Morgunblaðið - 23.08.2008, Síða 34

Morgunblaðið - 23.08.2008, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Helga Þórs-dóttir fæddist á Bakka í Svarfaðar- dal 27. apríl 1927. Hún lést á Sjúkra- húsinu á Akureyri miðvikudaginn 13. ágúst síðastliðinn. Hún var dóttir Þórs Vilhjálmssonar, f. 13.3. 1893, d. 6.12. 1975 og Engilráðar Sigurðardóttur, f. 1.6. 1896, d. 10.8. 1993. Helga var fjórða í sex systkina hóp en einnig átti hún eina upp- eldissystur. Hin voru Kristín, Ósk Filipía, látin, Eva, Rannveig Stein- unn, látin, og Vilhjálmur og upp- eldissystir þeirra er Anna Gréta Þorbergsdóttir. Árið 1952 kynnist Helga eigin- aðardal og fór síðan á Kvenna- skólann á Blönduósi Þaðan fór hún til Reykjavíkur og menntaði sig í fatasaum hjá Herdísi Guð- mundsdóttur og á saumastofunni Kjólnum. Einnig sótti hún nám í Handíðaskóla Íslands og síðar hjá Heimilisiðnaðarskólanum. Vetur- inn 1951-1952 var hún við nám í Gamleby folkhögskola í Svíþjóð. Helga byrjaði að kenna hann- yrðir 1946, þá við Barnaskólann á Grund í Svarfaðardal en fór síðar að kenna við Húsabakkaskóla í Svarfaðardal og gerði það nánast óslitið til ársins 1976. Alla tíð gerði hún mikið af því að halda saumanámskeið. Íslenski þjóðbún- ingurinn var henni sérstaklega hugleikinn og saumaði hún marga búninga um ævina og leiðbeindi mörgum við saumaskap á þeim. Útför Helgu verður gerð frá Dalvíkurkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Jarðsett verður í Tjarnarkirkju- garði. manni sínum Ingva K. Baldvinssyni, f. 7.10. 1934 og hófu þau búskap með eig- in bústofn á Bakka vorið 1958. Börn þeirra eru 1) Guð- rún, f. 12.9. 1956, maður hennar er Ingólfur Jónasson, þau eiga þrjú börn og einn dótturson, 2) Ásrún, f. 24.6. 1961, maður hennar er Arnþór Hjörleifsson, þau eiga þrjú börn, 3) Þór, f. 18.6. 1962, kona hans er Kristín Gunnþórsdóttir, þau eiga þrjá syni, og 4) Sólrún, f. 7.5. 1965, maður hennar er Bessi Freyr Vésteinsson, þau eiga þrjú börn. Helga lauk barnaskóla í Svarf- Hugurinn leitar til bernskuár- anna. Það var þreyttur drengur sem steig út úr bílnum á Bakka eftir langt og strangt ferðalag eftir gömlu malarvegunum frá borginni við Sundin blá. En þreytan hvarf fljót- lega þegar inn í eldhúsið var komið á Bakka til foreldra þinna, þín Helga mín sem og systkina og vinnufólks. Eftir að hafa fengið sér hressingu var ekki til setunnar boðið en haldið út að líta eftir ánum, farið í könn- unarleiðangur í fjósið og kíkt á „bú- ið“ úti á hól. Í minningunni var alltaf hálf ættin samankomin á Bakka – og það sama var upp á teningnum er þið Ingvi hófuð þar búskap. Alltaf var jafn yndislegt að heimsækja Dalinn fagra og gista hjá ykkur hjónunum og börnum ykkar og rifja upp gamlar minningar er nú streyma fram í hugann og spanna yfir sextíu ára skeið. Margs er að minnast Helga mín og margar lifa án orða. Ég er þessar línur rita vil þakka þér fyrir vináttu, trygglyndi og gæsku og fyrir fyrstu kennsluna í íþróttum. En fyrst og fremst gleðina er þú sáðir og spratt fram allt í kringum þig og snart alla, jafnt unga sem aldna. Aldrei hverfur úr minn- ingu minni söngur þinn og þitt elskulega bros er þú svæfðir sorg- mæddan dreng á erfiðri stundu í hans unga lífi. Ég var svo lánsamur að kynnast þér einmitt á því aldurs- skeiði er mannshugurinn verður fyr- ir þeim áhrifum sem endast allt lífið og tengjast þeim vináttuböndum er aldrei hafa rofnað. Ég vil nota þetta tækifæri til að flytja þessu góða heimili mínar dýpstu þakkir fyrir þá skuld er aldrei verður greidd. Nú ert þú Helga mín horfin sjón- um okkar yfir móðuna miklu. Ljós- geisli augna þinna er slokknaður. En megi það ljós er þú tendraðir í brjóstum barna þinna, vina og sam- ferðamanna verða að gróðursprota fyrir betra lífi á þessari jörð. Frá þeirri mold sem allir eru sprottnir frá. Ég votta þér Ingvi minn mína innilegustu samúð, fjölskyldunni sem og syrgjendum öllum. Vona að glaðar minningar deyfi hina þung- bæru sorg. Hvíl í friði mín mæta frænka og vinur. Þú átt góða heim- komu vísa Helga mín. Eyjólfur Magnússon. Blár himinninn rennur þíður inn í framandi toppa Látrafjallanna sem rísa tignarlega upp úr Eyjafirðinum. Áin hlykkjast eftir dalbotninum eins og eilífðin sjálf og fjöllin rísa svo mjúk, græn og fögur sitthvorumegin við ána. Saman ramma fjöllin inn fal- legan Svarfaðardalinn. Rétt neðan við gluggann er Dagsláttan og fram yfir Börðin sér niður á Nesið sem nú er því sem næst horfið. Áin hefur kvarnað úr bökkunum smátt og smátt. Tímans tönn hlífir engu. Glugginn er í eldhúsinu á Bakka og útsýnið rúmast ekki á neinni mynd. Það fyllir hugann og allan kroppinn og sálin nær að anda aftur eftir ryk gleymskunnar. Helga á Bakka er eins og útsýnið úr eldhúsglugganum. Hún ljómaði af lífgleði og hafði einstakt lag á því að fylla hversdagsleikann með gleði og léttleika. Bara hvernig hún gat sagt eða sungið nafnið manns gerði það að verkum að maður tók gleði sína á ný þrátt fyrir að hafa bara stundinni áður haft alla áþján heimsins á herð- unum. Helga var listræn og skap- andi í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Hvort sem það var að sauma föt á börnin, íslenska þjóð- búninginn eða hanna dýrindis djásn til að hafa við altarið í kirkjunni, búa til mat fyrir heimilisfólkið eða taka á móti gestum. Allt var þetta gert með natni og áhuga fyrir því að láta fólki líða vel. Jafnvel barnið, sem ekki þótti hræringurinn girnilegur, át með bestu lyst eftir að Helga hafði gert dali og fjöll og valda vegi í hræringinn og það að borða af disk- inum varð hluti af ævintýrinu. Helga bar hluta af þeirri sól sem öllu líf gefur í sínu hjarta og nú þeg- ar hún hefur kvatt þennan heim er sem útsýnið fölni. Helga sagði eitt sinn að „þessi dalur væri ekki svona fallegur ef ekki væri fyrir allt það góða fólk sem byggir hann“. Minningar sem vakna og speglast í þeim tilfinningum sem koma upp þegar Helgu er minnst bera það ljós sem hún geislaði af og hjálpa okkur að horfa fram dalinn og finna að hún er hluti af því útsýni sem fallegast er. Við systkinin og fjölskyldur okkar þökkum innilega fyrir þær samveru- stundir sem gefist hafa með Helgu móðursystur okkar í gegnum árin og vottum Ingva, börnum og aðstand- endum öllum okkar dýpstu samúð. Kristinn, Sigríður, Þór Ingi og Einar. Bakki er vel í sveit settur. Úr eld- húsglugganum hjá Helgu og Ingva blasir við í norðri miðsveitin, Dalvík og utanverður Eyjafjörður þar sem sólin gælir við hafflötinn á fögrum sumarnóttum. Úr herberginu á móti tilkomumikill Stóllinn sem trónir eins og kóngur milli Svarfaðardals og Skíðadals. Úr stofunni gnæfa við í vestri hnjúkarnir þrír, Bakkabjörgin og Bakkadalurinn. Úr borðstofunni hinum megin er horft niður á Svarf- aðardalsá þar sem silungar kúra í hyljum og kýrnar á Bakka vaða eða synda yfir á leið sinni til eða frá mjöltum, austurkjálkinn og Rimarn- ar. Helga á Bakka var umvafin þess- ari dýrð náttúrunnar, kunni að meta hana og kenndi yngri kynslóðum að skilja, skynja og upplifa. Svarf- dælski fjallahringurinn var umgjörð ævistarfs hennar. Helga var atorku- söm kona, fór á ýmsan hátt ekki troðnar slóðir og lét til sín taka heima á Bakka, í kennslu, kvenfélag- inu eða í kórum og þeyttist ef svo bar undir á jeppanum í flestum veðr- um og færð til þeirra verkefna sem hún hafði tekið sér fyrir hendur. Það fylgdi henni reisn til hinstu stundar þrátt fyrir andstreymi í heilsufari síðustu árin. Með þessari reisn mætti hún á mót Göngustaðaættar- innar um verslunarmannahelgina. Þar var hún komin, kát og hress, spjallaði við frændfólk og vini en hvarf okkur svo. Helga var völundur í höndum og góður handavinnukenn- ari, eins og mörg börn fengu að kynnast í Húsabakkaskóla og marg- ir fleiri á námskeiðum sem hún hélt. Það voru ekki bara stúlkurnar sem lærðu saumaskap af henni, dreng- irnir fengu sinn skerf líka í útsaumi, tágavinnu, prjónaskap, leðurvinnu og fleira handverki og höfðu ánægju af. Helga hafði lag á því að umgang- ast börn sem jafningja og miðla af því sem hún kunni vel og naut. Margir minnast þess þegar handa- vinnan úr tímunum hjá Helgu var sýnd að vori. Margir búa líka að leið- sögn hennar í heimi skáldskapar og úti í náttúrunni. Það eru sterk tengsl traustrar vináttu og náinnar frænd- semi milli fólksins á Bakka og Jarðbrú sem hafa haldist þótt lengst hafi milli vina. Helga á Bakka var ljóðelsk og skrifaði gjarnan til okkar ljóðlínur á jólakortin með fallegri kveðju til frændfólksins frá Jarðbrú. Hún bar til okkar hlýjan hug og við til hennar. Margar góðar stundir áttum við saman en kannski hvergi betri en í litla eldhúsinu í risinu á Bakka hjá þeim Ingva og henni. Oft var glatt á hjalla, mest þó á rétt- ardaginn þegar þar var troðfullt af glaðværu fólki og Helga að hlaða krásum á matarborðið en um leið að taka þátt í gleðinni og hlæja sínum hvella hlátri. Stína systir hennar í sama ati á neðri hæðinni þannig að allt húsið var undirlagt í gleði og söng og menn horfðu út um glugga og dásömuðu dalinn sinn. Helga er ekki lengur á Bakka. Það er sárt en minningin um hana lifir og Bakki heldur áfram að eiga sinn stað hjá okkur. Ingva og fjölskyldunni allri færum við innilegar samúðarkveðj- ur. F.h. frændfólksins frá Jarðbrú, Jón Baldvin Halldórsson. Ó, Drottinn, nær sem dauðans hönd frá dufti mínu skilur önd, mig lykja láttu hvörmum sem barn við móðurbrjóst og fá þann blund, er værstan hljóta má, í þínum ástarörmum. (Helgi Hálfdánarson) Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst Helgu Þórsdóttur. Hún bjó yfir svo stóru hjarta þótt hógvær væri. Henni fannst ekkert sjálfsagðara en að börnin mín kölluðu þau Ingva ömmu og afa, og það voru ekki orðin tóm, heldur reyndist hún þeim sem besta amma. Alltaf streymdi frá henni Helgu sama hlýjan þegar við hittumst og ekki brást að hún segði eitthvað fallegt við mann í hvert sinn. Ég dáðist líka að Helgu fyrir fleira en gæskuna. Margar yngri konur gátu öfundað hana af lima- burðinum. Það vakti mig til ræki- legrar umhugsunar þegar við nöfn- urnar gengum saman upp í fjall, hún léttfætt eins og hind, og ég, ein- hverjum áratugum yngri, móð og másandi að reyna að halda í við hana. Helga hafði mikið yndi af því að hlusta á tónlist. Sem flytjandi skynj- aði maður mjög vel hversu næm hún var á fegurðina í tónlistinni og það gerði hana að einum af mínum uppá- haldshlustendum. Þegar ég var að æfa ný verk á flygilinn fannst mér gott að fá að spila þau fyrst fyrir hana, því nærvera hennar var svo ljúf og hvetjandi. Mér þótti gott að vita af henni í salnum á tónleikum og í hjarta mínu verður hún alltaf á gestalistanum. Helga var svo lánsöm að eiga ynd- islega og heilsteypta fjölskyldu, og bið ég góðan Guð um að Ingvi og þau öll finni að hann styður og styrkir. Ég er sannfærð um að Helga upp- sker ríkulega fyrir alla sína góðvild og elskusemi. Helga Bryndís Magnúsdóttir. Ég var lítil stelpa þegar ég kynnt- ist góðsemi Helgu og Ingva á Bakka. Það var alltaf tilhlökkunarefni að fara þangað í heimsókn með mömmu og pabba og kunni ég því svo vel að í eitt skiptið, um það leyti sem ég steig mín fyrstu skref í grunnskóla, spurði ég hvort ég mætti ekki verða Helga Þórsdóttir ✝ Ástkær móðir okkar , RAGNHEIÐUR ÞORVALDSDÓTTIR, Reykjavikurvegur 50, Hafnarfirði verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 25. ágúst kl. 13.00. Áslaug Gísladóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, Hjörtur Kristjánsson, Jón Ragnar Kristjánsson, og fjölskyldur. ✝ Eiginmaður min, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi PÁLL BECK, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju mánudaginn 25. ágúst kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd, Guðný Sigurðardóttir, Brynja Beck, Sölvi Stefán Arnarson, Axel Þór Beck, Sigurður Pálsson Beck Hrefna Egilsdóttir, Kristín Þóra Pálsdóttir Beck, Rögnvaldur Stefán Cook, Rikarður Pálsson Beck, Elísabet Rafnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir okkar, RAGNHEIÐUR HAFSTAÐ, Aragötu 12, Reykjavík, sem lést laugardaginn 9. ágúst, verður jarðsungin frá Neskirkju mánudaginn 25. ágúst kl. 13.00. Þórunn Kielland, Ingibjörg, Hildur, Ragnar, Sigríður og Árni Hafstað. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓSKAR V. FRIÐRIKSSON, Árakri 5, Garðabæ, lést fimmtudaginn 21. ágúst á Landspítalanum. Útförin verður auglýst síðar. Guðlaug Þorleifsdóttir, Stefanía Óskarsdóttir, Jón Atli Benediktsson, Herdís Óskarsdóttir, Sæmundur Valdimarsson, Þorleifur Óskarsson, Kristrún Lilja Daðadóttir og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, amma og langamma, INGIBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR, Leirubakka 12, ættuð frá Efri-Þverá, Vestur-Húnavatnssýslu, lést sunnudaginn 17. ágúst á krabbameinsdeild Landspítalans. Hún verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 26. ágúst kl.13.00. Páll Hagbert, Íris Berglind, Júlíus, Snæbjörn, Phon, Ragnhildur, Bjarki Þröstur, Anna Björk, Linda Mjöll, Joachim, ömmubörn og langömmubarn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.