Morgunblaðið - 23.08.2008, Qupperneq 37
Á ég ekki að segja þér söguna af mér,
einn sumardag í fyrra mig langaði í ber.
Ég var heim við bæinn ömmu minni hjá
fólkið var á engjunum að raka og slá.
(Höf. ók.)
Elsku amma mín, nú þegar kem-
ur að kveðjustund er þetta fyrsta
erindi af mörgum sem kemur upp í
huga mínum. Ófá eru skiptin sem
ég og systur mínar sofnuðum vært
heima hjá ykkur afa og þú söngst
þessa fallegu sögu um litlu telpuna
sem týndist í berjamó.
Líka kemur í hugann minningin
um þig að koma gangandi upp
klaufina heim af saumastofunni og
ég mátti hlaupa á móti þér, ég held
að þakka megi fyrir að þú varst
aldrei hlaupin um koll.
Þú sitjandi með grænu skálina í
kjöltunni að hræra í lummur eða
pönnsur, allar verða þær ómetan-
legar þessar minningar núna.
Litla telpu dreymdi að eignast
svona eða hinsegin flík, hvort held-
ur var á dúkkurnar eða sjálfa sig,
þú lést þann draum rætast. Ung-
lingsstúlku langaði að eignast pils,
buxur eða blússu, það bjóst þú til,
og svona get ég lengi talið. Þú
stoppaðir í sokka eða prjónaðir
nýja upp af gömlu stroffi, „ekkert
mál“, aldrei hent flík ef hægt var að
laga hana. Allar konurnar utan úr
bæ eða sveit sem bönkuðu á hurð-
ina á Kambastígnum með poka sem
innihélt eitthvað sem þurfti að lag-
færa, ekki þurftu þær að bíða í
marga daga eftir að fá pokann aft-
ur.
Það var þitt aðalsmerki hversu
hög þú varst í höndunum og þér
féll aldrei verk úr hendi til hinstu
stundar. Þau eru óteljandi pörin
sem þú hefur gert af „langömmu-
sokkum“ eða vettlingum og hafa
haldið hita á litlum puttum og tás-
um í stóra langömmubarnahópnum.
Oft var glatt á hjalla á Kamba-
stígnum þegar allir voru mættir,
mikið hlegið og spjallað saman.
Elsku amma mín, að leiðarlokum
langar mig að þakka þér allt sem
þú hefur gert fyrir mig og fjöl-
skyldu mína og hvað þú lést þér
alltaf annt um okkur og allt sem
okkur varðaði.
Það er mín ósk að geta tileinkað
mér og mínum börnum það sem
einkenndi þig, en það var að sýna
samferðafólki virðingu, þakklæti og
þolinmæði.
Ég kveð þig að sinni og veit í
hjarta mínu að það hefur vafalaust
verið vel tekið á móti þér af okkar
fólki.
Elsku mamma og Anna frænka,
samúðarkveðjur til ykkar og fjöl-
skyldunnar.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Kveðja,
Aðalbjörg Jóna (Bogga).
Á ég ekki að segja þér söguna af mér
einn sumardag í fyrra mig langaði í ber.
Ég var heim við bæinn, ömmu minni hjá
en fólkið var á engjunum að raka og slá.
(Kristín Sigfúsdóttir)
Þetta litla erindi er hið fyrsta af
mörgum sem þú söngst fyrir okkur
frænkurnar þegar við vorum litlar.
Mér fannst þetta mjög skemmti-
legar vísur, enda sögðu þær sögu
sem allt eins gat átt við þig og þín-
ar æskustöðvar. Þú lærðir þessar
vísur þegar þú varst lítil stelpa í
Holti og svo hljóp á snærið hjá þér
í fyrra þegar þér áskotnuðust vís-
urnar á prenti og auk þess nafn
höfundarins. Þú varst svo glöð,
ekki síst vegna þess að í ljós kom
að vísurnar sem þú hafðir ávallt tal-
ið vera 22 voru í reynd 23 talsins.
Við höfðum á orði að þú yrðir nú að
drífa í að læra þessa nýju utan að
og ég efast ekki um að það hafir þú
gert.
Það var ósköp gott að koma á
Krókinn til ömmu og afa. Það var
margt við að vera, stutt í hesthúsin
og upp á melana og nafirnar. Inni
var hægt að aðstoða við kleinu-
baksturinn, nú eða laumast í
saumavélina. Það voru alltaf ein-
hverjir bútar sem hægt var að æfa
sig á. Leiðsögn þín var ekki af verri
endanum, það var vart til sem þú
gast ekki gert í höndunum. Á
hverju sumri þurfti líka að heyja
svolítið, það fór drjúgur tími í það,
enda slegið með orfi og ljá lengst
af. Flest sumur var líka farið í
ferðalög um landið, gjarnan tvær
eða þrjár fjölskyldur saman. Þá var
gjarnan tjaldað við læki eða litlar
ár. Okkur þætti þetta líklega heldur
frumstæð útilega í dag. Svo voru
það berjaferðirnar, við vorum nú
báðar mjög duglegar að tína berin
en minna fyrir að borða þau. Minn-
ingarnar eru margar og góðar.
Seinustu árin hafa verið einmana-
leg. Þú vildir búa í húsinu þínu sem
lengst, og gast það með dyggum
stuðningi Lillu frænku. Í vor
ákvaðst þú svo að óska eftir her-
bergi á Dvalarheimilinu á Krókn-
um. Þú varst svo ánægð þar. Hittir
margt fólk og naust þess að taka
þátt í félagslífinu. Það virtist alltaf
vera eitthvað skemmtilegt að ger-
ast, en það var föndrið sem átti hug
þinn allan. Það kom engum á óvart
sem þekkti þig. Þú varst meira að
segja farin að mála postulín og
dúka og gerðir það að sjálfsögðu
listavel. Þú þurftir alltaf að hafa
eitthvað fyrir stafni.
Elsku amma, takk fyrir sam-
fylgdina og allt sem þú hefur gert
fyrir mig og mína.
Þín
Kristín.
Nú kveð ég mína kæru vinkonu
Kristínu Sigurjónsdóttur með sár-
um söknuði en þakklátum hug fyrir
allar okkar góðu samverustundir á
liðnum árum.
Ég var afar glöð er mér bauðst
að verða heimsóknarvinur þeirra
hjóna Ívars og hennar, er kirkjan
og Rauði krossinn söfnuðu saman
hóp sjálfboðaliða til að heimsækja
og stytta stundir fólks, sem erfitt á
með að fara út og taka þátt í sam-
félaginu og er einmana. Ég þekkti
þau hjón að öllu góðu áður en ég fór
til Ástralíu og var þar í 19 ár.
Lauga, systir Ívars, og foreldrar
þeirra voru hér á Króknum okkar
næstu nágrannar, glaðleg og prúð í
umgengni og við Lauga vorum góð-
ir vinir. Svo ég hlakkaði til að heim-
sækja Stínu og Ívar. Mér var fagn-
að sem gömlum vini og gestrisnin
og hlýjan yndisleg. Ívar var þá orð-
inn afar lasburða og lifði stutt eftir
að ég byrjaði að koma vikulega til
þeirra. Var þó alltaf glaður í við-
móti við mig og frásögugóður ef
hann var nógu hress til að taka þátt
í viðræðum okkar. Mér fannst
dásamlegt að sjá hvað Stína ann-
aðist hann vel til hinstu stundar,
með einstakri ástúð og umhyggju.
Síðan heimsótti ég Stínu vikulega
ef við varð komið og áttum við alltaf
saman góðar stundir, ræddum
margt og hlógum oft yfir prjón-
unum okkar og kaffinu sem alltaf
var sett á borð um leið og ég kom.
Stínu féll aldrei verk úr hendi
saumaði og prjónaði og var farin að
mála bæði á dúka og postulín eftir
að hún kom á dvalarheimilið. Það
eru ótalmargir sem hún hefur
saumað og gert við fyrir. Hún lag-
færði ýmislegt í mörg ár og saum-
aði inn af buxum fyrir KS. Síðast í
vetur vissi ég til að hún var að
sauma inn af buxum. Allt hennar
handverk var gert af einstakri ná-
kvæmni og vandvirkni. Í vetur bað
hún mig eitt sinn að útvega sér
lambskinn úr sútun. Mér tókst það,
þá gerði hún stuttum tíma 4 pör af
kritbrydduðum skóm og prjónaði
líka í þá leppa. Tvenn pör fékk ég
fyrir mig og dóttur mína og erum
við afar þakklátar fyrir að eiga
þessa dýrgripi og munum geyma þá
vel og nota aðeins 17. júní og á
safnadögum. Já, það er mér dýr-
mætt að hafa kynnst Stínu og henn-
ar frábæru kostum. Kjarkur jafn-
lyndi og hógværð einkenndi hana
og aldrei heyrði ég hana segja
hnjóðsyrði um nokkra manneskju.
Dæturnar og barnabörnin voru
henni afar dýrmæt og kær og mikl-
ir gleðigjafar. Þeim votta ég dýpstu
samúð.
Guð blessi minningu Kristínar
Sigurjónsdóttur.
Kristín Helgadóttir.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 37
MESSUR Á MORGUN
AKRANESKIRKJA | Kvöldguðsþjónusta kl.
20.
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Guðmundur Guðmundsson, fé-
lagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Söng-
og helgistund kl. 20.30. Sr. Svavar Alfreð
Jónsson. Hermann Arason syngur og leik-
ur undir.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og pré-
dikar, Krisztina K. Szklenár er organisti og
kirkjukórinn leiðir almennan safn-
aðarsöng. Kaffi og meðlæti á eftir.
ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Skírn. Sóknar-
prestur prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt Margréti Svavarsdóttur djákna.
Tekinn verður í notkun nýr flygill sem Safn-
aðarfélag Ásprestakalls hefur fest kaup á.
Kór Áskirkju syngur, organisti Magnús
Ragnarsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir, org-
anisti Julian E. Isaacs, kór Breiðholts-
kirkju syngur. Kaffisopi í safnaðarheimili
eftir messu.
BÚSTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Kór Bústaðakirkju syngur, oragnisti
Renata Ivan, prestur er sr. Arna Ýrr
Sigurðardóttir. Eftir messu er heitt á könn-
unni í safnaðarheimilinu. Guðspjallið
fjallar um þakkláta samverjann og spurn-
ingu Krist; hvar eru hinir níu.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
sr. Magnús Björn Björnsson, organisti
Kjartan Sigurjónsson, kór Digraneskirkju
leiðir söng.
DÓMKIRKJAN | Miðnæturguðsþjónusta í
Dómkirkjunni á menningarnótt kl. 23.45
og lýkur henni um kl. 0.30. Prestar Dóm-
kirkjunnar og organisti þjóna ásamt prest-
um Keflavíkurkirkju þeim sr. Sigfúsi Bald-
vini Ingvasyni og sr. Skúla Ólafssyni sem
prédikar. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir
stjórn Arnórs Vilbergssonar. Jóhann Smári
Sævarsson syngur einsöng. Reykjanes-
bær er gestasveitafélag á menningarnótt
og í tilefni þess sameina söfnuðirnir
krafta sína í miðnæturguðsþjónustu í
Dómkirkjunni.
Messa sunnudag kl. 11. Sr. María Ágústs-
dóttir héraðsprestur prédikar og þjónar
fyrir altari, sönghópur úr Dómkórnum
syngur, organisti er Marteinn Friðriksson.
EYRARBAKKAKIRKJA | Messa kl. 14.
FELLA- og Hólakirkja | Kvöldguðsþjónusta
kl. 20. Prestur er sr. Svavar Stefánsson.
Fermingarnámsskeið hafa staðið yfir fyrir
fermingarbörn næsta vors í Fellasókn og
munu fermingarbörnin aðstoða við mess-
una. Tónlistarflytjendur eru Dóra Hrund
Gísladóttir og Inga María Backman, nem-
endur Ólafs Elíassonar píanóleikara.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Kvöldguðsþjón-
usta kl. 20. Prestur Einar Eyjólfsson, tón-
listarstjóri Örn Arnarson.
FRÍKIRKJAN Kefas | Almenn samkoma kl.
20. Björg R. Pálsdóttir prédikar, lofgjörð
og boðið til fyrirbæna. Að samkomu lok-
inni verður kaffi og samvera og verslun
kirkjunnar verður opin.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 14. Barn verður borið til skírn-
ar. Fermingabörn taka þátt og sýna af-
rakstur vinnu sinnar í fermingarskólanum
frá síðustu viku. Fjallað verður um tengsl
trúar og mannréttinda. Tónlist leiða tón-
listarstjórarnir Anna Sigga og Carl Möller.
Hjörtur Magni Jóhannsson predikar og
þjónar fyrir altari.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Guðrún Karlsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari, kór Grafarvogskirkju
syngur, organisti er Hákon Leifsson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10,
bænastund kl. 10.15. Messa kl. 11. Alt-
arisganga og samskot til Hjálparstarfs
kirkjunnar. Messuhópur þjónar, kirkjukór
Grensáskirkju leiðir söng, organisti Árni
Arinbjarnarson og prestur er sr. Ólafur Jó-
hannsson. Molasopi. Fundur með for-
eldrum fermingarbarna að lokinni messu.
GRUND dvalar- og hjúkrunarh. | Guðs-
þjónusta kl. 14. Prestur sr. Sveinbjörn
Bjarnason, organisti Kjartan Ólafsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur Þórhallur Heimisson, org-
anisti Guðmundur Sigurðsson.
HALLGRÍMSKIRKJA | Sálmafoss, sam-
felld tónlistardagskrá á menningarnótt kl.
15-22. Messa sunnudag kl. 11. Biskup Ís-
lands Karl Sigurbjörnsson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni Dalbú Hró-
bjartssyni, sr. Kristjáni Val Ingólfssyni og
messuþjónum. Sameinaður kór íslensku
þjóðkirkjunnar syngur undir stjórn Harðar
Áskelssonar, organisti er Björn Steinar
Sólbergsson. Sögustund fyrir börnin. Tón-
leikar kl. 17 á vegum söngmálastjóra
þjóðkirkjunnar.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Baldvin
Oddsson leikur á trompet. Fermingarbörn
og foreldrar þeirra boðin velkomin. Skrán-
ing í fermingarfræðslu vetrarins fer fram
að messu lokinni. Organisti Douglas
Brotchie. Tómas Sveinsson og Helga
Soffía Konráðsdóttir.
HJALLAKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Íris
Kristjánsdóttir þjónar. Félagar úr kór kirkj-
unnar syngja og leiða safnaðarsöng, org-
anisti Jón Ólafur Sigurðsson. Ferming-
arbörn og foreldrar þeirra boðin velkomin.
Kyrrðarstund þriðjud. kl 18. hjallakirkja.is
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam-
koma kl. 20. Umsjón hefur Anne Marie
Reinholdtsen. Opið hús þriðjudag-
fimmtudag kl. 16-17.30. Fatabúðin í
Garðastræti 6 og nytjamarkaðurinn á Eyj-
arslóð 7 eru opin alla virka daga kl. 13-18.
HÓLADÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
er sr. Magnús Gunnarsson, orgnisti og kór
Dalvíkurkirkju. Tónleikar kl. 14. Björg Þór-
hallsdóttir sópran og Elísabet Waage
hörpuleikari.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Int-
ernetional church service in the cafeteria
at 13PM. Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðukona er Ruth Guðmundsdóttir, lof-
gjörð og fyrirbæn.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl.
20 með lofgjörð og fyrirbænum. Kristni-
boðshópurinn, sem er nýkominn frá Mar-
okko, mun segja frá. www.kristur.is
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og
laugardag kl. 18.
Kapúsínaklaustrið á Kollaleiru Reyðarf. |
Messa kl. 11.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl.
10.30 og virka daga kl. 18.30.
Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl.
8.30 og virka daga kl. 8.
Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14.
Kristskirkja, Landakoti | Messa kl. 10.30
og á ensku kl. 18. Virka daga er messa kl.
18. Mánudaga, miðvikudaga og föstu-
daga er messa á latínu kl. 8.10. Laugar-
daga er barnamessa kl. 14 að trúfræðslu
lokinni.
Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka
daga kl. 18.30.
Ísafjörður | Messa kl. 11.
Flateyri | Messa 2. og 3. sunnudag í mán-
uði kl. 16.
Suðureyri | Messa 1. og 4. sunnudag í
mánuði kl. 16.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. | Messa
kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laugar-
daga er messa á ensku kl. 18.30.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16, miðviku-
daga kl. 20.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Fermingarguð-
sþjónusta kl. 11. Fermdur verður Magnús
Dagnýjarson Ruben. Allir velkomnir. Prest-
ur er sr. Skúli S. Ólafsson og organistinn
er Arnór Vilbergsson. Keflavíkursöfnuður
verður sérstakur gestur Dómkirkjusafn-
aðarins á menningarnótt í Reykjavík.
Prestar kirkjunnar þjóna ásamt prestum
Dómkirkjunnar. Sr. Skúli S. Ólafsson pre-
dikar. Organisti er Arnór Vilbergsson.
Jóhann Smári Sævarsson og Bylgja Dís
Gunnarsdóttir syngja við athöfnina. Mess-
an hefst kl. 23.30, að flugeldasýningu lok-
inni og stendur hún fram yfir miðnætti.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson predikar og
þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Kópavogs-
kirkju syngja og leiða safnaðarsöng, org-
anisti og kórstjóri Lenka Mátéová, kantor
kirkjunnar.
KVENNAKIRKJAN | Útimessa verður í
Heiðmörk kl. 17. Sr. Auður Eir Vilhjálms-
dóttir predikar, kór Kvennakirkjunnar leiðir
söng undir stjórn Aðalheiðar Þorsteins-
dóttur. Að lokinni messu verður grillað og
kemur hver með sinn mat. Messað verður
í Þjóðhátíðarlundi við Borgarstjóraplan.
LANDSPÍTALI | Guðsþjónusta kl. 14 á
Landakoti, 2 hæð. Prestur Bragi Skúla-
son, organisti Ingunn Hildur Hauksdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Eirík-
ur Hreinn Helgason syngur einsöng af því
tilefni. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson,
organisti Ólafur W. Finnsson. Kaffisopi
eftir messuna. Skráning fermingarbarna
hefst 26. ágúst.
LAUGARNESKIRKJA | Kvöldmessa kl. 20.
Sr. Bjarni Karlsson þjónar ásamt Sigur-
birni Þorkelssyni meðhjálpara, Aðalheiði
Þorsteinsdóttur organista og kór Laugar-
neskirkju. Kaffi í safnaðarheimili að
messu lokinni. Sunnudaginn 31. ágúst er
farið yfir á vetrartímann og verður þá
messa og sunnudagaskóli kl. 11 hvern
sunnudag þaðan í frá. Nánari uppl. á laug-
arneskirkja.is
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Jón Þorseinsson, kveður söfnuð
Lágafellssóknar eftir 18 ára þjónustu. Ein-
söngur Hanna Björk Guðjónsdóttir, kirkju-
kór Lágafellssóknar, organisti Jónas Þórir.
Kirkjukaffi í Hlégarði eftir guðsþjónustu.
MÖÐRUVALLAKIRKJA í Hörgárdal | Kvöld-
messa kl. 20.30. Sálmar sem allir kunna.
Messukaffi í Leikhúsinu á eftir. Sóknar-
prestur.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar úr Kór
Neskirkju leiðir safnaðar söng, organisti
Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður
Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Sigurði Árna Þórðarsyni. Kaffi
og spjall á Torginu eftir messu.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarðvík |
Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Dagmar
Kunakova, meðhjálpari Gyða Minný Sig-
fúsdóttir. Sóknarprestur.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Kvöldguðsþjón-
usta kl. 20.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17
,,Öllu snúið við.“ Ræðumaður er Haraldur
Jóhannsson.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Guð-
björg Jóhannesdóttir þjónar, kór kirkj-
unnar leiðir söng, stjórnandi Jörg Sonder-
mann organista. Hádegisverður á efir.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta með altaris-
göngu kl. 20. Sr. Bolli Pétur Bollason og
sr. Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahús-
prestur þjóna. Kór Seljakirkju leiðir söng-
inn, Jón Bjarnason leikur á orgelið.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Félagar úr Kammerkór kirkjunnar
leiða tónlistarflutning undir stjórn Friðriks
Vignis Stefánssonar organista. Prestur er
Sigurður Grétar Helgason.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11.
Sóknarprestur.
SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Birgir Thomsen þjónar fyrir altari og
prédikar, organisti er Ingimar Pálsson,
ritningarlestra les Valgeir F. Backman.
Meðhjálparar eru Eyþór Jhóhannsson og
Erla Thomsen, almennur safnaðarsöngur.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir predikar og þjónar fyrir
altari ásamt Nönnu Guðrúnu Zoëga
djákna. Félagar úr kór Vídalínskirkju
syngja undir stjórn Jóhanns Baldvins-
sonar organista. gardasokn.is
ÞINGVALLAKIRKJA | Messa kl. 14. Elína
Kristjánsdóttir guðfræðingur predikar og
sr. Kristján Valur Ingólfsson þjónar fyrir alt-
ari, organisti er Guðmundur Vilhjálmsson.
Orð dagsins:
Tíu líkþráir.
(Lúk. 17)
Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonDalvíkurkirkja