Morgunblaðið - 25.09.2008, Síða 19
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2008 19
- kemur þér við
Álag á lögreglu tafði
rannsókn ofbeldismáls
Gæslufangar flestir
erlendir
Eftir hverju bíða menn
við Bakka?
Fékk hjartaáfall í
kirkjunni
Varð sjónvarpsstjarna í
miðju atvinnuleysinu
Hafsteinn Júlíusson og
svefnvæna skólataskan
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
Ævintýrið heldur áfram og vís-
indamenn standa á gati. Tvær and-
arnefjur sáust við Akureyri í gær til
viðbótar við þær þrjár sem vitað var
um. Þær voru reyndar fjórar en ein
drapst í vikunni.
Fyrir nokkrum árum var varpað
fram hugmynd um einhvers konar
sædýragarð við Pollinn á Akureyri.
Er ekki lag að dusta rykið af hug-
myndunum núna? Sum dýrin þarf
ekki einu sinni að hafa fyrir því að
sækja. Þau koma sjálf.
Kunningi minn, sem marga fjöruna
hefur sopið í skemmtanabransanum
og kallar ekki allt ömmu sína, brá
sér í Sjallann á laugardagskvöldið
var en flýtti sér út aftur þegar hann
varð var við „erotískan glaðning“ á
sjónvarpsskjá í húsinu. Segir það
hafa verið gróft klám og með því
svæsnara sem hann hafi séð. Líklega
er best að lýsa því yfir að viðkom-
andi kunningi minn var allsgáður og
akandi, eins og segir í dægurlaga-
textanum.
Samkvæmt auglýsingu í Dag-
skránni í síðustu viku var það agent-
.is sem bauð upp á „Dirty night“ í
Sjallanum þetta kvöld. M.a. var aug-
lýst sjóðandi undirfatasýning, stelp-
ur dansandi í búrum og erotískur
glaðningur á tjaldinu. „Sleipiefni og
smokkar með hverjum miða. Þorir
þú?“ stóð jafnframt í auglýsingunni.
Einkar smekklegt. Eða hvað?
Jafnréttisstofa hefur sent Dag-
skránni bréf þar sem athugasemdir
eru gerðar við birtingu áðurnefndr-
ar auglýsingar um kvöldið „sóða-
lega“ í Sjallanum.
Ung kona við Eyrarveg vaknaði upp
nótt eina í vikunni við það að maður
með vasaljós stóð við rúmgaflinn. Sá
hafði brotist inn. Konan segist, í
samtali við fréttavef Vikudags, hafa
öskrað og manninum brugðið svo
mjög að hann öskraði á móti og hljóp
út úr húsinu. Konan hringdi í lag-
anna verði og þeir höfðu fljótlega
hendur í hári mannsins vegna þess
að hann hafði skilið bílinn sinn eftir
fyrir utan hús konunnar með lykl-
unum í, en flúði á tveimur jafn-
fljótum eftir að hún flæmdi hann út.
Áhugavert málþing verður í Ket-
ilhúsinu í dag kl. 13–16, á vegum
verkefnisstjórnarinnar 50+ og er yf-
irskriftin Aldur – akkur fyrirtækja.
Flutt verða erindi um rannsókn á
áhrifum stóriðjuframkvæmda á 50
ára og eldri og um símenntun þessa
aldurshóps.
Heiða Karlsdóttir, ritari bæjarstjór-
ans á Akureyri, átti 25 ára starfs-
afmæli í vikunni. Sigrún Björk Jak-
obsdóttir er sjötti bæjarstjórinn sem
hún starfar fyrir; hinir eru Helgi H.
Bergs, Sigfús Jónsson, Halldór
Jónsson, Jakob Björnsson og Krist-
ján Þór Júlíusson.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Óvæntur endir Nemendur á alþjóðlegu sjávarspendýranámskeiði á Húsa-
vík komust í feitt þegar andarnefja drapst í Eyjafirði um helgina.
Bónus
Gildir 25.-28. september verð nú verð
áður
mælie. verð
Bónus ferskur heill krydd.kjúkl. ... 539 809 539 kr. kg
Myllu heimilisbrauð, 385 g ......... 98 129 354 kr. kg
KF sveitabjúgu ........................... 299 359 299 kr. kg
KS ferskt lambahjörtu ................ 187 198 187 kr. kg
KS fersk lambalifur .................... 187 198 187 kr. kg
Íf frosin kjúklingalæri .................. 398 0 398 kr. kg
Kraft frosnar ísl. kjúklingabringur . 1.498 1.698 1.498 kr. kg
Sparigrís, beikon ....................... 998 1.298 998 kr. kg
NV ferskt ísl. nautahakk .............. 798 898 798 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 25.-27. september verð nú verð
áður
mælie. verð
Lambalæri af nýslátruðu, kjöt-
borð .........................................
1.189 0 1.189 kr. kg
Lambahr. af nýslátruðu, kjötb...... 1.485 0 1.485 kr. kg
Bl. súpukjöt af nýslátruðu, kjötb. . 598 0 598 kr. kg
Lambahjörtu af nýslátruðu, kjötb. 198 498 198 kr. kg
Lambanýru af nýslátruðu, kjöt-
borð .........................................
125 225 125 kr. kg
Móa kjúklingabringur ................. 1917 2.949 1.917 kr. kg
Nautafille úr kjötborði ................ 2.498 2.998 2.498 kr. kg
Hagkaup
Gildir 25.-28. september verð nú verð
áður
mælie. verð
Folaldafille úr kjötborði............... 1.698 2.166 1.698 kr. kg
Folaldalundir úr kjötborði ........... 1.898 2.414 1.898 kr. kg
Folaldasnitsel úr kjötborði .......... 1.298 1.724 1.298 kr. kg
Folalda innralæri úr kjötborði ...... 1.398 1.749 1.398 kr. kg
Ferskar kjúklingalundir ............... 1.655 2.759 1.655 kr. kg
Kjúklingaleggir í Texas mar. ......... 467 779 467 kr. kg
Íslandsgrís vínarsnitsel í raspi ..... 1.139 1.898 1.139 kr. kg
Íslandsgrís kótelettur í raspi ........ 1.139 1.898 1.139 kr. kg
Bláberjalæri hálfúrb.m/legg ....... 1.469 2.098 1.469 kr. kg
Krónan
Gildir 25.-28. september verð nú verð
áður
mælie. verð
Grísabógur hringskorinn ............. 487 695 487 kr. kg
Grísalundir ................................ 1.499 2.598 1.499 kr. kg
Grísaskankar............................. 194 298 194 kr. kg
Grísasíður, pörusteik .................. 489 698 489 kr. kg
Grísasnitsel ............................... 1.019 1.698 1.019 kr. kg
Grísahnakki, úrb. sneiðar............ 849 1.698 849 kr. kg
Weetaflakes .............................. 359 428 359 kr. pk.
Happy day, 100% safi ................ 279 339 279 kr. stk.
Croissant m/skinku og osti ......... 115 165 115 kr. stk.
Nóatún
Gildir 25.-28. september verð nú verð
áður
mælie. verð
Lambalæri af nýslátruðu............. 1.398 1.598 1.398 kr. kg
Lambahryggur af nýslátruðu........ 1.498 1.798 1.498 kr. kg
Lamba framhryggjarsneiðar ........ 998 1.798 998 kr. kg
Lamba sirloinsneiðar.................. 998 1.498 998 kr. kg
Lambafille hickory...................... 2.998 3.698 2.998 kr. kg
Stórlúða í sneiðum..................... 1.498 2.298 1.498 kr. kg
Móa kjúklingur, ferskur, heill ....... 499 899 499 kr. kg
SS folaldaframpartur, reyktur ...... 538 768 538 kr. kg
Meistara hunangskaka............... 499 619 499 kr. stk.
Þín Verslun
Gildir 25. sep.-1. október verð nú verð
áður
mælie. verð
Tuborg léttöl, 0,5 l ...................... 79 109 158 kr. ltr
Haust hafrakex, 250 g................ 189 229 756 kr. kg
Aunt Mabel’s muffins, 100 g....... 139 169 1.390 kr. kg
Nóa konsum orange, 100 g ........ 129 159 1.290 kr. kg
Capri Sonne orange, 5 x 200 ml . 225 279 45 kr. stk.
Champion sveskjur, 340 g .......... 229 315 674 kr. kg
Granini tómatsafi, 500 ml .......... 198 245 396 kr. kg
Ultje ristaðar hnetur, 200 g......... 219 279 1.095 kr. kg
Freschetta pitsa sticks ............... 519 815 1.923 kr. kg
helgartilboðin
Folaldafille og lambalifur
Atli Heimir Sveinsson tónskáldvarð sjötugur síðastliðinn
sunnudag og urðu margir til að
mæra hann. Halldór Blöndal orti:
Á legg og skel hann lærði fyrst,
lönd og álfur hefur gist,
spinnur rapp og leikur Lizt,
lífsfílósóf og kompónist.
Halldór skrifaði um skeið
vísnaleik og barst honum þá bréf
svohljóðandi: „Ég sá í síðasta
vísnaleik að þú óskaðir eftir að
einhver prjónaði við vísupartinn:
Páll og Þóra Melsteð
voru meira en vel séð.
Mér datt í hug að hafa þessa
viðbót:
Ljúft var og stundum að lít’á
laxinn, sem veiddist í Hvítá
hjá kappanum Kristjáni Fjeldsted
Ath. Kristján Fjelsted er bóndi í
Ferjukoti og veiðir drjúgum lax í
Hvíta á sumri hverju.“ Og
undirskriftin er Ragnar úr Seli.
Rétt er að hafa í huga að fyrstu
VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is
Af Atla Heimi og De Gaulle
tvær hendingarnar eru úr glerhúsi
Kristjáns Karlssonar en þeir Þor-
steinn Gylfason urðu fyrstir til að
kyrja undir þeim hætti hér á landi,
gáfu honum nafn og skiptust á
glerhúsum sér til gamans. En það
er önnur Ella.
Kristján orti 3. janúar 1985:
Þetta er saga af Guðmundu Geiru
sem gekk einn dag suðrí Leiru.
Undir kvöld uppá hól
þá hitti hún De Gaulle,
að hún hélt, útaf nefinu og fleiru.