Morgunblaðið - 23.08.2008, Blaðsíða 24
Ber eru góður kostur í margamatarrétti auk þess að veraheilsusamleg fæða með af-brigðum. Ber eru nefnilega
auðug að vítamínum, steinefnum,
trefjaefnum og andoxunarefnum eins
og C- og E-vítamíni. Andoxunarefni
hindra myndun skaðlegra sindurefna
í frumum líkamans sem talin eru
stuðla að hrörnun og eru tengd mynd-
un sjúkdóma eins og krabbameins og
æðakölkunar. Svo eru ber einnig
trefjarík og því góð fyrir meltinguna.
Ef flett er upp í gömlum grasabók-
um má sjá að Íslendingar hafa lengi
haft trú á virkni bláberja. Þetta hefur
nú verið staðfest með vísindarann-
sóknum og því ekki eftir neinu að
bíða. Gaman er að gefa ungbörnum
maukuð bláber, þeim þykja þau al-
mennt góð og þau geta hjálpað til við
magavandamál eins og niðurgang og
harðlífi.
Hægt er að borða berin strax í mó-
anum eða taka með sér heim og gæða
sér á ferskum. Þá eru þau bragðmest
við stofuhita þótt ráðlegt sé að geyma
ber í lokuðu íláti í kæli standi til að
geyma þau í nokkra daga. Margir
sulta og safta ber og það getur verið
bæði skemmtilegt og hlýlegt að draga
fram gómsæta sólarsultu í vetur. Ber
má hins vegar líka nota í ýmislegt
annað. Þau eru góð í hrásalöt með
mat, í ávaxtasalöt, pæ, kökur, múffur,
salsa, sósur, pottrétti, marineringu og
margt fleira. Það er bara að prófa sig
áfram.
Bláber og lambakjöt eiga mjög vel
saman, sólber og nautakjöt og rifsber
og feitur fiskur eða hvað finnst þér?
Blái grísalundar-
pottrétturinn
Þessi réttur kemur á óvart því hann
er virkilega gómsætur.
Fyrir 4
400 g grísalundir, skornar í sneiðar
2 msk. matarolía
150 g sveppir
1 knippi vorlaukur
2 hvítlauksrif
1 dós niðursoðnir tómatar
2 dl vatn
1 msk. kjúklingakraftur
1½ dl matargerðarrjómi
1 msk. tamarisósa
3 msk. maízenajafnari
2 dl fersk bláber
nýmalaður svartur pipar eftir smekk
Skerið grísalundirnar í sneiðar og
steikið í matarolíunni, setjið sveppi út
í og látið þá steikjast í stutta stund.
Saxið vorlaukinn og setjið saman við
ásamt hvítlauk og steikið stutt. Setjið
niðursoðna tómata, vatn og kraft út í
og látið sjóða saman í u.þ.b. 10 mín-
útur. Setjið þá matargerðarrjóma og
tamarisósu saman við og jafnið með
maísenajafnaranum. Blandið berj-
unum saman við og smakkið til með
svörtum pipar. Gott að bera fram
með hrísgrjónum og brauði og góðu
fersku grænmeti.
Hressandi orkudrykkur
3-4 glös
5 dl haframjólk (vel köld)
2 dl fersk bláber
½ tsk. rifið ferskt engifer
örlítið af límónusafa
Setjið allt í matvinnsluvél og mauk-
ið saman. Setjið klaka í glös og hellið
drykknum yfir. Gaman er að skreyta
með smávegis rifnu límónuhýði eða
heilum berjum en það þarf auðvitað
ekki. Ótrúlega hressandi drykkur.
Bláberjarjómaostur
150 g rjómaostur til matargerðar
eða delfí-ostur
1 dl fersk bláber
Setjið í matvinnsluvél og fáið þenn-
an fallega bláa ost. Gaman að skreyta
brauð sem smurt er með þessum osti
með heilum berjum.
Bláberjadesert
Ber og rjómi eru gullin samsetning
en það eru ekki allir sem vilja eða
mega borða rjóma. Hér er önnur
hugmynd fyrir þá sem vilja forðast
rjómann eða bara prófa eitthvað nýtt
og gómsætt
Fyrir 4
2 dl kasjúhnetur
1 dl nýkreistur appelsínusafi
(má nota appelsínu-, gulrótar- og
sítrónusafa)
½ dl döðlur
8 dl fersk bláber
fersk mynta
Setjið kasjúhnetur og döðlur í skál
og látið renna kalt vatn þannig að rétt
fljóti yfir. Setjið í kæli og látið standa
í u.þ.b. fjóra tíma (til að mýkja). Síið
vatnið frá og setjið í matvinnsluvél
ásamt appelsínusafanum og maukið
saman þar til mjúkt krem hefur
myndast. Berið fram kalt með berj-
unum. Smávegis fersk mynta gerir
þetta bara betra en henni má líka
sleppa.
Bláberjaglansandi
kjúklingabringa
Fyrir 4
2 dl bláber
1 dl hrásykur
2 msk. piparrót (í rauða pakkanum)
1 tsk. fljótandi kjúklingakraftur
¼ tsk. salt
4 kjúklingabringur
3 msk. ólífuolía
Setjið bláber, hrásykur, piparrót,
kjúklingakraft og salt í pott og sjóðið
saman í u.þ.b. 10 mínútur. Raðið
Berjasalsa Bragðast frábærlega vel með grilluðu kjöti. Bláberjadesert Góð tilbreyting frá berjum og rjóma.
Morgunblaðið/Kristinn
Blái grísalundarpottrétturinn Lostæti sem kemur skemmtilega á óvart.
Geggjað salat með hjúpuðum túnfisk Íslensk-asískur bræðingur.
Bragðgóðir berjaréttir fyrir
Það er einstaklega gott fyr-
ir sálina að fara í berja-
mó, sitja í kyrrð og ró einn
með sjálfum sér að tína
ber. Það er líka, segir
Heiða Björk Hilmisdóttir,
á „krepputímum“ afar
hagkvæmur kostur að
geta farið út í náttúruna
og náð sér í ókeypis mat.
matur
24 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ