársvik en
enginn var ákærður fyrir mál-
verkafalsanir. Í dómi Héraðsdóms
árið 1999 og Hæstaréttar sama ár
var dæmt vegna þriggja verka.
Fullsannað þótti að verkin væru
fölsuð og var ákærði dæmdur fyrir
skjalafals og fjársvik.
Síðari meðferð málsins var árin
2003 og 2004. Þá voru 35 verk fyrir
Héraðsdómi og þótti fullsannað að
30 þeirra væru fölsuð, þrjú senni-
lega eða líklega fölsuð og tvö verk
þótti ósannað að væru fölsuð. Dóm-
urinn féllst ekki á túlkun rannsak-
enda varðandi notkun alkýðbindi-
efnis í verkunum. Vildi dómurinn
miða við árið 1928, þegar efnið var
fundið upp á tilraunastofu, en ekki
árið 1968 eins og miðað var við í
rannsóknarniðurstöðunum. Þá var
byrjað að framleiða alkýðbindi- og
þurrefni fyrir olíuliti listmálara og
miðuðu rannsakendur við það ár-
tal.
Hættir störfum
eða látnir 1968
Í grein Viktors Smára og Sig-
urðar segir að bindiefnagreining
hafi leitt í ljós að hlutfall bindiefna
hafi verið mjög lágt og varla gat
því verið um húsamálningu að
ræða heldur frekar listmálaraliti.
„Af þessum niðurstöðum má draga
þá ályktun að falsanirnar hafi verið
gerðar árið 1968 eða síðar og jafn-
framt útilokað að listamaður sem
hættur var störfum … hefði málað
þá hluta verkanna sem reyndust
vera nýmálaðir. Allir þeir lista-
menn sem kærð verk voru eignuð,
að undanskildum Svavari Guðna-
syni og Þorvaldi Skúlasyni, voru
hættir störfum eða látnir árið
1968.“
Þar sem Listasafnið kærði vegna
þriggja verka, ákvað meirihluti
Hæstaréttar að vísa bæri öllum
rannsóknarniðurstöðum frá vegna
vanhæfis forvarðarins. Í dóms-
orðum segir þó að „telja megi að
nokkrar og í mörgum tilvikum
verulegar líkur hafi verið færðar
fram með þessu fyrir því að mynd-
verk, sem hér um ræðir, stafi ekki
frá þeim, sem þau hafa verið kennd
við …“
Minnihluti réttarins taldi að sak-
fella bæri fyrir skjalafals og tók af-
stöðu til allra mynda nema tveggja.
Falsanir gerðar eftir 1968
Fölsuð merking Til vinstri er nærmynd af áritun verks sem merkt var
Þorvaldi Skúlasyni, með upphafsstöfunum ÞS, ’37. Í útfjólubláu ljósi, þar
sem flett hefur verið af yngri málningu, sést eldri áritun, Paul S. ’37.
Rannsakendur í „Stóra málverkafölsunarmálinu“ tjá sig
♦♦♦