Morgunblaðið - 23.05.2008, Page 45

Morgunblaðið - 23.05.2008, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 45 Hvaðan ertu? Frá litlum stað sem heitir Sallynoggin, í Dublin á Ír- landi. Það er sómasamlegt hverfi sem verkamenn búa í og því flutti ég á flottari stað langt í burtu frá því eftir að ég sló í gegn. Pissarðu í sturtu? (Spyr aðalskona síðustu viku, Regína Ósk Evróvisjónfari) Ha? Ég geri það sko ekki! Þú ættir að skammast þín, Regína. Ég pissa bara í sundlaugar. Hvað ætlaðirðu að verða þegar þú yrðir stór? Ég er ungur, bara 12 ára. Hvað tekurðu í bekk? Alltof mikið. Ekki miklar líkur á 12 stigum, „douze pointes“, fyrir Ír- land, er það? Ekki fyrr en ég sný aftur sem Dustin International. Hversu marga hálfpotta af Guinness drekkurðu á dag? Ég drekk ekki áfengi, ég er bara 12 ára. Eru kalkúnar misskildir? Sumir eru það, sjáðu bara Björk, enginn veit hvað hún er að fara. Hversu leiðinlegur er Jónatan Garðarsson, fararstjóri ís- lenska Evróvisjón-hópsins?* Hann er svo leiðinlegur að það hræðir mig. Fólk í kring- um hann á það til að missa lífsviljann. Það er sorglegt. Hver er erkióvinur þinn? Enginn, ég er dáður um gjörvalla veröld. Hvað er það neyðarlegasta sem komið hefur fyrir þig á sviði? Ekkert, það gengur allt fullkomlega upp hjá mér. Hvernig er ástarlífið? Stórkostlegt, þakka þér. Kemur heimstónleikaferð með Eurobandinu til greina? Ha, hverjum? Hver er uppáhaldsbókin þín? Litla svarta bókin mín með símanúmerum allra gellanna minna. Hvernig hefur Bono það? Veit það ekki, þú ættir heldur að spyrja Guð að því, hann heyrir oftar í honum en ég. Hefurðu einhvern tíma fengið þér þakkargjörðarmáltíð? Farðu í rassgat! Hefurðu hitt einhvern úr austur-evrópsku Evróvisjón- mafíunni? Nei, en þú? Hver er algengasti misskilningurinn varðandi kalkúna? Að við getum ekki talað. Hefurðu komið til Tyrklands? (Orðin „Tyrkland“ og „kal- kúnn“ eru eins á ensku, „turkey“) Eins og segir í laginu: „Ég hef aldrei komið til mín“. Hvaða Evróvisjónkeppandi er kynþokkafyllstur, fyrir utan þig auðvitað? Maria. Hver sigrar í Evróvisjón í ár? Chiki Chiki vona ég! Hvað verður nú um Dustin? Hann verður forseti Evrópusambandsins. Hvers viltu spyrja næsta viðmælanda/kalkún? Færðu eins mikið greitt og ég fyrir að svara þessum spurningum? Ég trúði ekki mínum eigin eyrum þegar ég heyrði af því fyrst. 30 þúsund evrur eru dágóð fúlga. KALKÚNNINN DUSTIN AÐALSMAÐUR VIKUNNAR ER Í RAUN AÐALSFUGL OG ÍRSKUR AÐ AUKI, SJÁLFUR DUSTIN SEM KEPPTI FYRIR ÍRLAND Í EVRÓVISJÓN Í FYRRI FORKEPPNINNI EN KOMST ÞVÍ MIÐUR EKKI Í AÐALKEPPNINA. Metnaðarfullur kalkúnn Dustin stefnir á frama í Evrópustjórnmálum, að verða fyrsti forseti ESB. *Dustin tjáði blaðamönnum í Serbíu að Jónatan væri leiðinlegur maður. Um einkahúmor er víst að ræða en Jónatan ku vera mikill vinur írska hópsins. Morgunblaðið/Dagur Gunnarsson SUNNUDAGINN 25. MAÍ KL. 20 EFTIR GRIGORI FRID ÞÓRA EINARSDÓTTIR, SÓPRAN VALERIE SAUER, DANSARI ALEXANDER SCHERER, PÍANÓLEIKARI IRIS GERATHPREIN, LEIKSTJÓRN ÞÓRUNN SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR, ÚTLIT PÁLL RAGNARSSON, LÝSING AÐEINS EIN SÝNING! ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ KL. 20 SAMKÓR REYKJAVÍKUR 30 ára afmælistónleikar Miðaverð 2.000 kr. FIMMTUDAGUR 29. MAÍ KL. 20 KEITH TERRY Í SALNUM Body percussion. Miðaverð 1.000 kr. FÖST. 30. MAÍ KL. 20 UPPSELT! LAU. 1. JÚNÍ KL. 20 ÖRFÁ SÆTI! VÍKINGUR HEIÐAR ÓLAFSSON PÍANÓTÓNLEIKAR TIL MINNINGAR UM BIRGI EINARSON Miðaverð 2.500 kr. Ástin er diskó, lífið er pönk e. Hallgrím Helgason Stuðið er á Stóra sviðinu sýn. fös. 23/5 uppselt, lau. 24/5 Sá hrímhærði og draumsjáandinn e. Nils Aslak Valkeapää Gestasýning frá Beaivváš, þjóðarleikhúsi Sama í Noregi Ath. aðeins ein sýning, þri. 27/5 „Þetta er fjörugt verk og var vel sungið, leikið og dansað..." SA, tmm.is „Það er svona sumarfílíngur í þessu." KJ, Mannamál/Stöð 2 Tilnefnd til Grímuverðlaunanna sem barnasýning ársins! Skoppa og Skrítla í söng-leik e. Hrefnu Hallgrímsdóttur Sýningum lýkur 1/6 Örfá sæti laus um helgina Þjóðleikhúsið Á öllum sviðum lífsins Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00 mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00. Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga. Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is Sími 551 3010

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.