Morgunblaðið - 02.06.2008, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 2008 37
SÝND Í ÁLFABAKKA,KRINGLUNNI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
/ SELFOSSI/ KEFLAVÍK
,,Ljúfir endurfundir”
- Þ.Þ., DV
,,Hasar, brellur og gott grín”
- S.V., MBL
,,Trú forverum sínum og er kærkomin
viðbót í þessa mögnuðu seríu.
Meira er ekki hægt að biðja um.”
- V.J.V., Topp5.is/FBL
,,Biðin var þess virði”
- J.I.S., film.is
SÝND Í ÁLFABAKKA, OG AKUREYRI
eee
- S.V.,
MBL
„ATH SÉRSTAKT LEYNIATRIÐI ER AÐ MYND LOKINNI“
eeee
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL
eee
ROLLING STONE
ÁLFABAKKI
FRÁBÆR
RÓMANTÍSK
ÖRLAGASAGA
TILNEFND TIL
GOLDEN
GLOBE
VERÐLAUNA
Dómur um bók
“Meðal óvenjulegustu
ástarsagna sem
samdar hafa verið
- J.H., MBL
SÝND Á SELFOSSI
/ AKUREYRI
THE FORBIDDEN KINGDOM kl. 8 10:10 B.i. 12 ára
NEVER BACK DOWN kl. 10:10 B.i. 14 ára
NIM'S ISLAND kl. 8 LEYFÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
SEX & THE CITY kl. 8 - 10:45 B.i. 14 ára
INDIANA JONES 4 kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
INDIANA JONES 4 kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
HAROLD & KUMAR 2 kl. 8 B.i. 12 ára
WHAT HAPPENS IN VEGAS kl. 10:10 LEYFÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA
Stórvirki
óskarsverðlaumahafans
Gabriel Garcia Marquez
„ ÁSTIN Á TÍMUM KÓLERUNNAR“
SÝND Á SELFOSSI
eee
T.V. - Kvikmyndir.is
eee
- S.V., MBL
eee
- K.H. G., DV
AÐALSTEINN Kristmundsson
(1908-57), öðru nafni Steinn Stein-
arr, varð eftir sinn dag eitt ástsæl-
asta ljóðskáld Íslands. Jafnt í rím-
uðu sem órímuðu – og hafa
örugglega fáir náð viðlíka lýðhylli úr
atómdeild innvígðra listkera og
hann.
Þá kæmi né heldur á óvart ef
Steinn reyndist tónsettasta skáld
seinni tíma hér á landi. Og það af
óvenjubreiðum hópi, því stíltegund-
irnar spanna allt frá vísnarauli og
rokki í klassík og akademíska fram-
úrstefnu. Nánast annar hver tón-
smiður lýðveldisins – einfaldur,
flókinn eða þar á milli – virðist fyrr
eða síðar finna hvöt til að semja
a.m.k. eitt lag við ljóð eftir þennan
snjalla brúarsmið hefðar og fram-
sækni.
Það verður aldrei nógsamlega
undirstrikað hvað hin virka almenna
þátttaka er mikilvæg menningarlífi
hvers lands. Kannski marktækasta
hnattræna mælistikan á kúltúrkv-
arða þjóða. Og þar er Ísland enn í
fremstu röð; hvort heldur með eða
án gatslitna fyrirvarans „miðað við
fólksfjölda“. En með því er auðvitað
ekki sagt að allt sé gull sem glóir.
Þónokkrir hafa nuddað sig utan í
Stein án þess að neistaði af sem
skyldi. M.ö.o. notað snillinginn sem
hækju.
Þetta kom annað slagið í ljós á
fjölsóttu tónleikunum sl. fimmtu-
dag, þar sem popp-, rokk- og vísna-
söngsútfærslur á afurðum skáldjöf-
ursins voru á boðstólum undir
ljóðabókarfyrirsögninni Ferð án
fyrirheits. Tilefnið var aldarafmæli
skáldsins og væntanlega meginfor-
senda uppákomunnar á þessari
Listahátíð.
Það stakk því óneitanlega í stúf
hversu lítið heyrðist af kveð-
skapnum í mörgum hinna 25 laga
(helmingur þeirra, þ.e. fyrir hlé, var
eftir Jón Ólafsson og Sigurð Bjólu).
Ekki fyrir misskýran framburð ein-
stakra söngvara heldur einkum fyr-
ir ærandi hávaða, er færðist svo í
aukana að halda mætti að risavaxnir
víðavangsrokktónleikar væru keppi-
keflið frekar en eðlilegt samspil lags
og texta. Allavega náði ég ekki til-
ganginum, jafnvel þótt undirtektir
áheyrenda væru furðugóðar. Gilti
þar einu þótt fjöldi úrvalsspilara og
söngvara ættu í hlut. Hljóðblönd-
unin var algerlega út úr kú, og eyði-
lagði m.a.s. mörg skástu tilþrif
hinna oftast ónafngreindu útsetjara.
Þótt stundum heyrðist svolítið í
tveggja manna strengjasveitinni var
hún almennt meira fyrir augu en
eyru. Sömuleiðis mætti afgangi hver
samdi og útsetti hvað. Enda var
uppröðun laga allt önnur en í tón-
leikaskrá og komu upplýsingar mis-
vel eða ekki fram af munnlegum
kynningum, þótt annars væri létt
yfir þeim. T.a.m. óborganlegum lýs-
ingum Jóns Ólafssonar á útför og
brúðkaupi þar sem Suðurlands-
skjálfti dagsins lék aðalhlutverkið.
Þær björguðu vissulega nokkru.
En ekki öllu.
Fyrirheit án efnda
Ríkarður Ö. Pálsson
TÓNLIST
Íslenzka óperan
NÝ og eldri popp-, rokk- og vísnalög við
ljóð Steins Steinarr eftir Jón Ólafsson,
Sigurð Bjólu, Magnús Eiríksson, Torfa
Ólafsson, Bergþóru Árnadóttur, Ingólf
Steinsson, Steinar Berg Ísleifsson, Guð-
mund Árnason og Ragnar Bjarnason.
Söngvarar: KK (+ belggítar & munn-
harpa), Ellen Kristjánsdóttir, Helgi
Björnsson, Hildur Vala Einarsdóttir, Svav-
ar Knútur (+ belggítar) og Þorsteinn Ein-
arsson (+ rafgítar). Jón Ólafsson hljóm-
borð, Guðmundur Pétursson
rafgít./fetilgít., Valdimar Kolbeinn Sig-
urjónsson rafbassi, Helgi Svavar Helga-
son trommur, Una Sveinbjarnardóttir
fiðla og Hrafnkell Orri Egilsson selló.
Fimmtudaginn 30. maí kl. 20.
Listahátíðartónleikarbbmnn
FJÖLDI fólks sótti hina ýmsu dag-
skrárliði á 100 ára afmælishátíð
Hafnarfjarðar um helgina. Meðal
dagskráratriða var dagskrá sem
kallaðist Hafnarfjörður rokkar,
fjölskyldutónleikar á Víðistaðatúni.
Margir af kunnustu tónlistar-
mönnum landsins komu fram, auk
minni spámanna. Á meðal flytjenda
voru Megas, Sálin, Sprengihöllin,
Bigband Samma og Hafnfirðingur-
inn mjúkraddaði Björgvin Hall-
dórsson. Sögðu viðstaddir stemn-
inguna hafa verið góða og tóku
gestir vel undir í lögum sem þeir
þekktu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vinsælir Áhorfendur voru vel með á nótunum þegar Sálin hans Jóns míns steig á svið.
Rokkað í
Hafnarfirði
Í formi Meistari Megas tók nokkra kunna slagara sem aldrei bregðast.
EDDIE Murphy hefur ákveðið að
leika í fjórðu myndinni um lögguna
Axel Foley í Beverly Hills, Beverly
Hills Cop 4, að því er kvikmynda-
tímaritið Variety heldur fram.
Paramount fyrirtækið mun fram-
leiða og stefnir að því að frumsýna
hana eftir tvö ár. Brett Ratner verð-
ur í leikstjórastólnum en hann á að
baki myndir á borð við Rush Hour
og X Men: The Last Stand.
Murphy mun sjálfur hafa borið
hugmyndina upp en hann skaust
upp á stjörnuhimininn árið 1984 í
fyrstu myndinni sem sló í gegn og
leiddi af sér tvær framhaldsmyndir.
Seinasta myndin kom út árið 1994.
Ein löggu-
mynd til
Enn og aftur Eddie Murphy á vegg-
spjaldi Beverly Hills Cop II.
AÐAL brúðkaups-
tímabilið er að hefj-
ast, hér heima sem er-
lendis, og á síðustu
dögum hafa tískuhús
víða um heim sýnt það
nýjasta í fatnaði fyrir
þau sem eru að ganga
í hjónaband. Með-
fylgjandi ljósmyndir
sýna nýjustu hönn-
unina á fatnaði fyrir
brúðhjón frá Fuen-
tecapala á Spáni, en
fötin voru sýnd á
Brúðkaupsvikusýning-
unni í Barcelona.
Brúðar-
tískan
Reuters
Hvítir Piltarnir sýna það nýjasta
nýtt í hvítum jakkafötum. Stílhrein
en varla þó heppileg á útihátíð.
Vinsæl Charisse Verhaert, unnusta Julio Jose
Iglesias, sonar söngvarans góðkunna, sýnir hér
tvílita samsetningu frá Fuentecapala.