Morgunblaðið - 05.09.2008, Qupperneq 24
- kemur þér við
Sérblað um heilsu
fylgir blaðinu í dag
!
"
#
" $%
& ''
!
"(
$
# !
)
*(
+
,
"
$
"
&
#!
! "(
-
*
)
!
*
*
#
#
'
!
"
!"!#! $% &'''(%#)*!'%(*+"!, - ./00 (%#1*!'%(20*3'4!5!*
Staða kynja jafnast á
hraða snigilsins
Bætur Breiðavíkur-
drengja út í hött
Póstþjónusta skerðist
til muna
Tónleikastaðnum
Organ lokað
Keppir á Trabant í
ralli fornbíla
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
24 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega 250 – 350 fm
einbýlishús í Þingholtunum. Staðgreiðsla í boði.
Allar nánari upplýsingar veitir
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Einbýlishús í Þingholtunum óskast
- staðgreiðsla
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095
Sími: 588 9090
Í LEIÐARA Morg-
unblaðsins þann 3.
september má lesa
eftirandi: „Athygl-
isvert var hversu sam-
stiga formenn stjórn-
arflokkanna voru í
umræðum á Alþingi í
gær um að frekari
virkjun vatnsafls og
jarðhita væri nærtækasta leiðin til
að koma Íslandi upp úr núverandi
efnahagslægð.
Geir H. Haarde talaði um að nýta
orkulindirnar á arðbæran, en jafn-
framt „umhverfislega ábyrgan og
sjálfbæran hátt“. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir talaði um að stefnan í
virkjanamálum ætti að byggjast á
rammaáætlun um verndun og nýt-
ingu náttúrusvæða.
„Á þessu tvennu,“ heldur leið-
arahöfundur áfram, „er í raun eng-
inn munur.“ Eftir umræðurnar um
Kárahnjúkavirkjun dettur í raun
engum í hug að samstaða gæti
náðst um virkjanir, sem yllu stór-
skaða á náttúru landsins. En auð-
vitað rúmast margar virkjanir inn-
an ramma þess ábyrga og
sjálfbæra, þótt stundum mætti ætla
annað af málflutningi þeirra, sem
ekki mega heyra virkjun eða verk-
smiðju nefnda án þess að sjá rautt.“
Leiðarinn er lýsandi
dæmi um hvernig
stefnu blaðsins er ýtt
til hliðar með nýju
orðalagi. Stefna Morg-
unblaðsins (og Geirs
Haarde) var sú að ekki
yrðu byggðar fleiri
stórar virkjanir á
miðhálendi Íslands.
Nú eru mörkin sett við
virkjanir sem ekki
munu valda „stórskaða
á náttúru landsins.“
Þeir sem ekki fella sig
við svo víðan ramma segir blaðið að
sjái rautt.
Til samanburðar má nefna að
þann 21. maí sagði Morgunblaðið í
leiðara „Það er áreiðanlega víðtæk
samstaða meðal þjóðarinnar um að
útiloka frekari framkvæmdir á
miðhálendinu, hvort sem um er að
ræða virkjanir eða aðrar fram-
kvæmdir svo sem vegafram-
kvæmdir. Þar með þrengist mjög
um möguleika á nýjum vatnsafls-
virkjunum. Og jafnvel þótt þær séu
ekki í óbyggðum eru þær umdeild-
ar eins og sjá má af deilunum, sem
standa um virkjanir í neðri hluta
Þjórsár.“ Þá stýrði Styrmir Gunn-
arsson penna.
Nýr ritstjóri Morgunblaðsins hef-
ur breytt stefnu blaðsins til að
rúma fleiri virkjanir og álver. Ný-
lunda er það einnig hjá Morg-
unblaðinu að hreyta ónotum í þann
hluta þjóðarinnar sem andæfir
virkjunar- og stóriðjustefnu stjórn-
valda. Í því sambandi er vert að
minna á að í nýlegri skoð-
anakönnun Capacent Gallup segjast
42% aðspurðra andvíg frekari upp-
byggingu álvera, en 38% segjast
vera hlynnt. Sér þá meirihluti að-
spurðra rautt?
Við blasir að stefna Sjálfstæð-
isflokksins hefur verið og er sú að
ekkert má vernda, ekkert má frið-
lýsa þegar hagsmunir Landsvirkj-
unar, ál- og verktakafyrirtækja eru
annars vegar. Óspjölluð náttúra
hefur ávallt verið aukaatriði í
stefnu þessa flokks. Án nokkurs
fyrirvara við niðurstöðu Ramma-
áætlunar um nýtingu vatnsafls og
jarðvarma krefst flokksforustan nú
virkjana upp á rúmlega 1000 mega-
vött fyrir ný álver í Helguvík og á
Bakka. Undir þetta hefur Morg-
unblaðið nú tekið. En hvar á að
virkja rúmlega 1000 MW fyrir tvö
ný álver? Er þá Rammaáætlun
bara sjónarspil?
Ný virkjunarstefna
Morgunblaðsins
Árni Finnsson
skrifar um rit-
stjórnarstefnu
Morgunblaðsins
»Nýr ritstjóri Morg-
unblaðsins hefur
breytt stefnu blaðsins til
að rúma fleiri virkjanir
og álver.
Árni Finnsson
Höfundur er formaður Nátt-
úruverndarsamtaka Íslands.
UMHVERFIS- og
skipulagsslys er í upp-
siglingu í Mosfellsbæ.
Þar er áformað að
leggja svokallaðan
Tunguveg, frá Holta-
hverfi, milli skóla-
bygginganna við
Varmá og hesthúsahverfisins, um
lendur útivistar og íþrótta, að nýju
íbúðahverfi á Leirvogstungu. Leiðin
liggur yfir hið magnaða árósasvæði
Mosfellsbæjar nálægt ármótum
Varmár og Köldukvíslar. Þetta
svæði hefur fullkomna sérstöðu á
höfuðborgarsvæðinu þegar kemur
að möguleikum til að þróa aðstöðu
til útvistar, upplifunar á náttúru,
kennslu, menningarstarfsemi,
íþrótta o.fl. Við árnar eru staðir
sem hafa mikið verndargildi og
skammt í friðaðar
náttúruminjar. Svæði
er ennþá verðmætara
fyrir þær sakir að það
er samfellt, það er ekki
skorið af mannvirkjum
neðan Vesturlands-
vegar. Samkvæmt nú-
tímalegri skipulags-
stefnu er allt kapp lagt
á að vernda svæði sem
þessi, hvar sem borið
er niður í hinum sið-
menntaða heimi.
Það sérkennilega er
að það er engin þörf á að leggja
þennan veg þar sem honum er nú
ætluð leið. Unnt er að leggja tengi-
braut meðfram Vesturlandsveg-
inum, sem hefur alla kosti fyrirhug-
aðs Tunguvegar og fleiri til; með
þeim vegi fengist góð tenging við
útivistarsvæðin sem ekki er hægt
að ná af núverandi Vesturlandsvegi.
Þessi leið hefur ennfremur þann
góða kost að hann skerðir ekki ár-
svæðið eða þá möguleika sem það
hefur til að auka lífsgæði í Mos-
fellsbæ um alla framtíð.
Hugmyndir að fyrirhugðum
tengivegi yfir ársvæðið eru gamlar
og eru mótaðar á þeim tíma þegar
umhverfismál og náttúruvernd voru
ekki ofarlega á baugi við skipulag
byggðar. Hugmyndirnar eru eins
konar þráhyggja sem er vel útfærð
í nýjum tillögum um Tunguveg.
Tengibrautin endurspeglar skiln-
ingsleysi á gildi náttúrlegra ár-
svæða við mótun byggðar.
Ég skora á bæjaryfirvöld í Mos-
fellsbæ að stíga skref til nútíðar og
horfa til framtíðar. Verndum árósa
Mosfellsbæjar!
Vegur yfir lífsgæðin
í Mosfellsbæ
Ólafur Arnalds
skrifar um vega-
gerð yfir ár-
ósasvæðið, sem
hann segir skipu-
lagsmistök
» Samkvæmt nútíma-
legri skipulags-
stefnu er allt kapp lagt á
að vernda svæði sem
þessi, hvar sem borið er
niður í hinum siðmennt-
aða heimi.
Ólafur Arnalds
Höfundur er náttúrufræðingur
búsettur í Mosfellsbæ.
=>?@ABCDECA FGH I JBFADKGLHMC NO
P>QR SOO TUVU I WWWXBR?@ABCDECAXRK