Morgunblaðið - 23.08.2008, Side 44
44 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Króatía
í september
frá kr. 49.990
***Frábært sértilboð á Diamant - góð gisting ***
Aðeins örfáar íbúðir í boði!
Heimsferðir bjóða einstakt tilboð til Króatíu í september í 1 viku eða
2 vikur. Króatía hefur svo sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum.
Tryggðu þér sæti og góða gistingu á Diamant íbúðahótelinu með
góðri aðstöðu, s.s. spa, líkamsræktarstöð, frábærum sundlaugar-
garði, íþróttaaðstöðu og veitingastöðum. Góð aðstaða er fyrir börn-
in svo sem skemmtidagskrá,
barnaleiksvæði og barna-
klúbbur. Brottfarir eru 31.
ágúst eða 7. og 14. sept-
ember.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. 2-4 í íbúð á Diamant í viku,
31. ágúst og 7. eða 14. september. Aukavika kr.
15.000. DAVÍÐ Þór Jónsson er höfundur Jóladagatalsins sem sýnt verður í ár, en
nýtt jóladagatal hefur ekki verið tekið upp í nokkur ár. „Sagan fjallar um
dýrahirði í Húsdýragarðinum sem stendur frammi fyrir því að dýrin í garð-
inum eru að hverfa hvert af öðru og hann þarf að hafa uppi á þrjótnum sem
er ábyrgur,“ segir Þórhallur.
Einnig verður á dagskrá nýr íslenskur þáttur í leikstjórn Óskars Jón-
assonar, Á uppleið, sem segir af litlu ævintýri 8 ára snáða þegar mamma
hans þarf að fara í flýti á fæðingardeild.
Þá mun Björgvin Franz Gíslason taka við stjórn Stundarinnar okkar. „Bú-
ast má við miklum breytingum á þættinum enda er Björgvin Franz mikill
skemmtikraftur og ætti að höfða vel til allrar fjölskyldunnar,“ segir Þórhall-
ur.
Jóladagatal Nýtt dagatal hefur verið tekið upp og verður sýnt í desember.
Nýtt jóladagatal
MIKILL kraftur verður í innlendri
dagskrárgerð hjá Ríkissjónvarpinu
í vetur. Þættirnir spanna allt frá
glæpadrama og gamanþáttum yfir í
spurninga- og tónlistarþætti en að
auki við nýja þætti verður rykið
verður dustað af eldra úrvalsefni.
Stórir og smáir glæpir
„Strax í september frumsýnum
við Svarta engla, sex þátta spennu-
seríu í leikstjórn Óskars Jón-
assonar.
Sigurjón Kjartansson semur
handrit þáttanna og byggir á bók-
um Ævars Arnar Jósepssonar en í
þáttunum kemur fram hver stór-
leikarinn á fætur öðrum,“ segir
Þórhallur Gunnarsson dagskrár-
stjóri. „Ég er búinn að horfa á
þessa þætti grófklippta og þetta
eru hágæða spennuþættir,“ bætir
hann við.
Einnig er von á sakamálaþátt-
unum Hamarinn sem eru í tökum
um þessar mundir og leikstýrir
Reynir Lyngdal en Sveinbjörn I.
Baldvinsson skrifar handritið. Með
aðalhlutverk fara Björn Hlynur
Haraldsson og Dóra Jóhannsdóttir.
Það kann að gefa vísbendingu um
gæði þáttanna að margar sjón-
varpsstöðvar á Norðurlöndunum
hafa nú þegar keypt sýningarrétt
að þáttunum báðum.
„Síðan sýnum við fimm þætti
sem unnir hafa verið upp úr kvik-
myndinni Stóra Planið sem Ólafur
Jóhannesson leikstýrði,“ segir Þór-
hallur en í þáttunum blandast sam-
an atriði úr kvikmyndinni og nýjar
senur sem teknar voru upp sam-
hliða. „Bíómyndin sýnir aðeins brot
af því sem kemur fram í þáttaröð-
inni og nýtur efnið sín mjög vel á
þáttaformi,“ segir Þórhallur.
Létt og skemmtilegt
Nýr skemmtiþáttur hefur göngu
sína í lok september og verður á
dagskrá á laugardagskvöldum. Enn
á eftir að finna nafn á þáttinn en
efnistökin eru á hreinu: „Ragnhild-
ur Steinunn Jónsdóttir verður
stjórnandi þáttarins og nýtur lið-
sinnis Samma [Samúels Sam-
úelssonar] í Jagúar og stór-
hljómsveitar,“ segir Þórhallur „Í
þáttunum verður farið yfir feril val-
inna tónlistarmanna, bæði yngri og
eldri. Lögin þeirra verða sett í nýj-
an búning og stjörnulið íslenskra
tónlistarmanna tekur þátt í að veita
nýja sýn á þessar stórstjörnur. Út-
koman verður stór og mikill
skemmtiþáttur en lokaþátturinn
verður á dagskrá annan dag jóla og
verður sannkölluð tónlistarveisla.“
Af öðrum tónlistarþáttum má
nefna að hin sívæla þjóðarskemmt-
un Söngvakeppni Sjónvarpsins
verður haldin í janúar og febrúar
og lýkur með stórum úrslitaþætti
og eftir páska stýrir Páll Óskar
Hjálmtýsson Evróvisjón-þættinum
Alla leið, þar sem spekingar spá í
líklega útkomu í keppninni.
Gáfur og menning
Gettu betur verður á sínum stað í
febrúar, en þættirnir taka við af
söngvakeppninni og verða nú á
dagskrá á laugardagskvöldum en
ekki fimmtudags- og föstudags-
kvöldum eins og áður. „Eva María
Jónsdóttir verður spyrill, Davíð Þór
Jónsson semur spurningarnar og
Ásgeir Erlendsson sem hefur vakið
mikla athygli í útvarpi og sjónvarpi,
og var í keppnisliði Verslunarskól-
ans á sínum tíma, verður sennilega
fyrsti karlkyns stigavörðurinn í
sögu keppninnar,“ segir Þórhallur.
Ekki má gleyma að geta þess að í
september hefur göngu sína nýr
menningarþáttur Þorsteins J. þar
sem kafað verður ofan í myndlist,
leiklist og kvikmyndir.
Gamlir og góðir á sínum stað
Vinsælasta efni síðasta vetrar
verður áfram á sínum stað. Spaug-
stofan snýr að sjálfsögðu aftur. Eva
María Jónsdóttir verður með
sunnudagsspjallþætti sína fram að
jólum, Silfur Egils og Kiljan halda
áfram göngu sinni og Bogi Ágústs-
son mun halda áfram með þátt sinn
Viðtalið. „Kastljósið tekur töluverð-
um breytingum um miðjan sept-
ember, fréttaskýringum mun fjölga
og gerðar verða útlits- og innihalds-
breytingar á þættinum,“ segir Þór-
hallur.
Spurningakeppnin Útsvar verður
einnig á dagskrá, og svo auðvitað
Áramótaskaupið sem í ár verður
leikstýrt af Silju Hauksdóttur en
Hjálmar Hjálmarsson og Sigurjón
Kjartansson verða aðalhöfundar
handrits.
Glæpir, galsi og gamlar perlur
Tvær spennuþáttaraðir og stór
tónlistarskemmtiþáttur meðal
hápunkta vetrarins Leitað að
gullmolum í filmusafninu
Sérfræðingar Páll Óskar Hjálmtýsson stýrir aftur Evróvisjónþætti.
Spenna Svartir englar, þáttaröð í sex hlutum, verður frumsýnd í september.
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
Í HVERJUM mánuði í vetur verð-
ur eitt gamalt áramótaskaup end-
ursýnt. „Almenningur fær að
velja hvaða áramótaskaup verður
sýnt hverju sinni, hugsanlega með
netkosningu,“ segir Þórhallur
Gunnarsson dagskrárstjóri. „Út-
búnir verða stuttir fréttaannálar
fyrir hvert skaup til að rifja upp
hápunkta hvers árs og atburðina
sem skaupið gerir grín að.“
Líklegt verður að telja að þess-
ar endursýningar muni vekja
mikla athygli enda þykja mörg
áramótaskaupanna með skemmti-
legasta sjónvarpsefni sem fram-
leitt hefur verið en að sama skapi
eru skiptar skoðanir um hvaða
skaup heppnuðust best.
Þórhallur segir einnig unnið að
því að gera efni úr safni sjón-
varpsins aðgengilegt á netinu.
„Við erum að skoða hvernig stað-
ið verður að því verkefni, en
núna er unnið að því að taka gott
gamalt efni saman og vinna úr
því.“
Eftir áramót hefur Sjónvarps-
leikhúsið göngu sína, alls 8 þættir
þar sem sýnd verða valin brot úr
safnis sjónvarpsins. „Við sýnum
leikhússögu Sjónvarpsins, og er-
um að velja mola úr gullkistunni
okkar,“ segir Þórhallur.
Skaup Bjarni Felixson hefur stundum birst í skaupinu, hér margfaldur.
Gömlu skaupin endursýnd