Morgunblaðið - 23.05.2008, Síða 34

Morgunblaðið - 23.05.2008, Síða 34
34 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Elísabet Arnórs-dóttir fæddist 11. júní 1981. Hún lést 15. maí síðast- liðinn. Foreldrar hennar eru Betsý Ívarsdóttir, f. 22.12. 1944 og Arnór L. Pálsson, f. 21.4. 1943. Systkini El- ísabetar eru: 1) Páll, f. 2.6. 1965, maki Sigríður Rut Hall- grímsdóttir, f. 24.5. 1970. Börn Andri Már Sigurðsson, f. 23.11. 1988, og Andrea Pálsdóttir, f. 19.3. 1999. 2) Ívar, f. 2.6. 1965, d. 30.4. 1994, maki Jóhanna Steins- dóttir, f. 12.4. 1967. Dóttir Ívars og Hallgerðar Thorlacius er Silja, Regína Rósmundsdóttir, f. 29.10. 1923, maki Baldvin Ágústsson, f. 15.2. 1923. Unnusti Elísabetar er Valtýr Sævarsson, f. 22.6. 1975. Dóttir El- ísabetar og Stefáns Ólafs Eyjólfs- sonar, f. 2.4. 1970, er Betsý Ásta Stefánsdóttir, f. 27.9. 2005. Elísabet ólst upp í Kópavogi og stundaði nám við Digranesskóla. Þaðan fór hún einn vetur í Menntaskólann í Kópavogi og síð- ar í Viðskipta- og tölvuskólann þaðan sem hún útskrifaðist. Mest- an sinn starfsferil starfaði hún í kringum bíla, fyrst hjá fjölskyldu- fyrirtækinu ALP bílaleigunni og síðar á öðrum stöðum. Síðustu misseri var hún fræðslufulltrúi hjá Iðunni fræðslumiðstöð. Elísabet bjó ásamt dóttur sinni og unnusta að Hrannarstíg í Reykjavík. Útför Elísabetar fer fram frá Hjallakirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 15. f. 19.8. 1982. Börn Ív- ars og Jóhönnu eru Katrín, f. 1.9. 1988, Eva Karen, f. 3.4. 1991, og Arnór Steinn, f. 3.2. 1995. Unnusti Jóhönnu er Þorkell Guðmunds- son, f. 14.6. 1961. 3) Ágúst, f. 17.11. 1971, maki María Veigs- dóttir, f. 15.11. 1970. Synir Viktor, f. 8.8. 1997 og Baldvin, f. 14.9. 2001. Föðurafi Elísabetar er Páll Þorleifsson, f. 23.8. 1898 og föð- uramma Guðrún Elísabet Arnórs- dóttir, f. 22.12. 1905. Móðurafi El- ísabetar var Ívar Ágústsson, f. 3.5. 1921, d. 12.1. 1950. Móðuramma er Elsku mamma mín. Ef væri ég söngvari syngi ég ljóð um sólina, vorið og land mitt og þjóð En mömmu ég gæfi mín ljúfustu ljóð. Hún leiðir mig, verndar og er mér svo góð. Ef gæti ég farið sem fiskur um haf ég fengi mér dýrustu perlur og raf. Og rafið ég geymdi og gæfi ekki braut en gerði’enni mömmu úr perlunum skraut. Ef kynni ég að sauma ég keypti mér lín og klæði ég gerði mér snotur og fín. En mömmu úr silki ég saumaði margt úr silfri og gulli, hið dýrasta skart. (Páll J. Árdal.) Þinn engill, Betsý Ásta. Ástin mín, sálufélagi og vinur. Þú gafst mér nýtt, bjartara og betra líf. Ég mun alltaf muna þegar ég sá djúpbláu augun þín og bjarta brosið þitt í fyrsta sinn. Þú sagðir mér seinna að þú hugsaðir „Þarna er strákurinn sem ég ætla að gift- ast“. Ég er að hugsa um þann góða tíma sem við áttum saman og áttum framundan. Ég er að hugsa um hve mikið ég og Betsý litla stelpan okkar söknum þín. Í dag veit ég hvernig það er að hafa fundið fyrir einlægri ást og hvernig er að missa hana. Ástin mín, ég var búinn að lofa þér að passa þig og litlu Betsý okkar alltaf. Ég mun veita litla ljósinu okkar yndislegt heimili og gera líf hennar eins stórkostlegt og þú ætlaðir henni. Hún mun alltaf verða hjá mér og þar með líka hluti af þér. Ég veit að þú munt vaka yfir okkur, leiðbeina og gæta Betsý litlu. Mig langar að kveðja þig með þeirri fallegu setningu sem þú vakt- ir okkur svo oft með, ástin mín, „Ég elska þig meira en allt, allt, allt“. Ástkær unnusti þinn og litli eng- illinn þinn, Valtýr og Betsý. Við lútum höfði í djúpri þögn þeg- ar við erum enn og aftur minnt á hve stutt bilið er á milli lífs og dauða. Eló okkar er farin í ferðina löngu langt fyrir aldur fram. Á ég svo erfitt að með að trúa því að þú sért farin frá okkur, elskan mín. Minningarnar um þig streyma fram og erfitt er að halda aftur af tárunum. Ég trúi því að Ívar bróðir þinn hafi tekið vel á móti þér og mun sú hugsun hugga mig í hjarta mínu á þessum erfiða tíma. Litli engillinn þinn, Betsý Ásta, fær okkur til að sjá ljós i myrkrinu, hoppandi og skoppandi i kringum okkur og munum við leggjast á eitt við að varðveita þennan yndislega engil þinn. Kveð ég þig með miklum söknuði, Eló mín. Hvíl þú í friði, Sigríður Rut mágkona. Elsku Elísabet (Eló), þegar þú komst inn í líf Valtýs, sonar okkar og bróður, fann hann sálufélaga og sinn betri helming. Þið höfðuð mjög jákvæð áhrif hvort á annað og sam- an tókust þið á við áskoranir lífsins. Fjölskylda okkar stækkaði með til- komu þinni og litlu Betsýjar. Ynd- islegt var að fylgjast með ykkar litlu fjölskyldu eflast og styrkjast. Valtýr dáir og elskar litlu stelpuna þína jafnmikið og hann elskar þig. Fram- tíðin var svo björt fyrir ykkur, þú í nýrri vinnu sem þú varst ánægð með, undirbúningur að byggingu framtíðarhúsnæðis ykkar var hafinn og sumarleyfisplönin voru ákveðin. Við erum slegin yfir brotthvarfi þínu úr lífi okkar og berum sorg í hjarta. Minnumst við góðra samverustunda á Hjallabrautinni og í bústaðnum. Við munum verða vakin og sofin yfir velferð litla sólargeislans þíns henn- ar Betsýjar og hlúa að ástinni þinni, Valtý, í sorg sinni. Þín verður sárt saknað en minningin um þig mun lifa að eilífu. Með Valtý og Betsý litlu munum við viðhalda minning- unni um þig og halda áfram að syngja með henni eins og hún elskar að gera. Guð þig leiði sérhvert sinn sólarvegi alla. Verndarengill varstu minn, vissir mína galla. Hvar sem ég um foldu fer, finn ég návist þína. Aldrei skal úr minni mér, mamma, ég þér týna. (Jón Sigfinnsson) Elsku Valtýr, Betsý, Arnór, Betsý, systkini og aðrir aðstandend- ur, við sendum ykkur innilegar sam- úðarkveðjur og stuðning á þessum erfiðu tímamótum. Sævar, Margrét og Ragna. Elsku systir mín. Þú varst yngsta barnið á heimilinu og þar af leiðandi augasteinn fjölskyldunnar eins og oft vill verða um örverpin. Við bræð- urnir 16 árum eldri, og Gústi 10 ár- um eldri. Þó að ég hafi kannski ekki verið mikið í kringum þig þegar þú varst lítil þá man ég bara eftir góð- um stundum. Það er ekki fyrr en seinna sem þú kemur inn í mitt líf og þá erum við orðin talsvert eldri. Það gladdi mig óendanlega þegar litla prinsessan þín, hún Betsý Ásta, fæddist og eftir að Valtýr kom inn í þitt líf. Það hefur einhvern veginn svo margt breyst og það var allt svo gott og ljúft í kringum þig. Fullt af vinkonum, mikið af ferðalögum, og fullt hús af ást og öryggi. Ég veit hvað þú hlakkaðir til að fara til New York núna í júní og eyða þar viku á stað sem þú hafðir aldrei komið á áður. Svo varst þú aftur á leiðinni til útlanda í haust með vinnufélögum þínum. Ég hef alltaf dáðst að þér hvað þú varst alltaf fljót til svars og dugleg í þeirri vinnu sem þú tókst þér fyrir hendur. Aðallega var þetta hjá ALP bílaleigunni og seinna hjá annarri bílaleigu. Þú tókst til dæmis meira- prófið og mótorhjólaprófið svo þér voru allir vegir færir þegar kom að farartækjum. Keyrðir rútu og vöru- bíl með bílaflutningavagni og meira að segja minnir mig að þú hafir keyrt leigubíl eina helgi.Við hitt- umst reglulega og við fylgdumst líka með þér í gegnum bloggsíðuna þína á netinu, sem var svo gaman að lesa. Við ætluðum að hittast síðasta föstu- dagskvöld en þú gast það ekki þar sem þú varst með vinnufélögum þín- um þá en baðst okkur um að færa það yfir á laugardagskvöldið sem við gátum ekki, því miður. Ætluðum að færa þetta yfir á næstu helgi en það var of seint. Bilið á milli lífs og dauða er svo stutt. Það er hörmulegt að horfa á eftir þér yfir móðuna miklu svona ungri. Ég trúi því að Ív- ar bróðir hafi tekið vel á móti þér. Við fjölskyldan munum standa þétt saman og passa uppá litlu prinsess- una þína, hana Betsý Ástu. Það líður öllum illa útaf þessu og spurningar vakna, en minna er um svörin. Hvíl í friði, elsku systir mín. Við hittumst aftur. Þinn bróðir, Páll. Elskulegasta Eló okkar. Það var gríðarlegt áfall þegar hringt var í okkur að morgni fimmtudagsins 15. maí og okkur tilkynnt um að þú værir látin. Minningarnar um þig streymdu fram og hversu lífið hafði leikið við þig upp á síðkastið. Ég var 10 ára þegar þú komst í heiminn og það verður seint sagt að þú hafir verið rólegt barn og alltaf smá fyr- irgangur í þér. En skemmtilegra barn var varla hægt að finna. Við yngri systkinin áttum margar stundir saman þar sem ég passaði þig oft þegar þú varst lítil. Þú áttir alltaf stóran vinkvennahóp sem fylgdi þér hvert sem var. Uppeldi þitt var mótað að vissu leyti af fjölskyldufyrirtækinu, ALP bílaleigunni þar sem þú varst alin upp við að umgangast bíla af öllum stærðum og gerðum, enda var það svo að þegar þú hafðir aldur til tókstu meirapróf, rútu- og mótor- hjólapróf. Seinna var gaman að fylgjast með, því það var alveg sama hvaða farartæki þú varst sett upp í, alltaf gastu reddað þér á því hvort sem um var að ræða rútu eða stærstu gerð af bílaflutningabíl. Við héldum góðu sambandi þó ég flytti „í sveitina“ eins og þú vildir kalla það. Töluðum oft saman í síma og hittumst oft þegar við fjölskyldan áttum ferð í bæinn. Einnig var gam- an að fylgjast með bloggsíðunni þinni og fylgjast með þér þar. Okkur finnst svo stutt síðan þú komst í heimsókn til okkar til Egils- staða með Betsý litlu en samt er lið- ið tæpt ár síðan. Litlu frændur þínir tala enn um hvað var skemmtilegt að hafa ykkur mæðgur hjá okkur þessa daga. Það var margt brallað þessa daga og mikið hlegið. Já, húm- orinn, hláturinn og hnyttin tilsvörin voru þitt aðalsmerki á seinni árum. Þú varst svo glöð og ánægð með allt og alla í kringum þig og mikið fram- undan til að hlakka til. Þið litla fjöl- skyldan voruð búin að skipuleggja sumarfrí erlendis og einnig ætluðuð þið með nýju vinnunni þinni til út- landa í haust. Ég veit að þú hlakk- aðir mikið til. Líf þitt tók miklum stakkaskipt- um þegar litli sólargeislinn þinn, Betsý Ásta, kom í heiminn fyrir rúmum 2 árum. Við sem stóðum í kringum þig vorum mjög stolt af því að fylgjast með þér í móðurhlut- verkinu sem þér fórst einstaklega vel úr hendi og ekki varð hamingjan minni þegar þú kynntist Valtý, unn- usta þínum. Elsku Eló okkar, við söknum þín svo mikið. Það er hugg- un harmi gegn að við vitum að þú ert komin til Ívars bróður okkar sem hefur tekið þér opnum örmum. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Ágúst bróðir, María, Viktor og Baldvin, Egilsstöðum. Elsku Eló frænka mín Ég vil ekki trúa því að þú sért far- in frá okkur, en guð og englarnir á himnum vildu fá þig til sín og bróður þinn líka. Sakna ég þín, elsku frænka mín. Lítill fugl sem flýgur til himins. Minnir okkur á eilífðina Lækurinn sem liður niður hlíðina. Minnir okkur á sannleikann. (Halla Jónsdóttir.) Kveð ég þig með miklum söknuði, elsku frænka mín. Þín frænka, Andrea. Elísabet kom til starfa hjá IÐ- UNNI fræðslusetri í vetur og féll strax vel inn í hópinn okkar enda kraftmikil og hress stelpa. Hún tengdist okkur fljótlega sterkum böndum, hafði skemmtilegan húmor og létti oft stemninguna undir miklu álagi. Hún varð strax ein af okkur. Við kynntumst einnig yndislegri dóttur hennar Betsý og unnusta, Valtý. Þau tóku virkan þátt í fé- lagslífi okkar utan vinnu og það var ánægjulegt að kynnast þeim kær- leika sem var á milli þeirra. Elísabet var yndisleg stelpa sem manni leið vel í kringum. Hún hafði sterkar skoðanir og lét þær óspart í ljós, var létt í lund og oft með stríðn- isglampa í augum, ýmist syngjandi eða sönglandi við vinnu sína. Hún var ávallt boðin og búin til að að- stoða samstarfsfólk sitt þegar mikið lá við, hvort sem það var í vinnunni eða utan hennar. Við fengum of stuttan tíma með Elísabetu. Hún lætur eftir sig stórt skarð sem seint verður fyllt. Elsku Valtýr, Betsý og fjölskylda, hugur okkar er hjá ykkur á þessum erfiðu tímum. Við sendum fjölskyldu El- ísabetar okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Starfsfólk IÐUNNAR fræðsluseturs. Elísabet eða Eplið eins og við oft kölluðum hana var aðeins þriggja ára þegar ég kom stormandi inn í fjölskylduna. Hún var hávær, krafð- ist athygli en umfram allt hafði hún húmor og við urðum strax miklir mátar. Henni fannst það algjörlega eðlilegt að önnur jafn fyrirferðar- mikil manneskja væri lent í fjöl- skylduna og tók mér með miklu jafnaðargeði, alla tíð. Hún lét mig reyndar oft á tíðum heyra það og lá aldrei á skoðunum sínum en alltaf var það með húmor og hnyttnum at- hugasemdum. Ein ummælin þótti mér þó vænst um en það var þegar hún og mamma hennar, Betsý, voru að ræða menn og málefni og lýsti hún mér sem stelpu/konu og fannst mér það gott merki um vináttu okkar og tengsl. Eitt sinn tróðum við upp ásamt Silju og sungum Danska lagið fyrir fjölskylduna í tröppunum í stofunni á Hlaðbrekkunni. Elísabet var svo- lítið óviss um þetta uppátæki og leit á mig með í bland hallæris- og spurningarsvip, algjörlega tilbúin að bakka út úr aðstæðum, en við kýld- um á það, drógum hvergi af okkur í söngnum og gáfum allt í „sjóvið“ og hættum ekki fyrr en við uppskárum lófaklapp allra viðstaddra. Einnig er gaman að minnast und- irbúnings fyrir 50 ára afmæli föður hennar, Arnórs. Við krakkarnir ákváðum að gefa „kallinum“ bók um sjálfan sig. Elísabet skrifaði sinn kafla sjálf og fékk ég hana til að lesa það sem hún hafði skrifað í afmæl- isveislunni. Þegar að flutningnum kom leit hún á mig, kreisti á mér höndina, setti höfuðið undir sig, gekk í pontu og sló í gegn. Mér fannst hún bera af í ræðuhöldum kvöldsins, einlæg eins og hún var, áræðin og lét bara vaða þegar svo bar undir. Annað slíkt tilfelli var þegar ég fékk hana til að taka viðtal fyrir mig við barnastjörnu eina fyrir þátt hjá mér á Bylgjunni – ekki mál- ið, upp með míkrafóninn og áfram með þáttinn og skemmtum við okk- ur konunglega í tökunni. Við amma minnumst hennar oft þegar hún kom til okkar í Efsta- sundið. Einn daginn kom hún með dúkkuna sína, þann næsta með kött- inn sinn. Henni fannst jafn eðlilegt að flækjast um með hvort tveggja og fannst mér það reyndar líka. Það var nefnilega málið, allt var svo eðli- legt í kringum hana. Leiðir okkar skildi á unglingsár- um hennar og höfðum við lítið sem ekkert samband í mörg ár. Svo var það fyrir tveimur árum að leiðir okkar lágu saman, vinnutengt. Það var eins og við hefðum hist í gær. Sami húmorinn og atgervið, nema nú var hún orðin mamma og lýsti því hlutverki fyrir mér með skemmti- sögum og glettnum athugasemdum. Það er sárt til þess að hugsa að aftur sé höggvið í fjölskylduna og annað systkini hrifið á brott í blóma lífsins frá barni og fjölskyldu. Sárara en orð fá lýst. Það eina sem maður getur gert er að þakka fyrir þær góðu stundir sem við áttum saman. Þakka fyrir að hafa kynnst manneskju sem var blátt áfram, einlæg og skemmtileg sem barn, unglingur, kona og móðir. Sambýlismanni, foreldrum og fjölskyldu sendi ég samúðarkveðjur og bið engla og almættið að styrkja á sorgarstund. Hvíl í friði. Kærleikskveðja, Ingibjörg Gréta. Manstu þegar þú hringdir í mig þegar við vorum 10 ára og spurðir mig hvort ég vildi koma að æfa með þér fótbolta. Ég sló til og við skellt- um okkur á fyrstu æfinguna. Við vorum duglegar að æfa okkur sam- an og fórum að vera saman upp á hvern dag. Fljótlega varð þitt heim- ili að mínu og öfugt og við urðum hreint óaðskiljanlegar. Þetta varð til þess að þegar ég átti að fara til Spánar með mömmu og pabba tók- um við ekki annað í mál en að þú mundir koma með. Þetta er ein eft- irminnilegasta utanlandsferð sem ég upplifað. Þú fórst að vanda á kostum og mikið hlegið að þér og með, enda einstakur karakter á ferð. Til að vinna okkur inn peninga í ferðinni tókum við að okkur að strauja skyrt- ur fyrri menntaskólastráka sem voru úti á sama tíma. En í raun var það mamma sem sat upp á hótelher- bergi með litla ferðastraujárnið og straujað skyrturnar á meðan við stukkum á Burger King eða lékum okkur í lauginni. Þegar við fermdumst var það mesta áhyggjuefni mæðra okkar að við myndum sitja hlið við hlið í kirkjunni því þær vissu alveg hvern- ig það mundi fara, en þær fengu engu um það ráðið. Þær höfðu samt rétt fyrir sér, manstu hvað við hlóg- um og pískruðum alla athöfnina. Þegar þú fórst svo upp að altarinu fórst þú með ritningarversið mitt og ég vissi ekki hvert ég ætlaði, vá hvað við áttum erfitt með að halda í okkur hlátrinum. Við fermdumst þó á end- anum en verst þótti okkur að geta ekki verið í veislunni hjá hvor ann- arri. Á unglingsárunum brölluðum við Elísabet Arnórsdóttir Elsku Eló frænka, ég kveð þig með miklum söknuði. Þú yfirgafst þennan heim allt of fljótt. En eins og sagt er þá deyja þeir ungir sem guð- irnir elska mest. Hvíldu í friði. Þinn frændi, Andri Már. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.