Morgunblaðið - 12.10.2008, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 12.10.2008, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Eðvald Eðvalds-son fæddist á Kálfshamarsvík á Skaga 8. mars 1937. Hann lést á Land- spítala við Hring- braut 2. október síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Eðvald Júl- íusson, bóndi í Krók- seli á Skagaströnd, f. 23.12. 1903, d. 20.1. 1937 og Mar- grét Guðmunds- dóttir, f. 3.8. 1909 á Skagaströnd, d. 11.10. 1971. Börn þeirra voru: Marel Eð- valdsson, f. 11.11. 1931, Jón Eð- valdsson, f. 20.1. 1933, d. 22.11. 1931, Sigurlaug, f. 23.2. 1934. Þann 24.12. 1958 kvæntist Eðvald eiginkonu sinni Ernu Másdóttur, fyrrverandi fiðlukennara, f. 26.5. 1934 í Hafnarfirði. Börn þeirra eru: Sigurlaug fiðluleikari, f. 4.1.1963 og Sigrún, konsertmeistari Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands, f. 13.1. 1967. Eð- vald átti eitt barnabarn, Ernu Ruth Bobroff, dótt- ur Sigurlaugar. Þegar Eðvald var 9 ára gamall brá móðir hans búi og flutti með börn sín til Hafnarfjarðar. Fljótlega eftir ferm- ingu fór Eðvald á sjó, fyrst á síld- arbáta og síðan á ýmsa aðra báta. Í kringum 1960 fór hann í Stýrimanna- skólann og fékk skipstjóra- og stýri- mannsréttindi. Starfaði hann síð- an á sjó, fyrst sem stýrimaður og síðan skipstjóri. Í kringum 1990 hætti hann á stóru bátunum og keypti sér trillu og gerðist trillu- karl. Hann var formaður smábáta- félagsins „Báran“ í Hafnarfirði frá 1995 til 2002 og var þá jafn- framt í stjórn Landssambands smábátaeigenda. Hann gerði alla tíð út frá Sandgerði og starfaði við sjóinn allt til dauðadags. Úrför Eðvalds Eðvaldssonar hefur farið fram í kyrrþey. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Með kveðju, eiginkona. Eigi má feigum forða og eigi verður ófeigum í hel komið. Nokkurn veginn svona heyrði ég föður minn mæla þessa setningu, þegar hann vildi minna mann á að enginn fær flúið örlög sín. Það var hann sem hjálpaði manni að halda sálarró þegar dauðsfall var annars vegar.Að þetta væri lífsins gangur og eitt af því fáa í lífinu sem væri alveg öruggt og bókað að við stæð- um öll frammi fyrir fyrr eða síðar. Harmi slegin sit ég nú samt hér og rita þessar línur og vil með þess- um orðum minnast föður míns fyrir hönd okkar systranna. Pabbi okkar var sjómaður alla sína ævi og fyrir okkur þegar við vorum börn var hann sá sterkasti, duglegasti og sá allra myndarleg- asti. Eins og títt var um sjómanna- fjölskyldur á þessum tíma þá voru mæðurnar kannski hinir eiginlegu uppalendur á meðan feðurnir sóttu sjóinn og drógu björg í bú. Og þannig var það hjá okkur. Pabbi okkar var hetjan okkar sem kom alltaf eins og engill eða himnasend- ing heim af sjónum og umvafði okk- ur hlýju sinni þótt þreyttur væri oft. Þetta breyttist aldrei þótt árin færðust yfir okkur. Hann var stoð okkar og stytta í einu og öllu. Hann var líka besti sögumaður sem ég hef kynnst. Fáir gátu sagt sögur eins og hann og gert það eins skemmtilega. Og það besta var þeg- ar hann gat varla klárað sögurnar fyrir hlátri. Fegurri hlátur hef ég hvorki heyrt fyrr né síðar. Hann átti það til að segja bestu sögurnar aftur og aftur þegar vel lá á honum og þótt við værum að heyra þær í 30. skiptið þá sátum við með stjörn- ur í augunum mæðgurnar þrjár og biðum eftir því þegar hann færi að hlæja. Eða þegar við í útilegu sát- um inni í hjólhýsinu í hellirigningu, mamma að laga kakó og hann að segja okkur draugasögur og gat gert mann trylltan af hræðslu með augnaráðinu einu saman. Mikill samgangur var á milli okk- ar fjölskyldu og fjölskyldu Sigur- laugar systur hans, eiginmanns hennar og dætra þeirra fimm sem pabba þótti óhemju vænt um og er mér það minnistætt þegar hann kvaddi þau ávallt með orðunum „Guð varðveiti ykkur og styðji“ sem mér fannst alltaf jafn tilkomumikið sem unglingur. Hann var gríðarlega vel lesinn og vel að sér, talaði mjög fallegt mál og kunni ógrynni af ljóðum sem hann fór með af tilþrifum við hin ýmsu tækifæri. Alltaf gátum við leitað til hans, hann hafði alltaf tíma fyrir okkur, ógrynni af þolinmæði og hjálpaði okkur alltaf að leysa okkar mál. Alltaf gat hann sagt eitt- hvað fallegt við mann. Hann var uxi í kínverskri stjörnuspeki og ein- kenni uxans er að bera byrðir ann- arra af mikilli þrautseigju og þann- ig var einmitt pabbi. Hann vildi hlífa sínum nánustu og vernda þá og bar sínar byrðar í hljóði. Sterkar voru skoðanir hans og hann gat ver- ið skapstór en gat brætt alla með fallega brosinu sínu. Hann hafði mikla útgeislun og hlýju sem lét fáa ósnortna og gaf Ernu litlu afastelp- unni sinni allt sem hann átti. Oft fannst mér hann vera engill í lifanda lífi en nú veit ég að hann er orðinn það. Minningin um hann verður ljósið í lífi okkar. Hvíli hann í friði. Sigrún. Nú þegar haustar að kveður frændi okkar, Eðvald Eðvaldsson, eða frændi, eins og hann heitir í okkar huga, eftir erfið veikindi. Frændi ólst upp með móður sinni og systkinum í Kálfshamarsvík í Austur-Húnavatnssýslu fram til níu ára aldurs en þá fluttist fjölskyldan suður í Hafnarfjörð. Brauðstritið hófst snemma á þeim tímum og frændi hóf lífsstarf sitt, sjómennsk- una, 13 ára gamall. Seinna fór hann í Sjómannaskólann og aflaði sér skipstjórnarréttinda. Í Hafnarfirði kynntist frændi eig- inkonu sinni, Ernu Másdóttur fiðlu- kennara. Hún var æskuvinkona móður okkar og hefur sá vinskapur haldist allar götur síðan og tengt fjölskyldur okkar vináttuböndum. Vináttan ásamt frændseminni hefur gengið í arf til okkar systranna og dætra þeirra hjóna, Sigurlaugar og Sigrúnar. Frændi var glæsilegur maður, dökkur yfirlitum og bráðmyndar- legur. Hann var skarpgreindur, víð- lesinn og hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum, ríka útgeisl- un og kunni öðrum betur að segja sögur. Og hann hafði fallegan mál- róm hann frændi. Við systurnar vorum afar stoltar af frænda, skipstjóranum sem sigldi til útlanda og færði okkur fá- gætan og framandi varning á tím- um gjaldeyris- og innflutningshafta. Við höfum ennþá sérstakt dálæti á honum, enda var hann okkur ávallt góður og gerði sér ekki mannamun hverjir sem viðmælendur hans voru, börn eða fullorðnir. Þær voru notalegar stundirnar þegar hann stakk sér inn í eldhúsið hjá mömmu í Löngufitinni í kaffisopa. Við syst- urnar löðuðumst að honum og tínd- umst hver af annarri inn í eldhúsið í spjallið. Hann hafði frá mörgu að segja og glaðværð og gamansemi fylgdi honum hvar sem hann kom. Mikið hafði hann frændi fallegan hlátur. Það er furðuerfitt að minnast þessa uppáhaldsfrænda. Við eigum svo margar góðar minningar um þau Ernu og stelpurnar: líf fjöl- skyldna okkar er samofið. Ótal samverustundir koma upp í hug- ann: útilegurnar þegar við frænk- urnar vorum litlar, öll áramótin sem fjölskyldurnar héldu hátíðleg saman og það hefðu orðið dálítið skrítin jól ef við hefðum ekki þekkt neinn pakka undir jólatrénu sem gæti verið Mackintoshið frá frænda. Þegar frændi kom heim af sjón- um eftir langa fjarveru ríkti gleði í Faxatúninu. Silla og Sigrún hlökk- uðu alltaf til að fá hann heim enda var hann þeim yndislegur faðir og hvatti þær í öllu sem þær tóku sér fyrir hendur – uppeldið á systr- unum lenti þó meira á Ernu sem stóð ætíð í brúnni á heimilinu. Það er ómetanlegt fyrir dótturdóttur frænda, Ernu Ruth, sem nú er að verða átta ára, að hafa fengið að kynnast afa sínum og verja með honum löngum stundum. Þau frændi og Erna Ruth höfðu mikið dálæti hvort á öðru og fengu jafnan glampa í augun þegar þau töluðu hvort um annað. Þau spjölluðu mik- ið saman og hún lærði margt af honum, ekki síst í orðsins list. Í veikindum frænda var Erna Ruth spurð hvernig afi hennar hefði það: „Eins og blómi í eggi“ hafði hún orðrétt eftir honum. Við systurnar trúum því að nú líði frænda loksins eins og blóma í eggi. Elsku Erna, Silla, Sigrún og litla Erna Ruth, missir ykkar er mikill en við biðjum góðan Guð að styrkja ykkur í sorginni og sendum ykkur fallegu og glaðlegu kveðjuna hans frænda: „Varðveiti ykkur og styðji!“ Kolbrún, Margrét, Guðrún, Erna og Guðný Sigurðardætur. Eðvald Eðvaldsson Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. Sveinbjörn Egilsson.) Sigurlaug og Erna Ruth. HINSTA KVEÐJA ✝ Sonur minn, bróðir okkar og mágur, EMIL AUÐUNSSON, Mölleparken, Toftlund, Danmörku, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu þriðju- daginn 14. október kl. 13.00. Auðunn Bragi Sveinsson, Sveinn Auðunsson, Erika Steinmann, Kristín Auðunsdóttir, Haukur Ágústsson, Ólafur Auðunsson, Helena Stefánsdóttir. ✝ Heittelskaður eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR SVEINSSON, Drekavogi 4, Reykjavík, sem lést mánudaginn 6. október, verður jarð- sunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík, þriðjudaginn 14. október kl. 15.00. Gróa Friðjónsdóttir, Anton Sigurðsson, Valný Óttarsdóttir, Anna Hulda Sigurðardóttir, Reynir Grétarsson, Friðjón Þór Gróuson, Hólmfríður Jóna Guðmundsdóttir, Tinna Brá Sigurðardóttir, Eyþór Snorrason og barnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, INGIBJÖRG S. KRISTJÁNSDÓTTIR, Hrannarstíg 18, Grundarfirði, lést á St. Franciskusspítala Stykkishólmi fimmtu- daginn 9. október. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Guðmundur Runólfsson. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ODDGEIR PÉTURSSON, Faxabraut 13, Keflavík, lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi laugardaginn 4. október. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 14. október kl. 14.00. Garðar Oddgeirsson, Helga Gunnlaugsdóttir, Eva Oddgeirsdóttir, Elías Guðmundsson, Nína Oddgeirsdóttir, Viðar Oddgeirsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar og tengdamóður, SIGRÍÐAR INGIBJARGAR KRISTINSDÓTTUR, Grund, Hringbraut 50. Starfsfólk Grundar fær okkar bestu þakkir fyrir frábæra umönnun síðustu árin. Sölvi Þór Þorvaldsson, Kristín Kristjánsdóttir, Valur Steinn Þorvaldsson, Guðrún Sigurðardóttir, Þorvaldur Þorvaldsson, Gróa Kristjánsdóttir, Haukur Þorvaldsson, ömmu- og langömmubörn. ✝ Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför móður minnar og frænku okkar, ÞORBJARGAR MÖLLER LEIFS, Droplaugarstöðum, áður til heimilis á Hávallagötu 17. Sérstakar þakkir til starfsfólks Droplaugarstaða fyrir góða umönnun. Leifur Leifs og frændsystkini. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, FYLKIR ÁGÚSTSSON, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 9. október. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 21. október kl. 13.00. Lára J. Haraldsdóttir, Guðmundur Fylkisson, Ágúst Fylkisson, Jóhanna Svansdóttir, Jens Andri Fylkisson, Sigurbjörg Hjálmarsdóttir, Jóhanna Fylkisdóttir, Samúel Orri Stefánsson, Guðmundur Ágústsson, Bergþóra Bergmundsdóttir, Ágúst Ingi Ágústsson, Inger Jörgensdóttir, Greta Ágústsdóttir, Ingvar Jón Ingvarsson, Fríða Ágústsdóttir, Magnús Waage og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.