Morgunblaðið - 18.08.2008, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2008 33
/ SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI
GET SMART kl. 6 - 8 - 10:20 LEYFÐ
THE MUMMY 3 kl. 8 B.i. 12 ára
WALL• E m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
THE DARK KNIGHT kl. 10:20 B.i. 12 ára
GET SMART kl. 5:45 - 8 - 10:20 LEYFÐ
THE MUMMY 3 kl. 8 B.i. 12 ára
WALL• E m/ísl. tali kl. 5:45 LEYFÐ
THE STRANGERS kl. 10:20 B.i. 16 ára
GET SMART kl. 8 - 10:20 LEYFÐ
LOVE GURU kl. 8 B.i. 12 ára
THE DARK KNIGHT kl. 10 B.i. 12 ára
WALL• E m/ísl. tali kl. 5:50 LEYFÐ
MAMMA MIA Síðustu sýningar kl. 5:40 LEYFÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSIVIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
THE DARK KNIGHT ER KOMINN Í EFSTA SÆTI Á VIRTASTA KVIKMYNDAVEF
HEIMS,IMDB.COM, YFIR BESTU KVIKMYNDIR ALLRA TÍMA!
-ÁSGEIR J. - DV
-T.S.K - 24 STUNDIR
"ÞETTA ER BESTA BATMAN-MYNDIN, BESTA
MYNDASÖGUMYNDIN OG JAFNFRAMT EIN BEST
MYND ÁRSINS..."
-L.I.B.TOPP5.IS
STÆRSTA OPNUN Á ÍSLANDI FYRR OG SÍÐAR.
61.000 MANNS Á 25 DÖGUM.
EIN BESTA MYND ÁRSINS!
BRENDAN FRASER JET LI
STÆRSTU OG BESTU ÆVINTÝRIN ERU EINFALDLEGA ÓDAUÐLEG!
Stórbrotin ævintýramynd sem allir ættu að hafa gaman af!
Nemakortið gerir nemendum á framhalds- og
háskólastigi kleift að ferðast endurgjaldslaust
á umhverfisvænan og þægilegan hátt.
Sæktu um Nemakort
á www.strætó.is
Nemendur með lögheimili í Reykjavík, Kópavogi,
Hafnarfirði, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ og Álftanesi
eiga rétt á Nemakortinu skólaárið 2008-2009.
VÆNTANLEG plata írsku rokk-
sveitarinnar U2 er nú komin í
umferð á netinu, eftir að for-
sprakkinn sjálfur Bono spilaði
hana á hæsta styrk í sumarhúsinu
sínu.
Það var eldheitur aðdáandi
sveitarinnar sem átti leið um
ströndina við stórhýsi söngvarans
á Côte d’Azur í Frakklandi og
heyrði rödd hans hljóma í
ókunnuglegu lagi. Hann tók tón-
listina upp og hlóð henni inn á
myndbandasíðuna YouTube.
Myndbandið er þar enn, en hljóð-
ið hefur verið fjarlægt og sú
ástæða gefin að um brot á höf-
undarrétti hafi verið að ræða.
Platan hefur ekki enn fengið
nafn, en hljómsveitin hefur ekki
gefið út plötu frá því að How to
Dismantle an Atomic Bomb kom
út fyrir fjórum árum. Þó hefur
útgáfufyrirtæki Íranna skráð lén
fyrir nafnið No Line on the Hori-
zon og geta menn sér til um að
það sé nafnið á plötunni.
Hávær Bono mun sennilega lækka í
græjunum eftir þetta óhapp.
Plata U2
lak á netið
HUGMYNDIN og úrvinnslan, öll
myndin Get Smart, er brennimerkt
slökum og húmorslausum handrita-
höfundum Hollywood samtímans.
Hún er enn ein myndin sem er byggð
á gömlum sjónvarpsþáttum sem náðu
nokkrum vinsældum, þessir á síðari
hluta 7. áratugarins. Þá var Bond á
bullandi siglingu en Smart spæjari,
eins og hann var nefndur á íslensku,
var klaufsk skopstæling á 007. Smart,
í höndum Don Adams, var áhuga-
samur aulabárður, fullur af eldmóði
en léttruglaður undirsáti í leyniþjón-
ustunni CONTROL. Hann kraflaði
sig fram úr eilífum átökum við KAOS,
með fegurðardís sér við hlið í slagnum
við illa óvininn Siegfried. Þeir rómuðu
háðfuglar Mel Brooks og Buck Henry
áttu hugmyndina að þáttunum. Nú er
köttur í bóli bjarnar, bíómyndin er á
svipuðum slóðum og flest verk sumars-
ins, andlaus, ófrumleg og ófyndin.
Smart (Carell) og hjálparkokkur hans,
spæjari 99 (Hathaway), flækjast um
Rússland til að koma í veg fyrir hryðju-
verkaárás á Bandaríkin. Forsprakkinn,
sá armi Siegfried (Stamp), kemur
sprengju fyrir í Los Angeles, með hinn
seinheppna Smart á hælum sér. Hver
hefur áhuga á Bond-útúrsnúningi í
dag? Get Smart er ekki aðeins tíma-
skekkja heldur er hún vandræðalega
ófyndin mistök. Það eina sem gleður
augað er leiktjöldin, þar næst svipmót
þáttanna hvað helst. Carell (Little Miss
Sunshine) og Hathaway (The Devil We-
ars Prada) eiga miklu betra skilið, en
áhorfendur eiga samúð mína óskipta.
Á flótta Anne Hathaway og Steve Carrell í hlutverkum sínum.
Spæjarinn sem
skorti brandara
KVIKMYND
Sambíóin, Laugarásbíó
Leikstjóri: Peter Segal. Aðalleikarar:
Steve Carell, Anne Hathaway, Dwayne
Johnson. 110 mín. Bandaríkin 2008.
Get Smart
bbnnn
Sæbjörn Valdimarsson
Kvikmyndin Ráðgátur: Ég vil trúa
(The X Files: I Want to Believe) á
rætur að rekja til sjónvarpsþáttanna
vinsælu sem voru og hétu á tíunda
áratugnum. Þar sagði af tvíeykinu
Mulder og Scully, rannsóknarlög-
reglumönnum fyrir Alríkislögregl-
una sem sérhæfðu sig í ill- eða óút-
skýranlegum glæpamálum, þ.e.a.s
málum sem virtust tengjast „yf-
irnáttúrulegum“ öflum, en skrímsli
og geimverur komu þar gjarnan við
sögu. Þáttunum var fylgt eftir með
kvikmynd árið 1998 og árið 2002
hættu þættirnir göngu sinni. Nýja
myndin er því eins konar end-
urvakning á seríu sem naut vinsælda
og hafði markað nokkur spor í menn-
ingarlandslagið. Það er því með öllu
óskiljanlegt hvernig kastað er til
höndum í þessari afleitu viðbót við
röðina. Söguþráðurinn er klunnaleg-
ur og klisjukenndur og á ekkert
sameiginlegt með þeim skemmtilega
fjarstæðukenndu töktum sem oft
einkenndu þættina. Framvindan er
órökleg og óáhugaverð, en fyrst og
fremst metnaðarlaus og það er um
miðja mynd sem endanlega rennur
upp fyrir manni hvers konar mynd-
skrípi er hér á ferðinni, en þá verður
ljóst að það sem í fyrstu virtist vera
undanfari hins eiginlega söguþráðar
er í raun plott myndarinnar. Ekki
bæta trúarlegar vangaveltur Chris
Carters, skapara Ráðgátnaheimsins,
úr skák en myndin er uppfull af
hlandvolgri nýaldarspeki og for-
dómum í garð minnihlutahópa. Hinn
tilvistarlegi undirtónn sem reynt er
að skapa í myndinni skilar sér helst í
slyttislegri deyfð, sem líkleg er til
þess að binda enda á frekari áhuga
fólks á að sjá nokkurs konar við-
bætur við Ráðgátnavörumerkið.
Yfirnáttúrulega vond
Ráðgátur „Söguþráðurinn er klunnalegur og klisjukenndur …“
KVIKMYND
Smárabíó, Háskólabíó, Sam-
bíóin Kringlunni og Borgarbíó.
Leikstjórn: Chris Carter. Aðalhlutverk:
Gillian Anderson, David Duchovny, Am-
anda Peet og Billy Connolly. Bandaríkin,
104 mín.
Ráðgátur: Ég vil trúa (The X Files: I Want to
Believe)
mnnnn
Heiða Jóhannsdóttir