Morgunblaðið - 12.10.2008, Síða 1
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
GEIR H. Haarde forsætisráðherra
útilokar ekki að ríkið höfði mál á
hendur breska ríkinu, fyrir að hafa
keyrt Kaupþing Singer & Friedland-
er í þrot, með því að ráðast inn í
bankann. „Ég tel að á síðustu metr-
unum hafi það verið aðgerðir breska
fjármálaeftirlitsins sem urðu þess-
um banka að falli, því miður,“ segir
Geir í samtali við Morgunblaðið í
dag.
Fram kemur í máli forsætisráð-
herra að hann telur að gera þurfi
Verðum öflugri þjóð
Forsætisráðherra útilokar ekki málsókn á hendur Bretum
Telur nauðsynlegt að hvítbók verði gerð um bankakreppuna
Morgunblaðið/Golli
Annir Geir H. Haarde hefur átt annríkt undanfarna daga. Hann hefur verið með daglega blaðamannafundi fyrir innlenda og erlenda fréttamenn.
gagngerar breytingar á ýmsum
reglum viðskiptalífsins og setja þurfi
mjög skýrar reglur um eignarhald
og krosseignarhald. Reglurnar þurfi
að vera hnitmiðaðar og veita við-
skiptalífinu það aðhald sem nauðsyn
krefji.
Geir telur einnig að herða beri við-
urlög við brotum, sem Fjármálaeft-
irlitið og Samkeppniseftirlitið komist
á snoðir um. Hann segir að nauðsyn-
legt sé að farið verði ofan í saumana
á bankamálum undanfarinna ára.
Komi fram í slíkri rannsókn að menn
hafi gerst brotlegir við lög, þurfi við-
komandi að sæta ábyrgð. | 10
S U N N U D A G U R 1 2. O K T Ó B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
279. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
Leikhúsin
í landinu >> 47NUNNURNAR OG NÆRFÖTIN
VERSLUN
HVER GETUR LÆKNAÐ
KRAMIÐ HJARTA?
MENNING
Í Rússlandi líta Pútín forsætisráð-
herra og aðrir ráðamenn svo á að
nú sé tíminn til að kaupa eignir
ódýrt og nota yfirstandandi fjár-
málakreppu til að verða öflugt
veldi í hinu alþjóðlega hagkerfi.
Nú geta Rússar
orðið öflugir
Fjármálaráðherra Bretlands setti
allt á annan endann á miðvikudag
þegar hann sagði að íslenska ríkið
ætlaði ekki að standa við skuldbind-
ingar sínar í Bretlandi.
Hver er hann,
þessi Darling?
Henni er stundum kennt um eða
þakkað að Sarah Palin varafor-
setaefni repúblikana hefur hríð-
fallið í áliti. Katie Couric á langan
fréttamannsferil að baki.
Harðari en hún lít-
ur út fyrir að vera
VIKUSPEGILL
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
EKKI hefur verið mikil ásókn í geðdeild Landspít-
alans undanfarna daga, að sögn Elsu Báru Trausta-
dóttur sálfræðings, þó að einn og einn komi með
áhyggjur vegna erfiðrar stöðu.
„Það er engin holskefla, enda er fólk úrræðagott
og kann ýmis bjargráð. Flestir hafa mætt áföllum
fyrr í lífinu og kunna að takast á við erfiðleika. Ég á
alveg eins von á því að afleiðingarnar komi ekki
strax fram, en þær geta komið fram seinna, jafnvel
þegar allt er orðið gott aftur.“
að koma blóðinu á hreyfingu og fá ferskt loft.“
Og ekki má gleyma björtum hliðum tilverunnar.
„Fólk er upptekið af því sem farið hefur úrskeiðis,
en verum meðvituð um allt sem við höfum, hugum
að heilsunni og okkar nánustu og áttum okkur á því
að við höfum þak yfir höfuðið og munum ekki deyja
úr hungri á Íslandi. Margir úti í heimi eru verr
staddir. Og Íslendingar hafa lifað miklu verri tíma
en þetta, móðuharðindin og plágur; konur ólu fimm-
tán börn og komu aðeins fjórum á legg – og það fólk
er lifandi! Við eigum að bera virðingu fyrir því.“
Engin holskefla á geðdeild
Ekki mikil ásókn í geðdeild Landspítalans Fólk sæki stuðning ef það finnur til vonleysis og tilgangs-
leysis Mikilvægast að fólk haldi venjubundnu lífsmynstri Íslendingar hafa lifað miklu verri tíma
Börnin hafa bara vaxið | 28
Ef fólk finnur fyrir vonleysi og tilgangsleysi, seg-
ir Elsa að það eigi óhikað að ræða við fólkið í kring-
um sig, fjölskyldu, vini eða leita til heilbrigðiskerf-
isins. „Það er merkið um að við eigum að sækja
okkur stuðning.“
Mikilvægast er að fólk haldi sama lífsmynstri,
einkum svefnvenjum. „Svo þarf fólk að borða reglu-
lega, jafnvel þó að það hafi ekki matarlyst, og hafa
smábita við höndina, sem gefa næringu. Það eykur
kvíða og depurð ef mataræðinu er ekki sinnt.“
Það skiptir máli að vera í tengslum við fólkið sitt,
vera með því og tala við það. „Og fólk á hreyfa sig,
fara í stutta göngutúra og synda. Þó ekki væri nema
Framtíð Á mörgu er að byggja, þó
að fjármálakreppa sé á Fróni.