Morgunblaðið - 18.08.2008, Page 8
8 MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Skúla Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
AF 350 húsum sem myglusveppur hefur komið
upp í og Sylgja Dögg Sigurjónsdóttur líffræð-
ingur hefur rannsakað er um fjórðungur
byggður á síðastliðnum sex árum. Þetta telur
hún óeðlilega hátt hlutfall. Myglusveppurinn
þrífst í miklum raka og því er undarlegt að
hann skuli komast á legg í húsum sem ekki eru
eldri en þetta.
Sveppinn hefur Sylgja helst fundið við
gluggaísetningar, meðfram gólfefni og í þeim
húsum sem hafa flöt þök.
Húseigendafélaginu hafa ekki borist nein
erindi vegna myglusveppa í nýlegum húsum.
Þá hafa Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar
ekki borist óvenjumargar athugasemdir að
undanförnu vegna myglusvepps, að sögn Ár-
nýjar Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra
þess. Hún bendir á að myglusveppur sé eðli-
legur hluti af örveruflórunni en hann eigi ekki
að fá að vaxa óáreittur í mannabústöðum. „Ef
fólk sér myglusveppinn berum augum þá á það
að leita orsakarinnar, grípa til viðeigandi að-
gerða og hafa samband við heilbrigðiseftirlitið
telji það sig þurfa utanaðkomandi aðstoð.“
Engin ástæða sé til að óttast sveppinn, aðeins
þurfi að bregðast rétt við honum.
Sylgja samsinnir þessu en bendir á að engir
staðlar séu til um hve mikið af myglusveppi
þurfi til að hann teljist óæskilegur. Ræður hún
fólki því frá því að taka nokkra áhættu hvað
þetta varðar.
Björn Marteinsson, sérfræðingur hjá Ný-
sköpunarmiðstöð Íslands, segir að miðað við
það hvar í húsunum sveppurinn hafi fundist sé
orsök hans sennilega slæleg vinnubrögð við
byggingu þeirra. „Það er eitthvað sem menn
gera vitlaust.“
Hin háa tíðni getur einnig komið til af því að
hús séu byggð á mjög skömmum tíma. Þá sé
steypan ekki þornuð þegar flutt er inn og ekki
komin í jafnvægi við umhverfi sitt. „Þetta get-
ur tekið marga mánuði og allt upp í ár að jafna
sig,“ segir Björn. Loftið innandyra verði því
rakamettaðra en ella og auki verulega hættu á
að myglusveppur verði vandamál.
Eðlilegur og almennt hættulaus
Sveppinn segir hann ekki hafa verið sér-
stakan vanda fyrr en á seinni árum. Á þeim
tíma hafi menn einmitt haft tilhneigingu til að
byggja hús hratt og á skömmum tíma.
Mikið um myglusveppi í nýjum húsum
Fjórðungur húsa sem sveppur fannst í var byggður á síðustu sex árum „Eitthvað sem menn gera
vitlaust“ segir sérfræðingur hjá Nýsköpunarmiðstöð Getur verið vegna mikils byggingarhraða
ÁRLEG minningarathöfn vegna
fósturláta verður haldin í Bænhúsi
við Fossvogskirkju miðvikudaginn
20. ágúst kl. 16. Minningarathöfn
þessi var fyrst haldin árið 1995.
Sjúkrahúsprestar og djákni Land-
spítala sjá um framkvæmd athafn-
arinnar í samvinnu við starfsfólk
Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts-
dæma. Athöfnin er öllum opin. Að
lokinni athöfn í Bænhúsi verður
gengið að minnisvarða um líf og
að fósturreit í Fossvogskirkju-
garði.
Minningar-
athöfn vegna
fósturláta
BÍLVELTA varð á Vatnsleysu-
strandarvegi, skammt frá Vogum,
snemma í gærmorgun. Tveir voru í
bílnum og voru báðir fluttir á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja til að-
hlynningar. Meiðsl þeirra reyndust
vera minniháttar. Ökumaðurinn er
grunaður um ölvun, samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar á Suð-
urnesjum.
Í gær var ökumaður stöðvaður á
Reykjanesbraut og var hann færð-
ur á lögreglustöð vegna meintrar
ölvunar við akstur. Áður hafði öku-
maður verið tekinn í Keflavík grun-
aður um ölvun og annar í Vogum
undir áhrifum fíkniefna.
Bílvelta við
Vogana
Hvernig á að bregðast við myglusveppi?
Þar sem myglusveppurinn þrífst best í raka
er mikilvægt að finna upptök rakans og upp-
ræta hann eða koma fyrir leka. Að þessu
loknu er oft nóg að þrífa mygluna og fjar-
lægja hana þannig. Í sumum tilfellum þarf þó
að grípa til stórtækari aðgerða og er þá rétt
að leita aðstoðar sérfróðs fólks.
Hvaða skaða veldur myglusveppur?
Fólk getur veikst sé mikið af myglu-
sveppsgróum í andrúmsloftinu. Meðal ein-
kenna sem fram geta komið eru ofnæm-
isviðbrögð, hósti, mígreniköst, lið- og
magaverkir.
S&S
Eftir Gunnlaug Árnason
Stykkishólmur | Hólmarar héldu
bæjarhátíð sína, Danska daga, í
15. sinn um nýliðna helgi. Um
þrjú þúsund gestir heimsóttu bæ-
inn og tóku þátt í dagskránni.
Veður var gott, úrkomulítið og
14 stiga hiti.
Daði Sigurþórsson, fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar, sagði
að hún hefði tekist vel. Í boði var
fjölbreytt dagskrá, sérstaklega á
laugardaginn, sem lauk með
bryggjuballi og glæsilegri flug-
eldasýningu úr Súgandisey. Daði
sagði að þorri gestanna hefði
komið til þess að njóta Stykk-
ishólms og Danskra daga og að
það hefði verið góð stemning.
Gestir yfirleitt
til fyrirmyndar
„Það er erfitt að eiga við þenn-
an sáralitla minnihluta af gestum
sem kemur hingað í öðrum er-
indagjörðum og setur svartan
blett á samkomuna. Við erum
góðu vön. Ég hef verið í forsvari
fyrir hátíðina í fjögur ár og hafa
gestir oftast verið til fyr-
irmyndar. Því erum við slegin yf-
ir því þegar unglingahópar koma
og eru öllum til leiðinda auk þess
að skilja eftir sig skemmdarverk.
Við vorum óheppin með það að
þessir hópar skyldu velja Stykk-
ishólm,“ sagði Daði.
Hann sagði að hátíðin hefði
ekkert verið auglýst í fjölmiðlum,
aðstandendur hennar hefðu viljað
fá til sín brottflutta Hólmara og
fjölskyldufólk.
Daði kvaðst hafa tekið eftir því
að þegar Danskir dagar færu
fram um sömu helgi og
Menningarnótt Reykvíkinga þá
kæmu rólegri gestir á Danska
daga.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Hátíð Fólk á öllum aldri, og sumt með ferfætlinga, kom á Danska daga í Hólminum. Fjölbreyttri dagskrá lauk með bryggjuballi og flugeldasýningu.
Fjölmenni var á
Dönskum dögum
Í HNOTSKURN
»Danskir dagar eru bæjar-hátíð í Stykkishólmi og
voru fyrst haldnir árið 1994.
»Nafn hátíðarinnar vísar tilþess að á árum áður þóttu
dönsk áhrif áberandi í Stykk-
ishólmi. Haft var á orði að
Hólmarar töluðu dönsku á
sunnudögum.
»Íbúar í Stykkishólmi 1.desember sl. voru 1.103.
Áhersla hefur verið lögð á að
varðveita gömul hús og setja
þau sterkan svip á bæinn.
Um þrjú þúsund gestir í bænum
DRUKKIN og uppivöðslusöm ung-
menni, 18-25 ára, settu svartan blett
á Danska daga. Lögreglan átti
óvenjuannasama helgi og var aukalið
kallað til eins og venjan er við fjöl-
mennar hátíðir. 12 lögreglumenn
voru á vakt aðfaranótt laugardags og
15 aðfaranótt sunnudags. Liðsaukinn
var m.a. sóttur í nágrannaumdæmi,
höfuðborgarsvæðið og til
ríkislögreglustjóra. Þrátt fyrir liðs-
aukann var álagið mjög mikið aðfara-
nótt laugardagsins, að sögn Ólafs
Guðmundssonar yfirlögregluþjóns.
Í gær sneru margir gestir sem
komu á Danska daga aftur heim.
Lögreglan stöðvaði bíla skammt fyr-
ir utan bæinn og athugaði ástand
ökumanna og ökutækja. Ökumenn
voru látnir blása í áfengismæla og
var nokkrum ráðlagt að sofa betur úr
sér fyrir ferðalagið. Einn var tekinn
vegna ölvunar við akstur.
Fangaklefar margnýttir
Mikil ölvun var í bænum bæði að-
faranótt laugardags og sunnudags.
Lögreglan hefur yfir að ráða þremur
fangaklefum og voru þeir marg-
nýttir. Vegna þrengslanna brá lög-
reglan á að setja menn tímabundið í
gæslu og var þeim skipt út þegar
komu nýir „gestir“ sem þóttu frekar
þurfa vistunar við en þeir sem fyrir
voru.
Að sögn Ólafs komu upp þrjú fíkni-
efnamál, fimm voru teknir fyrir ölv-
unarakstur, þar af komu fíkniefni lík-
lega við sögu í einu tilvikinu, skemmd-
arverk voru nokkur og eins slagsmál
og barsmíðar. Nokkuð var um líkams-
árásir sem ollu minniháttar meiðslum.
Hafa sex líkamsárásir þegar verið
kærðar. Lögreglumaður var sleginn
og sparkað var í lögreglubíl.
Aldrei séð svona framkomu
Ólafur Guðmundsson yfirlögreglu-
þjónn var ekki sáttur við framkomu
ungmennahópanna sem komu víða
að á hátíðina. „Helgin hjá okkur var
skelfileg. Svona framkomu hef ég
aldrei séð áður. Hingað komu hópar
af ungmennum víðsvegar að og þeim
fylgdi mikil ölvun og óspektir,“ sagði
Ólafur. „Við erum orðin vön að halda
Danska daga og undirbúningur var
miðaður við okkar reynslu síðustu ár.
Við höfðum til taks 10-12 lög-
reglumenn eins og undanfarin ár en
nú dugði það varla og urðum við að
styrkja gæsluna með mannskap og
stórum bíl á laugardagskvöld. Álagið
um helgina var svipað og ef við leggj-
um saman Danska daga undanfarin
ár. Við höfum ekki séð annað, þá sér-
staklega eins og ástandið var aðfara-
nótt laugardags. Þetta var útihátíð-
arstemning sem við erum ekki par
hrifin af.“ gudni@mbl.is
Miklar óspektir og
ölvun ungmenna
Mikið álag aðfaranótt laugardagsins
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur framlengt gæsluvarðhald um
fjórar vikur yfir manni á þrítugs-
aldri sem stöðvaður var fyrir
nokkru með fíkniefni innvortis.
Kom maðurinn með flugi frá Amst-
erdam í byrjun mánaðar og fór
nokkur tími í að bíða eftir að hylki
með fíkniefni færu sína leið í gegn-
um meltingarkerfi mannsins. Var
maðurinn undir stöðugu eftirliti
þann tíma.
Hafa nú öll hylkin skilað sér og
gefa fyrstu rannsóknir til kynna að
um hafi verið að ræða milli 500 og
600 g af amfetamíni.
Rannsókn málsins er í fullum
gangi og beinist m.a. að því hvort
maðurinn hafi átt sér sam-
verkamenn á Íslandi.
Gæslu-
varðhald
framlengt
5-600 g af amfeta-
míni skiluðu sér