Morgunblaðið - 23.05.2008, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 39
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30-9.15, vinnustofa
kl. 9-16.30, baðþjónusta kl. 10-16.30, bingó kl. 14-15.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, almenn
handavinna, fótaaðgerð, morgunkaffi/dagblöð, há-
degisverður, kertaskreyting, kaffi, slökunarnudd.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í handmennt opin kl.
9-16, engin leiðbeinandi.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Ferðakynning
FEBK á sumar- og haustferðum félagsins verður
haldin í félagsheimilinu Gullsmára í dag 23. maí kl.
13. Listi yfir allar ferðir innanlands mun liggja á
borðum í fundarsal. Kynning á framlagi eldri borg-
ara til samfélagsins verður 29. maí kl. 14, kaffiveit-
ingar
Félag eldri borgara, Reykjavík | Ferð á Austfirði
1-4 júlí. Flogið til Egilsstaða, ekið til Borgarfjarðar
eystri og farið um Kárahnjúkasvæðið, yfir Jökuls-
ána á nýju stíflunni, komið við á Skriðuklaustri, siglt
með Lagarfljótsorminum frá Atlavík til Egilsstaða.
Dagsferð til Fjarðabyggðar, Mjóafjarðar og út á
Dalatanga Uppl. í síma 588-2111
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Vefnaður kl. 9 og
jóga kl. 9.15. Létt ganga kl. 10 og leikfimi kl. 10.30.
Eftir hádegisverð, kl. 13 verður kynning á sum-
arstarfinu, bingó kl. 14 og kaffiveitingar.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikfimi
kl. 12, félagsvist kl. 13.30, rúta frá Hleinum kl. 13, frá
Garðabergi kl. 13.15. Hægt er að panta mat í Jóns-
húsi með dags fyrirvara, eða í síma 512-1502 fyrir
kl. 9.
Félagsstarf Gerðubergs | Fjölbreytt handavinnu
opnar kl. 10 og listmunasýning þátttakenda í Fé-
lagsstarfinu, opið til kl. 17 í dag, á morgun og sun-
nud. kl. 13-16, Gerðubergskór leggur af stað kl. 14 í
heimsókn á „Hattadag“ á Skjóli og kórinn syngur í
Toyotaumboðinu á Nýbýlaveginum kl. 16.30. Sími
575-7720.
Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 14, sagan. Á
morgun, laugardag, Opið hús-Uppskerudagur frá kl.
14-17.
Hraunbær 105 | Handavinna og baðþjónusta kl. 9,
hádegismatur, bingó kl. 14, bókabíllinn kl. 14.45,
kaffi.
Hraunsel | Lokað vegna uppsetningu Hand-
verksýningar.
Hvassaleiti 56-58 | Frjáls aðgangur að opinni
vinnustofu kl. 9-12, postulínsmálning, böðun fyrir
hádegi, hársnyrting. Árleg handverkssýning verður
sunnudag 25. maí og mánudag 26. maí, opið báða
dagana kl. 13-17, kaffiveitingar til sölu.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og venjulega.
Rafskutlukynning kl. 11, heimsókn á handverkssýn-
ingu Hvassaleitis mánudag kl. 14.20. Sameinast
verður um bíla/rútu. Uppl. 568-3132.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morgunkaffi-
blaðaklúbbur kl. 10, leikfimi kl. 11, opið hús, vist/
brids kl. 13, kaffiveitingar.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan og vinnustofa í hand-
mennt opin kl. 9-16, engin leiðbeinandi, myndlist-
arnámskeið með Hafdísi kl. 9-12, leikfimi Janick kl.
13, umræðuhópur kl. 13.45, samstarfsverkefni Ás-
kirkju og Norðurbrúnar.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla, fótaaðgerðir og
handavinna kl. 9-16, spænska kl. 10-12, hádeg-
isverður, sungið við flygilinn 13.30, kaffiveitingar,
dansað í aðalsal kl. 14.30-16.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja og leirmótun kl.
9, morgunstund, leikfimi, bingó kl. 13.30. Uppl. í
síma 411-9450.
Þórðarsveigur 3 | Salurinn opinn kl. 13.
Kirkjustarf
Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12.
Félagsheimilið Gjábakki | Bossía, málm- og silf-
ursmíði og jóga fyrir hádegi, hádegisverður, kaffi til
kl. 16 og félagsvist kl. 20.30.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Kirkja unga fólksins
kl. 20, lofgjörð, Guðs orð og félagsmiðstöð eftir
samkomuna. Nánari uppl. á www.filo.is
Laugarneskirkja | Morgunbæn kl. 8.
70ára afmæli. Á morgun,laugardaginn 24. maí,
er sjötug Sigríður Head Sig-
urðardóttir (Sigga frá Bjargi)
í Hafnarfirði. Sigríður og eig-
inmaður hennar, col. Robert
Head, verða heima á afmæl-
isdaginn en taka á móti gest-
um í Columbus Country Club,
frá kl. 17 á afmælisdaginn, 24.
maí. Heimili þeirra er 368
Megan Lane, Columbus MS
38706. Síminn heima hjá þeim
er 662-329-3864.
dagbók
Í dag er föstudagur 23. maí, 144. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Kostið kapps um að komast inn um þröngu dyrnar, því margir, segi ég yður, munu reyna að komast inn og ekki geta. (Lk. 13, 24.)
Það verður heldur beturspánskt yfirbragð yfirKringlunni um helgina enþá verða haldnir „spænskir
dagar“.
Um er að ræða kynningu sem
Ferðamálaráð Spánar stendur fyrir,
þar sem fræðast má um þá fjöl-
breyttu ferðamöguleika sem bjóðast
á Spáni.
Margrét Jónsdóttir er vararæð-
ismaður Spánar á Íslandi og segir úr
miklu að velja: „Í landinu eru töluð
fjögur tungumál í sextán sjálfs-
stjórnarríkjum. Hvert svæði er með
sínum sérkennum hvað varðar mat,
menningu og siði og má segja að sá
sem hafi aðeins heimsótt eitt hérað á
Spáni eigi í raun enn eftir fimmtán
aðra ólíka heima að uppgötva og
njóta.“
Spænskir dagar hafa verið haldnir
með nokkurra ára millibili með svip-
uðu sniði, og segir Margrét aðsókn-
ina vera mjög góða. Á spænskum
dögum að þessu sinni verða kynn-
ingarbásar í Kringlunni þar sem
fulltrúar margra héraða gefa gest-
um og gangandi innsýn inn í hvern
stað fyrir sig og aldrei að vita nema
alls kyns óvæntir glaðningar færi
gesti hálfa leið, þó ekki væri nema í
huganum: „Síðast var til dæmis
hægt að bragða á fjallaskinku og
spænsku rauðvíni,“ segir Margrét.
Spánn er það land sem Íslend-
ingar eru duglegastir að heimsækja,
og er það fastur liður í tilveru
margra landsmanna að bregða sér í
pakkaferð á gullna sólarströnd til að
flatmaga í sólinni. „En það er ekki
bara hægt að kynnast Spáni gegnum
sumarleyfispakka. Hver og einn get-
ur auðveldlega skipulagt sína eigin
ferð með eigin áherslum. Á Spáni
má jafnt upplifa mikla náttúrufeg-
urð, sögulega kastala og fara í versl-
unarferðir,“ segir Margrét. „Þeir
sem vilja svalann ferðast um Norð-
ur-Spán, og þeir sem sækja í hitann
og sólina heimsækja suðurhlutann.
Þeir sem vilja borða góðan mat
verða ekki sviknir af Spáni, sér-
staklega ef þeir leggja leið sína til
Galisíu eða Baskahéraðanna sem
státa af einhverjum allra besta mat
Spánar. Þá má ekki gleyma að minn-
ast á að Spánn er spennandi hönn-
unarvettvangur og virðast Spánverj-
ar nú vinna hverja evrópska
hönnunarkeppnina á fætur annarri.“
Spænskir dagar eru 23. og 24.
maí.
Ferðalög | Ferðamöguleikar á Spáni kynntir í Kringlunni um helgina
Spánn er heill heimur
Margrét Jóns-
dóttir fæddist í
Reykjavík 1966.
Hún lauk B.A.
gráðu í spænsku
frá HÍ 1991,
meistaragráðu
frá Princeton-
háskóla 1995,
doktorsgráðu frá
sama skóla 2001 og MBA-gráðu frá
HR 2006. Margrét var lektor við HÍ
1995-2003, síðan lektor við HR og
síðar dósent. Hún er nú forstöðum.
alþjóðasviðs HR og stjórnarform.
Mannauðs auk þess sem hún hefur
verið vararæðism. Spánar á Íslandi
frá 2001. Eiginmaður Margrétar er
Már Jónsson prófessor og eiga þau
þrjá syni.
Fréttir og tilkynningar
Yggdrasill | Heilsumeistaraskólinn (School of Natural Me-
dicine Iceland) verður með kynningu kl. 17 í Yggdrasli,
Skólavöruðustíg. Námið er þriggja ára nám í náttúrulækn-
ingum. Dr. Farida Sharan mun segja frá skólanum og svara
spurningum, umsóknarfrestur fyrir næsta skólaár er til 15.
júní.
Börn
Laugarnesskóli | Í tilefni af degi barnsins hinn 25. maí
verða ný veggspjöld með ákvæðum barnasáttmálans í
styttri útgáfu kynnt við morgunsöng í Laugarnesskóla í
dag, 23. maí, kl. 8.45. Allir sem hafa áhuga á réttindum og
velferð barna eru velkomnir.
VEFUR kirkjugarðanna hefur verið
endurbættur og var nýi vefurinn opn-
aður í gær. Það var sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson sem opnaði vefinn og þau
Arnfinnur Einarsson og Guðrún Sigríð-
ur Vilhjálmsdóttir fylgdust með. Vef
kirkjugarðanna má finna á vefslóðinni
www.kirkjugardar.is. Þar er að finna
ýmsar upplýsingar um þjónustu garð-
anna.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Nýr vefur opnaður
FRÉTTIR
Á ÞINGI Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra, sem haldið var ný-
lega var samþykkt ályktun þar sem
þess er krafist að styrkir og uppbæt-
ur til bifreiðakaupa hreyfihamlaðra
hækki tafarlaust. Í ályktuninni er
lagt til að útfærsla hækkunarinnar
verði með eftirfarandi hætti:
„Endurúthlutun styrkjanna verði
strax breytt í 4 ár úr 5 árum.
Endurúthlutun prósentu (%)
styrkjanna (hjólastólabílar) verði að
sama skapi breytt í fjögur ár ef val-
inn er 50% styrkur og fimm ár ef val-
inn er 60% styrkur.
Styrkir verði hækkaðir þannig að
þeir fylgi verðlagshækkunum.
Skipuð verði samráðsnefnd ráðu-
neytis og hagsmunasamtakanna með
þátttöku Sjálfsbjargar lsf.
Réttur til styrkja miðist við þörf
fólks fyrir bifreiðar til daglegs lífs.“
Styrkir til
bifreiðakaupa
hreyfihamlaðra
hækki
ÁRNI Benediktsson og Þór Jes
Þórisson hafa hlotið sæmdarheitið:
„Rafmagnsverkfræðingur ársins“.
Um er að ræða sameiginlega við-
urkenningu Verkfræðingafélags
Íslands og IEEE, alþjóðlegs félags
rafmagnsverkfræðinga sem er með
um 375 þúsund félagsmenn í yfir
160 löndum.
Árni Benediktsson lauk prófi í
rafmagnsverkfræði frá Háskóla Ís-
lands 1976. Að loknu námi hóf
hann störf hjá Landsvirkjun. Árni
starfar í dag sem þróunarstjóri
orkusviðs Landsvirkjunar.
Þór Jes Þórisson lauk verkfræði-
prófi frá Háskóla Íslands árið
1986. Að lokinni hnattferð hóf
hann störf hjá Póst- og síma-
málastofnun. Nú gegnir hann
stöðu framkvæmdastjóra tækni-
sviðs Símans hf.
Þetta er í annað sinn sem við-
urkenningin „rafmagnsverkfræð-
ingur ársins“ er veitt hér á landi.
Verðlaunin eru veitt annað hvert
ár. Auglýst var eftir tilnefningum
og voru skilyrði þau að viðkom-
andi væri Íslendingur eða starf-
andi á Íslandi. Sameiginleg dóm-
nefnd VFÍ og IEEE á Íslandi valdi
verðlaunahafana.
Í tilefni af verðlaunaafhending-
unni komu hingað til lands tveir
fulltrúar IEEE, þeir James T. Ca-
in, fyrrum formaður IEEE fyrir
Evrópu, Afríku og Mið-Austurlönd,
og Victor F. Hanna, formaður við-
urkenningarnefndar IEEE í Evr-
ópu, Afríku og Mið-Austurlöndum.
Viðurkenning James T. Cain, fyrrum formaður IEEE, Karl Sölvi Guð-
mundsson, formaður Íslandsdeildar IEEE, Árni Benediktsson, Þór Jes Þór-
isson, Victor F. Hanna, formaður viðurkenningarnefndar IEEE í Evrópu,
Afríku og Mið-Austurlöndum, og Kolbrún Reinholdsdóttir, formaður Raf-
magnsverkfræðingadeildar VFÍ.
Rafmagnsverkfræð-
ingar ársins valdir
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN (TM) og Fákur hafa undirrita samstarfssamn-
ing er snýr að Gæðingamóti Fáks. Mótið mun samkvæmt samningnum
nefnast TM Gæðingamót Fáks og verður haldið dagana 29. maí til 1. júní
næstkomandi, á félagssvæði Fáks í Víðidal. Mótið er úrtökumót fyrir
Landsmót hestamanna 2008 og felur samningurinn ennfremur í sér að TM
verði aðalstyrktaraðili þeirra félagsmanna Fáks sem fara á Landsmótið.
Samstarfssamningur þessi er liður í að kynna enn frekar þær breytingar
sem gerðar hafa verið á hestatryggingum TM.
Samstarf Frá vinstri: Árni Guðmundssson, mótsstjóri gæðingamóts Fáks,
Erna Kristjánsdóttir, vörustjóri hjá TM, og Bjarni Finnsson, formaður Fáks.
TM styrkir gæðingamót