Morgunblaðið - 23.08.2008, Side 22

Morgunblaðið - 23.08.2008, Side 22
|laugardagur|23. 8. 2008| mbl.is daglegtlíf Margt er ritað og sagt um málefni Sparisjóðs Mýrasýslu þessa dagana. Í viðskiptablaði Morgunblaðsins var fjallað um málið í tengslum við stöðu annarra sparisjóða. Á Skessuhornsvefnum var grein í þremur hlut- um eftir Lárus Pál Pálsson, undir samheitinu Erfidrykkja Sparisjóðs Mýrasýslu. Fjölmenni var á íbúafundi þar sem almenningi var greint frá stöðu mála og mögulegum orsökum vand- ans. Menn eru eðlilega slegnir yfir því að „Horn- steinn í héraði“ eins og Sparisjóðurinn kenndi sig við, skuli brátt tilheyra fortíðinni. Spari- sjóðinn er nú uppnefndur „legsteinn í héraði“, gárungarnir tala um „dapra daga“ (sbr. Danska daga í Stykkishólmi) og bærinn okkar fallegi er jafnvel kallaður „Sorgarnes“.    Þessi staðreynd er auðvitað bæði dapurleg og sorgleg, en það hefur ekki einkennt Borg- nesinga að gefast upp þótt móti blási. Í haust munum við hylla sauðkindina á nýjan leik á Sauðamessu sem var síðast haldin fyrir tveim- ur árum. Dagsetningin mun vera 4. október, en þá verður orðið nógu kalt til að maður klæð- ist lopapeysu, ullarsokkum og lopahúfu, að ég tali nú ekki um að fá heita íslenska kjötsúpu í kroppinn eins og venjan er á Sauðamessu.    Og „Brák“ fer aftur á fjalirnar á sögulofti Landnámssetursins nk. laugardag svo leiklist- arunnendur geta glaðst. Ef mig misminnir ekki var Brynhildur Guðjónsdóttir, leikari og handritshöfundur, valin leikskáld ársins á Grímu-afhendingunni í júní sl. Leikritið er ein- leikur sem Atli Rafn Sigurðarson, eiginmaður Brynhildar, leikstýrði og gekk verkið fyrir fullu húsi frá áramótum og fram á vor.    Á vef Skessuhorns komst ég ekki hjá því að svara spurningu vikunnar um hvað væri skemmtilegasta heimilisverkið. Auðvitað svar- aði ég því til að það væri að greiða reikninga! Það er vegna þess að í hvert skipti sem maður greiðir reikninginn minnka skuldir heimilisins. Nema vextirnir fari hækkandi, úps. Niður- staðan á vefnum var að 28,2% sögðu elda- mennskuna skemmtilegasta en 16,2% sögðu öll heimilisverk leiðinleg. Að greiða reikninga var bara í fjórða sæti með 10,4%. Að strauja var neðst, aðeins með 1,9%, og því var ég sammála, mér finnst bara gaman að strauja Visakort. Verðlaunaverk Leikverkið Brák mun snúa aftur á fjalirnar nú í haust. BORGARNES Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur Ég er í hópi þeirra fjölmörgu sem hafalagt land undir fót með JóhönnuKristjónsdóttur til Mið-Austurlandaog er nú búin að koma til fjögurra landa með henni, þar á meðal til Jemens snemma á síðasta ári,“ segir Rannveig Guð- mundsdóttir sem heillaðist af framtaki Jóhönnu þegar hún setti verðlaunafé Hagþenkis sem hún fékk fyrir bók sína Arabíukonur í sjóð og leitað uppi samstarf við jemenska konu, Nouriu Nagi, sem hafi gert það að hugsjónastarfi sínu að hjálpa börnum til mennta. „Þegar ég frétti af því fannst mér þetta verkefni vera þess vert að taka þátt í. Við hjónin styrkjum Nawal sem gengur í skólann hennar Nouriu.“ Þegar Rannveig og Sverrir voru búin að greiða með Nawal í eitt ár bauðst þeim að fara með Jóhönnu í ferð til Jemens og Jórdaníu. „Í ferðinni var innifalin heimsókn í skólann til Nouriu og möguleiki á að hitta styrktarbörnin.“ Rannveig segir það hafa verið hjartnæma upp- lifun að hitta Nawal sem kemur úr fátækri sveitafjölskyldu og fór níu ára gömul í skólann til Nouriu til að læra að lesa og skrifa. „Það var stórkostlegt fyrir okkur að hitta þessa litlu stúlku sem skildi ekkert í því af hverju við vor- um svo upptekin að henni fremur en öðrum börnum. Þegar Jóhanna var búin að útskýra fyrir henni að við værum hjónin sem styrktum skólagöngu hennar kom hún hlaupandi til mín og flaug upp um hálsinn á mér, kyssti mig á báð- ar kinnar. Síðan tók hún í hendur okkar Sverris og benti á okkur þrjú til skiptis. Þetta voru mjög sérstök skilaboð og okkur hlýnaði í hjart- anu að vera komin í tengsl við þessa fallegu stúlku. Við erum staðráðin í að styrkja hana til skólagöngu svo lengi sem hún hefur áhuga.“ „Ég vil vera eins og þú“ Síðan þá hefur hún fengið góðar fréttir af Nawal. „Nouria sagði mér að Nawal hefði komið til hennar um daginn. Hún kvaðst þá vera búin að læra að lesa og skrifa og fannst hún því tilbú- in að fara að takast á við háskólanám. Nouria sagði henni að hún væri of ung til að byrja í há- skóla en spurði hana síðan af hverju hana lang- aði svo mikið í háskólanám. Þá sagði Natal: „Af því ég vil vera eins og þú.““ Rannveig segir að ekkert hafi glatt sig meira í kringum þá upp- lifun að styrkja Nawal en þessi setning. „Ég er í hópi þeirra kvenna í stjórnmálum og atvinnulífi sem hafa verið mjög meðvitaðar um hvað fyrir- myndir skipta miklu máli. Við höfum allar átt fyrirmyndir og við höfum upplifað hvað skortur á fyrirmyndum hefur tafið jafnréttisbaráttuna. Við höfum glaðst yfir hverri einustu konu sem hefur orðið til þess að vísa leiðina og verið öðr- um fyrirmynd. Við þessa sögu af Natal upplifði ég að við værum ekki aðeins að gera henni kleift að ganga í skóla. Við vorum að gefa henni fyrir- mynd.“ „Við gáfum henni fyrirmynd“ Fagnaðarfundir Rannveig og Nawal hittast í fyrsta sinn. Undanfarin þrjú ár hefur Fatimu- sjóður Jóhönnu Kristjónsdóttur styrkt börn í Sanaa, höfuðborg Jemens, til að komast í skóla með árlegu framlagi. Áhugasamir stuðningsforeldrar hafa lagt verk- efninu lið frá upphafi og styrkja ís- lenskar fjölskyldur nú 126 börn til náms. Hjónin Rannveig Guð- mundsdóttir og Sverrir Jónsson hafa í tvö ár styrkt skólagöngu Nawal AlHymee. SÚK, arabískur glæsimarkaður, verður hald- inn í Perlunni laugardaginn 30. ágúst. Þar verður til sölu fatnaður, skór, töskur, skart og munir og mun allur ágóði sölunnar renna óskiptur í uppbyggingu skóla fyrir börn og konur í Jemen. Í HNOTSKURN »Fatimusjóðurinn var stofnaður 2005.Framlög úr sjóðnum fara til fræðslu- miðstöðvar í Sanaa, höfuðborg Jemens. »Styrkirnir renna til skólagöngu jem-enskra skólabarna og til fullorðins- og saumanámskeiða fyrir ómenntaðar konur. Sjóðurinn borgar ennfremur kennaralaun. »250 börn ganga nú í skóla á vegumfræðslumiðstöðvarinnar og styrkja íslenskar fjölskyldur 126 börn með ár- legu framlagi. »Nánari upplýsingar um sjóðinn máfinna á heimasíðu Jóhönnu Krist- jónsdóttur: johannaferdir.blogspot.com. Reuters Verðugt framlag Í þrjú ár hafa Íslendingar styrkt skólagöngu barna í Jemen í gegnum Fatimusjóðinn og stefna mörg skólabarnanna á háskólanám í framtíðinni. Hanak AlMatari er 19 ára gömul skóla- stúlka en íslensk fjölskylda hefur styrkt menntaskólanám hennar síðastliðin þrjú ár. Hanak er fyrsti nemandi í fræðslu- miðstöðinni sem hefur háskólanám í haust. „Við lítum á þetta sem afar glæsilegan sigur og hann sýnir okkur hvað stuðningur við börnin hefur breytt viðhorfum þeirra og lífi,“ segir Jóhanna Kristjónsdóttir, for- svarsmaður og stofnandi Fatimusjóðsins. Hanak mun nema hagfræði og stjórnmála- vísindi við Háskólann í Sanaa. „Það er ekki sjálfgefið að fara í háskóla og sjaldgæft að kona leggi stund á há- skólanám í Jemen. Því er þetta stórkost- legur áfangi fyrir Hanak og mér finnst ekki síst merkilegt hvaða nám hún velur sér. Stúlkur velja sér gjarnan hefðbundn- ari greinar eins og hjúkrun eða kennslu. En val hennar ber vott um mikið sjálfs- öryggi og mun námið veita henni marga möguleika. Hún virðist einbeitt og full af ákefð til að halda sínu striki og ná því markmiði sem hún hefur sett sér. Hún hef- ur skapað sína möguleika með stuðningi frá fjölskyldu á Íslandi.“ Sýnilegur árangur Einbeitt Hanak mun nema hagfræði og stjórnmálavísindi við Háskólann í Sanaa. úr bæjarlífinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.