Morgunblaðið - 12.10.2008, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 2008 31
G
luggatjöld eru andlit heimilisins,
sagði mamma alltaf, hún sagði
líka að það væri talsvert hægt
að sjá hvernig heimilið væri eft-
ir því hvernig gardínur væru
fyrir gluggum, “ segir Bára Ólafsdóttir.
Bára hefur sannarlega átt sinn þátt í að
skapa andlit fjölda heimila því hún hefur
sérhæft sig í að sauma gluggatjöld fyrir
jafnt heimili sem stofnanir, ríka sem fátæka.
En hvers þarf að gæta þegar saumaðar
eru vandaðar gardínur?
„Það þarf fyrst og fremst að mæla rétt
fyrir gluggatjöldunum. Ég nota mitt eigið
málband, ég treysti helst ekki annarra, þau
geta verið teygð eða ekki rétt,“ segir Bára.
„Svo þarf að finna gott snið og gott efni.
Þegar ég var að byrja gardínusaumaskapinn
voru velúrgardínurnar á útleið en damask
að koma í staðinn og silki. Þegar ég sauma
úr silki klippi ég alla jaðra. Reyndar klippi
ég jaðra af öllum efnum. Þeir geta orsakað
kipring í hliðum eða fláa í gardínunum. Á
silkinu klippi ég 4 til 5 sentimetra af hlið-
unum til að losna við fláann. Einnig er
stundum fallegra að losna við að sauma
saman hliðartjöld, sérstaklega ef efni eru
þunn. Þá legg ég til að keypt verði mjög
breið efni, t.d. 2,8 til 3 metra á breidd sem
ég nota þá á hæðina. Þetta kemur vel út.“
Hvers konar gardínur eru vinsælar núna?
„Það eru þunnar og léttar gardínur. Mér
sýnist að kappar séu að koma inn aftur,
þetta er eins og öll önnur tíska, fer í hring.“
Starfaði í gardínubúð
En hvernig byrjaði þetta allt saman?
„Ég réð mig til starfa hjá Zeta-brautum
og gluggatjöldum fyrir rétt tæpum tuttugu
árum. Það var auglýst eftir starfsmanni og
það hefur líklega ráðið úrslitum að ég kunni
þá þegar nokkuð með nálina að fara,“ segir
Bára.
Hvernig lærði hún að fara með nálina?
„Mamma var mikil saumakona og saumaði
á okkur krakkana og svo þegar ég eignaðist
börn sjálf má segja að „neyðin kenni naktri
konu“, ég fór að sauma á mig og börnin. Ég
lærði þó mest í saumaskap þegar ég starfaði
í tvö ár hjá Tískuhúsi Ínu sem var í Hafn-
arstræti. Sú verslun seldi tilbúinn fatnað
sem var saumaður á staðnum. Þarna starf-
aði ég sem saumakona undir stjórn eiganda
og önnur kona til var á saumastofunni. Við
saumuðum með tilsögn Ínu jakka og buxur
– svokölluð buxnadress, sem voru mikið í
tísku. Þarna lærði ég mjög mikið sem kom
mér svo að notum þegar ég fór að sauma
gardínur.
Það var eftir þetta að ég byrjaði að vinna
sem afgreiðslustúlka í Zetu-brautum. Með
mér þar var eldri kona sem kunni mikið fyr-
ir sér í gardínusaumi og stundaði hann sem
aukavinnu. Hún kenndi mér mikið. Smám
saman fór ég að taka að mér lítil verkefni í
gardínusaumi og þetta vatt upp á sig og þar
kom að ég stofnaði gluggatjaldasaumastofu í
Hafnarfirði – Saumastofu Báru. Ég leigði
húsnæði við Dalshraun, um 100 fermetra,
það þarf talsvert pláss ef maður ætlar að
taka að sér stór verkefni í svona sauma-
skap.“
Saumað fyrir sendiráð og biskup
Tókstu fljótlega að þér stór verkefni?
„Já, en ein manneskja afkastar ekki svo
miklu. Ég hef þó saumað fyrir t.d. sendiráð
í Reykjavík, svo sem fyrir sendiráð Þjóð-
verja, Norðmanna og Svía. Skemmtilegast
var að vinna fyrir sænska sendiráðið. Þar
var þá karlmaður sendiherra sem hafði mik-
inn áhuga og miklar skoðanir á hvernig
gardínur sendiráðsins ættu að vera. Hann
teiknaði gluggatjöld fyrir alla glugga á stof-
unum og ég saumaði glæsilegar gardínur
samkvæmt hans fyrirsögn. Einnig hef ég
saumað gluggatjöld fyrir biskup Íslands í
biskupssetrið við Bergstaðastræti, þ.e. mót-
tökustofurnar þar. Það var skemmtilegt
verkefni og ljúft að koma inn á heimili bisk-
upshjónanna.“
Hvaða verkefni fyrir einstakling er minn-
isstæðast?
„Arkitekt einn hér í Reykjavík bað mig að
sauma gluggatjöld fyrir sig í gamlan sumar-
bústað sem móðir hans hafði átt og hann
vildi fá alveg eins gardínur og móðir hans
hafði haft á sínum tíma í bústaðnum. Hann
teiknaði þær allar upp mjög fallega og ég
saumaði alveg eins gardínur og mamma
hans hafði haft í bústaðnum.“
Ertu að sauma mikið núna?
„Ég hef minnkað þetta mjög mikið og
flutt saumastofuna heim til mín, þar sauma
ég í rólegheitum fyrir valda kúnna. Ég sit
ekki alltaf við saumavélina, það að sauma
gardínur krefst þess að maður vandi sig við
að sníða, noti títuprjóna eða þræði, straui
upp alla falda og saumi svo rólega. Það er
ekki hægt að flýta sér ef gardínur eiga að
verða óaðfinnanlegar.“
Morgunblaðið/Golli
Fagmenneskja Bára Ólafsdóttir er afar vandvirk við gluggatjaldasaumnum og kann fjölmörg
ráð til þess að glugggatjöld heppnist vel og falli fagurlega að umhverfi sínu. Þarna er hún við
glugga sem hún ætlar senn að sauma gardínur fyrir.
Gluggatjöld – andlit heimilisins
„Það sést oft á gardínum fyrir
gluggum hvernig heimilið er,“
segir Bára Ólafsdóttir í sam-
tali við Guðrúnu Guðlaugs-
dóttur. Bára hefur sérhæft
sig í gluggatjaldasaumi og
saumað fyrir einstaklinga sem
stofnanir, m.a. sendiráð og
móttökustofur biskupseturs.
Í HNOTSKURN
» Bára fylgist oft með þeim sem húnhefur saumað fyrir. Í eldhúsi hennar
er m.a. blómamynd frá ánægðum við-
skiptavini með áletruninni: Með kærum
kveðjum til gardínumeistara.
»Bára segir felligardínur þó nokkuðvinsælar, þær taka enda lítið pláss.
Þá nefnir hún borða til ásaums þannig
gerða að fellingarnar falla allar öðrum
megin, þetta sparar líka pláss.
»Bára segir afbrigði af amerískri upp-setningu æ meira notaða, enda geri
slík uppsetning gardínur glæsilegar.
Bára fæddist í tómataskúr á
Laugalandi í Borgarfirði 16.
október 1941. „Faðir minn
vann þar við að smíða íbúð-
arhúsið en gróðurhúsa-
starfsemin var hafin.“
Faðir Báru var Ólafur
Ólafsson trésmiður. Hann
lést úr berklum frá konu og
fjórum börnum þegar Bára
var fimm ára og yngsta syst-
ir hennar nýfædd. Sú
minnsta var skírð yfir kistu
föður síns og fékk nafn hans.
Móðir Báru, Þóra Helga-
dóttir, fór sem ráðskona í
Munaðarnes til Magnúsar,
bróður Málfríðar og Sigríðar
Einarsdætra sem báðar voru
þekktir rithöfundar. Þar
sótti Bára skóla, fór síðar á
síld á Siglufirði og vertíð í
Eyjum, vann verkakvenna-
störf í Reykjavík í mjólk-
urbúð og þvottahúsi. Hún
eignaðist telpu, flutti með
hana til Dalvíkur og gerðist
ráðskona.
Íslenskt Heimilisfólk og gestir á hlaðinu í Munaðarnesi á fyrstu árum lýðveldisins. Bára
er telpan með slaufuna fremst á myndinni.
Unglingur Bára Ólafs-
dóttir meðan hún vann
í Bifröst.
Fæddist í tómataskúr
Allir
krakkar sem
mæta fá fría
jólahúfu.
Erum staðsett í sama húsi og Office1 Skeifunni 17, opið til sjö öll kvöld.
Kíkið við á alvöru jólamarkað. Jólapappír, jólakort, jólagjafir, seríur og allt sem tengist jólunum á ótrúlegu verði.