Morgunblaðið - 18.08.2008, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2008 9
FRÉTTIR
Ef þú átt vandaðan notaðan kven-, herra- eða barnafatnað,
skó, töskur, skart eða fallega muni getur þú með
einföldum hætti látið gott af þér leiða.
Tekið er á móti fatnaði og munum að Síðumúla 15
(baka til) mánudaga til laugardaga kl. 12-18.
Fatnaðurinn verður seldur á glæsimarkaði í Perlunni þann 30. ágúst.
Allur ágóðinn rennur óskiptur til uppbyggingar á skóla fyrir börn og konur
í Jemen, fátækasta ríki arabaheimsins.
Verkefnið er á vegum Jóhönnu Kristjónsdóttur
Glæsimarkaður í Perlunni,
laugardaginn 30. ágúst kl. 10-18
Eftir Björn Björnsson
SAMDÓMA álit gesta á Hólahátíð
var að sjaldan hefði verið svo glæsi-
leg og sterk dagskrá þar sem saman
fór afburða söngur, ljóðalestur þess
skálds sem hæst stendur núlifandi
Íslendinga og hátíðarræða, orðlist í
hæsta gæðaflokki.
Eins og alltaf áður lék veðrið við
gesti á Hólahátíð, og líkt og öll um-
gjörðin skartaði sínu fegursta var
hátíðardagskráin einnig í hæsta
gæðaflokki. Að þessu sinni stóð há-
tíðin í þrjá daga, en hún hófst á
föstudagskvöldi með málþingi í Auð-
unnarstofu, en síðan rak hver við-
burðurinn annan og lauk með hátíð-
arsamkomu í Dómkirkjunni síð-
degis á sunnudag þar sem hátíð-
arræðuna flutti dr. Páll Skúlason,
fyrrverandi háskólarektor, en skáld
hátíðarinnar var að þessu sinni
Matthías Johannessen, fyrrverandi
ritstjóri.
Útsaumur og annar textíll
Á málþinginu í Auðunnarstofu á
föstudagskvöldi var fjallað um út-
saum og aðra textíla í íslenskri
kirkjulist, en erindi fluttu þar Elsa
Guðjónsson, textíl- og búningafræð-
ingur, Sigríður Jóhannesdóttir vef-
listarkona og Leifur Breiðfjörð
myndlistarmaður. Á þessu málþingi
var sýnd hin nýja biskupskápa, eft-
irgerð af kantarakápu Jóns Arason-
ar sem Ólína Bragadóttir Weight-
man saumaði.
Á laugardeginum bar hæst göngu
í Gvendarskál, þar sem vígslubiskup
söng pílagrímamessu við hið forna
altari Guðmundar biskups góða, en
Hjörtur Pálsson guðfræðingur flutti
hugvekju. Tvær pílagrímagöngur
voru gengnar heim til Hóla, önnur
frá Flugumýri í Blönduhlíð en hin
frá Atlastöðum í Svarfaðardal. Farið
var fornleifarölt um staðinn en við
kvöldbænir í Dómkirkjunni var svo
tekið á móti þreyttum pílagrímum
komnum um langan veg yfir fjall-
vegi.
Sunnudagurinn, sem var þrett-
ándi sunnudagur eftir þrenning-
arhátíð og hinn fasti Hólahátíð-
ardagur, hófst með morgunbænum í
Dómkirkjunni en síðan var samkoma
í Auðunnarstofu í tilefni af útgáfu
fyrsta bindis Hólarita, sögu Bauka
Jóns, eftir dr. Jón Þ. Þór sagnfræð-
ing. Eftir hádegi var hátíðarguðs-
þjónusta í Dómkirkjunni, og hófst
athöfnin á að vígslubiskup vígði og
helgaði hina nýju biskupskápu, sem
þau hjónin Margrét Sigtryggsdóttir
og Jón Aðalsteinn Baldvinsson gáfu
til minningar um dóttur þeirra Sig-
rúnu. Dr. Einar Sigurbjörnsson pré-
dikaði, Jón Aðalsteinn Baldvinsson
vígslubiskup þjónaði fyrir altari
ásamt sr. Sigríði Gunnarsdóttur og
sr. Ólafi Hallgrímssyni, organisti var
Eyþór Ingi Gunnarsson en kórinn
Hymnodia annaðist söng.
Einar hljóp í skarðið
Fyrirhugað var að herra Sig-
urbjörn Einarsson biskup mundi
prédika, en vegna veikinda hans
annaðist dr. Einar, sonur hans, pré-
dikunina og spann sín orð í kringum
þann ramma sem faðir hans hafði
gert.
Að aflokinni hátíðaguðsþjónust-
unni þágu gestir veitingar í boði
Hólanefndar, en síðan hófst hátíð-
arsamkoma í Dómkirkjunni, en þar
söng kórinn Hymnodia undir stjórn
Eyþórs Inga, hátíðarræðuna flutti
dr. Páll Skúlason og skáldið Matth-
ías Johannessen las frumsaminn
ljóðaflokk.
Að lokum þakkaði vígslubiskup
gestum komuna, bað þeim blessunar
og góðrar heimkomu.
Ljósmyndir/Björn Björnsson Biskupskápa Hjónin Margrét Sigtryggsdóttir og Jón Aðalsteinn
Baldvinsson vígslubiskup gáfu kápuna, en Ólína Bragadóttir Weight-
man saumaði. Vígslubiskup vígði og helgaði kápuna á Hólahátíð.
Skáldið Matthías Johannessen las frumsam-
inn ljóðaflokk á hátíðarsamkomu í kirkjunni.
Glæsileg hátíðar-
dagskrá í veðurblíðu
Ljóðalestur og hátíðarræða Orðlist í hæsta gæðaflokki
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
SANDUR MÖL
FYLLINGAREFNI
WWW.BJORGUN.IS
Sævarhöfða 33,
112 Reykjavík,
sími 563 5600
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111