Morgunblaðið - 23.08.2008, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 31
ANDSTÆÐINGAR
virkjana í neðri hluta
Þjórsár bíta ekki á
agnið og verða ekki
heldur þreyttir til
ólífis eins og stjórn
Landsvirkjunar o.fl.
hafa verið að vona.
Í sumum veiðiskap
er bráðin fyrst ginnt
til að gleypa lystilegt
agn sem ekki er aldeilis það sem
sýnist. Þegar bráðin er föst á þarf
að þreyta hana þar til hún liggur
ósjálfbjarga í valnum.
Landsvirkjun, í umboði útlend-
inga, hefur mikið reynt til að festa
fólk á bökkum Þjórsár á öngul
sinn, þreyta það síðan og ná þann-
ig yfirráðum yfir jörðum þeirra.
Haldi Landsvirkjun að andmæl-
endur virkjana í neðri hluta Þjórs-
ár verði blekktir eins og bráð sem
veidd er líkt og hér er lýst fer hún
vill vegar. Andmæli fólksins eru
ekki tímabundið upphlaup sem
smám saman fjarar út þannig að
unnt verði að sæta lagi síðar og
framkvæma það sem til stóð eins
og oft er hér á landi. Nei, hér
verður barist til síðasta manns.
Veiðiaðferðir Landsvirkjunar
hafa heldur ekki enn tekist að
neinu marki fyrir austan. Að fólk-
inu við ána hefur verið þjarmað á
ýmsa vegu. Sagt er að því hafi
verið hótað og sagt rangt til um
réttarstöðu sína. Nú eru flestir
hins vegar búnir að
sjá við klækjum
Landsvirkjunar og
standa fastar en
nokkru sinni fyrr á
sínum rétti.
Munum að þetta
virkjanabrambolt er
ekki hugsað nema að
litlum hluta til hags-
bóta fyrir okkur Ís-
lendinga – útlend
risafyrirtæki sitja að
stærstum hluta kök-
unnar – við mætum
afgangi, hrekjumst
um í illa förnu landinu okkar og
greiðum að auki mun hærra verð
fyrir eigin raforku en þeir.
Við skoðun á hlut Landsvirkj-
unar og baráttunnar um Þjórsána
núna hefur mér stundum komið í
hug karlinn sem fenginn var til að
setja í lax fyrir breskan heldrim-
ann sem hér var á ferð í Laxá í
Kjós. Sá kunni lítið fyrir sér í
veiðikúnstum en þurfti, heim kom-
inn, að geta gortað af farsælli
veiði. „Það er dýrt að klóra
Brúnku,“ tautaði Íslendingurinn
sem staðið hafði daglangt í súld og
kalsa með útlendinginn úti í ánni
og veitt fyrir hann svo hann mætti
sýna afrakstur snilli sinnar er
heim væri komið.
Það hefur kostað Landsvirkjun
dýrt að klóra Brúnku – það er
dýrt að hræða fólk af jörðum sín-
um – það er dýrt fyrir landið okk-
ar og komandi kynslóðir að hleypa
umhverfissóðum lausum á dýr-
mætum stöðum eins og hér er
gert ráð fyrir – það er dýrt að
svíkja sína huldumey.
Að lokum hvet ég ráðamenn
landsins enn til að standa nú í
fæturna og spyrna gegn óbæt-
anlegri landníðslu í neðri hluta
Þjórsár.
Andstæðingar virkjana í
Neðri-Þjórsá bíta ekki á agnið
Elín G. Ólafsdóttir
skrifar um fyr-
irhugaðar virkjanir
í Þjórsá
» Þetta virkjana-
brambolt er ekki
hugsað nema að litlum
hluta til hagsbóta fyrir
okkur Íslendinga, út-
lend fyrirtæki sitja að
stærstum hluta kök-
unnar
Elín G.
Ólafsdóttir
Höfundur er fv. kennari
og fv. borgarfulltrúi.
ÁSTÞÓR Magn-
ússon telur að þriðja
heimsstyrjöldin
(Armageddon?) muni
hefjast í Palestínu og
biðlar til Dorrit Mo-
ussaieff forsetafrúar
um að koma í veg fyr-
ir það. Þótt Dorrit sé
frábær kona þá efast
ég um að hún sé fær
um að miðla málum í
Palestínu, hvað þá að
fyrirbyggja heims-
styrjöld. En er hún ef
til vill þegar hafin?
Að mínu mati er
þriðja heimsstyrj-
öldin þegar hafin.
Þetta er ekki styrjöld
milli þjóða heldur
styrjöld milli ósætt-
anlegra menningar-
heima. Hún hófst með
árásum íslamskra
öfgamanna á New
York og Washington
árið 2001. Þetta er ekki venjulegt
stríð, ekki frekar en stríðin í Írak
og Afganistan. Þarna takast ekki á
hefðbundnir herir á vígvöllum eins
og í fyrri styrjöldum. Hermenn
andstæðinga okkar (Vest-
urlandabúa og annarra andstæð-
inga íslamista) klæðast ekki her-
klæðum og eru í fæstum tilfellum
sýnilegir. Þau öfl sem standa að
baki þessum nýju stríðsherrum eru
öfgafullir trúarleiðtogar sem lúta
stjórn ofstækisfullra manna eins
og bin Ladens og eru studdir fjár-
hagslega með hluta af olíu-
peningum Mið-Austurlanda og
ræktun og sölu á eiturlyfjum. Tak-
mark þessara afla er að ná yfirráð-
um í hinum vestræna heimi og
þeim hlutum Asíu og Afríku sem
ekki nú þegar lúta íslam, útrýma
kristni og eyða vestrænum gildum
og öðrum gildum sem ekki eru höll
undir öfgafulla íslamista. En
hvernig ætla þessi öfl að ná mark-
miðum sínum? Ekki með hernaði á
venjulegum vígvöllum, það hefur
áður verið reynt en sem betur fer
ekki tekist. En hvernig þá? Það er
ætlun þessara afla að með vaxandi
innflutningi á trúbræðrum sínum
til Vesturlanda, aðallega til Evr-
ópu, geti þeir leynt stríðsmönnum
sínum í hópi venjulegra innflytj-
enda. Ætlunin er síðan að vinna
bug á okkur innan frá. Það verður
gert með hryðjuverkum og áróðri.
Með ofbeldi og ofsóknum gegn hóf-
sömum trúbræðrum sínum ætla
þeir að koma áætlunum sínum í
framkvæmd. Við höfum fengið að
sjá þessi öfl að verki með hryðju-
verkunum í Bretlandi og á Spáni
og komist hefur upp um áætlanir
um sams konar hryðjuverk í
Þýskalandi og á Norðurlöndum.
Tilgangurinn er að vekja ótta og
uppgjöf á meðal okkar. Það er
heldur ekki hægt að útiloka að
gjöreyðingarvopnum verði beitt
takist þeim að komast yfir þau.
Þessir menn svífast einskis því
þeir trúa því að allt sem þeir gera
sé gert að boði guðs. Hófsamir
kristnir menn og naívistar vilja að
við sýnum þessu fólki umburð-
arlyndi. Hvers vegna að sýna þeim
sem ekkert umburðarlyndi hafa,
umburðarlyndi? Þess má sjá merki
í yfirlýsingu æðsta klerks Bisk-
upakirkjunnar í Bretlandi um að
við eigum að samþykkja vissa
hluta Sharialaga íslamista að áróð-
urinn er farinn að virka. Hvað á
maðurinn við? Vill hann taka upp
þann sið að grýta „syndugar kon-
ur“ til bana í opinberum aftökum?
Vill hann samþykkja
heiðursmorð? Svíar
hafa nýlega samþykkt
að múslimakonur á
þingi þar í landi megi
bera slæður. Allt í lagi
með það. En haldið þið
að kristnar þingkonur
í Íran eða Sádi-Arabíu,
ef þær væru til, fengju
að vera slæðulausar?
Látið ykkur ekki detta
það í hug. Í Sádi-
Arabíu er iðkun krist-
innar trúar bönnuð og
í sumum löndum músl-
ima er það dauðasök
að skipta um trú. Fyr-
ir nokkrum árum síð-
an þegar íslenskt flug-
félag fékk samning um
að flytja pílagríma til
Mekka urðu þeir að
mála yfir íslenska fán-
ann á vélunum af því
að krossinn mátti ekki
sjást í landi spámanns-
ins! Í Noregi hefur
komið í ljós að börn
bókstafstrúarmúslima
dragast aftur úr í skól-
um þar í landi vegna
þess að þeim er gert að iðka bæna-
lestur fimm sinnum á dag og missa
þar af leiðandi af fræðslu. Þetta
veldur því að síðar á ævinni drag-
ast þessi börn aftur úr og verða
ekki samkeppnisbær í lífsbarátt-
unni og það ýtir undir neikvæða af-
stöðu þeirra til þess samfélags sem
þau búa í og verða þau þar af leið-
andi auðveldari fórnarlömb bók-
stafstrúarmanna. Mér sýnist að yf-
irvöld í Evrópu séu ekki nægilega
vakandi yfir þessari vá. Múslimar
á Íslandi eru ekki margir og vafa-
laust allt hið besta fólk en nú þegar
þeir leita eftir leyfi til þess að
byggja sitt fyrsta guðshús, mosku,
hvernig ætla þeir að tryggja að
hún verði ekki uppspretta öfga-
sinna þar sem börnum er innrætt
að hata og fyrirlíta landa sína sem
ekki eru sömu trúar og telja það
skyldu sína að boði guðs (Allah) að
drepa þá sem ekki aðhyllast algjör
yfirráð íslams? En um leið og við
komum okkur upp vörnum gegn
þessum ofstopamönnum verðum
við að tryggja að venjulegt fólk úr
hópi trúbræðra þeirra verði ekki
fyrir ofsóknum og mismunun
vegna trúar sinnar. Ég er ekki ras-
isti og hef ekkert á móti öðrum
trúarbrögðum. En ég vara við of-
stækismönnum sem leynast innan
um venjulegt fólk og ala á hatri og
fyrirlitningu á kristni og öðrum
trúarbrögðum en íslam og heilaþvo
unglinga í trúarbragðaskólum þar
sem tilgangurinn er að framleiða
hryðjuverkamenn til þess að fórna
sér í sjálfsmorðárásum. Hættum
að láta undan ofbeldisöflum hvaðan
sem þau koma. Tökum hart á þeim
og gjöldum líku líkt. Með illu skal
illt út reka.
Þriðja heims-
styrjöldin – er
hún þegar hafin?
Hermann Þórð-
arson fjallar um
ástandið í heim-
inum almennt
Hermann Þórðarson
» Ástþór
Magnússon
telur að þriðja
heimsstyrjöldin
muni hefjast í
Palestínu og
biðlar til Dorrit
Moussaieff for-
setafrúar um að
koma í veg fyrir
það.
Höfundur er fyrrverandi
flugumferðarstjóri.
Sími 551 3010
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali
Kúba
Þú spa
rar allt
að
32.600
kr.
á mann
10 daga ferð á frábærum tíma
Aðeins 90sætií boði á þessum kjörum.Takmörkuð gisting.
frá aðeins
kr. 119.900
með „öllu inniföldu“ í 10 daga
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
51
16
Frábært sértilboð fyrir áskrifendur Morgunblaðsins
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Þú mætir með miðann sem fylgdi Morgunblaðinu 24. ágúst
til Heimsferða, Skógarhlið 18, eða á einhverja af umboðsskrifstofum
þeirra. Einnig er unnt að bóka tilboðið á www.heimsferdir.is
Morgunblaðið og Heimsferðir bjóða áskrifendum til
Kúbuveislu 19.-29. nóvember
Áskr. verð Alm. verð Þú sparar
Varadero 10 nætur - m/allt innifalið
Hotel Villa Tortuga **+ 119.900 147.900 -28.000
Gran Caribe Barlovento ***+ 124.900 157.500 -32.600
Havana 10 nætur - m/morgunverði
Hotel Occidental Miramar **** 125.900 151.500 -25.600
Havana 5 nætur m/morgunverði og Varadero 5 nætur m/allt innifalið
Occidental **** og Barlovento ***+ 126.900 157.500 -30.600
Occidental **** og Barcelo Solymar ****+ 136.700 162.300 -25.600
Allt verð er netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli.
Morgunblaðið, í samstarfi við Heimsferðir, býður
áskrifendum sínum frábær tilboð í 10 daga ferð til Kúbu
19. nóvember. Í boði er gisting á vinsælum gististöðum
á Varaderoströndinni eða í Havanaborg. Kúba er ævintýri
sem lætur engan ósnortinn. Þú kynnist stórkostlegri
náttúrufegurð eyjunnar og þjóð sem er einstök í mörgu
tilliti. Fjölbreyttir gistivalkostir í boði á frábæru verði.
Þú velur hvort þú vilt dvelja á Varadero eða í Havana í 10
nætur eða í Havana í 5 nætur og á Varadero í 5 nætur.
Athugið mjög takmarkaður fjöldi flugsæta og
gistingar í boði á þessu kjörum. Verð getur breyst
án fyrirvara.