Morgunblaðið - 23.05.2008, Page 28

Morgunblaðið - 23.05.2008, Page 28
28 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN NÚ HAFA niður- stöður úr Munnís rann- sókninni legið fyrir um nokkurt skeið. Þessi vandaða rannsókn var unnin á vegum Lýð- heilsustöðvar og heil- brigðisráðuneytisins. Niðurstöður rannsókn- arinnar staðfesta þann illa grun og tilfinningu, sem læðst hefur að íslenskum tann- læknum á síðustu árum. Tannheilsu barna á Íslandi fer hrakandi. Hvernig má það vera? Við sem höf- um á síðustu árum lifað á tímum mik- ils uppgangs og hagvaxtar. Hvernig í ósköpunum getur þá staðið á því að við í þessu velsældarríki getum ekki séð til þess að viðhalda góðri tann- heilsu barna okkar? Þetta er okkur til háborinnar skammar. Að stuðla og vinna að góðri tann- heilsu er ekki svo flókið verkefni. Ástæður tannskemmda eru vel þekktar. Langflestir ef ekki allir vita að neysla sykurs og sykurríkra mat- væla, s.s. gosdrykkja, er slæm fyrir tennurnar. Ennfremur vita nánast allir að reglulegar heimsóknir til tannlækna og forvarnir skila sér. Þetta hafa óteljandi rannsóknir sýnt fram á. Samt er eins og forsvars- mönnum þjóðarinnar sé gjörsamlega ókunnugt um þetta. Eins furðulegt og það kann að virðast. Sjórnvöld lækka álögur á sykur og gosdrykki! Meðal þess sem nefna má í þessu samhengi er að stjórnvöld sam- þykktu frumvarp, þar sem álögur á gosdrykkir og sykur voru lækkaðar, þrátt fyrir mótbárur Lýðheilsustöðv- ar og tannlækna. Þetta hlýtur að stuðla frekar að aukinni neyslu en minni. Það sér hvert mannsbarn. Stjórnvöld hafa ennfremur minnk- að fjárframlög til tannlækninga um- talsvert á síðustu árum. Það kemur meðal annars fram í minni heimtum barna til tannlækna. 20% íslenskra barna undir 18 ára aldri komu ekki til tannlæknis á síðasta ári. Við hvern er að sakast? Foreldra og/ eða stjórnvöld? Skóla- tannlækningar voru lagðar niður og ábyrgð foreldra því aukin. Það er í dag alfarið í hönd- um foreldra að sjá til þess að börn þeirra fari í reglulegt eftirlit til tannlæknis. Tannlæknafélag Ís- lands hefur lýst yfir miklum áhyggjum af gangi mála. Fyrir skömmu bauð félagið til fundar ýmsum þing- mönnum, ráðherrum og öðrum, þar sem fjalla átti um stöðuna. Skemmst er frá því að segja, að sárafáir mættu. Þetta lýsir best áhugaleysinu á þess- um málum hjá ráðamönnum þjóð- félagsins. Tryggingastofnun ríkisins end- urgreiðir 75% af svokallaðri ráð- herragjaldskrá, sem hefur ekki verið hækkuð síðan 2004. Þessi gjaldskrá er í hróplegu ósamræmi við almennar hækkanir og raunverulegan kostnað við tannlækningar. Þess vegna er þessi endurgreiðsla í besta falli um 40-50% af útlögðum kostnaði heim- ilanna vegna tannlækninga barna. Á árunum 1998-2007 hækkaði ofan- greind gjaldskrá um 27%. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 61% og launavísitalan um 123%. Á þessu sama níu ára tímabili hækkuðu útgjöld ríkisins vegna ann- arrar heilbrigðisþjónustu um 57% miðað við verðlag í mars 2007. Tannskemmdum fækkaði um 75% á 12 árum Ekki eru nema 9 ár síðan und- irrituð skrifaði grein í Morgunblaðið, þar sem hún fagnaði hversu vel hafði tekist til við að bæta tannheilsu barna á Íslandi. Þá hafði tekist á ótrúlega skömmum tíma, að skipa okkur í hóp með öðrum norrænum þjóðum hvað tannskemmdir varðar. Við höfðum áður átt heimsmet í tíðni tann- skemmda, en höfðum með sam- stilltum aðgerðum náð því á aðeins 12 árum að komast í hóp þeirra þjóða, sem hvað best standa sig í þessum efnum. Við hljótum öll að vilja til- heyra þeim hópi áfram. Til þess þurfa stjórnvöld að koma að málinu með verulega auknum framlögum bæði til forvarna og tannlækninga. Við getum þetta. Það hefur sagan kennt okkur. Verkefnið tekur aldrei enda. Þetta er verkefni sem þarf stöðugt að vinna í og endurskoða. Tryggja þarf komu allra barna í eftirlit, a.m.k. einu sinni á ári og meðferð ef þörf er á. Það má ekki líðast í íslensku velferðarþjóð- félagi að foreldrar þurfi að veigra sér við því að fara með börn sín til tann- læknis vegna takmarkaðrar endur- greiðslu hins opinbera. Aldur barns- ins á ekki heldur að skipta máli. Öll börn ættu að njóta sama réttar. Samkvæmt barnasáttmála Sam- einuðu þjóðanna, sem Ísland er aðili að, er í 24. grein viðurkenndur réttur barns til að njóta besta heilsufars, sem hægt er að tryggja. Í öðrum lið þessarar sömu greinar sáttmálans er kveðið á um að tryggja skuli öllum börnum nauðsynlega læknisaðstoð og heilbrigðisþjónustu. Er það gert þeg- ar litið er til tannheilsu íslenskra barna? Ég held ekki. Það er mitt álit að öll börn á Íslandi eigi rétt á að fara út í lífið með heilbrigðar tennur. Óháð efnahag og aðstæðum. Það er okkar fullorðna fólksins að tryggja að svo verði. Kalla á efndir kosningaloforða Fyrir síðustu kosningar vantaði ekki stóru loforðin. Allir flokkar voru með það á stefnuskrám sínum, að bæta tann- og munnheilsu landans. Einkum þó barna og unglinga. Ég kalla á efndir loforðanna og að stjórn- völd vakni af dvalanum. Það er ekki nóg að opna augun fyrir vandanum rétt fyrir kosningar og stinga svo hausnum í sandinn þess á milli. Engin kreppa hjá Karíusi og Baktusi Kristín Gígja Einarsdóttir skrifar um tannheilsu barna »Niðurstöður Munnís rannsóknarinnar sýna fram á að tann- heilsu íslenskra barna fer hrakandi. Sjórnvöld þurfa að bregðast við þessum vanda. Kristín Gígja Einarsdóttir Höfundur er tannlæknir og stjórnarmaður í stjórn Tannlæknafélags Íslands. ýmsu öðru tagi. Ég vissi hann heldur aldrei svo fátækan að hann synjaði vesælum manni á förnum vegi um glaðlegt viðmót, jafnvel ekki eftir að hann kenndi banameins síns sem hann reyndi að leyna eftir mætti. Enginn var svo aumur, drukkinn eða ódrukkinn, að Jón ætti ekki jafnan handa honum nokkur hressileg orð og tíkall, ef um var beðið. Hann sparaði ekki heldur gamanið handa vinkonum sínum og vinum – og hann sparaði svo sannarlega ekki vini sína, ef hann taldi sig þurfa að beita þeim fyrir vagn sinn langan veg eða skamman. Og við því var hreint ekk- ert að gera. Hófsemi í þessum efnum var Jóni víðsfjarri. Hann vissi vel hvers virði hann var og það sem hann hafði á boðstólum og vildi fá eitthvað fyrir sinn snúð og engar refjar, eins og góðum kaupmanni sæmir. Þeir sem voru svo tómir í kollinum að skilja ekki þetta einfalda lögmál, fengu skilmerkilegan reisu- passa út í kuldann ásamt skeyti – og áttu ekki afturkvæmt nema gegn af- arkostum og dýrum gjöfum. Mál- arinn var sem sé sjálfum sér sam- kvæmur út í æsar. Til þessara eðliseiginda hans má m.a. rekja verðleika þúsunda mynda sem dreifðar eru um allar jarðir fólki til yndis og ánægju. Þannig kemur allt heim og saman, ef í sauminn er skoð- að. Jón kunni vel að umgangast höfð- ingja, sem svo eru kallaðir. Suma mat hann fyrir annað og meira en peninga, menningarlega víðsýni, þótt slíkir hafi af skiljanlegum ástæðum einkum verið af útlendu bergi brotnir. Aðra af þessari stétt mat hann einskis, en hann skreytti sig með þeim af því að hann þekkti mennina og heiminn, þeir keyptu líka myndir af honum. Annað gekk honum ekki til; viðmót hans gagn- vart vesalingum tók af öll tvímæli um það. Hann hafði gaman af öllu til- standi, leiksýningum, samkvæmum – og laglegum konum sem kunnu að snyrta sig og klæða, einkum sæmi- lega greindum leikkonum, ef hann gat orkað á þær og þær á hann, en það var engin alvara á bak við það, þótt svo virtist á yfirborðinu, hann hafði gaman af sviðsetningu. Hann sótti orku í návist þessa kvenfólks – hlóð sig – konan var honum tákn- mynd guðdómsins og moldarinnar. Þegar gestirnir voru farnir fór hann hljóðlátur með orkuna uppí vinnu- stofuna, þar sem hann hvorki hló né gerði að gamni sínu. Þar var hann einn með guði sínum og gerði ör- væntingarfullar tilraunir til að skapa í skini lampanna, fársjúkur maður síðasta árið – feigur – og vissi það. Það er ekki allt sem sýnist. Jón var með eindæmum vel máli farinn, röddin hljómmikil og styrk og málfarið kröftugt, meitlað, blóð- mikið, myndríkt með afbrigðum, svo sem við var að búast í fari manns með ríka skapsmuni og háþróaða sjóngáfu, enda beitti hann samlík- ingum af fágætum fimleik, þannig að hann kom stundum ótrúlegu efn- ismagni fyrir í einni slíkri. Af sjálfu leiddi að hann sagði allra manna best frá meðan hann hélt kröftum sínum óskertum. Hversdagslegasta smælki sem rak á fjörur hans varð að stór- munum þegar hann hafði vélt þar um. Fréttir úr bæjarlífinu sem ég sagði honum stundum voru orðnar óþekkjanlegar í endursögn hans nokkrum dögum síðar, allir höf- uðdrættir skerptir og breikkaðir, allt hitt farið, nema örfáir fínir drættir sem bundu myndina saman. Hann skeytti því engu þótt ég heyrði til, hann var búinn að setja sitt vöru- merki á rekaviðinn og hló allsendis purkunarlaus. Ég gætti þess líka að leiðrétta hann aldrei. Hann virti út í æsar rétt annarra til að fara sínum höndum um efnið. Hann skipti sér ekkert af efnistökum mínum á end- urminningum hans, hvernig ég felldi niður, skeytti á ný, umorðaði, alveg á sama hátt og hann var einráður við myndirnar sem hann var að mála meðan hann mælti fram minning- arnar. Hann fékk aldrei að vita um örvæntinguna sem ég varð stundum gripinn þegar ég leit upp úr minni listgrein á hans – myndirnar sem hann var að mála og sneri baki við mér. Hann fékk heldur ekki að vita hve ég hataði hann stundum þegar hann var að gera úttekt á íslenska þjóðfélaginu, hlaðinn orku manns sem er að skapa og hefur boðið út öllum kröftum sínum stund úr degi. Hann trúði því ekki að þetta veiði- mannaþjóðfélag ætti framtíð fyrir sér sem menningarríki sem mark væri á takandi, að það léti nokkru sinni aftur heillast af öðrum mark- miðum en fjármunalegum og efnis- legum, að það myndi nokkurn tíma unna listamönnum sínum skilyrða til að skapa list handa sér og heiminum. Hann hafði ekki einu sinni trú á sósí- alismanum til þess og hélt þó tryggð við hann alla tíð, hvernig svo sem á því flotmagni hefur staðið. Hann taldi þjóðina og Alþingi hafa orðið því ómerkara sem lengra leið á öld- ina, að sama skapi menningarfjand- samlegra sem úr meiru var að spila. Hann tíndi til dæmi á dæmi ofan úr samtímanum – uns úr varð fjall. Ég trúði honum ekki – ekki þá. Síðan eru liðin ellefu ár, það er ekki langur tími, en fjallið er enn á sínum stað – og hefur hækkað. Ég skil hann betur núna. Hann átti alla ævi við fjár- hagserfiðleika að stríða; þó fór hann sparlega með fé og vel með muni. Húsið var alltaf í hættu, þakið yfir vinnustofu hans. Ótrygg fjárhags- afkoma átti drjúgan þátt í að eyði- leggja heilsu hans, stytta líf hans. Þegar hann hafði nokkurt fé umleik- is og sá fram á nokkurra mánaða áhyggjuleysi, vann hann eins og ber- serkur; hann var kominn á ról klukk- an fimm á morgnana og sú lota stóð stundum mánuðum saman við mein- læti sem sómt hefðu heilögum manni. Þegar féð þraut hvarf honum öll vinnugleði og alvarlegt þunglyndi sótti að honum. Hann lauk svo æv- inni að hafa ekki búið við venjulegt borgaralegt öryggi lengur en níu mánuði af nálega hálfrar aldar lista- mannsferli, þá níu mánuði sem hann naut starfslauna. Hann bað um aðra níu mánuði til að geta lokið við síð- asta stórvirkið, kannski það mesta að umfangi, flokk hundrað og tutt- ugu smámynda byggðra á lífi sínu frá bernsku til elli. Honum var synj- að. Hann langaði líka til að heyra Hús málarans flutt í útvarp áður en hann dæi. Ég kom því á framfæri við einn af dagskrárstjórum útvarpsins. Ég fékk þessu ekki framgengt, ekki þá. Nú er hann allur, saddur lífdaga meðal vor. Nú þegar lygnir kringum hann mun koma á daginn, hvílíkur listamaður hér var á ferð. Hann var það fram í fingurgóma – alveg þang- að til yfir lauk. Að banabeði hans kom gamall vinur sem tekið hafði ljósmyndir af honum af merkum til- efnum á æviskeiði hans; hann var með myndavélina með sér. Varir listamannsins bærðust ekki, en úr rólegum augunum sem hvíldu á myndavélinni mátti lesa samþykki. Svo lyfti hann af veikum mætti hendinni í kveðjuskyni. Það var síð- asta verk hans að taka konu sína í fangið og þakka henni fyrir allt – og gaf svo upp andann í líknsömum faðmi hennar. Hún unni honum og honum einum alla tíð – eins og ást- fangin stúlka ann manni. Það er til vitnis um sjálfa persónu Jóns Eng- ilberts. Þegar hljóðfæraslátturinn þagnar og tjaldið fellur í Fossvogskapellu í dag, höfum við kvatt hinstu kveðju mikla manneskju og mikinn lista- mann. Verkin sem hann skilur eftir sig munu um aldur og ævi vitna um einstaka náðargáfu meðal örsmárrar þjóðar. Enginn sem kynntist Jóni Eng- ilberts að marki mun nokkru sinni gleyma honum. Jóhannes Helgi, rithöfundur (1972).“ Jón Engilberts – Aldarminning STAÐA Fríkirkjusafnaðarins í Hafnarfirði hefur verið að breytast mikið á síðustu árum og þar ræður mestu mikil fjölgun safnaðarfólks. Fríkirkjusöfnuðurinn í Hafnarfirði er ekki lengur lítill söfnuður heldur er hann orðinn einn af stærri söfn- uðum landsins með á sjötta þúsund skráðra einstaklinga. Fjölgunin hef- ur lengi verið mjög jöfn, um hundr- að og fimmtíu manns á ári sem skrá sig í söfnuðinn. Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra ræddi fyrir jól- in um stöðu trúfélaga á heimasíðu sinni og vakti athygli hans þessi mikla fjölgun í söfnuðinum en Björn sagði.: „Athyglisvert er að sjá mikla fjölgun í Fríkirkjunni í Hafnarfirði úr 1.676 1980 í 5.024 2007.“ Það segir allt um núverandi stöðu safnaðarins að skírnarathafnir á síðasta ári voru um 150 og í vetur hafa tæplega 140 unglingar tekið þátt í fermingarstarfi kirkjunnar sem er um þriðjungur unglinga á fermingaraldri í Hafnarfirði. Ástæðan fyrir því að við vekjum athygli á þessari breyttu stöðu safnaðarins er sú að um leið og gerðar eru sömu kröfur til okkar safnaðar og þjóðkirkjusafnaðanna þá þarf söfnuður okkar að búa við það óréttlæti að ríkisvaldið metur meir þjónustu þjóðkirkjunnar við sitt fólk en okkar þjónustu við okk- ar fólk. Hér eigum við við sókn- argjöldin sem ríkisivaldið greiðir með hverjum einstaklingi. Ef mað- ur er skráður í þjóðkirkjuna þá borgar ríkisvaldið nærri 20% við- bótargjald í svokallaðan Jöfn- unarsjóð kirkna. Fríkirkjur eða aðrir söfnuðir eiga engan aðgang að þeim sjóði. Það skondna er því það að ríkisvaldið sparar útgjöld með hverjum einstaklingi sem gengur úr Þjóð- kirkjunni í fríkirkjur, vegna þess að með- lagið er jú lægra með fríkirkjufólki. Með það í huga að þriðjungur Hafnfirð- inga sækir sína kirkjulegu þjónustu í fríkirkjusöfnuð er ljóst að Hafnfirð- ingar eru að spara ríkisvaldinu nokkur útgjöld. Stóra spurningin snýst hins vegar ekki um fjármál heldur réttlæti þegar svo er komið að Fríkirkjusöfnuður er kominn slíka stöðu í einu stærsta bæj- arfélagi landsins. Með þessum skrifum viljum við hvetja Alþingi Íslendinga til þess að leiðrétta lögin um sóknargjöld hvað þetta varðar. Hér er um fremur lítil viðbótarútgjöld að ræða fyrir ríkið en munar talsvert um þau fyrir trú- félögin í landinu sem sinna marg- víslegri þjónustu í þágu samfélags- ins alls. Breytt staða Fríkirkjunnar í Hafnarfirði Einar Eyjólfsson og Sigríður Kristín Helgadóttir skrifa um lög um sóknargjöld Sigríður Kristín Helgadóttir og Einar Eyjólfsson »… ríkisvaldið sparar útgjöld með hverj- um einstaklingi sem gengur úr þjóðkirkjunni í fríkirkjur. Höfundar eru prestar Fríkirkjunnar í Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.