Morgunblaðið - 23.08.2008, Síða 6

Morgunblaðið - 23.08.2008, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Strákarnir okkar Morgunblaðið/Brynjar Gauti Þeir eru á allra vörum á Íslandi í dag, „strákarnir okkar“ í handboltalandsliðinu sem leika úrslitaleikinn á Ólympíuleikunum í Peking í fyrramálið við Frakka, eftir glæstan sigur gegn liði Spánverja í gær. Morgunblaðið rifjar upp handknattleiks- og lands- liðsferil „strákanna“ fimmtán sem hafa gert garðinn frægan í Kína. Hvort verður silfrið eða sjálf gullverðlaunin þeirra? Björgvin Páll Gústavsson, markvörður, er fæddur 24. maí 1985. Hann er 192 cm á hæð og er 90 kg að þyngd. Björgvin hefur leikið 38 landsleiki og skorað í þeim eitt mark. Björgvin ólst upp hjá HK í Kópa- vogi en hefur einnig leikið með ÍBV og Fram. Í vor skrifaði Björgvin undir samning við þýska 2. deild- arliðið TV Bittenfeld. Hann er nú að taka þátt í fyrsta stórmóti með A- landsliðinu og þótti val hans umdeilt þar sem hinn reyndi markvörður Birkir Ívar Guðmundsson var skil- inn eftir heima. Björgvin Páll Gústavsson Björgvin Páll Gústavsson Guðjón Valur Sigurðsson, vinstri horna- maður, er fæddur 8. ágúst 1979. Hann er 187 cm á hæð og 83 kg. Guðjón Valur á að baki 210 lands- leiki og hefur skorað í þeim 988 mörk. Guðjón Valur lék með Gróttu á Seltjarnarnesi upp alla yngri flokka en fór ungur til KA á Akureyri. Frá Akureyri hélt Guðjón Valur til liðs við Essen í Þýskalandi, þaðan til Gummersbach en í vor gekk hann til liðs við Rhein-Neckar Löwen skammt frá Mannheim eftir að fé- lagið hafði borgað hann undan samningi við Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðsson Guðjón Valur Sigurðsson Sigfús Sigurðs- son, línu- og varnarmaður, er fæddur 7. maí 1975. Hann er 198 cm á hæð og er 114 kg. Sigfús hefur leikið 161 landsleik og skor- að í þeim 319 mörk. Sigfús er upp- alinn Valsmaður og lék með liði fé- lagsins þar til fyrir sex árum að hann gerði samning við Magdeburg. Þaðan fór hann til Ademar León á Spáni fjórum árum síðar. Sigfús ákvað nýverið að flytja heim og taka upp þráðinn með sínu gamla félagi, Val. Sigfús sló í gegn með landslið- inu á Evrópumótinu 2002 þar sem hann var kjölfesta í varnarleiknum. Sigfús Sigurðsson Sigfús Sigurðsson Hreiðar Levy Guðmundsson, markvörður, er fæddur 29. nóv- ember 1980. Hann er 193 cm á hæð og er 96 kg að þyngd. Hreiðar Levy á að baki 74 landsleiki. Hann er nú að hefja sitt annað keppnistímabil með sænska úrvals- deildarliðinu Sävehof. Eftir að Hreiðar fór til Svíþjóðar hefur hann tekið miklum framförum. Um leið hefur hann fest sig í sessi í landsliðinu og tekið þátt í nokkrum undangengnum stórmótum. Áður en hann hélt til Svíþjóðar hafði hann m.a. leikið með ÍR, Gróttu, KR, KA og Akureyri. Hreiðar Levy Guðmundsson Hreiðar Levy Guðmundsson Ingimundur Ingi- mundarson, varn- armaður, er fæddur 29. jan- úar 1980. Hann er 193 cm á hæð og vegur 96 kg. Ingimundur á að baki 44 landsleiki og hefur skorað í þeim 38 mörk. Ingimundur er alinn upp hjá ÍR og lék með yngri flokkum félagsins og síðar meir meistaraflokki um nokkurra ára skeið. Ingimundur lagðist í víking fyrir þremur árum og gekk til liðs við Ajax í Danmörku. Þaðan hélt hann til Noregs og lék í nærri tvö keppnistímabil með Elverum. Í vor skrifaði Ingimundur undir samning við þýska liðið GWD Minden. Ingimundur Ingimundarson Ingimundur Ingimundarson Snorri Steinn Guðjónsson leik- stjórnandi er fæddur 17. októ- ber 1981. Hann er 187 cm á hæð og er 86 kg. Snorri Steinn hefur leikið 142 landsleiki og skorað í þeim 521 mark. Eins og fleiri leikmenn landsliðs- ins er Snorri Steinn alinn upp hjá Val en hóf atvinnumannaferil sinn hjá Grosswallstadt í Þýsklandi þar hann lék um tveggja ára skeið. Önn- ur tvö ár var Snorri Steinn hjá GWD Minden áður en hann flutti sig yfir landamærin til Danmerkur og gerð- ist leikmaður GOG í Svendborg fyrir ári. Snorri Steinn Guðjónsson Snorri Steinn Guðjónsson Alexander Pet- ersson, horna- maður og skytta, er fæddur í Lett- landi 2. júlí 1980. Hann er 186 cm á hæð og 94 kg að þyngd. Alexander varð íslenskur ríkisborgari árið 2004 eftir að hafa flust hingað til lands 17 ára gamall. Alexander á að baki 84 landsleiki og hefur skorað í þeim 314 mörk. Alexander lék um nokkurra ára skeið með Gróttu og Gróttu/KR áður en hann gerði samning við þýska handknattleiksliðið Düsseldorf. Það- an gekk hann til liðs við Grosswall- stad áður en Flensburg keypti hann yfir til sín fyrir rúmu ári síðan. Alexander Petersson Alexander Petersson Logi Geirsson, skytta á vinstri væng, er fæddur 10. október 1982. Hann er 192 cm á hæð og 95 kg að þyngd. Logi hef- ur leikið 75 lands- leiki og skorað í þeim 215 mörk. Logi er uppal- inn hjá FH og er sonur Geirs Hallsteinssonar sem er einn þekktasti handknattleiksmaður Íslandssögunnar. Afi Loga, Hall- steinn Hinriksson, er stundum nefndur „faðir handknattleiksins í Hafnarfirði“ og fyrrverandi lands- liðsþjálfari. Logi lék með FH allt þar til hann gekk til liðs við þýska liðið Lemgo fyrir fjórum árum. Logi Geirsson Logi Geirsson Sturla Ásgeirs- son, vinstri hornamaður, er fæddur 20. júlí 1980. Hann er 182 cm á hæð og er 80 kg. Sturla hefur leikið 24 landsleiki og skorað 19 mörk. Sturla er ÍR- ingur en hefur undanfarin fjögur ár leikið með danska úrvalsdeildarliðinu Århus GF, einu sterkasta félagsliði Dan- merkur. Samningur hans við félagið rann út í sumar og er enn óvíst með hvaða liði hann leikur á næsta keppnistímabili. Sturla kom af krafti inn í lands- liðið í vor og tók þátt í forkeppni Ól- ympíuleikanna í Póllandi. Sturla Ásgeirsson Sturla Ásgeirsson Ásgeir Örn Hall- grímsson, skytta á hægri væng og hornamaður, er fæddur 17. febr- úar 1984. Hann er 191 cm á hæð og er 92 kg að þyngd. Ásgeir Örn hefur leikið 102 landsleiki og skoraði í þeim 137 mörk. Ásgeir Örn er uppalinn í röðum Hauka í Hafnarfirði og lék með flokkum félagsins upp í meist- araflokk. Fyrir þremur árum gerði hann samning við þýska liðið Lemgo og lék hjá því um tveggja ára skeið eða allt þar til hann skipti yfir í raðir GOG í Svendborg í Danmörku fyrir rúmu ári. Ásgeir Örn Hallgrímsson Ásgeir Örn Hall- grímsson Ólafur Stef- ánsson, skytta á vinstri væng og fyrirliði, er fædd- ur 3. júlí 1973. Hann er 196 cm á hæð og er 94 kg. Ólafur hefur leik- ið 282 landsleiki og skorað í þeim 1.332 mörk. Ólafur er upp- alinn hjá Val en flutti til Þýskalands árið 1996 og varð leikmaður Wupp- ertal. Síðan gekk Ólafur í raðir Magdeburg en fór þaðan fyrir fimm árum til Ciudad Real á Spáni. Hann er margfaldur spænskur og þýskur meistari auk þess að hafa unnið meistaradeild Evrópu nokkrum sinnum með Magdeburg og Ciudad Real. Ólafur Stefánsson Ólafur Stefánsson Sverre Andreas Jakobsson varn- armaður er fædd- ur 8. febrúar 1977. Hann er 196 cm á hæð og er 97 kg. Sverre á að baki 57 lands- leiki og hefur gert 13 mörk. Sverre lék lengi með KA en hefur einnig spilað hjá HK, Aftur- eldingu og Fram hér heima en hefur síðustu tvö ár verið á mála hjá Gummersbach í Þýskalandi. Sverre fór til náms í Bandaríkjunum fyrir fáeinum árum og var þá svo að segja hættur í handknattleik þegar Guð- mundur Guðmundsson fékk hann til Fram 2005. Sverre flutti heim í sum- ar og leikur með HK á næsta vetri. Sverre Andreas Jakobsson Sverre Andreas Jakobsson Arnór Atlason, skytta á vinstri væng, er fæddur 23. júlí 1984. Hann er 191 cm á hæð og 91 kg. Arnór hefur leik- ið 74 landsleiki og skorað í þeim 150 mörk. Arnór er fædd- ur inn í hand- knattleiksfjölskyldu en faðir hans, Atli, lék með íslenska landsliðinu á níunda áratug síðustu aldar. Arnór lék með KA þar til hann söðlaði um og gerðist atvinnumaður í hand- knattleik í Þýskalandi. Hann var um nokkurt skeið á samningi hjá Magdeburg en hefur undanfarin tvö ár leikið með FCK í Kaupmanna- höfn og varð danskur meistari í vor. Arnór Atlason Arnór Atlason Róbert Gunn- arsson, línumað- ur, er fæddur 22. maí 1980. Hann er 190 cm á hæð og er 100 kg. Ró- bert hefur leikið 137 landsleiki og skorað í þeim 419 mörk. Róbert vakti fyrsta almenna athygli á handknattleiksvellinum með Fram en sló síðar í gegn með Århus GF í Árósum og varð m.a. markakóngur dönsku úrvalsdeild- arinnar eitt árið. Frá Árósum gekk Róbert til liðs við Gummersbach, skammt frá Köln hvar hann hefur leikið síðust tvö árin. Þar hefur Ró- bert átt fast sæti í liðinu og tekið miklum framförum á þeim tíma. Róbert Gunnarsson Róbert Gunnarsson Guðmundur Þórður Guð- mundsson lands- liðsþjálfari er fæddur 23. des- ember 1960. Hann lék 230 landsleiki og skoraði 356 mörk með landsliðinu á níunda áratug síðustu aldar. Guðmundur er þrautreyndur þjálfari sem tók á ný við stjórn landsliðsins í vor eftir að hafa stýrt því áður frá 2001 fram yfir Ólympíu- leikana í Aþenu 2004. Hann hefur einnig þjálfað Víking, Aftureldingu, Fram og þýska liðið Bayer Dormag- en. Undir stjórn Guðmundar komst íslenska landsliðið í 4. sæti á Evr- ópumótinu í Svíþjóð árið 2002. Guðmundur Þ. Guðmundsson Guðmundur Þ. Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.