Morgunblaðið - 25.09.2008, Side 1
F I M M T U D A G U R 2 5. S E P T E M B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
262. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
DAGLEGTLÍF
AÐ SKYNJA OG NJÓTA
Í ÞRÍVÍÐU HLJÓÐRÝMI
FRÉTTASKÝRING
Búnir að fá nóg af
ofurlaunaliðinu
Leikhúsin
í landinu >> 33
Fjölmiðlar eru yfirfullir af fréttum
af hinni svokölluðu bankakreppu.
Fólk klórar sér í höfðinu yfir upp-
hæðum sem fáir skilja. En hvað
gerðist og hvernig gat það gerst?
Viðskipti
Bankakreppan
fyrir byrjendur
Kaupþing lánaði um 4.000 sænsk-
um fjárfestum fyrir kaupum á bréf-
um útgefnum af Lehman Brothers.
Ekki er ljóst hversu mikið tap fé-
lagsins verður vegna þessa.
Lánuðu Svíum
fyrir Lehman
Eignir opinberra fjárfestingarsjóða
ríkja við Persaflóa nema helmingi
allra slíkra sjóða í heiminum. Eru
samt gagnrýndir fyrir skort á
reynslu og að borga of lág laun.
Lítil reynsla og
lág laun í austri
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
MIKILL þrýstingur er á hækkanir á
vöru og þjónustu vegna veikingar
krónunnar og bendir margt til að
verðbólgan muni því færast í aukana.
Neysluverðsvísitalan hækkaði um
0,86% frá í ágúst sem jafngildir 14%
verðbólgu á heilu ári. „Það eru nokk-
uð uggvænlegar horfur,“ segir Guð-
rún R. Jónsdóttir, deildarstjóri á
Hagstofunni. Frá því Hagstofan lauk
mælingu sinni fyrir miðjan septem-
ber hefur krónan veikst um 7%, sem
mun að öllum líkindum koma fram í
verðhækkunum á næstunni. „Ef
gengisþróunin breytist ekki þá eru
horfurnar ekki bjartar,“ segir hún.
Viðbúið að meira sé í pípunum
Í nýliðnum mánuði mældist 0,94%
lækkun á bensíni og olíum í vísitöl-
unni, þar sem olíufélögin héldu elds-
neytisverðinu að mestu óbreyttu. Í
gær bárust hins vegar tilkynningar
um 3-4 kr. verðhækkun á bensínlítra
og 5-6 kr. hækkun á dísilolíu.
,,Það eru áframhaldandi hækkanir
á mörgum liðum. Það eru nánast allir
liðir vísitölunnar að breytast,“ segir
Henný Hinz, hagfræðingur hjá ASÍ.
„Við höfum haft einhverjar spurnir
af áframhaldandi hækkunum og er
þá yfirleitt vísað til gengis krónunn-
ar. Við óttumst að við séum ekki al-
veg komin yfir kúfinn. Það er viðbúið
að það sé eitthvað meira í pípunum.“
Dökkt og uggvænlegt
Verðbólgan er 14% en búist er við
hækkun vegna veikingar krónunnar
! " #
$
%
Íbúðaverð | 14
HAUSTLITIRNIR eru allsráðandi um þessar mundir. Hér má sjá tré neðst
í Bankastræti speglast í rúðu verslunar hinum megin við götuna svo úr
verður mikil litasinfónía. Maðurinn á myndinni heldur för sinni ótrauður
áfram og er líklega að hugsa um allt annað en ástand efnahagsmálanna.
Haustlitirnir speglast í rúðunni
Morgunblaðið/Kristinn
Efnahagsvandinn í Bandaríkj-
unum setur sinn svip á kosninga-
baráttuna. John McCain sagðist í
gær ætla að gera hlé á kosninga-
baráttu sinni til að geta einbeitt sér
að lausn fjármálavandans í Wash-
ington. Hann hvatti Barack Obama
til að gera slíkt hið sama og fór
jafnframt fram á að kappræðunum
sem fram eiga að fara á föstudag-
inn yrði frestað.
Barack Obama sagðist í yfirlýs-
ingu stuttu síðar vera ósammála til-
lögu McCains. Hann teldi brýnna nú
en áður að almenningur fengi að
heyra áherslur frambjóðenda.
Það yrði að liggja fyrir hvernig
næsti forseti hygðist takast á við
vandann. » 16
McCain biður um frest
Tilkoma erlendra glæpagengja
sem herja á verslanir hér á landi
veldur mörgum verslunarmann-
inum ugg. Stuldur á vörum í versl-
unum hefur vaxið stórlega á síðustu
mánuðum, og framkvæmdastjóri
Samtaka verslunar og þjónustu er
óvæginn í gagnrýni sinni á lög-
reglu.
Unnið er að nýju úrræði sem
gengur út á að þjófum verði gerður
kostur á að afgreiða mál með sátt á
staðnum. » 6
Þjófnaður úr verslunum
hefur aukist gríðarlega
Valskonan
Margrét Lára
Viðarsdóttir gæti
verið á leið til liðs
Los Angeles fyrir
næstu leiktíð til
að spila í nýrri at-
vinnumannadeild
Bandaríkjanna.
Los Angeles
ávann sér réttinn
til að semja við
Margréti og Val í gærkvöldi þegar
28 af bestu leikmönnum heims, utan
Bandaríkjanna, var raðað niður á
liðin sjö sem leika munu í deildinni.
» Íþróttir
Á leið til Los Angeles?
Margrét Lára
Viðarsdóttir