Morgunblaðið - 23.08.2008, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 23.08.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 15 VIÐSKIPTI Í HNOTSKURN » Samanlagt markaðsvirðifæreysku félaganna fjög- urra sem skráð eru í kauphöll- inni á Íslandi er um 5,6 millj- arðar króna. Virði Eik Banka er mest, um 2,1 milljarður króna. » Samanlagt markaðsvirðifélaganna 13 sem eru í úr- valsvísitölunni í kauphöllinni er um 1.500 milljarðar króna. Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is EINUNGIS eitt af þeim fjórum fær- eysku félögum sem skráð eru í kaup- höllinni á Íslandi skilaði betri af- komu á fyrri helmingi þessa árs en á sama tímabili í fyrra. Er það mjög í samræmi við þróunina á mörkuðum á Norðurlöndum almennt, og reynd- ar einnig þótt víðar væri leitað. Atlantic Petroleum skilaði hálfs- ársuppgjöri sínu í gær og Atlantic Petroleum í fyrradag, og höfðu öll færeysku félögin fjögur þar með skilað af sér, því Eik Banki og Før- oya Banki birtu sín uppgjör í byrjun þessa mánaðar. Atlantic Petroleum hagnaðist um tæplega 3 milljónir danskra króna, tæpar 46 milljónir íslenskra króna, á öðrum fjórðungi ársins, en tapaði 35 milljónum danskra króna á sama tímabili í fyrra. Hagnaðurinn nú skýrist af óinnleystum gengishagn- aði vegna styrkingar dönsku krón- unnar gagnvart breska pundinu. Atlantic Airways hagnaðist um tæplega 250 þúsund danskar krónur á fyrri helmingi ársins en 12,5 millj- ónir í fyrra. Hátt eldsneytisverð á stóran þátt í verri afkomu félagsins í ár en í fyrra. Føroya Banki hagnaðist um 21 milljón danskra króna á fyrri helm- ingi ársins en 84 milljónir í fyrra. Þá tapaði Eik Banki 16 milljónum danskra króna í ár en hagnaðist um 206 milljónir í fyrra. Lækkun í kauphöllum Til samanburðar má geta þess að úrvalsvísitalan í kauphöllinni á Ís- landi hefur lækkað um 30% frá síð- ustu áramótum. Í kauphöllinni í Stokkhólmi hefur OMX S30-vísital- an lækkað um tæp 20% og OMX C20-vísitalan í Kaupmannahöfn hef- ur lækkað um tæp 10%. Afkoma skráðra félga hefur þarna eðlilega sín áhrif. Í gær voru hins vegar tölu- verðar hækkanir í kauphöllum víða um heim, einnig á Norðurlöndum. Minni hagnaður færeyskra félaga Atlantic Petroleum eina skráða félagið sem jók hagnað sinn Morgunblaðið/Ómar Afkoman Færeysku félögin í kauphöllinni á Íslandi hafa ekki farið varhluta af þeim hremmingum sem verið hafa á fjármálamörkuðum og víðar. &' &'   ( ( &' 1)'     ( ( * +$  ,  -     ( ( %. * '       ( ( &'2# &'3       ( ( 4*,               !!" 56+ # & ) )# 6 0 1 203  4 5203 )  6 4 5203 /7 203 4    203 803/9 5 0: ;  <1   4 5203 = 5 ) 203   ;  203   203 >&,  9 ?) @ A %A 033203 B  203 7 $ 5-  4   1  +  1 9C% /)  %D  ) ,E2 203 .9203 .   9@ @203 F  @203   3   %   G   99G 3 8)4 203 8 95@ 203  8 )"                                                        F@ 5   .  @  = 5 !3I #3J! !3"3IK !#3#"3"J "K!3IKK3#II J 3#J3K#" 3!#3IJ ##3!"J3  #3! 3! #J3""I3J !3IJK3 !3  3 "!!33JJ# !3I# 3#"!  J3 J3IJ# #3# 3IKI !3!3" ? ? ? ? "!3"J3 ? ? LK L # "KL  IL#! #L # L" #JL K# L "!LI IL  !L  JL I JL ""L #!L "IL #L ? ? ? ? !I"L #L ? LK L  "KL IL"# #L # L! #JLK K"L "!LJ ILI !LJ JL" J#L "L #L "L #IL "#LJ ? ? IL !IIL #L L % 6@ 5 " " K !I !K  ! !K #" # " # # ? " ! I ? ? ? ? " ? ? *  6@ 36 @ ""3I3"I ""3I3"I ""3I3"I ""3I3"I ""3I3"I ""3I3"I ""3I3"I ""3I3"I ""3I3"I "#3I3"I ""3I3"I ""3I3"I "#3I3"I "3I3"I ""3I3"I ""3I3"I ""3I3"I #3K3"I #!3I3"I 3#"3"K !33"I ""3I3"I # 3I3"I K3!3"I . . STJÓRNENDUR Seðlabankans hafa kynnt nýjar reglur um veð- lánaviðskipti við bankann. Eftir að þær taka gildi geta fjármálafyr- irtæki ekki eingöngu lagt verðbréf, sem eru útgefin af viðskiptabönk- unum, inn í Seðlabankann sem tryggingu. Hlutfallið verður lækk- að í skrefum til 1. janúar 2009 þeg- ar um helmingur lánsins má vera tryggður með ótryggðum verð- bréfum. Hinn helmingurinn verður að vera tryggður með öðrum bréf- um eins og ríkisbréfum eða sér- tryggðum skuldabréfum. Eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu í gær og fyrradag hafa bankar notfært sér glufu í reglum um viðskipti við Seðlabank- ann og sótt sér krónur nánast eins og þeim sýnist. Eiríkur Guðnason seðlabankastjóri sagði í gær að ver- ið væri að bregðast við í ljósi reynslunnar. bjorgvin@mbl.is Takmarka veðhlutföll verðbréfa . 9 6 @   A26 2A 2  0   @  :0  9 0  09    @@    96@3;  2M  @0A A2A@   9 #(6@  @96 @ :093 N 2  0 6 @  M @(3NA 0 22   @6 9@6@     :09L       :093 % A#3 5 3"I % A#3  3"I % A#363"I % A#3 3"I *  F @2  0   @  :0 '  BRESKA námufyrirtækið London Mining tilkynnti í fyrradag að félagið hefði selt námustarfsemi sína í Bras- ilíu til stærsta stálframleiðanda heims, ArcelorMittal, fyrir tæpa 67 milljarða króna eða 810 milljónir dollara. London Mining keypti þess- ar eignir í maí árið 2007 á rúma 8 milljarða króna og hefur því áttfald- að fjárfestingu sína á rúmu ári. „Markaðurinn hefur tekið mjög vel í þessa sölu enda er hún ákaflega hagstæði fyrir London Mining. Þetta er í fyrsta sinn sem við veitum söluráðgjöf í námugeiranum en hann er mjög áhugaverður. Við höfum unnið að þessari sölu um nokkurt skeið og ánægjulegt að ljúka henni,“ segir Helgi Bergs, framkvæmda- stjóri fyrirtækjaráðgjafar Kaup- þings, í tölvubréfi til Morgunblaðs- ins. Fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings í Bretlandi hefur verið almennur ráð- gjafi London Mining frá því í desem- ber 2007 og lagði til fyrir nokkru að félagið seldi rekstur sinn í Brasilíu. Kaupþing annaðist söluna ásamt UBS. London Mining er skráð í norsku kauphöllinni og er markaðs- virði þess rúmir 50 milljarðar króna. Helming af andvirði sölunnar fá hluthafar í arðgreiðslu. Í gær var svo tilkynnt um kaup fé- lagsins á helmingshlut í námuverk- efni Wits Basin í Kína. Kaupvirðið er 45 milljónir dollarar, eða 3,7 millj- arðar króna. bjorgvin@mbl.is Græddu yfir 50 milljarða Kaupþing ráðlagði um sölu á námu Járnnáma Fjárfesting í járnnámu hefur skilað LM góðum hagnaði. Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is KÍNVERSKIR íþróttamenn hafa rakað til sín verðlaunum á Ólympíu- leikunum í Peking. Þeir virðast ætla að slá út íþróttamenn frá Bandaríkj- unum, sem til þessa hafa í langan tíma staðið uppi sem sigurvegarar í flestum greinum. Staðan er svipuð hvað afkomu fjármálafyrirtækja varðar, því kínverskur banki virðist hagnast mest allra. Stærstu bankar Bandaríkjanna og annarra vestrænna ríkja hafa alla jafna skilað mestum hagnaði á hverj- um tíma, en ekki lengur. Stærsti banki Kína, Iðnaðar- og viðskipta- bankinn, hagnaðist um 9,4 milljarða Bandaríkjadollara á fyrri helmingi þessa árs, en það jafngildir um 780 milljörðum íslenskra króna á núver- andi gengi. Það sem bankinn gerði öðruvísi en margir aðrir er að hann tók engan þátt í undirmálslánunum svokölluðu. Kínverskur banki efstur Einbeitti sér að innanlandsmarkaði Reuters Sigur Kínverskur banki er í fyrsta sæti eins og Chen Ruolin, sem sigr- aði í dýfingum af 10 metra palli. ● BEN Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, sagði í ræðu á fundi bankans í gær, að verðbólgan ætti að hægja á sér fyrir lok þessa árs. Stjórnvöld verði þó að vera reiðubúin til að grípa til aðgerða ef þetta gerist ekki, samkvæmt frétt Bloomberg. Styrking dollarsins og lækkun á verði hrávara ætti að stuðla að minni verðbólgu vestanhafs, sagði Bern- anke. Þá bætti hann við að seðla- bankinn myndi óhikað grípa til nauð- synlegra aðgerða ef markmiðið um lækkun verðbólgunnar næst ekki fljótlega. gretar@mbl.is Spáir minni verðbólgu vestanhafs fljótlega ● SPARISJÓÐUR Mýrasýslu tapaði 4,6 milljörðum á fyrstu sex mán- uðum ársins. Á sama tímabili í fyrra hagnaðist sjóðurinn um 2,4 milljarða króna. Gjöld af fjáreignum og fjár- skuldum námu 3,6 milljörðum króna, en í fyrra voru tekjur vegna þessa 2,7 milljarðar. Eignir sjóðsins jukust um 11,6% frá ársbyrjun og námu 53,3 millj- örðum í júnílok. Hlutfall eiginfjár er þó neikvætt um 0,5%. Að lokinni ný- samþykktri stofnfjáraukningu sjóðs- ins og öðrum tengdum aðgerðum er stefnt að því að eiginfjárhlutfall verði 10,7%. halldorath@mbl.is Úr 2,4 milljarða hagn- aði í 4,6 milljarða tap ● KONUR í Evr- ópu eru að jafnaði með um 16% lægri laun en karl- ar fyrir sambæri- lega vinnu, sam- kvæmt nýrri skýrslu stofnunar á vegum Evrópu- sambandsins. Í tilkynningu frá stofnuninni, European Industrial Relations Ob- servatory, segir að góðu fréttirnar séu þær að launamunur kynjanna á evrusvæðinu hafi minnkað. Slæmu fréttirnar séu hins vegar þær að bilið sé yfir meðaltalinu fyrir Evrópu í heild í nýjustu aðildarlöndum ESB. gretar@mbl.is Konur í Evrópu með um 16% lægri laun ESB Evrusvæðið kemur betur út. ● ÚRVALSVÍSITALAN í kauphöllinni á Íslandi hækkaði um 0,9% í gær og er lokagildi hennar 4.280 stig. Heildar- viðskipti námu liðlega 29 millj- örðum, og þar af voru viðskipti með hlutabréf fyrir um tvo milljarða, mest með bréf Kaupþings, liðlega 600 milljónir. Mest hækkun varð á hluta- bréfum Føroya banka, 6,1%, og SPRON, 3,0%, en mest lækkun á bréfum Atlantic Petroleum, 2,4%. gretar@mbl.is Hækkun í kauphöllinni ICEBANK hagnaðist um 560 millj- ónir króna á öðrum fjórðungi ársins. Á fyrsta fjórðungi var 3,4 milljarða króna tap, samanlagt var því 2,8 milljarða tap á fyrri árshelmingi. Á fyrri helmingi ársins var hins vegar 4,2 milljarða króna hagnaður. Í tilkynningu segir að mest muni um umskipti á gengishagnaði, sem var nú 513 milljónir, en á fyrsta fjórðungi var 2,1 milljarðs gengistap. Varúðarfærslur vegna virðisrýrnun- ar útlána námu 3,9 á fyrri árshelm- ingi. Icebank varð til árið 2006 þegar nafni Sparisjóðabanka Íslands var breytt. Bankinn starfar á fyrirtækja- markaði með áherslu á langtímalán og gjaldeyris- og afleiðuviðskipti. halldorath@mbl.is Icebank réttir úr sér ÞETTA HELST …

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.