Morgunblaðið - 23.08.2008, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.08.2008, Blaðsíða 23
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Reykjanesbær | Grjót og lyngmói eru grunnurinn í fallegum garði sem hjónin Hjalti Örn Ólason byggingarmeistari og Ólöf Sigur- rós Gestsdóttir, starfsmaður leik- skóla, hafa komið sér upp í Reykjanesbæ. Hús þeirra stendur efst við götuna Steinás, í nýlegu hverfi í Njarðvík, og rennur garð- urinn skemmtilega saman við holtið. „Við vorum strax ákveðin í því að halda móanum og grjótinu. Við plöntuðum birki í móann og bætt- um heilum vörubílsfarmi af grjóti í lóðina,“ segir Ólöf. Fleiri húseig- endur í hverfinu nýta grjótið sem var í holtinu þegar byrjað var að byggja en aðrir gengu í að koma því í burtu. „Okkur finnst fólk geta nýtt betur þá sérstöðu sem þetta svæði hefur,“ segir Hjalti. Hann nefnir sem dæmi að hann hafi fengið aðra lóð í hverfinu sem hann hugsaði sér að byggja hús á og selja. Grjóthóll hafi verið á byggingarreit hússins. Hann hafi óskað eftir því við bæinn að fá að færa húsið örlítið til hliðar, til þess að hóllinn gæti staðið órask- aðar en fékk neitun. „Ég skilaði lóðinni því ég vil ekki standa í stríði við álfa,“ segir Hjalti. Þau telja sig vera umhverfis- verndarfólk og segja að sumir sem skreyti sig með slíku mættu líta meira til síns nánasta um- hverfis, en ekki aðeins upp á há- lendið. Matarúrgangurinn í beðin Húsið byggði Hjalti sjálfur á árunum 2003 og 2004. Þau fengu Björn Jóhannesson landslags- arkitekt til að skipuleggja lóðina. Byrjað var að planta trjám áður en lokið var við húsið og garð- urinn kláraðist á síðasta ári. Landið er ekki frjósamt og því þurftu hjónin að flytja að gróð- urmold í öll beð. Það hefur skilað góðum árangri. Trén vaxa vel. Ólöf lætur ekki þar við sitja. Hún bætir jarðveginn með lífrænum úrgangi. „Ég er ekki með safntunnu heldur gref matarleifarnar, annað en kjöt og fisk, í holur hér og þar í garðinum,“ segir Ólöf. Hún tekur einnig með úrgang af leikskól- anum til að bæta jarðveginn. Hellur og trépallar eru næst húsinu og svo taka við runnar og loks tré og lyng. „Það þarf ekki mikið að vinna í þessum garði. Við getum notið þess að vera í honum án þess að vera alltaf að gera eitt- hvað,“ segir Hjalti Örn. Hann seg- ir að þau hafi mikla ánægju af því að ganga um garðinn. Þau eru með þrátíu tegundir af trjám. „Við þekktum ekki almennilega þessar trjátegundir fyrr en við fórum að planta þeim,“ segir Ólöf sem er með grænu fingurna í þessum garði. Hjalti er duglegri með hak- ann og skófluna. Ólöf og Hjalti fengu umhverf- isviðurkenningu Reykjanesbæjar í sumar fyrir lóðina og góðan frá- gang á húsinu. Þau segja slíkar viðurkenningar hvetjandi og von- ast til að þær hafi sömu áhrif á aðra. Gott að hafa útsýni Hjalti og Ólöf bjuggu lengst af áður við Heiðarbakka í Keflavík. Raunar er Ólöf komin á fornar slóðir því hún ólst upp í Grænásn- um. Þau eru ánægð á nýja staðn- um. Þar eru þau miðsvæðis í Reykjanesbæ, eins og bærinn er að þróast, en það er útsýnið sem þau bera mest lof á enda bæj- arstæði Reykjanesbæjar frekar flatt og lítið um útsýni. Stöndum ekki í stríði við álfa Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Holt og grjót Ólöf Sigurrós Gestsdóttir og Hjalti Örn Ólason tylla sér niður á stein í garðinum við Steinás 33. Þau nýttu sér náttúrulegt umhverfi í holtinu þegar þau útbjuggu garðinn og finnst fólk geta nýtt betur sérstöðuna sem svæðið hefur. Holtið rennur inn í fallegan garð hjónanna Hjalta og Ólafar við Steinás í Reykjanesbæ Við vorum strax ákveðin í því að halda móanum og grjótinu. Við plönt- uðum birki í móann og bættum heilum vörubíls- farmi af grjóti í lóðina. daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 23             Alþjóðleg ferðamarkaðsfræði „Að geta sýnt fram á lokapróf í Alþjóðlegri ferða- markaðsfræði frá jafn virtri stofnun sem IATA/UFTAA er, hlýtur að teljast gulltrygging fyrir atvinnu innan ferðaþjónustunnar hvar sem er í heiminum.“ Sigurlaug Valdís Jóhannsdóttir, Allrahanda. Námsefnið kemur frá IATA/UFTAA og tekin eru próf í mars nk. og veitir því alþjóðlega viðurkenningu, en kennslan fer fram á íslensku. Námið hentar öllum þeim, sem áhuga hafa og vilja auka þekkingu sína á ferðaþjónustu. www.menntun.is Bíldshöfða 18 • Sími 567 1466 • Opið frá kl. 8—22 KRINGLAN SMÁRALIND LAUGAVEGUR VERTU KLÁR FYRIR VETURINN Í ECCO GORE-TEX SKÓM 70241 51228 Litir: Hvítt/Silfur Stærðir: 20-26 Track Uno 72962 51052 Litir: Svart Stærðir: 27-35 Winter Queen 78512 54000 Litir: Svart Stærðir: 27-35 | 36-39 Ice Breaker 70381 50620 Litir: Rautt Stærðir: 20-28 Track Uno 78512 54108 Litir: Rautt Stærðir: 27-35 Ice Breaker 76042 51998 Litir: Brúnt/Svart Stærðir: 27-35 | 36-39 K-Cross 70671 55044 Litir: Blátt Stærðir: 22-24 Infant 73261 51052 Litir: Svart Stærðir: 22-30 Snowride 76042 53949 Litir: Blár Stærðir: 27-35 K-Cross 70671 53833 Litir: Bleikt Stærðir: 21-24 Infant 73291 50667 Litir: Rautt Stærðir: 22-30 Snowride 76043 54113 Litir: Rautt Stærðir: 36-40 K-Cross

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.