Morgunblaðið - 05.09.2008, Page 34
34 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er föstudagur 5. september-
, 249. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Ef einhvern ykkar brest-
ur visku, þá biðji hann Guð, sem gefur
öllum örlátlega og átölulaust, og hon-
um mun gefast. (Jak. 1, 5.)
Goðasteinn nefnist héraðsritRangæinga, hefur komið út í 44
ár og nýtt tölublað þess er sneisa-
fullt af efni. Þar er fjallað um eftir-
minnilegt fólk og atkvæðamikið í
Rangárvallasýslu, birt ljóðmæli,
fræðigreinar og kveðskapur. Þegar
tímaritinu er flett sést að tíminn líð-
ur ekki alltaf hratt, þótt upp sé
runnin gervihnattaöld. Þar er um-
sögn undir fyrirsögninni Síðbúinn
ritdómur. Það eru orð að sönnu
vegna þess að þar er fjallað um bók
sem kom út árið 1998 og var skrif-
aður árið 2002. Reyndar er ritdóm-
urinn meðal efnis sem birt er úr fór-
um Þórðar Tómassonar, safnstjóra í
Skógum, og markmiðið því fremur
að birta sýnishorn af skrifum hans
en koma ritdómnum loks á prent.
x x x
Talan 36 er Víkverja hugleikin umþessar mundir. Í bílnum hans
er tölva sem reiknar út meðalhraða
þegar hann þvælist um höfuðborgar-
svæðið. Oftar en ekki er meðalhrað-
inn 36 km á klukkustund. Gildir þá
einu hvort hámarkshraði er 30, 50,
60 eða 80. Þegar komið er á áfanga-
stað reynist meðalhraðinn hafa verið
36 km á klukkustund. Þetta á eflaust
við um alla þá sem eru samferða
Víkverja í umferðinni, geysast
framhjá honum á milli ljósa en kom-
ast samt í raun ekkert hraðar áfram
– eru bara á 36 km hraða á klukku-
stund eins og allir hinir sem þveitast
milli staða í umferðinni.
x x x
51% þátttakenda í nýrri þýskrikönnun telur að afreksíþrótta-
menn á borð við sundkappann
Michael Phelps og spretthlauparann
Usain Bolt hafi náð ótrúlegum
árangri sínum á Ólympíuleikunum í
Peking með hjálp ólöglegra lyfja.
32% töldu að engin svik hefðu verið í
tafli. Jafnframt sögðu 88% þeirra,
sem spurðir voru, að þeir kysu
frekar að Þjóðverjar sendu íþrótta-
menn sem ekki hefðu neytt lyfja –
væru hreinir – á leikana en að vinna
til sem flestra verðlauna.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 þreifa á,
4 andspænis, 7 undir-
okað, 8 álitleg, 9 eld-
stæði í smiðju, 11 ský,
13 urgur, 14 bjarta,
15 þakklæti, 17 vitleysa,
20 reiðikast, 22 meyr,
23 hár, 24 glatað,
25 sveiflufjöldi.
Lóðrétt | 1 sverleiki,
2 skips, 3 ójafna, 4 enda-
veggur, 5 borguðu,
6 dregur,10 hróður,
12 ílát, 13 óhreinindi,
15 nafntogað, 16 hella,
18 heimild, 19 skil
eftir, 20 hlassið,
21 slæmt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 afturhald, 8 vakur, 9 langt, 10 als, 11 lónar,
13 teina, 15 hjall, 18 saggi, 21 orm, 22 liðug, 23 ámuna,
24 manngildi.
Lóðrétt: 2 fákæn, 3 urrar, 4 helst, 5 lindi, 6 hvel, 7 átta,
12 afl, 14 efa, 15 hóll, 16 auðna, 17 login, 18 smári,
19 grund, 20 iðan.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
www.sudoku.com
© Puzzles by Pappocom
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
STAÐAN kom upp í keppni á milli
sveitar ungra stórmeistara og upp-
rennandi stórstjarna gegn liði reynd-
ari og gamalkunnra stórmeistara sem
lauk fyrir skömmu í Amsterdam í Hol-
landi.
Hinn ungi kínverski stórmeistari
Wang Yue (2702) hafði hvítt gegn
norska stórmeistaranum Simen Agde-
stein (2583). 29. a5! Rxb5 30. axb6
Rd6 31. Hxe6! Hxe6 32. Bd5 Kf7 33.
Rd8+ Ke7 34. Rxe6 c4 35. Bxc4 og
svartur gafst upp.
Wang fékk 8 1/2 vinning af 10 mögu-
legum fyrir lið ungra stórmeistara og
samsvaraði frammistaða hans 2892
stigum.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Áberandi fjarvera.
Norður
♠K987
♥642
♦105
♣Á1096
Vestur Austur
♠64 ♠32
♥K1053 ♥G98
♦KDG764 ♦Á9832
♣2 ♣D53
Suður
♠ÁDG105
♥ÁD7
♦--
♣KG874
Suður spilar 6♠.
Útspilið er ♦K, sem sagnhafi
trompar heima og lítur yfir sviðið. Og
hvað sér hann? Hann „sér“ að það
vantar hjartakóng og laufdrottningu.
Verkefnið verður að komast af án
þessara lykilspila.
Einn slag má gefa, og því er nóg að
♣D komi í leitirnar eða ♥K liggi fyrir
svíningu. Sú einfalda leið að toppa
laufið og svína í hjarta skilar vinningi
í rösklega þremur tilfellum af fjórum.
Sem er allgott, en betri leið er til:
Sagnhafi tekur tvisvar tromp og
stingur hinn tígulinn. Spilar svo laufi
á ás og svínar til vesturs. Hafi vestur
byrjað með ♣Dx er hann endaspil-
aður, verður að spila hjarta upp í
♥ÁD eða tígli tvöfalda eyðu. Þessi
endurbætta leið hækkar vinningslíkur
upp í um það bil 85% (trompið þarf að
vera 2–2).
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er ómögulegt að segja hvaða
vandræði dagsins eru það besta sem hafa
fyrir þig komið, en ein þeirra eru það.
Vertu opinn fyrir duldum möguleikum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Orka með tilgangi er aðlaðandi.
Þess vegna dregstu að einhverjum sem er
leitandi. Þig grunar að þú hafir það sem
hann vantar og það er rétt.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú gætir verið sömu skoðunar
og náungi þinn, en þú tjáir hana allt öðru
vísi. Þú færð tækifæri til að sýna umburð-
arlyndi og verður hamingjusamari eftir á.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Vinur býður þér að láta reyna á
hið óþekkta. Ef hann er bogmaður verður
breytingin til góðs. Það kemur á óvart
hversu ánægjuleg hún reynist.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þegar þér finnst mikið til einhvers
koma, bregst hann við með sínum bestu
mannasiðum. Hvað býr undir? Hlustaðu á
vandamál í kvöld, ekki reyna að leysa
þau.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú hefur auga fyrir fagurfræði og
það flýtir fyrir viðskiptum þínum og ást-
arævintýrum. Það er ekkert falskt við
það að ganga í augun á fólki.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Taktu þér frí frá því að vera alltaf sá
sem hugsar fyrir hópinn. Þú þarft ekki
alltaf að vera með sperrt eyrum. Slakaðu
á og horfðu á það sem er að gerast.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Sum rifrildi geturðu aldrei
unnið og það myndi hvort eð er ekki
hjálpa þér. Það er gott að vita þegar þú
gefst upp. Segðu það sem þú meinar og
láttu málið eiga sig.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Allt það sem þú virkilega vilt
tengist saman. Settu heilsuna í fyrsta
sæti, og önnur markmið nást af sjálfu sér.
Þetta verður geggjað stuðkvöld.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þegar kemur að við-
skiptavinum þínum eða yfirmanni, nægir
þér ekki að þeir séu rétt svo ánægðir. Þú
sækist eftir virðingu þeirra og tryggð.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Aðalverkefni dagsins felst í að
leiða fólkið – beina því í rétta átt, halda
því við áætlunina þína svo það átti sig á
þinni sýn. Ef það tekst ertu ofurhetja.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Í stað þess að velta fyrir þér hvort
einhver elskar þig, skaltu reyna að elska
þig sjáfur. Hluti af því er að sjá til að þú
hafir nægar áskoranir að fást við til að
vera skapandi í hugsun.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
5. september 1896
Suðurlandsskjálfti hinn síðari
reið yfir. Fjöldi bæja í Árnes-
sýslu hrundi til grunna. Hjón
á Selfossi létust. Fyrri stóri
skjálftinn var tíu dögum áð-
ur. „Mesta landskjálftaáfall
frá því er land byggðist,“
sagði Ísafold.
5. september 1942
Þýsk sprengjuflugvél af gerð-
inni Focke Wulf gerði loft-
árás á Seyðisfjörð. Sprengja
lenti skammt frá fjórum
drengjum sem voru að leik
og slösuðust þeir allir, einn
þó mest. Þeir voru sjö og átta
ára.
5. september 1972
Varðskipið Ægir beitti tog-
víraklippum á breskan land-
helgisbrjót í fyrsta sinn.
Þetta gerðist innan 50 sjó-
mílna markanna norður af
Horni, nokkrum dögum eftir
útfærslu landhelginnar. Á
rúmu ári tókst í 82 skipti að
klippa á víra togara.
5. september 1987
Háskólinn á Akureyri var
settur í fyrsta sinn við hátíð-
lega athöfn í Akureyrar-
kirkju. Kennsla hófst tveimur
dögum síðar, í iðnrekstrar-
fræði og hjúkrunarfræði.
Fyrsta skólaárið voru 47
nemendur.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist þá…
Aldís Sveinsdóttir, Hulda Mar-
grét Sveinsdóttir, Marta Ýr Magn-
úsdóttir og Heiðbjört Anna Guð-
mundsdóttir stóðu fyrir tombólu
við verslun Samkaupa við Hrísa-
lund á Akureyri og styrktu Rauða
krossinn með ágóðanum, 16.827 kr.
Hlutavelta
„JÚ, JÚ, það er víst,“ segir Gísli Hólmar Jóhannes-
son, doktor í efnafræði og framkvæmdastjóri klín-
ískra tilrauna hjá Mentis Cura ehf., þegar hann er
spurður hvort hann eigi ekki stórafmæli í dag. „Ég
tek á móti gestum á Vínbarnum í kvöld, það er nú
samt ekki opið boð,“ segir hann kíminn og bendir
þar með á að stærðarannmarkar setji veislunni
vissulega mörk.
Gísli Hólmar segir Mentis Cura vera lítið rann-
sóknar- og þróunarfyrirtæki. „Við notum heilarit
til að greina ýmsa heilakvilla, þar á meðan Alz-
heimer-sjúkdóminn. Við höfum unnið í nánu sam-
starfi við læknana á Landakoti og það er líka verið að nota þetta í
Noregi, þannig að, já, þetta er komið ansi langt og orðið mjög spenn-
andi,“ segir Gísli Hólmar.
Hann hefur fjórum sinnum farið með landsliðinu í efnafræði til að
taka þátt í Ólympíuleikunum í efnafræði. „Það er mjög skemmtilegt.
Staðirnir sem ég hef farið á eru Taívan, Moskva, Búdapest í fyrra, og
svo Kiel í Þýskalandi líka,“ segir hann og upplýsir að þeir sem eru í
liðunum séu mjög góðir nemendur. „Þeir þurfa að fara í gegnum
nokkrar síur áður en á hólminn er komið. Allir framhaldsskólanemar
mega taka þátt og síðan eru tólf efstu valdir til að koma í háskólann
og taka verklegt og fræðilegt próf.“
Gísli Hólmar býst við að um 40 manns muni samfagna sér í kvöld.
Gísli Hólmar Jóhannesson fertugur
Greinir heilakvilla
;) Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamtupplýsingum um fæðingarstað og stund,þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is