Morgunblaðið - 02.06.2008, Side 30

Morgunblaðið - 02.06.2008, Side 30
Morgunblaðið/Frikki HÉR og þar í beðum borgarinnar sér maður starfsmenn bæjarins sitja og vinna við að búa þau undir sumarblómin. Líklega eru margvísleg mál rædd og ýmsar heimspekilegar vangaveltur eiga sér stað yfir moldarbeðunum. Beðin undirbúin 30 MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Kaffi, kleinur og kærleikur EITT sinn gaf Guð mér opinberun við uppvaskið. Það var þegar ég var enn eldheitur kristinn bókstafs- trúarmaður. Hún var eitthvað á þessa leið: Menn hafa ekki skilið Guð rétt þegar þeir byggja musteri og kirkjur á sama tíma og þeir drepa menn af öðrum þjóðum, litarhætti, trúar- brögðum og stjórnmálaskoðunum. Þeir reisa gullin musteri og kaup- hallir á meðan fólk er heimilislaust og sveltur um víða veröld. Það er röng breytni, þar sem fólk er musteri Guðs. Með því að hugsa vel um náungann þjónum vér Guði best. Það er hin sanna guðsþjónusta. Mér skildist líka að þó ég hafi verið á kafi í kristinni kenningasmíð í yfir þrjátíu ár hefur hún móðir mín staðið nær Guði en ég með því að vera góð móðir og húsmóðir og hugsa vel um börnin sín, án þess að flækja sig í trúarkreddum og stælum. Það er hin sanna og rétta guðsdýrkun. Ég sá hvað Guð átti við, þar sem ég stóð við uppvaskið. Ég minntist einnig orða munksins sem spurði meistara sinn hvað hann ætti að gjöra til þess að verða full- kominn. Farðu og skrúbbaðu gólfið, var svarið sem hann fékk. Vinur minn, Pétur Þormar, orðaði það á svipaðan hátt: Farðu út með ruslið fyrir konuna þína með bros á vör. Ég sá að þjónusta var lykilorð meistar- anna. Maðurinn er musteri heilags anda. Með því að þjóna fólki í kær- leika þjónum við Guði best. Það er hin sanna guðsþjónusta. Þegar við getum sest niður með fólki, bræðr- um og systrum af öðrum þjóðflokk- um, litarhætti, trúarbrögðum og stjórnmálaskoðunum og drukkið með því kaffi og borðað kleinur og pönnukökur í kærleika og friði gleðj- um við Guð. Það er sú guðsþjónusta sem Guði líkar. Ég á margt sameiginlegt með Guði. Eitt af því er að vera faðir eins og hann. Þegar börnin mín eru góð að leika sér saman er ég hamingju- samur faðir. En þegar þau deila og ósætti ríkir á meðal þeirra er mér ekki skemmt. Guð er ekki hamingju- samur Guð þegar hann sér börnin sín deila yfir smámunum sem engu varða í eilífðinni. Við sem byggjum þessa jörð erum ein fjölskylda, börn hins sama him- neska föðurs, sama foreldris. Þegar við erum góð hvert við annað gleðj- um við Guð. Þetta er sá friðarboðskapur og hin sanna guðsþjónusta sem Guð opin- beraði mér á meðan ég vaskaði upp fyrir konuna mína. Einar Ingvi Magnússon, Heiðargerði 35, Reykjavík. Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÉG ATHUGA ALLTAF HVAÐ ÉG FÉKK Í NESTI... „LÆRÐU VEL OG ÞÚ GÆTIR ORÐIÐ FORSETI“ ÉG FÉKK SAMLOKU, POKA AF KARTÖFLUFLÖGUM, APPELSÍNU, SMÁKÖKU OG MIÐA... ÉG ER EINA BARNIÐ SEM FÆR AUGLÝSINGU MEÐ NESTINU SÍNU ÞAÐ GERÐIST SVOLÍTIÐ ROSALEGA SKRÍTIÐ RÉTT ÁÐAN HVAÐ? HVAÐ VARSTU AÐ GERA NÚNA? HA?!? ÞETTA VAR EKKI ÉG, ÞETTA VAR... ÁN ÞESS AÐ GETA NOKKUÐ GERT, HORFÐI ÉG Á VERU ÚR ANNARI VÍDD KOMA Í STAÐINN FYRIR MIG Á JÖRÐINA OG... ÉG VAR BARA AÐ SLAPPA AF ÞEGAR ALLT Í EINU KOM STÓRT SVARTHOL OG SOGAÐI MIG Í BURTU! HRÓLFUR, VAKNAÐU! ÞAÐ ER TUTTUGU GRÁÐU FROST ÚTI OG ELDIVIÐURINN ER BÚINN JÆJA? HVAÐ HEFUR ÞÚ HUGSAÐ ÞÉR AÐ GERA Í ÞVÍ? SETJA ANNAÐ TEPPI Á RÚMIÐ HANN KEMUR BARA HINGAÐ NIÐUR VEGNA ÞESS AÐ ÞETTA ER HEITUR REITUR ERTU SPENNT YFIR ÞVÍ AÐ VINKONA ÞÍN SÉ AÐ KOMA? JÁ, MJÖG! ÞÓ AÐ ÉG HAFI EKKI SÉÐ HANA LENGI HÚN VAR MJÖG VILLT ÞEGAR VIÐ VORUM Í HÁSKÓLANUM. VIÐ GERÐUM ALLS KONAR VITLEYSU SAMAN FINNST ÞÉR AÐ VIÐ ÆTTUM AÐ LÁTA NÁGRANNANA VITA? ÉG HELD AÐ HÚN HAFI RÓAST AÐEINS, EINS OG VIÐ HIN ÉG VERÐ AÐ HJÁLPA PETER! HEYRÐU! EKKI SNERTA VÉLINA! VIÐ ÞURFUM HANA! ÉG LÍKA! UHH... HÚN ROTAÐI HANN! dagbók|velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is FRÉTTIR VIÐ skólaslit Tónlistarskóla Skaga- fjarðar, sem fóru fram í félagsheim- ilinu Höfðaborg á Hofsósi á dög- unum, var úthlutað í fjórða sinn úr minningarsjóði Jóns Björnssonar, tónskálds og kórstjóra frá Haf- steinsstöðum í Skagafirði. Að þessu sinni rann styrkurinn, 100 þúsund krónur, til Sigríðar Stefaníu Ein- arsdóttur, fiðlunemanda við skólann. Í tilefni 100 ára fæðingarafmælis Jóns árið 2003 var gefinn út hljóm- diskur með úrvali laga eftir hann, í flutningi skagfirskra listamanna. Allur ágóði af sölu disksins hefur farið í minningarsjóðinn, sem ætlað er að styrkja efnilega nemendur tón- listarskólans til frekara náms. Ann- að upplag disksins kom á markað fyrir síðustu jól og hefur hann feng- ist í verslunum Pennans og í Skag- firðingabúð og Ábæ á Sauðárkróki. Á meðfylgjandi mynd er Sigríður Stefanía ásamt Eiði B. Guðvinssyni, sem afhenti styrkinn, og Sveini Sig- urbjörnssyni skólastjóra. Ljósmynd/Óli Arnar Brynjarsson Fjórða úthlutun úr sjóði Jóns Björnssonar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.