Morgunblaðið - 14.08.2008, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2008 37
skyldufaðir frá Seattle sem ákvað
að „mastera“ Donkey Kong þegar
hann varð atvinnulaus. Sá vondi,
Billy Mitchell, er handhafi heims-
metsins í Donkey Kong og sérfræð-
ingur í fjölda annarra leikja, m.a.
Pac Man. Mitchell hefur í kringum
sig væna hirð nörda og telur sér
eðlilega ógnað þegar hann fréttir
af Donkey Kong-snillingnum frá
Seattle.
Eftir því sem líður á myndina
verður hún að naskri skoðun á
mannlegu eðli, hvernig fullorðið
fólk fer að því að týna sér í eigin
tilbúna heimi. Pólitíska refskákin í
kringum gamla tölvuleikjakassa er
svæsin og það sem virðist í okkar
augum algjör absúrdismi er graf-
alvarlegt mál hjá þeim sem lifa og
hrærast í þessum (takmarkandi)
heimi.
Eftir myndina, sem var ekkertminna en sláandi, fór ég að
grafast aðeins meira fyrir um „per-
sónur og leikendur“ og komst þá
að ýmsu athyglisverðu. Svo virðist
nefnilega sem hlutirnir séu ekki al-
veg jafn svartir og hvítir og þeim
er stillt upp í myndinni; ekki er um
alvonda og algóða menn að ræða
og einn gagnrýnandi sem ræddi við
Mitchell í kjölfar myndarinnar seg-
ir að hallað hafi verið viljandi á
hann í þeim tilgangi að „búa til
gott bíó“ en myndin rúllar áfram
eins og spennumynd og hvergi er
dauðan punkt að finna. Myndin hafi
því verið klippt til eftir hentugleik
og sé því ekki sannferðug heimild
um þessar stríðandi Donkey Kong-
fylkingar. Eins og í tilfelli feitra
bónusstiga náði myndin líka – sam-
fara því að vera bæði drepfyndin
og djúpt hugsuð – að hræra upp í
spurningunni um eðli og tilgang
heilmildarmyndagerðar. „Borðin“ í
myndinni eru því mörg og mismun-
andi, svo ég noti „lingó“ úr tölvu-
leikjaheimum. arnart@mbl.is
» Pólitíska refskákiní kringum gamla
tölvuleikjakassa er
svæsin og það sem
virðist í okkar augum
algjör absúrdismi
er grafalvarlegt mál
hjá þeim sem lifa
og hrærast í þessum
(takmarkandi) heimi.
Rúmgóð 2ja herbergja 67,6 fm þjónustuíbúð (60 ára og eldri) á 5. hæð.
Nýlegt eikarparket er á íbúðinni. Stofan er björt með glugga á tvo vegu.
Húsvörður er í húsinu ásamt þjónustuseli. Tvær lyftur. Góðar austursvalir
og fallegt útsýni. Laus við kaupsamning. Verð 25,5 millj.
TEKIÐ VERÐUR Á MÓTI ÁHUGASÖMUM Í DAG MILLI KL. 17 OG 19.
OPIÐ HÚS Í DAG FIMMTUDAG KL. 17-19.
HRAUNBÆR 103, 110 REYKJAVÍK
ÞJÓNUSTUÍBÚÐ
Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013
jöreign ehf
Kristinn Valur Wiium Ólafur Guðmundsson
sölumaður s. 896-6913 sölustjóri s. 896-4090
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
SJÓNVARPSSTÖÐIN MTV leitar
þessa dagana að besta tónlistar-
myndbandi allra tíma og hafa sér-
fræðingar frá stöðinni MTV 2, MTV
Base og VH1 hnoðað saman lista yfir
þau 100 og upp úr honum 10 laga lista
yfir bestu tónlistarmyndbönd allra
tíma. Eitt þeirra er myndband við lag
Bjarkar, „All Is Full Of Love“. Mynd-
in hér fyrir ofan er úr því myndbandi.
Það er svo netverja að greiða at-
kvæði um besta myndbandið, á vef-
síðunni mtv.co.uk. Kosning hefst 18.
ágúst og lýkur á miðnætti 14. sept-
ember. Listi yfir 10 bestu mynd-
böndin verður birtur 21. september.
Hægt er að horfa á myndbönd og
kjósa á slóðinni: www.mtv.co.uk/
channel/mtvuk/competitions/
greatest-video-ever. Frá þessu segir
á vefsíðu Bjarkar og vefsíðu MTV.
Bjarkar-
myndband eitt
þeirra bestu
Vefsíða Bjarkar: bjork.com