Morgunblaðið - 12.10.2008, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 12.10.2008, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BLAÐAMANNAMIÐSTÖÐ var sett upp í Miðbæjarskólanum vegna fjölda erlendra blaða- og frétta- manna sem komu hingað í síðustu viku til þess að fjalla um efnahags- ástandið. Hún verður a.m.k. opin út helgina. Urður Gunnarsdóttir, fjöl- miðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins, sagði að um 70 fjölmiðlamenn hefðu skráð sig í miðstöðinni en fleiri hefðu komið án þess að skrá sig. Þá hefur verið hringt dag og nótt frá útlöndum til að leita upplýsinga og viðtala. „Mér er til efs að nokkuð hafi vakið meiri athygli á Íslandi, ef frá er talinn Reykjavíkurfundurinn,“ sagði Urður um atburði síðustu daga. Hún sagði að almenn ánægja hefði verið með daglega blaða- mannafundi í Iðnó og fréttamenn- irnir hefðu talað um að hér hefðu þeir fengið greiðari aðgang en þeir ættu að venjast. Þurý Björk Björgvinsdóttir, starfsmaður utanríkisráðuneytisins, var við afgreiðslu í blaðamanna- miðstöðinni á föstudaginn var. Hún sagði að miðstöðin hefði verið opn- uð síðdegis á þriðjudag. Þar var að- staða fyrir blaðamenn til að tengja tölvur sínar og senda myndir og kvikmyndir til erlendra fjölmiðla. Starfsmenn erlendra sjónvarps- fréttastofa höfðu þarna aðstöðu til að klippa saman fréttamyndskeið og senda með hjálp háhraða ljós- leiðaratengingar. Þurý sagði að gestirnir hefðu verið ánægðir með aðstöðuna og til dæmis færðu þeir sem komu frá CNBC-fréttastofunni starfsfólki í miðstöðinni stóran blómvönd í kveðjuskyni. gudni@mbl.is Mikil athygli Morgunblaðið/RAX Miðstöðin Starfsmenn í fjölmiðlamiðstöðinni í Miðbæjarskólanum og í ut- anríkisráðuneytinu hafa liðsinnt fjölda erlendra fjölmiðlamanna. Efnahagsmálin hér hafa vakið gríð- armikla athygli erlendra fjölmiðla MIKIÐ er um dýrðir á 8. sýningu Ferðaklúbbsins 4x4 í Fífunni í Kópa- vogi þar sem starfsemi klúbbsins er kynnt og jeppar af öllum gerðum og tegundum sýndir. Þetta er stærsta sýning klúbbsins til þessa og eru 130 ferða- og fjallabílar til sýnis, allt frá óbreyttum jeppum upp í mestu tröll. Jafnframt fagnar klúbburinn 25 ára afmæli sínu um þessar mundir. Á sýningunni eru ennfremur kynntar allar landsbyggðadeildir klúbbsins en í honum eru 6 þúsund manns í heildina. Sýningin verður opin í dag, sunnu- dag frá kl. 12-20. Jeppatröllin sýna sig í Fífunni á 25 ára afmælissýningu Ferðaklúbbsins 4x4 130 nýir og gamlir jeppar Morgunblaðið/Árni Sæberg Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is ERNA Solberg, formaður Hægri- flokksins í Nor- egi, hefur ritað Jens Stoltenberg, forsætisráðherra landsins, bréf þar sem hún hvetur hann til að beita sér fyrir því, að Noregur og önn- ur Norðurlönd komi Íslendingum til aðstoðar í þrengingum þeirra. „Já, ég ritaði Stoltenberg bréf og hvatti hann til að ræða við forsætis- ráðherra annarra Norðurlanda um samræmda aðstoð við Ísland og Ís- lendinga í þeirri alvarlegu fjármála- kreppu, sem þjóðin á við að stríða,“ sagði Solberg í viðtali við Morgun- blaðið í gær. Kvaðst Solberg annaðhvort eiga von á formlegu svari frá Stoltenberg eða þá, að hann léti hendur standa fram úr ermum í þessu máli, sem væri auðvitað besta svarið. Mikilvægt út á við „Ég tel mjög mikilvægt, ekki síst út á við, að Norðurlöndin taki af allan vafa um, að þau ætli að standa með Íslendingum í þessum erfiðleikum,“ sagði Solberg og hún kvaðst vita, að á þessu máli væri mikill skilningur og velvild meðal norskra þingmanna yfirleitt. Hefðu raunar margir vikið sérstaklega að því í umræðum um norsku fjárlögin og önnur mál. Solberg sagði, að í bréfi sínu til Stoltenbergs hefði hún ekki rætt um með hvaða hætti Íslendingar skyldu aðstoðaðir enda nokkuð ljóst hver þörfin væri í þeim efnum. Kvaðst hún búast við, að Stoltenberg myndi á næstu dögum ræða þetta mál við starfsbræður sína á Norðurlöndum og bætti við, að auk beinnar fjár- hagsaðstoðar gætu Norðmenn lagt sitt af mörkum í tæknilegum efnum. Þeir hefðu gengið í gegnum sína bankakreppu snemma á síðasta ára- tug. Þá hefðu bankarnir verið þjóð- nýttir en væru nú aftur komnir í einkaeigu að mestu leyti. Hvetur til aðstoðar við Íslendinga Vill að norsk stjórnvöld beiti sér fyrir samræmdum aðgerðum Norðurlanda Erna Solberg Í HNOTSKURN »Forsætisráðherra Noregshefur verið hvattur til þess að stuðla að þvi að Noregur og önnur Norðurlönd aðstoði Ís- lendinga í þrengingum í efn- hagslífinu BRESKI kaupsýslumaðurinn Sir Phillip Green á í viðræðum um að leggja allt að 2 milljarða punda, jafn- virði 377 milljarða króna, inn í Baug. Fram kom í breska blaðinu Fin- ancial Times, að Green hefði komið til Íslands í einkaþotu ásamt Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, stjórnarfor- manni Baugs í Bretlandi á föstudag. Hefði hann rætt við forsvarsmenn Baugs. Green ræddi jafnframt við viðskiptaráðherra, að því er Stöð 2 greindi frá. FT hefur eftir Green, sem á m.a. verslunarkeðjurnar BHS og Top shop, að hann eigi í viðræðum við Jón Ásgeir og Gunnars Sigurðs- son, forstjóra Baugs, um að kaupa öll lán Baugs í íslensku bönkunum í Bretlandi. Segir FT að það sé 1-2 milljarðar punda. „Allar eignirnar hafa verið frystar,“ sagði Green við FT. „Ég vil ekki að neitt þessara fyrirtækja falli.“ Green ræðir við Baug GUNNAR Reynir Bæringsson er látinn eftir stutta baráttu við ólæknandi krabba- mein. Gunnar fæddist árið 1949 á Ísafirði og bjó þar til 22 ára ald- urs. Gunnar starfaði í útibúi Landsbankans á Ísafirði og síðar í útibúi Landsbankans á Akur- eyri. Gunnar var meðal stofnenda fyrsta ís- lenska kreditkortafyr- irtækisins árið 1980 Kreditkort hf. (Eurocard) og starf- aði þar sem framkvæmdastjóri til ársins 1998. Hann gerðist útibússtjóri hjá Búnaðarbankanum í Grafarvogi árin 1998- 1999 og sinnti síðar sjálfstæðri ráðgjöf og framkvæmdastjórn ýmissa fyrirtækja þar til árið 2002 að hann stofnaði ásamt öðrum fyrirtækið Kortaþjón- ustuna ehf. þar sem hann var starfandi stjórnarformaður til dauðadags. Gunnar lætur eftir sig eigin- konu, Guðrúnu Arn- finnsdóttur, þrjú uppkomin börn og átta barnabörn. Gunnar Bæringsson Andlát AUSTURRÍSKI stjórnmálamaður- inn Jörg Haider lést í umferðarslysi í Klagenfurt í Austurríki í gær- morgun. Að sögn fréttastof- unnar APA ók Haider emb- ættisbíl sínum, sem fór út af veginum af ókunnum ástæðum. Hai- der fékk alvar- lega höfuð- áverka og lést skömmu síðar. Haider, sem var 58 ára, var fylkis- stjóri Kärnten-fylkis og leiðtogi Framtíðarsamtakanna, nýstofnaðs stjórnmálaflokks yst á hægri væng austurrískra stjórnmála. Fyrir vann Haider stóran kosn- ingasigur sem leiðtogi Frelsis- flokksins. Jörg Haider lést í bílslysi Jörg Haider ÍSLANDSMEISTARAR Vals töp- uðu 3:2 gegn ítalska liðinu Bardolino í öðrum leik sínum í milliriðli Evrópu- keppni kvenna í knattspyrnu í Umeå í Svíþjóð. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði bæði mörk Vals en það er nánast öruggt að Valur verður ekki í einu af tveimur efstu sætum riðilsins og þar með eru möguleikarnir á að komast í 8-liða úrslit úr sögunni. Valur tapaði 3-2 gegn Bardolino Valsstúlkur Kunna að fagna. HELGI Magnússon, formaður Sam- taka iðnaðarins og stjórnarmaður í stjórn og framkvæmdastjórn SA, var- ar við „innistæðulausum“ samnings- bundnum launahækkunum sem eiga að koma til framkvæmda í mars á næsta ári, því fyrirtæki komi ekki til með að ráða við slíkt miðað við að- stæður í þjóðfélaginu. Verði haldið fast við samningsákvæði í þessa veru, muni það þýða að fyrirtæki neyðist til að segja upp enn fleira fólki. „Bar- áttan næstu mánuði og misseri mun snúast um að halda atvinnuleysi í lágmarki og ég tel mjög æskilegt að verkalýðshreyfingin og atvinnulífið nái sem bestu samstarfi um að verja störfin í landi. Ætla má að atvinnuleysi aukist ef til launahækkana kemur í byrjun næsta árs því fyrirtækin hafa almennt ekki möguleika á að hækka laun við núverandi aðstæður og yrðu því til- neydd til að grípa til enn frekari uppsagna. Ég hef fulla trú á að fyrirtækin geri allt sem í valdi þeirra stendur til að vinna með verkalýðshreyfingunni í að halda atvinnu- leysi niðri. Innistæðulausar launahækkanir munu engu skila, heldur gera öllum erfiðara fyrir.“ Helgi tekur fram að þetta er persónuleg skoðun hans en ekki mótuð stefna SI og SA. orsi@mbl.is Varar við innistæðulausum launahækkunum á næsta ári Helgi Magnússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.