Morgunblaðið - 23.05.2008, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 31
✝ Baldur Ólafs-son fæddist á
Ísafirði 2. mars
1946. Hann lést á
Sjúkrahúsi Akra-
ness 16. maí síðast-
liðinn.
Foreldrar hans
voru Ólafur Magn-
ússon f. 7.10. 1902,
d. 25.11. 1995, og
Ragna Majasdóttir
f. 6.11. 1911, d.
26.3. 2006. Bræður
Baldurs eru Bragi
f. 13.8. 1938, Barði
f. 16.12. 1944 og Birgir f. 1.9.
1947.
Baldur kvæntist 25.12. 1966
Fríðu Sigurðardóttur, f. 26.3.
1945. Þau skildu. Börn þeirra eru
Guðrún Elísabet, maki Árni Pét-
ur Jónsson, Arndís, maki Gylfi
spila í Lúðrasveit Ísafjarðar og
síðar með ballhljómsveitum á
Ísafirði um árabil.
Sem ungur maður starfaði
Baldur m.a. í slippnum með föð-
ur sínum og hjá Kaupfélagi Ís-
firðinga. Hann hóf störf hjá
Landsbankanum á Ísafirði haust-
ið 1972. Fljótlega var hann ráð-
inn sem aðstoðarfulltrúi, síðan
skrifstofustjóri og síðar stað-
gengill og aðstoðarmaður svæð-
isstjóra. Árið 1998 flutti hann sig
um set og hóf störf í Landsbank-
anum á Akranesi og vann þar
uns hann lét af störfum í nóv-
ember 2006. Samhliða störfum í
Landsbankanum gegndi hann
starfi gjaldkera í sóknarnefnd
Ísafjarðarkirkju um árabil.
Haustið 2007 hóf Baldur und-
irbúningsnám í tækniteiknun og
lagði stund á það nám fram á síð-
asta dag.
Útför Baldurs fer fram frá
Akraneskirkju í dag, 23. maí, og
hefst athöfnin kl. 14.
Sigurðsson og Stef-
án Freyr, maki Sig-
ríður Guðjónsdóttir.
Kona Baldurs frá
1993 er Herdís
Viggósdóttir f. 23.6.
1945, frá Rauðanesi,
dóttir hjónanna Vig-
gós Jónssonar og
Ingveldar Guðjóns-
dóttur. Baldur og
Herdís hófu búskap
19.6. 1993 á Stakka-
nesi 12 á Ísafirði og
fluttu búferlum til
Akraness árið 1998
og hafa búið þar síðan. Synir
Herdísar af fyrra hjónabandi eru
Jón Viggó, Ingvi og Sigurður.
Barnabörn Baldurs og Her-
dísar eru samtals fjórtán.
Tónlistin var ríkur þáttur í lífi
Baldurs. Byrjaði hann ungur að
Við bræðurnir höfum þekkt Bald-
ur nánast alla okkar ævi. Hann var
einn af pöbbunum á Urðarveginum
þar sem við ólumst upp og við þekkt-
um hann sem slíkan. Það var hins
vegar ekki fyrr en með Baldri og
mömmu tókust nánari kynni og þau
fóru að búa saman fyrir um 15 árum
að við virkilega kynnumst honum
fyrir alvöru. Baldur var í okkar huga
alveg einstaklega traustur og blíður
maður. Það var auðsætt að með hon-
um og mömmu voru miklir kærleik-
ar. Að sjá hve mamma var hamingju-
söm með Baldri veitti okkur mikla
ánægju sem sannfærði okkur enn
frekar um hve góður maður hann
var. Hann átti stóran sess í lífi okkar
og fjölskyldna.
Baldur var einstaklega laginn í
öllu sem hann tók sér fyrir hendur
eins og sumarbústaðurinn sem hann
og mamma byggðu sér í Skorradal
ber merki. Jafn vandaður sumarbú-
staður er vandfundinn. Baldur hefur
reynst okkur einstaklega vel og hef-
ur alltaf verið mjög hjálpsamur,
hvort sem það var í húsbyggingum
eða öðrum verkum þar sem hann var
alltaf tilbúinn að bjóða fram aðstoð
sína. Helst vildi hann fá verkefni sem
hann leysti alfarið sjálfur því þá
komst hann í stuð og verkið tafðist
ekki vegna slælegra vinnubragða
samverkamannanna. Allt lék í hönd-
unum á honum hvort sem um var að
ræða rafmagn, smíði eða laufa-
brauðsgerð.
Baldri var umhugað að skila af sér
góðu verki og þótt líf hans hafi orðið
styttra en vænta mátti þá skilaði
hann sínu til mömmu og sinna nán-
ustu með mikilli yfirvegun og alúð.
Brotthvarf Baldurs bar skyndilega
að og enginn gat séð fyrir hvernig
fór. Hann skilur eftir sig stórt skarð
en sem betur fer eigum við margar
kærar minningar sem hjálpa okkur
að fylla í skarðið.
Jón Viggó, Ingvi
og Sigurður.
Elsku, elsku besti afi Baldur.
Þetta er svo sárt, óskiljanlegt, svo
óréttlátt, að við fengum ekki að hafa
þig lengur hjá okkur.
Þú varst alltaf svo góður og
skemmtilegur við okkur, líka svo
traustur. Það var svo dásamlegt að
hlusta á þig spila á gítarinn, þú varst
svo flinkur. Við vitum að mamma á
eftir að sakna þess að heyra þig
spila. Fjöruferðir niður á sand, sum-
arbústaðurinn, fossinn, Selvíkin, litla
tjörnin fyrir framan húsið á Esju-
brautinni, hvernig þú kenndir Alex-
ander að halda á banana, kexið sem
við köllum alltaf Afa-Baldurs kex,
hvað þú flautaðir skemmtilega. Allt
þetta er nú orðið að svo ómetanleg-
um fjársjóði, litlu hlutirnir orðnir svo
stórir.
Við náðum að gera margt saman
en áttum eftir að gera svo miklu,
miklu fleira. Það hefur greinilega
vantað besta engilinn, einhvern mjög
músíkalskan, fyrst Guð vildi fá þig.
Elsku afi Baldur, takk fyrir að
vera afi okkar, takk fyrir að vera þú,
takk fyrir allt. Það eru forréttindi að
hafa átt þig fyrir afa. Við vildum að
við hefðum fengið að hafa þig svo
miklu lengur hjá okkur.
Við elskum þig óendanlega mikið.
Guð geymi þig.
Þín afabörn,
Hildur Elísabet, Daníel Orri og
Alexander Aron Árnabörn.
Það verður skrítið að koma til
ömmu þegar Baldur er farinn. Þótt
við hefðum ekki kallað hann afa var
hann samt eins og afi okkar. Hann
var skemmtilegur og hress. Við syst-
urnar fórum oft í sund með ömmu og
Baldri og líka upp í sumarbústað
sem var alltaf mjög gaman. Þegar
við gistum heima hjá ömmu og
Baldri þá fengum við oftast að fara
upp í rúm til ömmu og Baldurs þegar
amma las fyrir okkur sögur en núna
er plássið hans autt.
Við þökkum fyrir að hafa fengið að
kynnast Baldri og fá að eyða tíma
með honum. Baldur var mjög góður
við okkur, við elskuðum hann allar
mjög mikið. Hann Baldur var góður
maður. Við söknum hans mjög mikið.
Ingveldur Birna, Embla Katrín
og Sesselja Malín
Við ólumst upp í tveggja íbúða
húsi við Túngötu 5 þar sem þunnt
timburþilið aðskildi íbúðirnar tvær í
suður og norðurenda, við vorum
fimm systkinin öðrum megin og þeir
fjórir bræðurnir hinum megin. Aldr-
ei man ég samt eftir að það hafi verið
kvartað um hávaða eða ónæði. Feður
okkar unnu báðir í slippnum á Torf-
nesi og mæður okkar í rækjunni hjá
Böðvari og var Torfnesið og slipp-
urinn því leiksvæði okkar ásamt fjör-
unni og hlíðinni fyrir ofan bæinn.
Lífið var miklu einfaldara á þessum
árum en það er nú, og ekki verið að
skjótast á milli landshluta sí og æ,
hvað þá að ferðast til útlanda. Ísa-
fjörður var stórborg á þessum árum
og hafði upp á allt að bjóða sem
hugsast gat fyrir ungar fjölskyldur.
Sjúkrahústúnið og knattspyrnuvöll-
urinn við Grund voru iðandi af lífi frá
morgni til kvölds af Túngötupúkum,
Hlíðarvegspúkum, Krókspúkum og
öðrum púkum sem spörkuðu á milli
sín bolta með tilheyrandi ærslum.
Og þegar götur voru orðnar þurrar á
vorin var farið í kíló og þá komu allir
kallarnir í götunni út og léku sér með
okkur eins og börn.
Þessar minningar frá æskuárun-
um leita á hugann nú þegar ég minn-
ist vinar míns og nágranna í æsku
Baldurs Ólafssonar sem lést 16. maí
sl. Tíminn líður ótrúlega hratt. Mér
finnst svo stutt liðið frá æskuárunum
og við tiltölulega ungir. Þess vegna
kom fréttin af andláti hans yfir mig
sem reiðarslag.Við Baldur áttum
samleið í mörgu á okkar yngri árum,
vorum saman í sveit hjá frænda hans
Guðmundi Majassyni og ömmu Guð-
rúnu að Ytri Veðrará í Önundarfirði
þeim fagra stað. Þá unnum við í
slippnum hjá Egga, þar sem við vor-
um öllum hnútum kunnugir. Einnig
vorum við félagar í hljómsveitum hér
á Ísafirði, fyrst í VV og Barði sem
svo seinna hét Blossar og Barði þar
sem við létum mynda okkur á gamla
slökkviliðsbílnum í hvítum jökkum
og rauðum buxum með hjálma á
höfði, eins og sannir brunaliðsmenn.
Þá lékum við saman um tíma með
B.G. og Ingibjörgu. Lengst af spilaði
hann þó í hljómsveitum með Villa
Valla, seinast í tríóinu Villi, Gunnar
og Baldur sem var húshljómsveit í
Gútto um árabil.
Baldur var þessi fullkomni félagi
sem allir sóttust eftir að hafa í hljóm-
sveit. Gat spilað á gítarinn og sungið
samtímis, góður að radda, lærði alla
texta og öll lög utanað, var sam-
viskusamur, glaðvær og reglusamur.
Raddir þeirra bræðra Baldurs og
Barða lágu vel saman og er mörgum
minnisstætt er þeir sungu „True
love ways“ af mikilli list. Því miður
var lítið sem ekkert hljóðritað með
þeim bræðrum, sem hefði verið full
ástæða til. Ég veit að Baldur fær
góða heimkomu og dvelur nú fyrir
handan þilið, rétt eins og í Túngöt-
unni forðum. Ég vil þakka honum
samfylgdina og votta aðstandendum
hans mína dýpstu samúð.
Samúel.
Með örfáum orðum langar okkur
til að minnast fyrrverandi sam-
starfsmanns okkar; Baldurs Ólafs-
sonar. Baldur starfaði hjá okkur í
Landsbankanum á Akranesi í 11 ár
eða þar til hann ákvað að hætta fyrir
tveimur árum, þá sextugur að aldri
og búinn að vinna sér inn öll réttindi
til þess að fara á eftirlaun. Áður en
Baldur kom á Akranes hafði hann
unnið lengst af hjá Landsbankanum
á Ísafirði.
Það var okkur mikið reiðarslag
þegar við fréttum af ótímabæru and-
láti Baldurs. Hann kom reglulega í
heimsókn í bankann og var alltaf
hress og ekkert virtist ama að. Hann
hafði mikið fyrir stafni og var að
hjálpa dóttur sinni og tengdasyni við
húsbyggingu á Akranesi síðustu vik-
urnar. Baldur var einstaklega fjöl-
hæfur maður. Hann hreinlega gat og
kunni allt. Snillingur í tölvum. Hann
bjó til forrit sem nýttust bankanum
sem öðrum og gerði við tölvur ef með
þurfti. Hafði mikinn áhuga á öllu
sem tengdist rafmagni og hafði
hugsað sér að læra meira á þeim
vettvangi nú þegar hann var hættur
að vinna og kominn á eftirlaun. Hann
byggði á síðustu árum fallegan sum-
arbústað í Skorradal ásamt Herdísi
konu sinni og allt gerði hann sjálfur
alveg sama hvað það var; smíða-
vinna, rafmagn og allar lagnir. Allt
lék þetta í höndunum á honum. Á
þessum sælureit ætluðu Baldur og
Herdís að eyða ævikvöldinu.
Eftir að Baldur kom á Akranes frá
Ísafirði kom fljótlega í ljós að þarna
fór vandaður og gegnheill maður og
einstaklega áreiðanlegur bankamað-
ur, sem afskaplega gott var að leita
til og samstarfsfólk bar mikla virð-
ingu fyrir. Þrátt fyrir hæglátt fas
Baldurs þá var alltaf stutt í húmor-
inn og hann fljótur að sjá spaugilegu
hliðarnar á tilverunni. Þannig minn-
umst við Baldurs.
Við sendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur til Herdísar, barna
þeirra, tengdabarna, ættingja og
vina.
Blessuð sé minning Baldurs Ólafs-
sonar.
F.h. Samstarfsfólks í Landsbanka
Íslands á Akranesi,
Sigþór Eiríksson.
Baldur Ólafsson
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn
24. maí kl. 16.00.
Guðrún Kristófersdóttir, Lárus Gunnlaugsson,
Þorvarður Kristófersson, Anna María Arnardóttir,
Birna Kristófersdóttir,
Kristófer Kristófersson,
Sigurður Kristófersson, Steinunn Þorfinnsdóttir,
Jón Páll Kristófersson, Ólína Þorleifsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær bróðir okkar,
ÖRN BJARNASON,
sem lengst af bjó á
Skólavörðustíg 40,
lést laugardaginn 10. maí á hjúkrunarheimilinu
Víðinesi.
Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu
föstudaginn 23. maí kl. 13.00.
Systkini hins látna og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
JÓNAS HALLDÓR GEIRSSON
vélstjóri,
Rekagranda 1,
Reykjavík,
lést laugardaginn 17. maí.
Útför hans fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn
4. júní kl. 13.00.
Jón K.F. Geirsson, Sigrún Hjartardóttir,
Margrét Geirsdóttir, Gísli Guðmundsson,
Nína S. Geirsdóttir, Orville J. Pennant
og systkinabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
RUNÓLFUR DAGBJARTSSON
múrarameistari,
Dúddi múr,
Hraunbúðum,
Vestmannaeyjum,
andaðist á heimili sínu mánudaginn 19. maí.
Útförin auglýst síðar.
Ómar Runólfsson, Auður Eiríksdóttir,
Margrét Runólfsdóttir, Sigurður Rafn Jóhannsson,
Dagmar Svala Runólfsdóttir, Guðjón Sigurbergsson,
Kristín Helga Runólfsdóttir, Ari Tryggvason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
HELGA BJARNADÓTTIR,
Hlíðarbyggð 37,
Garðabæ,
lést miðvikudaginn 21. maí á Landspítalanum í
Fossvogi.
Bjarni Sæberg Þórarinsson, Gillý Skúladóttir,
Steinunn Jóhannsdóttir
og ömmubörn.
MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík
sími 587 1960 - www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Vönduð vinna og frágangur
Yfir 40 ára reynsla
Sendum myndalista