Morgunblaðið - 23.08.2008, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 23.08.2008, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 19 MENNING Eftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is „ÞEGAR ég var í MR labbaði ég með ljóð inn á skrifstofu til Friðriks Rafnssonar, sem þá var ritstjóri Tímarits Máls og menningar. Hann vildi alls ekki birta ljóðin en ég hét því þá að ég myndi aldrei gefa út ljóðabók nema ég fengi birt eftir mig í Tímariti Máls og menningar. Fyrir mér hefur Tímaritið því alltaf verið ákveðinn mælikvarði á það sem vel er gert og ég vona að það verði það áfram í huga fólks,“ segir Haukur Ingvarsson. Árið 2004 birt- ist ljóðið „Herdísarvík III“ í TMM og í framhaldinu gaf Mál og menn- ing út fyrstu bók hans Niðurfall og þættir af hinum dularfulla Manga. Og nú hefur hann verið ráðinn ritstjóri TMM frá og með næstu áramótum. „Silja [Aðalsteinsdóttir, fráfarandi ritstjóri] bauð mér þetta starf. Við höfðum rætt um tímaritið óformlega áður og hún vissi því að ég hafði mikinn áhuga á ritinu.“ Haukur er næstyngsti ritstjóri Tímaritsins frá upphafi og einungis örfáum mánuðum eldri en Guð- mundur Andri Thorsson var þegar hann tók við ritstjórn þess. En mun ritið yngjast að sama skapi? „Ein- hvers staðar stendur að tímarit séu rödd tímans og hlutverk þeirra sé fyrst og síðast að fella tíðarandann í orð, þessu er ég sammála. Það eru hræringar í samtímanum sem þarf að greina, útskýra og setja í sam- hengi ýmist við það sem hefur gerst áður eða á sér stað núna í heiminum umhverfis okkur. Dag- blöð, útvarp og sjónvarp birta nær- myndir af líðandi stundu, tímarit eins og Tímarit Máls og menningar á að taka sér ögn lengri tíma til umhugsunar, það á að draga saman það sem gerst hefur á vettvangi dagsins, mánaðarins, ársins eða jafnvel aldarinnar komi það okkur á annað borð við. Ef tímarit er gott þá er það síungt, það á t.a.m. við um tímaritið Birting og sömuleiðis bestu árganga Tímarits Máls og menningar. Og ég ætla að leggja mig allan fram við að gefa út gott tímarit.“ Fjöregg í tröllahöndum? Hauk þekkja margir úr útvarps- þættinum Víðsjá þar sem hann verður í loftinu út október. En hvernig er að yfirgefa útvarps- húsið? „Ég lít ekki svo á að ég sé að kveðja útvarpið því ég hef vakn- að og sofnað út frá þeirri dagskrá sem þar er boðið upp á frá því ég man eftir mér – á því verður von- andi engin breyting. Margir dýr- mætir fjársjóðir íslenskrar menn- ingar eru í safni útvarpsins og það þarf að rækta af alúð ef við ætlum okkur ekki að daga uppi sem sögu- laust fólk. Á sama tíma iðar Út- varpið af lífi, þar starfar fólk á ólík- um aldri, með ólíka reynslu, fjölbreytta menntun og mikinn metnað. Stjórnmálamenn tala um mik- ilvægi útvarpsins vegna þess að þeir vita að útvarpið skiptir fólkið í landinu máli. Peningarnir fara samt alltaf eitthvað annað og manni get- ur virst sem stjórnvöld gangi að því sem vísu að gæði dagskrár Rásar 1 haldist óbreytt vegna þeirrar ríku hefðar sem þar er fyrir vandaðri dagskrárgerð. Starfsfólkið heldur þessa hefð í heiðri en það gerir það á kostnað fjölskyldu sinnar og eigin frítíma. Næst þegar talað er um Rás 1 sem fjöregg þá ætti viðkom- andi stjórnmálamaður að rifja upp hvernig fór fyrir tröllunum í æv- intýrunum sem ekki pössuðu upp á sín fjöregg. Ég efast ekki um um- hyggju þeirra en þeir verða að hafa hugfast að það er mikil ábyrgð sem hvílir á þeirra herðum, ég vil ekki að þeir fari í vörn heldur sókn fyrir hönd Útvarpsins,“ segir Haukur og bætir við: „Samstarfsfólk mitt á Rás 1, bæði dagskrárgerðar- og tæknimenn, hefur kennt mér ótal- margt auk þess að reynast mér góðir vinir. Það er ekki leiðinlegt að vakna á morgnana og halda rit- stjórnarfundi með því skemmtilega fólki sem stýrt hefur Víðsjá en nú held ég til nýrra starfa og það geri ég fullur tilhlökkunar.“ Haukur Ingvarsson verður næsti ritstjóri TMM Að greina samtímann Morgunblaðið/hag Síungt rit Haukur verður næstyngsti ritstjóri TMM frá upphafi. Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is „IÐKUN þjóðlagatónlistar er mjög almenn í Tékklandi. Þetta er tónlist almennings og þegar tveir Tékkar hittast er sungin þjóðlagatónlist,“ segir Eydís Franzdóttir um þjóð- lagahefð Tékka en henni geta gestir fengið að kynnast á Þjóðlagahátíð í Árbæjarsafni á sunnudag. Þar mun þjóðlagahópurinn Osm- inka frá Prag leika, syngja og dansa en hópurinn er skipaður börnum og unglingum frá virtum tónlistarskóla þar í borg. „Osminka hefurs tarfað frá 1999 og eru börnin sérhæfð í að flytja þjóðlagatónlist og gera það af mikilli ánægju, klædd í litríka þjóð- búninga,“ segir Eydís sem skipu- leggur viðburðinn. Hefðirnar bornar saman Ekki er nóg með að njóta megi tékkneskrar þjóðlagahefðar heldur verður íslensk þjóðlagatónlist á sín- um stað: „Hugmyndin er að blanda saman menningu þessara tveggja Tékknesk-íslensk þjóðlagaveisla Gleðigjafar Rík og útbreidd þjóðlagahefð er í Tékklandi. landa og þess vegna höfum við feng- ið til liðs við okkur danshópinn Spor úr Borgarfirði til að sýna íslenskan þjóðdans við harmonikkuundirleik og söng. Einnig ætla Bára Gríms- dóttir og Chris Foster, sem saman mynda dúóið Funa, m.a. að leika á langspil og íslenska fiðlu.“ Við bæt- ist svo hópur 9 ára barna úr Laug- arneshverfinu sem bregða á leik. Fé- lagsskapurinn Faldafeykir sýnir íslenska faldbúninginn og býður börnum að máta, eldsmiður verður við störf, tálgað og unnið úr ull. Fjörug og glaðleg Eydís segir mjög gaman að fylgj- ast með Osminka og gaman verður að bera saman hefðir landanna tveggja. „Tékknesk þjóðlagatónlist er glaðleg og fjörug, umfram allt ætluð til skemmtunar og þegar Osminka fara af stað skín bros úr hverju andliti,“ segir hún en með- limir hópsins spila m.a. á tékkneska sekkjapípu og hið óvenjulega hljóð- færi vosenbuch. Dagskráin hefst kl. 13. STÓRAR svartar tréristur Magda- lenu Margrétar Kjartansdóttur í STARTART listamannahúsi sýna á táknrænan hátt samruna manns og trés sem vekur athygli á þekktri líkingu mannkyns við tré, rætur þess og greinar. Þrátt fyrir að við tölum almennt um rætur okkar og ættartré sem línuleg ferli þá mynd- gerir Magdalena eilífa hringrás tímans í myndum sínum sem vísar í fornan tímaskilning sem byggist á eilífri endurnýjun náttúrunnar. Þessi tímaskilningur hefur sótt í sig veðrið eftir að stórlega hefur dregið úr trú á línulega þróun mannsins og sögunnar sem og Biblíunnar. Myndirnar eru skornar og prent- aðar af mikilli afslöppun og leikni sem sýnir hversu góð tök Magda- lena hefur á miðlinum. Myndefnið sjálft er einfalt með náttúrutengdu trúarlegu yfirbragði sem minnir á forna gyðjudýrkun. Hætta er á að svo almennar skírskotanir í einfald- ar þekktar myndlíkingar missi marks. Magdalena hefur oft valið persónulegri útfærslu með dýpri sálrænni undirtóni í myndum sín- um en nú. Það er ánægjulegt að sjá svart- list blómstra innan um fjölbreyti- leika íslenskrar myndlistarflóru samtímans. Rætur manns og greinar Þóra Þórisdóttir MYNDLIST START ART listamannahús Laugavegi 12b. Sýningin stendur til 27.ágúst. Opið þriðjudaga til laugardaga frá kl. 13-17. Magdalena Margrét Kjartansdóttir, SVART LIST, tréristur bbbnn Í TVEIMUR aðskildum rýmum START ART sýna listakonurnar Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir og Þór- dís Jóhannesdóttir innsetningar sem í byrjun voru höfundarverk hvorrar fyrir sig. Á hverjum degi breyta þær innsetningunum og gefa sér það frelsi að vinna inn á eða með verk hvor annarrar svo heildin er háð sí- breytilegu sameiginlegu frjálsu ferli. Spurningin um höfundarverk varð áleitin í menningarumræðunni á seinni helmingi síðustu aldar og er enn. Sá þáttur innsetningarinnar ásamt því tilraunakennda ferli sem á sér stað meðan á sýningunni stendur er vissulega skemmtilegur þótt áhorfendur sjái oftast bara eina út- gáfuna. Það er mikill metnaður lagð- ur í innsetningarnar sem hvor um sig samanstendur af einskonar fjöl- tæknilegum vegg þar sem mismun- andi miðlar eru notaðir og klipptir saman í eina heild. Myndbönd sem er varpað inn í heildina bæði aft- anfrá og að framan spila með ljós- myndum og máluðum flötum sem kallast aftur á við síbreytilegt skuggaspil og speglun úr umhverf- inu. Verkin hafa ekki síður skírskotun í arkitektúr, hönnun og sviðs- myndagerð en í myndlist og styrkur þeirra felst í því að þær stöllur hafa náð góðum tökum á tæknilega sjón- rænni framsetningu miðlanna og skapað myndræna stemmingu sem vísar í eilíft flökt augans. Þó er ekki laust við að það vanti einhvern herslumun til að verkin verði eft- irminnileg. Umgjörð verkanna er kannski of niðurnjörfuð til að leik- urinn og tilraunirnar nái sér á strik um leið og framkvæmd leiksins gref- ur undan ígrundaðri endanlegri nið- urstöðu. Listakonurnar báðar eru nýlega útskrifaðar úr listnámi og hafa strax gert sig gildandi í íslensku sýning- arhaldi. Ruglað saman reitum Þóra Þórisdóttir MYNDLIST START ART listamannahús Laugavegi 12b Sýningin stendur til 27.ágúst. Opið þriðjudaga til laugardaga frá kl. 13–17. Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir og Þórdís Jó- hannesdóttir – Innsetning blönduð tækni bbbnn Fjöltæknilegt Mikill metnaður er lagður í innsetningarnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.