Morgunblaðið - 12.10.2008, Side 16
16 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Frá því Katie Couric fékksinn eigin þátt fyrirtveimur árum á CBS-sjónvarpsstöðinni, CBS
Evening News with Katie Couric,
þar sem hún er bæði fréttaþulur
og ritstjóri hefur áhorf verið undir
væntingum og raunar dvínandi til
skamms tíma. Það út af fyrir sig
hefur þótt fréttnæmt, rétt eins og
þegar hún, fyrst kvenna, var ráðin
til að stjórna eigin fréttaþætti á
einni af þremur stærstu sjónvarps-
stöðvum Bandaríkjanna.
Þótt látið hafi verið í veðri vaka
að framtíð Couric og þáttarins
væri í húfi kveður nú við allt ann-
an tón. Katie Couric er á hvers
manns vörum og frammistaða
hennar lofuð í hástert. Hún þykir
fara á slíkum kostum í umfjöllun
sinni og viðtölum í tengslum við
forsetakosningarnar 2008 að sumir
velta því fyrir sér í fullri alvöru
hvort úrslitin séu undir henni kom-
in. Einkum eftir að hún tók Söru
Palin, ríkisstjóra Alaska og vara-
forsetaframbjóðanda Repúblik-
anaflokksins, í nefið undir lok síð-
asta mánaðar; afhjúpaði fávísi
hennar og vanhæfni. Að vísu segja
gárungarnir að til þess hafi svo-
sem ekki þurft sérstaka snilligáfu.
Hvað sem því líður lét hún Palin
ekki komast upp með að víkja sér
undan spurningunum, spurði ein-
faldlega aftur og aftur – og aftur
þegar frambjóðandinn svaraði út í
hött eða flækti málin í innantómu
orðskrúði.
Því miður fyrir CBS var áhorfið
samt ekki í samræmi við allt um-
talið sem þátturinn vakti, endalaus
viðtöl og vangaveltur um viðtalið,
endursýningar og skopstælingar á
CNN, YouTube og fleiri miðlum
auk þess sem grínleikkonan Tina
Fay fékk enn einu sinni tækifæri
til að bregða sér í gervi Söru Palin
í Saturday Night Live á NBC.
Ábyggilega versta vika Palin frá
því hún bauð sig fram sem vara-
forseti og besta vika Couric hjá
CBS. Stundum er eins og eins
dauði sé annars brauð.
„Í rauninni hef ég aldrei misst
trú á hæfileikum mínum, sem ég
held að séu býsna undursamlegir,“
sagði Couric við The New York
Times eftir að góður rómur hafði
hvarvetna verið gerður að umfjöll-
un hennar um kosningabaráttuna.
„Ég hafði í rauninni ekki mikið
svigrúm til að gera það sem ég
skara fram úr í, sem er að tala við
fólk og taka viðtöl,“ bætti hún við.
Fréttamaður
á ofurlaunum
Íslendingar þekkja Katie Couric
helst úr 60 mínútum þar sem hún
hefur verið í hópi harðsnúinna og
gamalreyndra fréttamanna síðan
hún réð sig til CBS í september
2006. Þar á bæ kynnir hún líka
sérstaka fréttaþætti á kjörtíma,
CBS News primetime specials.
Hún býður af sér góðan þokka,
en lítur ekki beinlínis út fyrir að
vera til stórræðanna, litfríð og
ljóshærð með blá sakleysisleg
augu, breitt bros og skjannahvítar
tennur, grönn og ungleg fyrir sín
ríflega fimmtíu ár. Eins og jafnan
þegar kona á í hlut er útliti hennar
mikill gaumur gefinn, stutt pils og
fagrir fótleggir hafa því orðið til-
efni til margra ummæla á netinu.
Couric hefur fengið margar rósir
í hnappagatið fyrir störf sín í
meira en aldarfjórðung sem dag-
skrárgerðar- og fréttamaður og er
núna talin sá hæstlaunaði með 15
milljónir dollara á ári. Hún hefur
tekið ógrynni viðtala við innlenda
sem erlenda stjórnmálamenn; fyrr-
verandi og sitjandi forseta, for-
sætisráðherra, forsetaframbjóð-
endur, t.d. tók hún fyrsta
sjónvarpsviðtalið við Hillary Clin-
ton, dægurstjörnur, menning-
arvita, viðskiptajöfra, glæpamenn
og lítilmagna. Þá hefur hún verið á
vettvangi og flutt fréttir af helstu
atburðum, hamförum og harm-
leikjum, sem skráð verða á spjöld
sögunnar, t.d. árásunum á tvíbura-
turnana í New York 11. sept-
ember, skólafjöldamorðunum í Col-
umbine, Colorado, sex
ólympíuleikum, jarðarför Díönu
prinsessu, sprengingunni í Okla-
homa og í framhaldinu aftöku Tim-
othys McVeighs. Um aldamótin
gerði hún svo þætti, nokkurs kon-
ar aldarspegil, ásamt Tom Bro-
kaw, ritstjóra NBC Nightly
News.
Inni á flestum heimilum
Leið Couric inn í stofu til
milljóna manna um allan heim
virðist hafa verið breið en
ekki bein. Hún var allsendis
óbangin við að skipta um
starf ef henni fannst grasið
grænna hinum megin við
ána.
Þótt ekki væri nema sök-
um fríðleikans kemur tæp-
ast á óvart að Couric var
klappstýra í framhaldsskóla
sínum í Arlington í Virg-
iníu, þar sem hún ólst upp
hjá foreldrum sínum og
þremur systkinum. Haft
er eftir gömlum kennara
hennar að hún hafi verið
frábær í stærðfræði. En
Couric kaus ekki að leggja
reikningskúnstina fyrir
sig, heldur hóf nám í
ensku og bandarískum
fræðum í háskólanum í
Virginíu og útskrifaðist
með meistaragráðu 1979.
Hún fékk smjörþefinn af
blaðamennsku í háskólanum
þegar hún var aðstoðarritstjóri
skólablaðsins og starfaði samhliða
námi við svæðisútvörp. Eftir út-
skrift réð hún sig sem aðstoð-
armanneskju hjá ABC-fréttastöð-
inni í Washington og fylgdi síðan
yfirmanni sínum til starfa á CNN í
sömu borg, þar sem hún hafði um-
sjón með ákveðnum verkefnum og
vann á bakvið tjöldin þar til 1981
að hún fór að birtast annað slagið
á skjánum.
Áður en Couric haslaði sér völl
svo heitið gæti sem fréttamaður
flakkaði hún milli sjónvarpsstöðva
og borga; t.d. Atlanta, Miami og
loks aftur til Washington í árslok
1986, þar sem hún hóf störf hjá
WRC-TV, sjónvarpsstöð í eigu
NBC. Árið 1989 varð hún fréttarit-
ari NBC um varnarmál. Umfjöll-
unarefni hennar höfðu alla jafna
verið á öðrum nótum, t.d. um
barnaklám og heimilislaust fólk, og
árið áður hafði hún unnið Emmy-
og Associated Press-verðlaunin
fyrir þátt um stefnumótaþjónustu
fyrir fatlaða.
Tilbreytingarleysið réð ekki ríkj-
um hjá NBC því ekki leið á löngu
þar til Couric fór til New York og
gerðist fréttamaður morgunfrétta-
og spjallþáttarins The Today Show
þar sem hún varð meðstjórnandi
1991. Katie Couric var komin inn á
nánast hvert heimili í Bandaríkj-
unum.
Þótt hún yndi hag sínum prýði-
lega og áhorfstölur væru góðar
ákvað hún að slá til þegar CBS
bauð henni sinn eigin þátt. Sam-
starfsmenn kvöddu hana með kurt
og pí í beinni 31. maí 2006 og sjálf
var Couric hrærð þegar hún sagði:
„Þótt það kunni að vera ógnvekj-
andi að fara úr ykkar þægilega
faðmi er mjög spennandi að hefja
nýjan kafla í lífi sínu.“ Ætla mætti
af framangreindu – og er fjarri því
allt upp talið sem Couric hafði
fengist við um dagana, að hún ætti
sér ekkert líf utan vinnu. Öðru
nær. Hún hefur skrifað tvær
barnabækur, er sjálfstæð móðir
tveggja stúlkna, fæddra 1991 og
1996, en maður hennar, Jay Mo-
nahan, lögmaður og lögfræðilegur
sjónvarpsfréttaskýrandi, lést af
ristilkrabbameini 1998, aðeins 42
ára.
Annað líf
Eftir lát hans gerðist Couric öt-
ull talsmaður baráttunnar gegn
þessu öðru banvænasta krabba-
meini í Bandaríkjunum. Í sam-
vinnu við fyrirtæki í skemmt-
anaiðnaðinum beitti hún sér fyrir
stofnun krabbameinsleitarstöðvar
til að fjármagna forvarnir og helg-
aði málefninu nokkra þætti í The
Tonight Show árið 2000. Sýnt var
fram á nauðsyn á skimun til að
greina meinið á frumstigi og vakti
sérstaka athygli að sjálfur þátta-
stjórnandinn fór í ristilspeglun í
beinni.
Árangurinn kom fljótt í ljós; eft-
ir þáttinn fóru 20% fleiri í rist-
ilspeglun. Vísindamenn í Michigan-
háskólanum töluðu um Couric-
áhrifin.
Hún lét ekki staðar numið held-
ur var í forsvari fyrir stofnun
læknamiðstöðvar í New York í
nafni eiginmanns síns sáluga. Stöð-
in var opnuð 2004 og er krabba-
mein í kviðarholi meginviðfangs-
efni hennar. Barátta Couric hefur
lagt rannsóknum á ristilkrabba-
meini til tugi milljóna dollara og
kann að hafa smitað út frá sér í
sjónvarpsheima því stærstu stöðv-
arnar, ABC, CBS og NBC, efndu
núna síðsumars til átaks í barátt-
unni við krabbamein, Stand Up To
Cancer. Sér til fulltingis fengu
þær málsmetandi fólk og frægar
dægurstjörnur á fjáröfl-
unarsamkomu í Hollywood.
Katie Couric var á staðnum.
Hugsanlega smákusk
á hvítflibbanum
Couric hefur í nógu að
snúast í aðdraganda for-
setakosninganna. Samhliða
sjónvarpsþættinum heldur hún
úti öflugri kosningaumfjöllun á
cbsnews.com og hefur þar brydd-
að upp á ýmsum nýjungum. Til að
mynda eru vikulega birt svör
varaforseta- og forsetaframbjóð-
endanna við spurningum hennar
um persónulegt álit þeirra á
mönnum og málefnum eða bara
um hver sé uppáhaldsbíómyndin
þeirra.
Í fyrra varð uppi fótur og fit
þegar einn pistla Couric á CBS-
vefnum, Katie Couric’s Notebook,
eða minnisbók Katie Couric, þótti
líkjast ískyggilega mikið grein
blaðamanns í Wall Street Journal.
Upp úr dúrnum kom að Couric
skrifar pistla sína ekki sjálf, þótt
þeir séu skrifaðir í fyrstu persónu.
CBS viðurkenndi að umræddur
pistill væri í raun ritstuldur án
vitundar hennar og sá sem lagði
henni til efnið hefði verið látinn
fjúka. Couric heldur því samt
statt og stöðugt fram að hún hafi
skrifað pistilinn. Hann er horfinn
af netinu.
Áhorf á þátt Couric eykst jafnt
og þétt og ef marka má orð for-
stjóra CBS í The New York Times
nýlega er framtíð hennar tryggð í
bili. „Ég hef lengi sagt að við
þurfum að einbeita okkur að inni-
haldinu, ekki áhorfstölum,“ sagði
hann.
Vissulega skynsamlega mælt,
þótt stundum sé eins og bullið í
viðmælendum auki áhorfið meira
en flest annað. Svona eru Banda-
ríkin í dag.
Sjónvarpsstjarnan Katie Couric hlífir engum, ekki heldur varaforseta- og forsetaframbjóðendum,
sem sitja fyrir svörum í þætti hennar á CBS-sjónvarpsstöðinni. Áhorfið eykst hægt og bítandi
Sjónvarp
Eftir Valgerði Þ. Jónsdóttur
vjon@mbl.is
Couric-áhrifin
Baráttukona Þætt-
ir Katie Couric
hafa oft verið
helgaðir átaki í
þágu góðs mál-
staðar. Hún
mætti nýverið
á fjáröfl-
unarsamkomu
í Hollywood,
sem stærstu
sjónvarpsstöðv-
arnar, ABC,
CBS og NBC,
efndu til í barátt-
unni við krabba-
mein, Stand Up
To Cancer.
Couric: Þú hefur sagt, tilvitnun hefst: „John McCain ætlar að umbreyta
því hvernig viðskiptin ganga fyrir sig á Wall Street.“ Annað en að styðja
strangari reglur hjá Fannie Mae og Freddie Mac [íbúðalánasjóðir] fyrir
tveimur árum, getur þú sagt okkur fleiri dæmi um forystu hans til að
koma á strangara eftirliti?
Palin: Ég held að dæmið sem þú nefndir, með viðvöruninni fyrir tveim-
ur árum um Fannie og Freddie – það, það er mikilvægast. Það er meira
en skrambi margir þingmenn í öldungadeild og fulltrúadeild gerðu fyrir
okkur
Couric: En hann hefur verið á þingi í 26 ár. Hann hefur verið formaður
hinnar valdamiklu viðskiptanefndar þingsins. Og hann hefur næstum
alltaf tekið afstöðu með minni reglum, ekki meiri.
Palin: Hann er líka þekktur sem maður sem fer sínar eigin leiðir, hann
hefur verið skotskífa eigin flokks, og vissulega oft hins flokksins. Hann
reynir að fá fólk til að skilja hvað hann hefur verið að tala um – þörfina á
að endurnýja ríkisstjórnina.
Couric: En getur þú gefið mér önnur raunhæf dæmi? Af því ég veit að
þú hefur sagt að Barack Obama tali bara mikið en geri ekki neitt. Getur
þú gefið mér einhver önnur dæmi á 26 ára ferli John McCains sem sýna
að hann taki forystu í þessu [viðskiptaháttum]?
Palin: Ég get gefið þér dæmi um það sem John McCain hefur gert, að
hann hafi sýnt fyrirhyggju, raunsæi og leiðtogahæfileika. Og það er það
sem Bandaríkin þarfnast núna.
Couric: Ég ætla aðeins að spyrja þig enn einu sinni – ekki til að þrástag-
ast á þessu atriði. Nákvæm dæmi á 26 ára ferli hans, sem sýna að hann
leggi kapp á strangari reglur.
Palin: Ég skal reyna að finna nokkur fyrir þig og koma með þau til þín.
Brot úr dæmalausu viðtali
Reuters