Morgunblaðið - 23.05.2008, Síða 33

Morgunblaðið - 23.05.2008, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 33 ✝ Þórarinn JónSigurmundsson fæddist á Breiðu- mýri í Suður- Þingeyjarsýslu 19. maí 1921 . Hann andaðist á Hrafn- istu, dvalarheimili aldraðra, 15. maí síðastliðinn. For- eldrar hans voru Anna Kristjana Eggertsdóttir, f. 24.11. 1894, d. 20.8. 1932 og Sig- urmundur Sigurðs- son læknir, f. 24.11. 1877, d. 14. 11. 1962. Hálfbræður Þórarins, samfeðra, voru Ágúst, f. 28.8. 1904, d. 28.6. 1965 og Gunnar, f. 23.11. 1908, d. 18.6. 1991. Alsystk- ini: Ástríður, f. 27.11. 1913, d. 1.11. 2003, Kristjana, f. 29.11. 1917, d. 17.5. 1989, Eggert Bene- dikt, f. 27.1. 1920, d. 5.3. 2004, og Guðrún Jósefína, f. 22.3. 1923. Hinn 22. des. 1953 kvæntist Þórarinn Vuokko Tellervo Kivi f. 28.12. 1925, d. 12.3. 2002. Vuokko var finnsk að þjóðerni. Þórarinn og Vu- okko skildu. Einka- sonur Þórarins og Vuokko er Gústaf Örn f. 15.6. 1956. Sonur Vuokko og fóstursonur Þór- arins er Hannes Ólafsson Nyman f. 24.11. 1944, kvænt- ur Jónínu G. Eyj- ólfsdóttur f. 21.3. 1945. Sonur þeirra er Steinar Orri f. 24.10. 1977. Þórarinn lauk vélstjóranámi 1947 og vann allan sinn starfsferil á fragtskipum, bæði hér og er- lendis, lengst af hjá Sambandi ís- lenskra samvinnufélaga. Útför Þórarins verður gerð frá Kópavogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Móðurbróðir minn, Þórarinn Sig- urmundsson, er látinn eftir nokk- urra vikna veikindi. Doddi, eins og hann var alltaf kallaður í fjölskyld- unni, var sérstakur en skemmtilegur karakter sem gaman er að minnast. Hann var einrænn, en mjög vel gef- inn og gaman að ræða við hann þeg- ar hann komst á flug. Hann átti mik- inn fjársjóð minninga eftir sitt ævistarf á sjónum, en hann sigldi út um öll heimsins höf, bæði á íslensk- um og erlendum fraktskipum. Hann var mikill náttúruunnandi og leið trúlega hvergi betur en einn hugs- andi í bíltúr á fáförnum slóðum. Hann var líka mikill dýravinur og hafði ótrúlegt dálæti t.d. á hundum og köttum. Einnig fuglunum og tal- aði oft um himbrimann sem honum fannst fallegastur. Doddi var slyngur laxveiðimaður og gat sagt margar sögur úr lax- veiði. Nokkrum sinnum fór hann með föður mínum að Iðu í Biskups- tungum, þar sem þeir veiddu saman á æskustöðvum beggja, hann sem eyddi æskuárum sínum í Laugarási og faðir minn frá Iðu. Með gleði í röddinni talaði hann um það svæði allt og sagði oft hversu fallegt þar væri. Eftir að við fluttum á Akranes hittumst við oftar en áður og hefur verið sérstaklega gaman að fá hann í heimsókn með Gústafi og Hannu og Jónu og hlusta á hann rifja upp skemmtilegar sögur frá gömlum tímum. Það var mikið dregið af hon- um á síðustu dögunum, en í eitt skiptið reisti hann höfuðið snöggt upp og spurði um Iðu og horfurnar fyrir sumarið. Þar var hugurinn. Ég kveð Dodda frænda minn, þennan sérstæða en þó stórkostlega mann. Við Björg sendum Gústafi, mínum kæra æskuvini og frænda, og okkar góðu vinum Hannu, Jónu og Steinari innilegar samúðarkveðjur. Sigmundur Ámundason. Fyrir rúmri viku síðan kvaddi ég frænda minn. Merkilegri mann á ég vart eftir að hitta um ævina. Ég þakka fyrir að hafa verið svo lánsöm að hafa fengið að kynnast honum Þórarni Jóni Sigurmundssyni eða Dodda rauða eins og hann var alltaf kallaður, en það viðurnefni bar hann vegna þess fagurrauða hárs sem prýddi hann. Doddi var uppspretta af fróðleik og alveg fram undir það síðasta hafði hann gaman af því að segja manni sögur úr sínu lífi, sem virðist hafa verið alveg einstakt. Ég man fyrst eftir Dodda frænda þegar ég er unglingur að alast upp, þá bjó hann í herbergi hjá Dagnýju ömmu minni. Ég kíkti í heimsókn af og til og ef Doddi var í landi þá gat maður gengið að spjalli við hann sem vísu, því að þó að maður væri óheflaður unglingur (hippastelpa) þá hafði Doddi alltaf gaman af því að taka smá-spjall um ættfræði eða segja manni sögur af landi og sjó. Hann hafði yfirleitt nöfn yfir þá sem hon- um stóðu næst, ég get nefnt sem dæmi Skottuna, Buslu, Hreysikett- ina, skoska strákinn og skosku stelp- una og mánaköttinn og svo voru margir hippastrákar og hippastelp- ur langt fram eftir aldri. Það var margt sem Dodda var hugleikið, sem dæmi fylgdist hann í mörg ár með himbrimapari sem hélt til við Elliðavatn. Á ævi sinni sem vélstjóri hafði hann ferðast út um allan heim að því er virðist og sýndist honum sitt um hverja heimsálfu um sig. Ættfræðin var honum hugleikin og ég gat oft gert að gamni mínu við hann þegar ég þóttist fróðari en ég í raun er og sló um mig með Guðrúnu og Eggerti í Hergilsey á Breiðafirði. Þá yfirleitt náði ég Dodda á flug og við höfðum bæði gaman af því að rekja ættir okkar langt aftur í tím- ann. Við vorum þó ekki náskyld, langamma mín Ástríður Eggerts- dóttir var tvíburasystir Önnu móður Dodda. Doddi átti þó sérstakan sess í hjörtum okkar í þessum ættlegg og við áttum sérstakan sess í hans. Ég gæti trúlega skrifað bók um það sem Doddi hefur sagt mér í gegnum tíð- ina, en fyrir um það bil ári var þátt- urinn „Sögur af sjó og landi“, sem er sendur út á RÚV, tileinkaður Dodda og þar má heyra hann segja frá á sinn einstaka hátt. Ég veit að hann fékk mörg símtöl eftir þáttinn þar sem fólk hringdi og þakkaði honum fyrir áhugaverðar frásagnir og skemmtilegan frásagnastíl. Eins og ég sagði í upphafi þá kvaddi ég frænda minn fyrir rúmri viku. Ég kvaddi hann ekki til fram- búðar því að ég veit að það verður vel tekið á móti honum á nýjum stað og þar vona ég að vegir okkar liggi aftur saman. Doddi eignaðist einn son, Gústaf Örn, einnig átti hann fóstursoninn Hannú sem var honum afar kær. Elsku Gústaf, Hannú og aðrir aðstandendur, ég votta ykkur innilega alla mína samúð. Ég vil að lokum senda ykkur laglínu sem seg- ir: Einhvers staðar einhvern tímann aftur … Með þökk, Helena Rós Sigmars- dóttir og fjölskylda. Þórarinn Jón Sigurmundsson Jock Kim Tan (Jimmý) ✝ Jock Kim Tan (Jimmý) mat-reiðslumaður fæddist 3. sept- ember 1952 á Christmas Island. Foreldrar: Kian Sim Tan, raf- virki, f. 1919, d. 1979, og kona hans Chin Sin Cheow, f. 24. júlí 1924. Fyrrverandi eiginkona Anna Ragna Alexandersdóttir, f. 3. október 1952. Skilin 1995. Börn: 1) Júlía Tan Kimsdóttir, f. 31. maí 1979. Maki: Kristján Arn- ar. 2) Alex Tan Kimsson, f. 5. nóv- ember 1988. Minningarathöfn um Jock Kim Tan fer fram í Bústaðakirkju í dag kl. 15. Elsku vinur, hversu sárt það er að missa jafngóðan vin og þig, því er ekki hægt að lýsa með orðum. Þú að verða afi eftir nokkra daga og sonur þinn á leið til þín. Það voru svo skemmtilegir tímar framundan. Ég talaði við þig á mánu- daginn og á miðvikudag ert þú allur. En við vitum bæði að þetta eru ekki endalok. Elsku vinur, breiddu vernd yfir börnin þín. Þinn vinur, Anna Ragna. ✝ Þökkum af alúð öllum, sem sýndu okkur samúð, hlýju og samhug við andlát og útför okkar elsku- lega föður, tengdaföður, afa og langafa, ÞÓRARINS JÓNSSONAR múrarameistara, Austurbrún 19, Reykjavík. Þökkum einnig sérstaklega starfsfólki Landspítala, deildar 13G við Hringbraut og öldrunardeildar á Landakoti fyrir mjög góða umönnun. Drottinn blessi ykkur öll í Jesú nafni. Sigríður Þórarinsdóttir, Ólafur Óskar Jakobsson, Þórarinn Jóhannes Ólafsson, Jakob Óskar Ólafsson, Hrafnhildur Heimisdóttir, Sigurður Anton Ólafsson, Hanna Lísa Ólafsdóttir, Pétur Jóhann Ólafsson, Aron Ísak Jakobsson. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns og föður okkar, SIGURJÓNS GUÐMUNDSSONAR bónda, Kirkjubóli, Innri-Akraneshreppi. Sérstakar þakkir til starfsfólks E-deildar Sjúkrahúss Akraness. Kristín Marísdóttir og börn. ✝ Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts okkar ástkæra ÁGÚSTS SIGURÐAR KARLSSONAR, Kúrlandi 19. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild 11B Landspítalanum Hringbraut og líknardeildar í Kópavogi, Ásgerði Sverrisdóttur lækni og hjúkrunarþjónustu Karitas fyrir einstaka umönnun. Einnig þökkum við öllum þeim sem studdu hann í erfiðum veikindum. Rut Sigurðardóttir, Birna Ágústsdóttir, Júlíus Sigmundsson, Sigurður Karl Ágústsson, Linda Sjöfn Sigurðardóttir, Guðlaugur Ágústsson, Sigríður Ósk Pálmadóttir, Ævar Ágústsson, Ragnheiður Júníusdóttir, Ína Björg Ágústsdóttir, Magnús Ágústsson, Berglind Ágústsdóttir, Hjálmar Hjálmarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, BJARNHEIÐAR DAVÍÐSDÓTTUR, áður til heimilis í Hátúni 4. Davíð Guðmundsson, Ingunn A. Ingólfsdóttir, Hrönn Andrésdóttir, Vilmundur Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Sendum aðstand- endum öllum samúðar- kveðjur og þökkum Boga fyrir ógleyman- leg ár á Ástjörn. Bogi, þú hafðir mikil áhrif á okkur öll. Leiðbeiningar þínar munu fylgja okkur alla tíð. kveðjum þig með virðingu, vináttu og hlýju í huga og hjarta. „Er frelsarann sá ég við vatnið, hann sagði við mig ég veit þú er þreyttur og þráir minn frið. Í leynd er þú grætur ég vil gefa þér ró, ég vil að þú munir hvers vegna ég dó.“ (Höf ókunnur.) Jóhanna Bjarnadóttir. Fannar Freyr Bjarnasson. Katrín Huld Bjarnadóttir. Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. (Davíðssálmur 121) Kæri vinur, það er með þungum hug sem ég kveð einn minn besta vin. Þann sem ég vildi ekki samþykkja þegar ég faldi mig á bak við móður mína þegar hún kynnti þig fyrir mér í Hagkaup þegar ég var lítill drengur. Bogi Pétursson ✝ Bogi Péturssonfæddist á Mjó- eyri við Eskifjörð hinn 3. febrúar 1925. Hann lést á Sjúkrahúsi Ak- ureyrar hinn 17. apríl síðastliðinn. Bogi var jarð- sunginn frá Glerár- kirkju 29. apríl sl. Hún sagði mér að þetta væri maðurinn sem myndi passa mig á Ástjörn. Ég treysti þessum manni ekki og vildi ekki fara á sum- arbúðirnar. En ég fór þangað og var þar í níu sumur. Sá tími gleym- ist aldrei og sá staður varð mín paradís á jörðu. Þar áttir þú einn stærstan hlut, vinur. Þú gekkst mér í föður stað þegar ég var þarna og hefur reynst mér í gegnum tíðina meiri faðir en nokkur annar. Skilningsríkur, þolin- móður, ástríkur og fullur virðingar gagnvart ungum dreng. Þegar ég fór í kennaranám mörgum árum seinna kom í ljós að mín lífsspeki og viðhorf mín til nemenda minna og lífsins al- mennt eru að mörgu leyti byggð á því sem þú kenndir mér. Fáar manneskj- ur sem ég hef hitt um lífsleiðina hafa skipt mig eins miklu máli og verið mér eins ofarlega í huga og þú. Ég væri mun verri maður ef ég hefði ekki verið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að kynnast þér, kæri vinur. Þó ég viti að þú hafir mætt leið- arlokum af æðruleysi og fullvissu um að hafa skilað góðu dagsverki í sátt við Guð og menn þá er samt sárt að kveðja. En nú er komið að því. Kæri Bogi, þakka þér fyrir allt sem þú gafst mér, þau lífsgildi sem þú kenndir mér og fyrir að gera mig að betri mann- eskju. Himnarnir fagna heimkomu þinni. Vertu sæll, kæri vinur. Jóhann G. Thorarensen. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upp- lýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.