Morgunblaðið - 18.08.2008, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir,
annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
„ÉG hefði þurft að bíða í eitt eða tvö
ár áður en ég hefði komist inn á bið-
listann, bara af því að lækninum mín-
um hugnaðist ekki að ég færi í að-
gerðina strax. Ég vildi ekki sitja undir
því að hann tæki ákvörðun um það
hversu lengi ég kveldist heima hjá
mér,“ segir Elvar Guðjónsson við-
skiptafræðingur. Hann var á síðasta
ári orðinn draghaltur og sárkvalinn
vegna slitinnar mjaðmar. Bæklunar-
læknir sem hann leitaði til sagði hon-
um að harka af sér og bíða þar til verkirnir versnuðu svo
hann gæti ekki sofið. Þá skyldi hann komast á biðlista
eftir mjaðmaskiptaaðgerð.
Elvar var ósáttur við svörin og leitaði annað. Hann
hafði samband við finnskan bæklunarskurðlækni sem
hefur um árabil framkvæmt hundruð mjaðmaaðgerða
sem þykja betri fyrir ungt fólk en mjaðmaskiptin, en
Elvar er 48 ára gamall, sem þykir ekki hár aldur þegar
mjaðmaslit er annars vegar. Mjaðmarkúlan er þá löguð
og fóðruð. Hann spurðist fyrir hjá Tryggingastofnun
(TR) um hvort aðgerð í Finnlandi fengist greidd en fékk
neikvæð svör, þar sem einn læknir á Akureyri hefði
framkvæmt nokkrar slíkar aðgerðir hérlendis. Sá tjáði
Elvari að hann hefði litla reynslu af þessu og að biðtím-
inn væri 8-10 mánuðir. Elvar beið því í tvær vikur, fór
svo til Finnlands í desember 2007 og greiddi ferðina og
aðgerðina sjálfur, um 1,6 milljónir króna. Hann segist
engar upplýsingar hafa fengið hjá lækninum sínum hér
um þennan möguleika, og við það er hann einnig ósáttur.
Lærði um réttindi sín eftir aðgerðina
Eftir heimkomuna komst Elvar að raun um að sam-
kvæmt EES-reglum eiga sjúklingar rétt á því að aðgerð-
ir sem gerðar eru í öðrum EES-löndum en heimalandi
þeirra fáist greiddar út úr almannatryggingum ef að-
gerðirnar eru nauðsynlegar. Hann hefur sótt um greiðsl-
una hjá TR.
„Við erum að bíða eftir svari þaðan. Ef það verður ekki
jákvætt endar það væntanlega með því að ég fer í mál við
íslenska ríkið og læt á þetta reyna,“ segir Elvar.
„Finnski læknirinn vill meina að þessar upplýsingar
sem ég fékk hér heima séu bara gamaldags og úreltar,
að maður þurfi að eyða bestu árum ævi sinnar í að vera
sárkvalinn og ómögulegur og þurfi svo að bíða eftir að-
gerð í eitt eða tvö ár þegar loksins er komið að manni.“
Átti að bíða sárkvalinn
Vill að Tryggingastofnun ríkisins greiði mjaðmaaðgerð sem gerð var í Finnlandi
Íslenskur læknir sagði honum að bíða þar til verkirnir ykjust, til að komast á biðlista
Í HNOTSKURN
»EBE-reglugerð númer1408/71 kveður á um rétt
sjúklinga til heilbrigðisþjón-
ustu yfir landamæri aðildar-
ríkja EES.
»Þar segir að sjúklingareigi rétt á að nauðsynleg
aðgerð, sem gerð er í öðru að-
ildarlandi en heimalandi, fáist
greidd heima fyrir.
»Ekki hefur verið látiðreyna á ákvæðið hérlendis
en lögfræðingur Elvars segir
einstaklinga hafa unnið slík
mál fyrir dómstólum í Evrópu
og niðurstöðuna iðulega hafa
ráðist af því hvort þjónustan
teljist nauðsynleg í skilningi
reglugerðarinnar.
Elvar
Guðjónsson
GRUNN- og framhaldsskólar landsins hefjast flestir í
vikunni og má gera ráð fyrir að um 4.200 börn leggi
leið sína í skólann í fyrsta skipti.
„Umferðarstofa leggur mikla áherslu á það að for-
eldrar láti börnin sín, ef mögulegt er, ganga til og frá
skóla í stað þess að þau séu keyrð,“ segir Einar Magnús
Magnússon, upplýsingafulltrúi Umferðarstofu. Meira
umferðaröryggi felist í minni umferð ökutækja í kring-
um skólana en auðvitað sé mikilvægt að börnin fylgi
öruggri leið.
Mannaráðningar ganga þokkalega
„Það hefur kannski ekki gengið jafnhratt og við von-
uðumst til,“ segir Kristinn Breiðfjörð Guðmundsson,
formaður Skólastjórafélags Íslands, aðspurður hvernig
gangi að manna skólana. Í síðustu viku hafi til að
mynda vantað 25 kennara í Reykjavík en ástandið sé
þokkalegt úti á landi. |16
Þúsundir á leið í skólana
Umferðarráð beinir
til foreldra að láta börn
frekar ganga í skólann
Morgunblaðið/Golli
Nemendur Þessi prúðu börn labba eflaust öll í skólann.
SÍMINN hefur
tilkynnt um
nokkrar hækk-
anir á verðskrá
fyrirtækisins
hinn 15. sept-
ember næstkom-
andi.
Hækka sím-
reikningar fyr-
irtækja og ein-
staklinga að meðaltali um 4% og
segir fyrirtækið ástæðurnar liggja í
kostnaðaraukningu í rekstri sem
tengist meðal annars launaskriði og
breytingum á gengi krónunnar.
Símtölin
verða dýrari
Þögn er gulls ígildi.
ÓTTAR Felix Hauksson, formaður Taflfélags
Reykjavíkur, tefldi til sigurs með lifandi tafl-
mönnum í Árbæjarsafni í gær. Davíð Kjart-
ansson og Arnar E. Gunnarsson urðu efstir og
jafnir á Stórmóti Taflfélags Reykjavíkur og Ár-
bæjarsafns sem einnig var haldið þar í gær.
Morgunblaðið/Frikki
Teflt á tánum í Árbæjarsafni
JARÐSKJÁLFTAHRINA var um
15 km austur af Grímsey í gær. Hrin-
an var með smáhléum og langflestir
skjálftanna fremur smáir að því er sjá
mátti á heimasíðu Veðurstofunnar.
Þar eru birtar niðurstöður sjálfvirkra
jarðskjálftamælinga. Höfðu orðið um
hundrað skjálftar austur af Grímsey
frá því aðfaranótt laugardags.
Laust eftir klukkan fimm í gær-
morgun varð jarðskjálfti sem mældist
3,5 stig um 11,2 km austur af Gríms-
ey. Á sömu mínútunni varð jarð-
skjálfti upp á 3 stig um 6 km norð-
norðvestur af Þeistareykjum.
Að sögn starfsmanns á Veðurstofu
Íslands var ekki búið að fara yfir
þessar sjálfvirku mælingar.
Enn skelfur jörð
við Grímsey
!
Langflestir skjálftanna fremur smáir
ENGINN samdráttur er í verk-
efnum hjá fyrirtækinu Fasteigna-
viðhaldi. Verkefnin hafa hlaðist
upp í sumar, að sögn Guðmundar
Dýra Karlssonar, eins eigenda
fyrirtækisins.
Fasteignaviðhald annast m.a.
steypuviðgerðir, klæðningu á hús-
um, gluggaskipti og þakviðgerðir.
Guðmundur segir að sumarið í ár
hafi verið eitt hið besta í átta ára
sögu fyrirtækisins. Hann er nú
með þrjú stór verkefni á borðinu
að virði allt að hundrað milljónum
króna.
Ástæður þessara anna við fast-
eignaviðhald nú eru nokkrar, að
mati Guðmundar. Ein er sú að í
þenslunni var erfitt að fá iðnaðar-
menn í viðhaldsverkefni. Önnur er
ástandið á fasteignamarkaði. Fólk
sem ekki hefur getað selt húsnæði
ákveður að láta laga það. Þá hefur
slæmt tíðarfar á liðnum vetri haft
sín áhrif. Mikil vætutíð reyndi á
húsin og varð víða vart leka, sem
ýtti við mörgum að láta gera við.
Guðmundur bendir á að jafnt
íbúðarhús, atvinnuhúsnæði, opin-
berar byggingar og mannvirki
þarfnist viðhalds. Hann segir
verkefnin deilast tiltölulega jafnt
á milli hverfa á höfuðborgarsvæð-
inu. | Fasteignir
Morgunblaðið/Þorkell
Viðhald Hlynna þarf að fasteignum.
Nóg að gera í
viðhaldi húsa