Morgunblaðið - 23.08.2008, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.08.2008, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is FÁIR voru á ferli á höfuðborgar- svæðinu þegar „strákarnir okkar“ kepptu við Spánverja á ÓL í gær. Í miðbænum heyrðust fagnaðaróp frá íbúðum og vinnustöðum með reglu- legu millibili og þeir fáu sem gengu um Laugaveginn voru með heyrn- artól í eyrum til að hlusta á útvarps- lýsingu. Ökumenn sem keyrðu um Laugaveginn voru sömuleiðis vel- flestir með útvarpið á fullu og bið- röðin í Bónus á Laugavegi var æði stutt miðað við föstudag svo dæmi séu tekin. Mörg fyrirtæki buðu starfs- mönnum sínum upp á að horfa á leik- inn á vinnustöðum og nýttu margir sér það tækifæri. Þá fylgdust fjöl- margir með framvindu leiksins á mbl.is. Ráðherrar úr ríkisstjórn Íslands, Geir Haarde, Einar K. Guðfinnsson og Árni M. Mathiesen voru þá meðal þeirra sem fylgdust með leiknum á Landbúnaðarsýningunni á Hellu. Þá voru um 80 manns sam- ankomin í íslenska sendiráðinu í Berlín til að fylgjast með leiknum og var stemning þar feikilega góð. Sömu sögu var að segja í höfuð- stöðvum lögreglunnar við Hverfis- götu í Reykjavík. Slíkt var ástandið að starfsmenn OR gátu lesið vatnsnotkun höfuð- borgarbúa með handboltagler- augum og séð aukna vatnsnotkun fyrir og eftir leik. Voru sveiflutoppar í vatnsnotkun slíkir að helst minnti á baðferðir fólks síðdegis á að- fangadag. Ósvikin gleði í bæ „Strákarnir okkar“ fanga athygli landsmanna með frækilegri frammistöðu sinni á ÓL í Peking og gera tilkall til gullsins NÁNAST engin viðskipti voru með krónuna í gær á meðan landsleikur Ís- lendinga og Spánverja fór fram á Ólympíuleikunum í Peking. Gengis- vísitalan tók aðeins við sér í hálfleik en hélst svo óbreytt á meðan á síðari hálfleik stóð, að því er fram kemur í vefriti greiningardeildar Landsbank- ans, Vegvísi. Eftir að leiknum lauk styrktist krónan svo lítillega. Segir greiningar- deildin að sömu sögu sé að segja af bæði hlutabréfa- og skuldabréfamark- aði, en á milli klukkan 12 og 14 í gær hafi ekki verið ein einustu viðskipti með skuldabréf í íslensku kauphöllinni. gretar@mbl.is Lítil viðskipti undir handboltaleik Morgunblaðið/G. Rúnar Veisla Sannkölluð handboltaveisla er á öllu landinu þessa dagana og gestir í Vetrargarðinum fögnuðu ákaft öllum þeim íslensku mörkum sem Spánverjar fengu á sig í hinni sögulegu viðureign þjóðanna á ÓL í Peking í gær. „LEIKURINN var svolítið köflóttur,“ segir Vilhjálmur Einarsson og hlær dátt. „Mér leið illa þegar Spánverj- arnir jöfnuðu, en ég treysti strákunum okkar til að kom- ast yfir.“ Vilhjálmur Einarsson braut blað í íslenskri íþrótta- sögu er hann varð fyrsti Íslendingurinn til að vinna til verðlauna á Ólympíuleikum. Vann hann silfurverðlaun í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne í Ástralíu árið 1956. „Mér finnst strákarnir svo vel stemmdir og heimspek- ingurinn þeirra, Ólafur Stefánsson, er svo rétt stemmd- ur pilturinn að það getur allt gerst í leiknum á móti Frökkunum. Eins og Ólafur segir, þá eigum við 60 mínútur eftir og við skulum gefa allt í þær og sjá hvað gerist. Ef þeir mæta Frökkunum með þessu hugarfari þá getur allt gerst. En fari þeir að hugsa of mikið um gull- ið, þá bið ég Guð að hjálpa þeim.“ Vilhjálmur, sem býr á Egilsstöðum, mun horfa á úrslitaleikinn við Frakka á Akureyri á sunnudag með fjölskyldu sinni. „Treysti strákunum okkar“ Vilhjálmur Einarsson „ÞETTA er stórglæsilegur árangur sem strákarnir verð- skulda svo sannarlega. Ég er virkilega stoltur af þeim og þeir hafa sýnt það og sannað að það var ekki heppni sem réð því hversu langt þeir komust,“ segir Bjarni Friðriks- son bronsverðlaunahafi í júdó á Ólympíuleikunum í Los Angeles árið 1984. Með afreki sínu varð hann annar Ís- lendingurinn í sögunni til að vinna til verðlauna á Ólymp- íuleikum. Það tók töluvert á taugarnar hjá Bjarna að horfa á leik íslenska liðsins við Spánverja í sjónvarpinu í gær og hann segist ekki hafa lagt í að horfa á seinni hálfleikinn nema með öðru auganu. „Ég þoldi ekki þessa spennu,“ segir hann og hlær. „En þetta var æðislegt,“ bætir hann við. „Það má heldur ekki gleyma því hvað framlag þjálfara, aðstoðarþjálfara og annarra sem starfa með landsliðinu skiptir miklu máli. Að ná þessum árangri á Ólympíuleikum er ekki sjálfsagður hlutur. Þarna er mikil vinna að skila sér hjá strákunum og samstarfsaðilum þeirra. Það hlýtur að vera mikil vinna fólgin í því að stilla saman strengina í liðinu og Guðmundur landsliðsþjálfari hefur unnið feiki- lega gott starf þar.“ „Stórglæsilegur árangur“ Bjarni Friðriksson VALA Flosadóttir bronsverðlaunahafi í stangarstökki kvenna á Ólympíuleikunum í Sydney í Ástralíu árið 2000, sem jafnframt er fyrsta íslenska konan sem kemst á verðlaunapall á Ólympíuleikum, segir árangur ís- lenska handboltalandsliðsins hreint út sagt stórkostleg- an. Hún er búsett í Svíþjóð og horfði á viðureignina við Spánverja í beinni útsendingu. „Maður var með gæsahúð allan tímann og fylgdist með þessum stórkostlega leik,“ segir hún. „Strákarnir voru ákveðnir en spiluðu samt með mikill gleði. Það geislar af þeim og þeir virðast njóta sín til fulls. Þegar seinni hálfleikurinn hófst var ég viss um að þeir myndu vinna leikinn. Maður sá það bara á þeim að þetta myndi ganga upp á hjá þeim,“ segir hún.„Þessi árangur hefur svo mikil og góð áhrif á fólk, allir standa saman og gleðin er mikil. Og nú er stóri dagurinn framundan.“ „Geislar af þeim og þeir virðast njóta sín til fulls“ Vala Flosadóttir „ÉG hef bara mikla trú á að við vinnum þetta. Drengirnir hafa einhverja ótrú- lega innri stóíska ró og þó að allir séu búnir að tala um það að Frakkarnir séu langbestir þá hef ég eigi að síður mikla trú á okkar drengjum,“ sagði Þorgerður Katrín um handbolta- landsliðið á ÓL. Ríkisstjórnin und- irbýr nú veglegar móttökur handa liðinu við heimkomuna. Trúir á ís- lenskan sigur Þorgerður K. Gunnarsdóttir „ÉG er mjög stoltur af liðinu, þetta er stórkost- legur árangur hjá íslenska lið- inu og ótrúlega gott lið þar á ferð,“ segir Geir Haarde forsætis- ráðherra um ís- lenska hand- boltalandsliðið sem fór á kostum í gær. „Þeir hreinlega rúlluðu yfir Spánverjana allt frá fyrstu mín- útu,“ sagði Geir í fréttasamtali við mbl.is. „Mjög stoltur af liðinu“ Geir Haarde

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.