Morgunblaðið - 12.10.2008, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 2008 15
Alistair Darling, fjár-málaráðherra Breta,kom eins og storm-sveipur inn í íslenska
þjóðmálaumræðu sl. miðvikudag
þegar hann sagði í viðtali við
breska ríkisútvarpið, BBC, að ís-
lenska ríkisstjórnin hefði tilkynnt
sér deginum áður að hún myndi
ekki standa við skuldbindingar
sínar í Bretlandi. Í kjölfarið greip
um sig mikil örvænting meðal
sparifjáreigenda og stjórnvalda í
Bretlandi sem raunar sér ekki fyr-
ir endann á.
Darling fæddist í Lundúnum en
sleit barnsskónum í Skotlandi.
Hann lauk lagaprófi frá háskól-
anum í Aberdeen. Forystuhæfi-
leikar hans komu fljótt í ljós og á
námsárunum í Aberdeen var hann
um tíma oddviti stúdenta. Darling
starfaði sem lögfræðingur á ár-
unum 1978 til 1984 að hann fékk
málflutningsleyfi fyrir hæstarétti
Skotlands.
Darling var vinstrisinnaður á
sínum yngri árum og áður en
hann gekk til liðs við Verka-
mannaflokkinn 23 ára að aldri
daðraði hann m.a. við marx- og
trotskíisma. Hann tók sæti í sveit-
arstjórn Lothian-héraðs árið 1982
og sat um tíma í stjórn lögreglu
héraðsins.
Lífróður fyrir endurkjöri
Pólitískur metnaður knúði Dar-
ling áfram og í kosningunum 1987
var hann kjörinn á þing fyrir
Verkamannaflokkinn í miðkjör-
dæmi Edinborgar. Lagði þá sitj-
andi þingmann, íhaldsmanninn Sir
Alexander Fletcher. Darling hefur
setið á breska þinginu allar götur
síðan.
Þegar skoska þingið var sett á
laggirnar var fulltrúum þaðan
fækkað á breska þinginu og kjör-
dæmi Darlings lagt niður. Hann
flutti sig þá yfir í Suðvestur-
Edinborg en ekki var forysta
flokksins öruggari en svo um að
hann næði kjöri að hún sendi bæði
John Prescott aðstoðarforsætis-
ráðherra og Gordon Brown, þá-
verandi fjármálaráðherra, til að
leggjast á árarnar með honum í
kosningabaráttunni. Darling var
einn af lykilráðherrum stjórnar-
innar á þessum tíma en steig eigi
að síður varla fæti út úr kjördæm-
inu meðan á baráttunni stóð. Eng-
in áhætta var tekin. Á endanum
vann hann nokkuð öruggan sigur.
Frami Darlings varð skjótur
innan Verkamannaflokksins. Ári
eftir að hann settist á þing var
hann orðinn talsmaður flokksins í
innanríkismálum í skuggaráðu-
neyti Neils Kinnocks. Eftir kosn-
ingarnar 1992 varð hann tals-
maður flokksins í fjármálum og
fjórum árum síðar var hann skip-
aður aðstoðarfjármálaráðherra í
skuggaráðuneyti hins nýja leið-
toga flokksins, Tonys Blairs.
Eftir frækinn sigur Verka-
mannaflokksins í þingkosning-
unum 1997 var Darling gerður að
aðstoðarfjármálaráðherra í fyrstu
ríkisstjórn Blairs. Síðan hefur
hann gegnt starfi atvinnu- og líf-
eyrismálaráðherra, samgöngu-
ráðherra, Skotlandsráðherra og
viðskipta- og iðnaðarráðherra.
Hann tók við starfi fjármálaráð-
herra þegar Gordon Brown leysti
Blair af hólmi í forsætisráðuneyt-
inu sumarið 2007. Darling er einn
þriggja manna sem gegnt hafa
ráðherraembætti allar götur síðan
1997, hinir eru Gordon Brown og
Jack Straw.
Umvafinn kvenfólki
Áður en Darling tók við núver-
andi embætti mæddi mest á hon-
um sem ráðherra samgöngumála.
Breska lestarkerfið hafði farið á
hliðina í tíð forvera hans og Dar-
ling fékk það hlutskipti að stokka
það upp og „beina kastljósinu“ frá
ráðuneytinu. Dómur sögunnar
virðist hafa fallið á þann veg að
það verk hafi tekist. Beitti Darling
sér m.a. fyrir nýrri löggjöf í lesta-
málum sem þykir hafa fært mála-
flokkinn til betri vegar. Á móti
kemur að Darling var legið á hálsi
fyrir að koma engu öðru í verk í
samgöngumálum þjóðarinnar.
Fáir hleyptu brúnum þegar
Brown skipaði Darling fjár-
málaráðherra í fyrsta ráðuneyti
sínu fyrir rúmu ári. Það vakti aft-
ur á móti athygli að þrír af fjórum
aðstoðarráðherrum hans eru kon-
ur, Angela Eagle, Jane Kennedy
og Kitty Usher. Ganga þær nú
meðal gárunga undir nafninu
„elskurnar hans Darlings“ (e. Dar-
ling’s darlings).
Darling hafði ekki verið lengi í
embætti þegar fyrsta ljónið varð á
vegi hans. Íbúðalánabankinn
Northern Rock lenti í svokölluðu
„bankaáhlaupi“, hinu fyrsta í
Bretlandi frá árinu 1860. Það lýsir
sér í biðröðum viðskiptavina sem
taka sparifé sitt út af ótta við að
tapa því. Vandinn var skilgreindur
sem „afbrigðilegar aðstæður“ og
kom því til kasta ráðherra sem
beitti sér fyrir því að breski seðla-
bankinn lánaði Northern Rock 20
milljarða sterlingspunda til að
fleyta honum yfir erfiðasta hjall-
ann og tryggja innistæður við-
skiptavina.
Kætti ekki knæpueigendur
Var Darling harðlega gagn-
rýndur fyrir að leggja einkarekn-
um banka til svo mikið almannafé.
Northern Rock var á endanum
þjóðnýttur, fyrstur breskra fyrir-
tækja frá árinu 1971. Það var þó
aðeins lognið á undan storminum.
Lausafjárkrísan var skollin á.
Darling mælti í fyrsta sinn fyrir
fjárlögum sl. vor. Sitt sýndist
hverjum og eins og gengur þótti
sumum þeir bera skarðan hlut frá
borði. Þannig voru álögur á bjór
og léttvín hækkaðar í frumvarp-
inu, knæpueigendum til lítillar
skemmtunar. Stilltu þeir saman
strengi sína á netinu og eftir að
James nokkur Hughes, eigandi
Útópíubarsins í Edinborg, ákvað
að meina Darling inngöngu gerðu
fjölmargir kollegar hans slíkt hið
sama. Hermt er að hundruð
knæpna hafi hengt á útidyrahurð-
ina mynd af ráðherranum, þar
sem stóð skýrum stöfum að hann
væri ekki velkominn. Darling hef-
ur því að líkindum sötrað ölið sitt
í einrúmi um stund.
Hermt er að bresk knæpa leggi
upp laupana á sex klukkustunda
fresti.
Gordon Brown hefur ekki átt
sjö dagana sæla í embætti for-
sætisráðherra og eru ýmsir á því
að hann verði að víkja eigi Verka-
mannaflokkurinn ekki að gjalda
afhroð í næstu þingkosningum.
Ákveði Brown að leggja árar í bát
hefur utanríkisráðherrann, David
Miliband, oftast verið nefndur sem
arftaki hans. Darling hefur á hinn
bóginn staðið þétt við bakið á
Brown og lýsti því síðast yfir í
liðnum mánuði að hann væri rétti
maðurinn til að leiða þjóðina út úr
yfirstandandi efnahagsvanda.
Lög að mæla
Ekki þarf að fjölyrða um fár-
viðrið sem nú skekur efnahag
vestrænna þjóða. Það hriktir í
stoðum. 30. ágúst sl. varaði Dar-
ling við storminum í samtali við
breska blaðið The Guardian og
fékk víða bágt fyrir, ekki síst hjá
eigin flokksmönnum. „Við erum án
efa að sigla inn í mestu erfiðleika
sem við höfum upplifað í efna-
hagsmálum í sextíu ár. Vandinn á
eftir að verða dýpri og taka lengri
tíma en menn hafa gert sér grein
fyrir,“ sagði hann í viðtalinu.
Spurður að því eftir á hvað honum
gengi til með þessari bölsýnisspá
kvaðst Darling líta á það sem
hlutverk sitt að „tala enga tæpi-
tungu“ við fólk.
Í dag er öllum ljóst að hann
hitti naglann á höfuðið.
Alls enginn ástmögur?
Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta, verður seint jafnvinsæll hér í fásinninu og nafni hans Mac-
Lean eftir að hann blandaði sér með afgerandi hætti í efnahagsuppnámið með umdeildum ummælum
Reuters
Niðursokkinn Alistair Darling yfirgefur þinghúsið í Lundúnum í vikunni.
Svipmynd
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
Í HNOTSKURN
»Alistair Maclean Darlingleit fyrst dagsins ljós í
Lundúnum 28. nóvember
1953.
»Darling gekk að eigablaðakonuna Margaret
McQueen Vaughan árið
1986. Þau eiga tvö börn,
soninn Calum, 20 ára, og
dótturina Önnu, 18 ára.
Þetta er annað hjónaband
Darlings.
»Darling býr í Morn-ingside-hverfinu í Edin-
borg, í sömu götu og met-
söluhöfundurinn J.K.
Rowling. Ef til vill lumar
hún á einhverjum galdra-
lausnum handa honum á
þessum síðustu og verstu
tímum?
»Darling er mikill áhuga-maður um dægurtónlist
og hefur mest dálæti á Pink
Floyd, Coldplay og Leonard
Cohen.
»Hermt er að hundr-uð knæpna hafi
hengt á útidyrahurðina
mynd af ráðherranum,
þar sem stóð skýrum
stöfum að hann væri
ekki velkominn.
Darling hefur því að lík-
indum sötrað ölið sitt í
einrúmi um stund.
grunnskóli - framhaldsskóli - háskóli
NÁMSAÐSTOÐ
íslenska - stærðfræði - enska - danska
franska - eðlisfræði - efnafræði - tölfræði
þýska - spænska - lestur - stafsetning o.fl.
greining á lestrarerfiðleikum
Nemendaþjónustan sf. Sími 557 9233 • www.namsadstod.is