Morgunblaðið - 23.05.2008, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 21
AUSTURLAND
Egilsstaðir | Fyrir skömmu urðu
talverðar breytingar í rekstri Gall-
erís Bláskjás á Egilsstöðum. Ólafía
Einarsdóttir tók við rekstri Blá-
skjás úr höndum Svandísar Egils-
dóttur, sem undanfarin ár hefur
komið Bláskjá vel af stað sem list-
munagalleríi; sýningarsal og sölu-
miðstöð myndlistar, ekki síst aust-
firskrar. Ólafía hefur nú opnað
Bláskjá á jarðhæð Hótels Héraðs og
segir tenginguna við miðbæ Egils-
staða og gesti hótelsins ótvíræðan
kost. Nú standa yfir sýningar Veru
Sörensen og Þorvalds Jónssonar. Í
galleríinu verða verk margra lista-
manna af landinu öllu og er stefnt
að því að auka hlut handverks og
fata- og fylgihlutahönnunar. Í maí
er opið föstudaga og um helgar.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Ánægð Ágústa Björnsdóttir, Ólafía Einarsdóttir og Ingólfur Ö. Ingólfsson
Bláskjár lifir góðu
lífi á nýjum stað
Fljótsdalur | Hinn 18. maí sl., á fæð-
ingardegi Gunnars Gunnarssonar
skálds, kynnti Gunnarsstofnun nýtt
merki fyrir Skriðuklaustur. Merkinu
er ætlað að vera staðarmerki sem öll
starfsemi á staðnum kynnir sig und-
ir, s.s. Gunnarsstofnun, Skriðu-
klaustursrannsóknir og Klaustur-
kaffi.
Hönnuður merkisins er Zdenek
Patak, grafískur hönnuður frá Tékk-
landi, sem nú býr á Stöðvarfirði.
Merkið vísar í hina einstöku hlöðnu
veggi Gunnarhúss, en hefur jafn-
framt skírskotun í klausturrústirnar
sem grafnar hafa verið upp undan-
farin ár á Skriðuklaustri.
Við val á letri var horft til þess að
hafa staðarheitið með klassísku letri
og varð Clarendon, sem hannað var
1845, fyrir valinu. Til að leita jafn-
vægis og vísa til hinnar lifandi menn-
ingarstarfsemi sem nú er á staðnum
var valið 100 árum yngra letur, Uni-
vers, til að nota í undirheiti.
Merkið sjálft þykir mjög formfag-
urt og hefur sterka vísun í veggi
Gunnarshúss. Það getur staðið eitt
og sér og verður notað við minja-
gripaframleiðslu og við hvers kyns
kynningu á Skriðuklaustri í framtíð-
inni.
Nýtt merki fyrir
Skriðuklaustur
Ljósmynd/Gunnarsstofnun
Tákn Nýja merkið grípur augað á
fána við Skriðuklaustur.
Neskaupstaður | Dýrðardagur var
á Hofi í Norðfjarðarsveit nýlega
þegar nemendur í 9. bekk Nesskóla
buðu þorpurum og sveitungum sín-
um að heimsækja dýragarð, sem lið
í fjáröflun bekkjarins fyrir kom-
andi skólaferðalag. Þrátt fyrir
kalsaveður var margt um manninn
á Hofi þar sem hægt var að skoða
og klappa dýrum af ýmsu tagi. Vin-
sælt var að komast á hestbak og
taka smá hring á túninu, en eins og
jafnan vill verða voru það litlu
lömbin sem vöktu mesta aðdáun. Þá
gátu menn gætt sér á kaffi, kakói
og heimagerðu bakkelsi.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Ungviði Börnin föðmuðu að sér litlu lömbin.
Lítil lömb ómótstæðileg
Eftir Birki Fanndal Haraldsson
Mývatnssveit | Reykjahlíðarskóli
fékk nýlega afhentan grænfánann
sem er Alþjóðleg viðurkenning fyrir
umhverfisstefnu í skólum á öllum
stigum. Skólinn setti sér þetta mark-
mið fyrir nokkrum árum og hefur
markvisst verið unnið að framgangi
þess af áhugasömum nemendum og
starfsfólki.
Það var Ingólfur Ásgeir Jóhann-
esson, formaður SUNN, sem afhenti
fánann fyrir hönd Landverndar.
Umhverfisnefnd skólans tók við fán-
anum fyrir hönd skólans og dró fán-
ann að húni.
Viðstaddir athöfnina voru nem-
endur og starfsfólk skólans, en nem-
endur eru nær 70 talsins Foreldrar
og fjöldi annara gesta gerðu sér ferð
á athöfnina og var gaman að sjá hve
margir sáu sér fært að mæta og
gleðjast með nemendum eftir þenn-
an góða áfangasigur. Á sama tíma
var einnig sýning á verkum nemenda
í skólanum.
Fá umhverfisviðurkenningu
Morgunblaðið/BFH
Áfangi Fjöldi fólks var viðstaddur afhendingu grænfánans til Reykjahlíð-
arskóla. Umhverfisnefnd skólans tók við fánanum og dró að húni.
Eftir Ólaf Bernódusson
Skagaströnd | Húsfyllir var í Hóla-
neskirkju á styrktartónleikum til
styrktar Jóni Gunnari Einarssyni
frá Skagaströnd, sem slasaðist illa
fyrir nokkru er hann féll á mótó-
krosshjóli sínu. Það var fjölskylda
Jóns og vinir sem stóðu að tónleik-
unum þar sem fjölmargt tónlistar-
fólk frá Skagaströnd og nágrenni
kom fram. Voru flytjendurnir, sem
allir gáfu vinnu sína, á ýmsum aldri
eða allt frá sex ára til sjötugs.
Húsfyllir á styrktartón-
leikum í Hólaneskirkju
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Styrkur Inga, systir Jóns Gunnars Einarssonar, syngur lag um erfiðleika
bróður síns við undirleik tveggja gítarleikara frá Skagaströnd.
Fjallabyggð | Bæjarstjórn Fjalla-
byggðar samþykkti á hátíðarfundi
sínum í fyrradag gjafir til grunn-
skóla sveitarfélagsins í tilefni af 90
ára kaupstaðarafmæli Siglufjarðar
og 60 ára kaupstaðarafmæli Ólafs-
fjarðar.
Samþykkt var að veita grunn-
skólunum tveimur 5.000.000 kr.
hvorum að gjöf til kaupa á leik-
tækjum við skólana. Auk þess var
samþykkt að veita 1.000.000 kr. til
skráningar á skíðasögu Fjalla-
byggðar.
Níutíu ára kaupstaðarafmæli
Siglufjarðar var 20. maí. Næstkom-
andi laugardag verður afmælis-
hátíð fyrir bæjarbúa og gesti í til-
efni þess. Meðal annars verður
boðið til kaffisamsætis í Bíó-kaffi
þar sem hátíðardagskrá verður
milli kl. 15 og 18. Sýningar verða
opnar í grunn- og leikskólunum á
Siglufirði og söfnin opin ásamt
vinnustofum listamanna.
Grunnskól-
arnir fá leik-
tæki að gjöf
LANDIÐ
spar.is
Mundu mig – ég man þig