Morgunblaðið - 25.07.2008, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 25.07.2008, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Það hefurekki alltafþótt sjálf- sagt að fyrirtæki beri ábyrgð á um- hverfi sínu. Víst er að um- gengni fyrirtækja er misjöfn eftir því hvar í heiminum þau starfa. Samtökin Saving Ice- land héldu fund í Reykjavík- urAkademíunni á miðvikudag þar sem fram komu rithöf- undarnir Andri Snær Magna- son og Smarendra Das. Andri Snær fjallaði um heildarskað- ann sem álverin valda í heim- inum og kvað hann mikinn. „Það sem við vitum ekki er hvaðan báxítið kemur,“ sagði hann. Das er frá Indlandi og hefur rannsakað áliðnaðinn í 15 ár. Lýsti hann því hvernig iðnaðurinn hefði farið með fylkið Orissa á Austur- Indlandi þar sem fjórðu mestu báxítbirgðir heims er að finna. Hann vændi álfyr- irtækin um að segja ekki alla söguna um afurðina, þeim hefði tekist að „grænþvo“ sig, eins og hann orðaði það. Eins og kemur fram í fréttaskýringu Önundar Páls Ragnarssonar blaðamanns í Morgunblaðinu í dag fylgir mikið rask námi báxíðs og vinnslu súráls úr því. Mikill vandi hefur fylgt því að eiga við úrganginn frá vinnslunni, rauða leðju, sem er við- urkennt umhverfisvandamál. Ein og hálf til þrjár milljónir tonna af rauðri leðju verða til við vinnslu súráls- ins sem flutt er til Íslands til áls- vinnslu. Talsmenn ál- félaganna, sem reka álver á Íslandi, segja að þau vinni í sátt við yfirvöld og uppfylli staðla í umhverfismálum. Fram kemur að Alcan hafi hætt við að kaupa súrál frá Orissa af mannréttinda- og umhverfisástæðum. Mörg alþjóðleg fyrirtæki, sem starfa eða láta framleiða fyrir sig í þróunarlöndunum, hafa þurft að laga vinnubrögð sín vegna þrýstings neytenda um að virða mannréttindi og draga úr mengun. Neytendur hafa einfaldlega sniðgengið fyrirtæki, til dæmis í fataiðn- aði, sem ekki hafa bætt ráð sitt. Brot á borð við barna- þrælkun eiga sér þó víða enn stað. Það er rétt hjá Andra Snæ að hér á landi hefur of lítið verið rætt um uppruna hrá- efnisins sem notað er til að framleiða ál á Íslandi. Um- hverfisrökin verða lítilfjörleg ef ekki er vandað til verka þegar hráefnið er sótt og unn- ið annars staðar í heiminum. Hráefnið, sem hér er unnið, kemur frá Jamaíku, Súrinam, Bandaríkjunum, Írlandi og Ástralíu og brátt er von á að Brasilía bætist við. Hvernig er málum háttað í þessum löndum? Ferlið þarf að vera gagnsætt frá upphafi til enda. Hafa álfyrirtækin verið grænþvegin? }Ábyrgð fyrirtækja Því miður verðamargir krakkar af erlend- um uppruna fyrir ofbeldi og einelti í skólanum,“ sagði Dane Magn- ússon, formaður Félags anti- rasista, í viðtali við Morg- unblaðið í gær. Hann hefur sjálfur reynslu af einelti í skóla og segir það hafa komið niður á íslensku- námi sínu því hann vildi helst ekki vera í skólanum Og hann hefur orðið fyrir árásum í miðborg Reykjavíkur „eins og fleiri útlendingar“. Íslendingar stæra sig stundum af því að hér séu engir fordómar í garð útlend- inga eða fólks af erlendum uppruna. Sú mynd er því mið- ur ekki raunsönn. Allt of oft berast fréttir af því að ráðist hafi verið að fólki með ljótu orðbragði eða jafnvel lík- amlegu ofbeldi, af því að það talar ekki íslensku, er af öðr- um kynþætti eða sker sig úr meirihluta landsmanna á ann- an hátt. Formaður Félags anti- rasista bendir réttilega á að þörf sé að koma fræðslu í grunn- skólana og á vinnustaði. Þá þurfi að fara yfir það hvernig útlendingar geti leitað til lögreglunnar þótt þeir tali ekki íslensku. Félag anti-rasista á samvinnu við Alþjóðahús, sem hefur unnið mikið og gott starf á undanförnum árum í þágu Ís- lendinga og útlendinga. Í því fjölmenningarsam- félagi, sem óneitanlega er að myndast á Íslandi, er brýnt að huga að því að útrýma for- dómum. Það verður hins veg- ar tæpast gert í eitt skipti fyrir öll, heldur verður sífellt að halda vöku sinni svo for- dómarnir skjóti ekki upp koll- inum á ný. Foreldrar verða að ræða við börn sín um for- dóma, eins og formaður Fé- lags anti-rasista bendir á. Þeir verða að koma börn- unum í skilning um hvað er rétt og hvað rangt. Því eins og formaðurinn bendir á þá er „verst að gera ekki neitt“. Foreldrar verða að ræða við börn sín}Burt með fordómana U ndanfarin ár hafa borist fréttir af mikilli verðbólgu í Simbabve, nú síðast mældist hún 2,2 millj- ónir prósenta. Oft hefur mér þótt íslenskir fjölmiðlar fjalla um verðbólguna í þessu fjarlæga landi af frek- ar mikilli léttúð, jafnvel að það hafi verið grín- tónn í umfjölluninni. Þetta hefur mér fundist eiga við um alla fjölmiðla landsins og fjöl- miðlar þess fyrirtækis sem ég vinn fyrir eru þar engin undantekning. Ef til vill er þetta eingöngu tilfinning mín og ef til vill er hún röng en hvað sem því líður hef ég orðið vitni að því að fólk nefni þessar tölur sem dæmi um fáránleika. Verðbólga upp á 2,2 milljónir prósenta virk- ar eflaust fáránleg og jafnvel hlægileg í eyrum margra en almenningi í Simbabve er síður en svo hlátur í huga. Til samanburðar má geta þess að verð- bólgan á Íslandi mældist í síðustu mælingu Hagstof- unnar 12,7% og þegar júlímælingin verður gerð opinber í dag má ætla að verðbólgan verði orðin meiri en það. Engum dylst að mikill bölmóður er í umræðunni um efnahagsmál hérlendis og hversu oft höfum við ekki heyrt að heimili landsins séu að sligast undan verðbólg- unni? Verðbólgu upp á 12,7%, sem gæti jafnvel farið í 14% áður en hinn margumtalaði verðbólgukúfur er liðinn hjá. Ímyndum okkur nú að verðbólgan væri 2,2 milljónir prósenta hér á landi. Til þess að setja þessa tölu í sam- hengi þýðir það að vara sem fyrir ári kostaði 10 krónur kostar í dag 220 þúsund krónur. Almennt verðlag í Simbabve hefur sem sé 22 þúsund faldast á einu ári. Tvennt getur valdið svona verðbólgu. Ann- ars vegar umtalsvert meiri seðlaprentun en heilbrigt er og hins vegar almennur skortur á öllum vörum. Mér er svo sem ekki kunnugt um hvort það er yfirgengileg seðlaprentun eða skortur á vörum sem veldur ástandinu í Simbabve en báðir þessir þættir geta átt ræt- ur að rekja til óstjórnar. Miðað við þær sögur sem heyrst hafa frá Simbabve er ekki ólíklegt að þar hafi seðlaprentun verið yfirgengileg og að skortur ríki, enda haldast þessir þættir yfirleitt í hendur. Haldist þeir ekki í hendur leiðir verðbólgan yfirleitt til skorts og höfum í huga að honum fylgir oftast mikil eymd og neyðarástand. 2,2 milljóna prósenta verð- bólga lýsir engu öðru en eymd. Við Íslendingar þekkjum mikla verðbólgu enda er ekki nema aldarfjórðungur síðan verðbólgan hér náði 100%. Við bárum gæfu til þess að vinna bug á þeirri verðbólgu en reynslu okkar vegna ættum við að hafa meiri skilning á því ástandi sem ríkir í Simbabve. Almenningur í Simbabve reynir að gera eins gott úr stöðunni og hægt er – það er mannlegt eðli – og hefur sennilega lítinn áhuga á því hvernig fjallað er um landið í íslenskum fjölmiðlum. En eiga íbúar Simbabve það ekki skilið að við fjöllum um líf þeirra af virðingu? sverrirth@mbl.is Guðmundur Sverrir Þór Pistill Sýnum virðingu FRÉTTASKÝRING Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is Þ ótt ál sé silfurgrátt eru ýmsir aðrir litir tengdir við það. Til dæmis grænn, vegna þess að hérlendis verður orkan til framleiðslunnar til án losunar gróðurhúsalofttegunda og ál er á margan hátt umhverfisvænna í notk- un en stál og járn, er t.d. gott í end- urvinnslu. Aðrir mála álframleiðsl- una öðrum og dekkri litum. Hluti af því tengist hráefnum hennar, jarð- vegsefnum sem nefnast báxíð og sú- ráli sem úr þeim er unnið. Þ.e. að ís- lenska framleiðslan sé aðeins hluti af stærra og ógnvænlegra samhengi. Súrálsvinnsla fer fram víða um heim, t.d. í Bandaríkjunum, Indlandi og Ástralíu, á eyjum Karíbahafsins, í Írlandi og Suður-Ameríku. Yfirleitt eru yfirborðsnámur, stórar að flat- armáli, uppspretta hráefnisins. Stundum þarf skóglendi að víkja fyr- ir þeim. Aðferðin við vinnslu súráls kallast Bayer-hringrás. Hún byggist aðallega á blöndun vítissóda við báx- íð og upphitun þeirrar blöndu undir þrýstingi. Við það eru sum efni skilin frá en önnur verða eftir. Úrgang- urinn er rauð leðja sem er við- urkennt umhverfisvandamál. Leðj- unni er dælt í opnar tjarnir, allt að 45 hekturum að flatarmáli, sem svo eru látnar þorna upp. Það getur valdið foki. Lengi vel var rauðri leðju víða veitt út í hafið. Þetta hljómar ekki vel, en á síðari árum hefur hins vegar verið reynt að minnka áhrif þessa. T.d. að klæða tjarnirnar með einangrandi lagi til að hindra leka, vökva yfirborð þeirra til að hindra fok, moka yfir þær og græða svo landið. Viðmælendur segja losun í haf óþekkta nú til dags. Einhver námafyrirtæki gera eflaust það sem þau geta, á meðan önnur standa sig afar illa. En hvaðan kemur þá súrál til Ís- lands? Láta Íslendingar fram- leiðsluaðferðirnar sig einhverju varða? Almennt virðist útvegun hrá- efna standa Íslendingum í álfram- leiðslu fjarri og þau mál vera að stórum hluta á könnu hinna erlendu móðurfélaga. Að sögn Ágústs F. Hafberg hjá Norðuráli fær álverið á Grundartanga hráefni frá Jamaíku og Súrínam í gegnum evrópsk hrá- efnisfyrirtæki, t.d. BHP Billiton og Glenncore. Móðurfélagið Century Aluminum rekur ásamt námafyr- irtækinu Noranda báxíðnámur á Jamaíka og súrálsvinnslu í Gra- mercy í Louisiana í Bandaríkjunum. Norðurál hafi framleiðslusamninga við námafyrirtækin og móðurfélagið sjái um þau viðskipti. Ágúst segir fyrirtækin vinna í fullri sátt við yf- irvöld og hafa metnaðarfull markmið í umhverfis- og öryggismálum. Magnús Þór Gylfason hjá Rio Tinto Alcan í Straumsvík segir allt súrál koma til þeirra frá Texas og Ír- landi fyrir milligöngu móðurfélags- ins. Kröfur séu gerðar til birgja ál- versins um að uppfylla ákveðna staðla í umhverfismálum. Móð- urfélagið geri þær kröfur fyrir hönd Alcan á Íslandi. Alcan hafi m.a. hætt við að kaupa nokkurt súrál frá Or- issa á Indlandi fyrir nokkrum árum af mannréttinda- og umhverf- isástæðum. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, segir allt súrál sem álverið notar ástralskt, frá fyr- irtækjum innan Alcoa-samsteyp- unnar. Hins vegar eigi að skipta um birgja og fá súrál frá Consórcio Al- umar í São Luís í Brasilíu til fram- tíðar. Það tilheyrir einnig Alcoa. Að- spurður segir Tómas Már báxíð- og súrálsvinnsluna eðlilegan hluta af því að búa til „græna málminn“, hún breyti því ekki að ál sé umhverf- isvænn málmur. Hér á landi eru framleidd 790.000 tonn af áli á ári og flutt inn 1.520.000 tonn af súráli. Við framleiðslu þess verða til ein og hálf til þrjár milljónir tonna af rauðri leðju á hverju ári. Kannski er íslenskt ál því hvorki leðjurautt né grænt, en einfaldlega silfurgrátt. Hvernig er græni málmurinn á litinn?    6!7  /   / 8   )%          9 Úrgangsjarðvegur súrálsvinnslu hefur pH-gildi um 13, er semsagt álíka basískur og bleikiefni til heimilisnota. Það er m.a. vegna mikillar notkunar vítissóda við vinnslu súrálsins úr báxíðinu. Blandaður vatni kallast þessi jarð- vegur rauð leðja (e. red mud). Hún inniheldur einnig mikið magn brennisteins. Árlegt magn rauðrar leðju sem verður til í heiminum er um 70 milljónir tonna, að sögn Red Mud Project, samtaka sem berjast fyrir lausnum á vandamálum sem þessu fylgja. Á Íslandi er ál (e. aluminium/ aluminum) unnið úr súráli (e. al- umina). Það er gert með rafgrein- ingu í 960 gráðu heitum kerjum fylltum af raflausn. Súrálið sjálft er innflutt hvítleitt duft. Það er unnið úr báxíði (e. bauxite), sem er jarð- vegur, ríkur af vatnsbundnu áloxíði og hýdroxíðum. Þegar súrálið er framleitt úr báxíðinu nefnist úr- gangur framleiðslunnar rauð leðja. Hún þykir ekki holl umhverfinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.