Morgunblaðið - 23.08.2008, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 23.08.2008, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ MENNING SKY sjónvarpsstöðin ætlar að gera vel við menninguna með nýrri menn- ingarrás, Sky Arts 2. Ráðgert er að útsendingar hefjist 20. október. Sky stöðin rekur þegar eina menning- arrás, Sky Arts, og því er um tvö- földun á menningarefni að ræða. Áherslumunur verður nokkur á menningarrásum Sky. Þeirri fyrri verður ætlað að sinna samtímalist og jaðarmenningu sem þó höfðar til stórs hóps fólks. Þar verður rokk- tónlist, heimildamyndir og efni sem stöðin vinnur sjálf. Sky Art 2 á hinn bóginn mun sinna dansi, myndlist, óperu og klassískri tónlist. Þriðja rásin verður einnig tekin í notkun, samhliða þessu, Sky Arts HD (High Definition), en hún sendir út úrval efnis af báðum hinum rás- unum. Þar verða meðal annars út- sendingar frá Metropolitan- óperunni. Poppklassíkerinn Vanessa-Mae verður með Top tíu þátt, þar sem hún spilar óskalög frá áhorfendum. Bókaþáttur Mariellu Frostrup verður áfram á Sky Arts 1 og þar verða á misserinu þættir um Francis Bacon, Iggy Pop og fleiri stjörnur lífs og liðnar. Samtals munu menningarstöðvar Sky senda út í 36 stundir á dag. Sky vill meiri menningu Sky Arts 2 og Sky Arts HD senn í loftið Iggy Pop Á dagskrá Sky Arts 1. MADDID Theatre Company sýnir í kvöld kl. 19 einleikinn Maddid, en með hlutverk Maddidar fer leikkonan Vala Ómarsdóttir. Sýningin er hluti af Artfart-listahátíðinni. Sýningin fer fram í Smiðj- unni, sýningarsal Listaháskóla Íslands, á Sölvhólsgötu 13. Miðasala fer fram við inngang- inn. Maddid er einleikur um stúlkuna Maddid sem er að reyna að fóta sig í lífinu. Verkið hefur verið sýnt í Space-leikhúsinu í London og Kuiperfest á Spáni. Að sýningunni standa listamenn frá Íslandi, Nor- egi, Bretlandi, Spáni og Brasilíu. Gestaleikstjórar eru Ástþór Ágústsson og Gael Le Cornec. Leiklist Maddid púslar í Smiðjunni Vala Ómarsdóttir sem Maddid. FOSSILS, eða Steingervingar, er heiti myndlistarsýningar sem Elín Edda Árnadóttir opn- ar í dag í Studio Stafni í Ing- ólfsstræti 6. Opnun sýning- arinnar er hluti af dagskrá Menningarnætur en opnunin er klukkan 15. Á sýningunni eru ný verk eftir Elínu Eddu. Voru þau unnin í Leifsbúð í Prag og í Kjarvalsstofu í Parísarborg. Verkin eru öll kolateikningar. Auk myndlistarsköpunar er Elín Edda kunn fyrir búningateikningar og vinnu við leikhús. Opið er til klukkan 22.00 á Menningarnótt, og á sunnudag. Sýningin stendur til 1. september. Myndlist Steingervingar í kolateikningum Eitt af verkum Elínar Eddu. „ÞETTA er margrætt verk sem tengist innri og ytri veru- leika,“ segir Pjetur Stef- ánsson um verk sitt, seríu af sjö ljósmyndum, sem hann á á sýningu þeirra Þórs Sig- mundssonar í Grafíksafni Ís- lands, sal Íslenskrar grafíkur, sem opnuð verður klukkan 16.00 í dag. Þór sýnir hins- vegar sex skúlptúrverk. Pjetur segir verkin unnin í framhaldi af sýningu þeirra á sama stað í fyrra. Grafíksafn Íslands er í Hafnarhúsinu, rétt eins og Listasafn Reykjavíkur, nema hafnarmegin. Sýningin stendur til 6. september en opið er laug- ardaga og sunnudaga. Myndlist Ljósmyndir og skúlptúrar Verk eftir Pjetur Stefánsson. Eftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is „ÞETTA er stórmerkilegt hús því Alvar Aalto er einn þekktasti arkí- tekt sem hefur byggt hús hér á landi, sérstaklega fyrir 40 árum þegar við vorum enn dálítið aft- arlega á merinni í þessu en það var margt að byrja að gerast,“ segir Leópold Kristjánsson, sem er verkefnisstjóri vegna 40 ára af- mælis Norræna hússins sem hófst í gær og stendur út mánuðinn. „Þetta hús var gjöf hinna Norð- urlandaþjóðanna til Íslands og markmiðið hefur alltaf verið að tengja Norðurlöndin saman í menningu. Stefnan er að taka þátt í öllum þáttum menningarlífsins, það á allt heima hérna, hvort sem það er klassísk tónlist eða gjörn- ingar eða eitthvað allt annað,“ bætir hann við. En hvernig karakter er afmæl- isbarnið? „Upprunalega svolítið einmana í Vatnsmýrinni og frum- kvöðull á sínum tíma, síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og mörg gallerí og tónlistarsalir verið opnaðir í Reykjavík en Norræna húsið er ennþá lifandi þáttur í ís- lensku menningarlífi.“ Frá 1968 til 2018 Dagskráin stendur yfir í tíu daga og eru sex dagar sérstaklega helgaðir afmælisárum. Í gær heimsóttu þeir Sigurður Pálsson og Þórarinn Eldjárn hið sögu- fræga ár 1968 aftur og hljóm- sveitin sögufræga Pops kom sam- an á ný. Stuðmenn komu fyrst fram í sviðsljósið á áttunda ára- tugnum og þeir spila á mánudag- inn næsta kl. 20 á dagskrá helg- aðri árinu 1978 þegar húsið varð tíu ára. Auk þess munu Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Þorbjörn Broddason prófessor leiða umræðu um norræna sam- vinnu og hlutverk Norræna húss- ins, en Þorbjörn talaði einmitt á 25 ára afmæli hússins og mun rifja upp hvernig hlutunum hefur miðað í norrænni samvinnu síðan þá. Árið 1988 varð húsið tvítugt og sama ár hlaut Thor Vilhjálmsson Norðurlandaverðlaunin í bók- menntum fyrir Grámosinn glóir. Hann ræðir bókmenntir tímabils- ins við Halldór Guðmundsson á þriðjudaginn kl. 20 og Tómas R. Einarsson og Ragnheiður Gröndal flytja tónlist. Umhverfismál fóru fyrst að komast í brennidepil fyrir alvöru á tíunda áratugnum og Andri Snær Magnason og Þor- steinn Ingi Sigfússon ræða hvern- ig þróunin hefur verið síðan á mið- vikudaginn kl. 20, en það verða sérstakir umhverfisdagar í húsinu í september. Hjaltalín flytur tón- list og gjörningalistamaðurinn Charlotte Engelkes sýnir myndir. Árinu 2008 er fagnað kl. 18.30 á fimmtudag með sýningu áð- urnefndrar Engelkes sem blandar saman kabarett, uppistandi og leikritun. Retro Stefson, Reykja- vik! og FM Belfast spila á meðan listhópurinn 128 Hands treður upp í anddyrinu. Framtíðin hefst svo á föstudag- inn kl. 18.30. „Þá erum við að veðja á framtíðina og finna bönd sem eru nánast ekkert þekkt og að stíga sín fyrstu skref,“ segir Leópold um dagskrána helgaða árinu 2018 þegar sveitirnar Sykur, Ásgeir og Eysteinn & Sæi troða upp sem og danska sveitin Skand- als og listhópurinn Kúmíkat en all- ir sem troða upp eru undir tví- tugu. „Það væri gaman ef við gætum svo fengið þau aftur í fimmtugsafmælið,“ segir Leópold að lokum. 40 ára afmælishátíð Norræna hússins stendur yfir út mánuðinn Frumkvöðull í Vatnsmýri Morgunblaðið/Golli Framtíðin Stefán Finnbogason og Halldór Eldjárn skipa hljómsveitina Sykur sem spilar á dagskrá helguð árinu 2018 ásamt hljómsveitunum Ásgeiri, Eysteini & Sæja og dönsku sveitinni Skandal. Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „FYRST og fremst veitir styrkurinn mér hugarró,“ segir Jó- hann Nardeau trompetleikari, en hann er handhafi styrks Minningarsjóðs Jean Pierre Jaquillat í ár. Jóhann segir styrkinn feng á margþættan hátt; hugarróin er efst á blaði, því við blasir að hann þurfi að fá nýjan trompet, og það er ekki auðvelt á þessum tímum þegar evran er dýr. „Þetta er rosalega gleðilegt og gaman að fá svona viðurkenningu. Það er alltaf gott að fá klapp á bakið fyrir það sem maður gerir en enn betra þegar einhver tekur af skarið og gefur manni smápening,“ segir Jóhann. „Styrkurinn veitir mér öryggi og ég get einbeitt mér að náminu.“ Í febrúar þreytti Jóhann inntökupróf í Parísarkonserv- atoríið, einn virtasta tónlistarskóla heims. Eitt pláss var laust fyrir trompetnema og 27 umsækjendur. „Ég var svo heppinn að fá þetta eina pláss eftir þriggja umferða inntöku- próf og í þessum fræga skóla byrja ég nú í haust. Þarna er rjóminn af tónlistarfólki Frakklands, kennarar og nem- endur. Ég verð lágmark þrjú ár í skólanum og útskrifast þá með próf sem kallast Prix. Ég hlakka til samneytisins við alla þá góðu nemendur sem eru þarna. Í trompetbekknum eru stjörnur, fólk sem er komið í bullandi starfsframa og komið með stöður hjá hljómsveitum og farið að vinna fyrir sér með lúðrinum. Ég held að þetta verði mórölsk innspýt- ing fyrir mig að kynnast fólki á hæsta plani. Ég held að þetta verði alveg geðveikt.“ Jóhann er Frakki í aðra ættina. „Það verður æðislegt að geta náð ennþá betri tökum á tungumálinni og kynnast bet- ur frönsku hliðinni á sjálfum mér. Svo er alveg geðveikt að vera í París.“ Ég held þetta verði alveg geðveikt Jóhann Nardeau hlaut Jaquillat-styrkinn og komst gegnum nálarauga Parísarkonservatorísins Nardeau Tuttugu og sjö kepptu um stöðuna sem hann fékk. Á AUSTURVELLI verður boðið upp á lifandi bókasafn milli 13 og 17 í dag. Það er rétt eins og önnur bókasöfn, nema bæk- urnar eru lifandi fólk að þessu sinni. Bækurnar eru fulltrúar ólíkra hópa í samfélaginu. Í Ljósmyndasafni Reykjavík- ur, Tryggvagötu 15, 6. hæð, verður boðið upp á hina árlegu Polaroid-myndatöku, í búningi, fyrir framan stóra sérmálaða leikmynd. Opið er til 22.00. Í DAG er flugdrekagerð fyrir börn í Norræna húsinu kl. 13, Nýhil heldur fyrirlestur í tilefni af ljóðahátíð, Ísland-Panorama verður með atriði, Steinunn Soffía Skjenstad og Solmund Nystabakk flytja tónlist og Guja Dögg stjórnar hringborði um arkítektúr, en helgina 30.-31. ágúst verður svo þriðja Alvar Aalto-ráðstefnan um nútíma- arkítektúr. Sent er út beint frá Finnlandi og verða fyrirlestr- arnir sýndir á stórum skjá í Nor- ræna húsinu auk þess sem þeir sem í Reykjavík sitja geta spurt spurninga beint gegnum net- tengdan búnað. Önnur dagskrá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.