Morgunblaðið - 25.07.2008, Side 39

Morgunblaðið - 25.07.2008, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2008 39 - kemur þér við Sérblað um Þjóðhátíð í Eyjum fylgir blaðinu                      !      "   "   "      #       "     $     "         %      &  '   "    (   "    )*++    ,     -  .     (       -    (     "        /        0 " 1  23     "    "           4     $   /            /              %        !" " #$%&$'()*+,'&*"%+- . / 011 &$'(#*+,'&231*!$,4+25+* Færri bíða nú hjarta- þræðingar Hafa áhyggjur af offitu íslenskra gæludýra Glímt um geymslutíma fósturvísa Sölvi úr Quarashi afhjúpar leynivopnið Sköllóttu hármódelin Hvað ætlar þú að lesa í dag? Eftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is SÍÐAN Bob Kane og Bill Finger sköpuðu Batman árið 1939 hefur hann fengið ótal andlitslyftingar og þróun persónunnar, bæði í teiknisögum og bíómynd- um, hefur verið á svipuðum nótum; fyrst dökkur, svo ljós og jafnvel kjánalegur, og loks myrkari en nokk- urn tímann. Í sjónvarpinu var Batman hins vegar aldrei sérstaklega hættu- legur, þvert á móti nánast gangandi orðabókaskil- greining á því sem Banda- ríkjamenn kalla „campy,“ sérstaklega þá í frægum þáttum með Adam West í hlutverki Blaka – sem varð meira að segja að einni bíó- mynd að auki, sem er þó sjaldnast talin með hinum „alvöru“-myndunum. Áður höfðu þó þeir Lewis Wilson og Robert Lowery leikið hetjuna í þáttum sem nú eru flestum gleymdir. Yfirþyrmandi lífsgleði og aulahúmor En um svipað leyti og Adam West átti í ein- hverjum mest ósannfærandi bardögum sjónvarpssögunnar (miðað við bardaga- stílinn virtist hann ekki líklegur til þess að geta yfirbugað níræða konu í göngugrind) þá smitaðist þessi yfirþyrmandi lífsgleði og aulahúmor þáttanna að nokkru inn í teiknisögurnar, sem voru þó orðnar nokk- uð útvatnaðar þá þegar, sökum harðra rit- skoðunarreglna – en þær urðu þó bless- unarlega aldrei jafn kjánalegar og þættirnir. Þegar þættirnir, sem voru raunar furðu vinsælir, runnu sitt skeið döluðu vinsældir Blaka mikið. Myndasög- urnar byrjuðu þó að dökkna á ný og undir lok áttunda áratugarins tók Dennis O’Neill við að ritstýra titlinum og end- urskapaði goðsöguna að miklu leyti. Bíó-Batman fæðist Það var svo í upphafi níunda áratug- arins sem hagur Batman fór að vænkast og réð þar mestu saga þeirra Frank Mill- ers, The Dark Knight Returns, og síðan þá hefur myrkrið oftast umlukið teikni- Batman. Í kjölfarið fylgdu sögur eins og Arkham Asylum eftir Grant Morrison og Dave McKean, The Killing Joke eftir Alan Moore og Brian Bolland og Batman: Year One eftir áðurnefndan Miller og David Mazzucchelli. Í þennan brunn sótti svo Tim Burton í fyrstu tveimur Batman-myndunum, og bætti við sinni eigin gotnesku sérvisku, en þegar Joel Schumacher settist í leik- stjórastólinn fór heldur að birta yfir og þótti sú birta fæstum jákvæð. Ekki það að fyrri mynd hans, Batman Forever, hafi verið alslæm en það var hins vegar sú næsta, Batman & Robin, sem nánast gerði út af við Bíó-Blakann (sem og feril Arnold Schwarzenegger, Aliciu Silverstone og Chris O’Donnell, aðeins George Clooney og Uma Thurman komust aftur á lappir eftir þetta) með vafasömum Blöku- geirvörtum. En þrátt fyrir allt var þó jafn- vel búningur þessa Batmans ansi dökkur, grái gallinn sem Batman klæddist lengst af hefur enn ekki komist í bíó nema í út- gáfu Adams Wests. Ljósið í myrkrinu um þessar mundir var þó að teiknisögurnar héldu sínu striki og loksins kom alvöru Batman í sjónvarpið, teiknaður í þetta sinn. Þar mátti meðal annars sjá Batman framtíðarinnar yfir götum Gotham-borgar löngu eftir að Bruce Wayne lagði kápunni. Loks nær svo Christopher Nolan að reisa hetjuna upp frá dauðum og rúmlega það, myrkari en nokkru sinni fyrr. En svo er alltaf spurning hvort einhver geti ekki gert glaðlyndan Batman almennilega? Útskúfaður Val Kilmer í Batman Forever. Stóð ég úti í tunglsjósi … Rómantísk stund með vin- unum góðu Batman og Robin. Fyrsti sjónvarsblakinn Lewis Wil- son með Douglas Croft sem Robin. Aulahúmor Burt Ward og Adam West, dýna- mískt dúó, mótað af aulahúmor. 21. aldar Batman Jim Lee teiknaði þennan bláleita og hörkulega Batman fyrir fimm árum. Framtíðarblaki Terry McGinnis tekur við af Bruce Wayne í Batman Beyond. Upprisan Hinn svarti ridd- ari Millers snýr aftur. Teiknimynda-Batman Þeir Paul Dini og Bruce Timm komu með Art Deco fílinginn í Batman í teikni- myndaseríum í byrjun tí- unda áratugarins. Clooney Hann virtist um tíma ætla að verða síðasti bíó-Batman. Mörg andlit Blaka Frumraunin Svona birtist hetjan fyrst á forsíðu tímarits- ins Action Comics, teiknuð af Bob Kane.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.