Morgunblaðið - 23.05.2008, Page 25

Morgunblaðið - 23.05.2008, Page 25
ferðalög MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 25 ● Do you want to study in Denmark? ● Do you want to study in Denmark in an international environment? ● Are you looking for a programme which gives you good job opportunities? ● Are you interested in Fashion Design? ● Are you looking for a short education at university level? Do as Kristin Holmgeirsdóttir and other young students. Every year The Academy of Southern Denmark in Søn- derborg welcomes students from Iceland. Come and join us! Sønderborg has an active ”Íslendingafélag”. Visit our website www.sdes.dk to read more about your future in Denmark. Do you want to study Fashion Design? Grundtvigs Allé 88 DK-6400 Sønderborg Tlf. +45 7412 4141 www.sdes.dk                                          !    "  #  $ #% &  ' $ (  "           ) )      *  +           ,       -  "     .       +       .% /%   -       0   (12'34,2(5&46 789 :;<< (1 2'=4,2(>?@<A1,B4>4     1&(>4C "   @D    @@ @E @F - kemur þér við Sérblað um sumarið fylgir blaðinu í dag Miðborgarstjórinn og skattaskuldirnar Hráa kjötið verður ekki flutt inn í sumar Kaffihúsið Mokka í hálfa öld Ungmenni í Garðabæ heilluð af Gospelsöng Gítarsúpa á Kaffibar- num milli Eurovision- keppna Hvað ætlar þú að lesa í dag? Þegar sumarið gengur í garðfara lóur á kreik og golfarar. Nóg hefur verið ort um lóuna í gegnum tíðina og nú hefur Kristján Hreinsson bætt úr tilfinnanlegum skorti á kveðskap um golfið. Til dæmis með hringhendunni: Ég fann mér glufu við fagran vog fékk að prufa golfið þá boltar klufu andrúm og einnig gufuhvolfið. Kristján lék golf með Karli og orti vísu eftir þá viðureign: Karl af miklum krafti slær kúlur sínar allar og fúll á svip hann finnur þær flestar utan vallar. Að gefnu tilefni tekur Kristján fram í inngangi að „ef einhver þykist sjá í kveðskap þessum tvíræðni, þá lýsir það innræti þess sem les en ekki þankagangi þess sem skrifar“. Dæmi nú hver fyrir sig. Þegar Kristján bað konu sem hann spilaði með í holli á Setbergsvelli að standa við fánann spurði hún: „Á ég að halda um stöngina?“ Nokkru síðar svaraði Kristján með vísu: Í mjúkri laut er mjög svo kátt þótt mikið sé nú patið. – Við stöngina þú styðja mátt er stýri ég í gatið. VÍSNAHORNIÐ Af golfi og mjúkri laut pebl@mbl.is Eftir Ólaf Guðstein Kristjánsson Eitt sinn þótti enginn ís-lenskur ferðalangur á er-lendri grund maður meðmönnum nema hann kæmi til baka til föðurlandsins klyfj- aður alls slags varningi. Íslendingar áttu það til að vera haldnir kaupæði, eins og sagt er, enda flest allt ódýr- ara en á Fróni og því ekki úr vegi að nýta tækifærið út í hörgul. Eitthvað hefir, að því er undirrit- uðum finnst, dregið úr kaupæði Ís- lendingsins í útlöndum, þótt vissu- lega eimi enn af. Allavega virðast innkaup ekki lengur númer eitt til tíu á listanum yfir það sem ber að gera í öðru loftslagi. Engu að síður skipa verslunarferðir ennþá virðing- arsess meðal ferðalanga. Fyrir íslenska áhugamenn um verslunarferðir er auðvitað af mörgu að taka í Berlín, enda borgin yfirfull af allslags áhugaverðum hönnunar- og „skranbúðum“, sem og verslun- um sem titla mætti sem öðruvísi, auk allra útimarkaðanna. Þrátt fyrir allt þetta eru nú flestir þannig inn- byggðir að þeir sækja helst í það sem þeir þekkja og í því samhengi er verslunargatan Kurfürstendamm í nágrenni við Zoologischer Bahnhof (brautarstöðin) viðeigandi, enda öll helstu merkin þar að finna þar. Ekki langt þar frá er annað gós- enland verslunaráhugamannsins: KaDeWe eða Das Kaufhaus des Westens. Um er að ræða stærstu verslunarmiðstöð á meginlandi Evr- ópu, sem oft er nefnd í sömu andrá og Harrods í Lundúnum og Gallerí Lafayette í París. Húsið hefir átta hæðir þar sem auðvitað má finna allt það sem hugurinn girnist fyrir lík- amann útvortis. Á sjöttu hæðinni er svo margt af því hnossgæti sem kitl- ar bragðlaukana hvað mest til kaups – er þá ekki verið að tala um schnit- zel og súrkál. Í KaDeWe er alltént allt milli himins og jarðar að fá. Ekki er þó verra að hafa budduna talsvert þykka áður en þangað er haldið. Þess fyrir utan er byggingin sem slík auðvitað merkileg og hægt að fara bara til að skoða. Í fyrra fagnaði hún svo eitthundrað ára afmæli sínu, þannig að þessi verslunarmiðstöð er ansi nálægt því að vera stofnun í borginni. Verslunin Öll þekktustu vörumerkin í snyrtivörum sem og öðru er að finna innan veggja KaDeWe. Kauphús vestursins í Berlín KaDeWe er staðsett við Tauent- zienstr. 21-24 og er næsta braut- arstöð Wittenbergplatz þar sem U2 og U1og U3 stoppa. http://www.kadewe-berlin.de Inngangur Húsið hefir átta hæðir þar sem finna má allt mögulegt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.