Morgunblaðið - 12.10.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.10.2008, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is S ennilega hefur enginn maður á Íslandi verið undir jafn- miklu álagi undanfarnar tvær vikur og Geir Hilmar Haarde forsætisráðherra. Öll spjót hafa staðið á honum; hann hefur verið hundeltur af inn- lendum og erlendum fréttamönnum; fundað með bankamönnum, seðlabankamönnum, stjórnarliðum, stjórnarandstæðingum, alla daga og fram á rauðanótt suma sólarhring- ana. Ekki er að sjá að þessi ómælda pressa sé að sliga forsætisráðherra vorn þegar við hittumst í Ráðherrabústaðnum eldsnemma á föstudagsmorgun og fáum þetta líka dúndurgóða kaffi úr alvöru kaffiföntum. – Geir, það hefur ekki verið öfundsvert hlutskipti að vera forsætisráðherra und- anfarnar tvær vikur eða svo. Hvernig hefur þér liðið í öllum atganginum? „Mér hefur persónulega liðið alveg bæri- lega, vegna þess að ég tel mig hafa verið að gera rétta og nauðsynlega hluti. Ég hef lagt mig allan fram um að gera þetta eins vel og hægt er, en auðvitað er þetta ekki hlutskipti sem maður hefði óskað sér. Hér eru að ger- ast atburðir sem maður trúði aldrei að gætu gerst á Íslandi. Það er ekki langt síðan ég var í sjónvarpi vestur í Bandaríkjunum og fullyrti að ís- lensku bankarnir myndu geta staðið í skil- um, að minnsta kosti út næsta ár, vegna þess að þeir væru búnir að fjármagna sig. En atburðir gerðust mjög hratt, sem leiddu til þess að atburðarásin fór á versta veg. Um það er svo ekki að fást, en við gripum inn í þetta, held ég, á hárréttu augnabliki með mjög afgerandi hætti. Ég hef fulla trú á því að við komumst í gegnum þetta ástand. Þetta hafa verið langir dagar og stuttar nætur og gríðarlegt vinnuálag. Mér hefur þótt mjög vænt um, þegar andbyrinn er svona mikill, hversu mikinn og almennan stuðning ég fæ og finn fyrir frá almenningi, fólkinu sem ég er í vinnu hjá. Ég hef fengið ógrynni af tölvupósti, bréfum, kveðjum og sendingum frá fullt af fólki sem ég ekki þekki. Þetta er afar dýrmæt hvatning, sem ég met mikils.“ – Geir. Ég held við þurfum að fara yfir sviðið vítt og breitt, þar sem þú, forsætis- ráðherra, skýrir hinar stóru línur og við ræðum það sem fór úrskeiðis og hvaða lær- dóm má draga af því gjörningaveðri sem riðið hefur yfir íslenskt efnahags- og at- vinnulíf undanfarnar vikur. Ef við byrjum á frelsinu margrómaða, sem var innleitt hér með EES-samningnum, að margra mati án þess að nauðsynlegar girðingar væru reistar samfara því. Hvers vegna voru ekki reistar þær girð- ingar, sem við sjáum í dag og ýmsir hafa séð árum saman að voru nauðsynlegar, í formi miklu agaðra reglugerðarverks um viðskipti og fjármálastarfsemi? Töldum reglugerðina góða „Við höfum talið okkur vera með bestu löggjöf á því sviði, grundvallaða á EES- samningnum og þar með sömu reglur og Ef við stöndum saman í gegnum þessa erfiðleika, styðjum hvert annað og hagnýtum okkur þau tækifæri sem skapast munu, þá verður íslenska þjóðin öflugri en nokkru sinni fyrr Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins og for- sætisráðherra, hefur að flestra mati staðið eins og klettur í hafinu undanfarna viku, á einhverjum erfiðustu og mestu óvissutímum ís- lenska lýðveldisins. Hann lýs- ir hér í samtali við Morg- unblaðið hvernig mál horfa við honum, hvað hefur farið úrskeiðis hjá okkur og hvert okkur ber að stefna. Morgunblaðið/Golli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.