Morgunblaðið - 12.10.2008, Side 17
» Sú hætta er raunveruleg,góðir landsmenn, að íslenska
þjóðarbúið myndi, ef allt færi á
versta veg, sogast með bönk-
unum inn í brimrótið og afleið-
ingin yrði þjóðargjaldþrot.
Geir H. Haarde, forsætisráðherra, í
ávarpi til þjóðarinnar, þar sem hann boð-
aði að stjórnvöld þyrftu að grípa til gríð-
arlega róttækra aðgerða í efnahags-
málum.
» Hlutirnir fara hins vegarsem betur fer sjaldnast jafn
illa og maður ætlar.
Sóley Dröfn Davíðsdóttir , sérfræðingur í
klínískri sálfræði við Kvíðameðferð-
arstöðina.
» Maður heitir bara herraSkandinavía núna.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson , knatt-
spyrnumaður, tryggði liði sínu Esbjerg
1:0 sigur á AGF í dönsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu.
» Það þarf einstakan klaufa-skap stjórnvalda til að búa
ekki svo um hnútana að brýn-
ustu nauðsynjar séu til staðar í
einu ríkasta landi heims.
Þór Sigfússon , formaður Samtaka at-
vinnulífsins, varar við því að dregin sé upp
dekkri mynd af efnahagsástandinu í land-
inu en efni standa til.
» Það sem þarf að gera er aðslá ákveðinn hring utan um
íslenskt atvinnulíf og íslensk
heimili.
Vilhjálmur Egilsson , framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins.
» Þetta er alltof stór biti aðkyngja.
Ung kona, sem ásamt manni sínum, tók í
fyrra 20 milljóna króna myntkörfulán til
25 ára hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum
til að fjármagna húsbyggingu.
» Vissulega var staðan mjögþröng, eftir hina vitlausu
ákvörðun sem tekin var af
Seðlabankanum síðasta mánu-
dag. Þetta eru því neyð-
arviðbrögð við þeirri vitlausu
ákvörðun.
Jón Ásgeir Jóhannesson , stjórn-
arformaður Baugs Group, um lögin, sem
samþykkt voru á Alþingi, og ganga út á að
fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisins fái
heimild til að leggja fram fjármagn til að
stofna nýtt fjármálafyrirtæki eða yfirtaka
fjármálafyrirtæki í heild eða að hluta við
sérstakar aðstæður.
» Ég heyrði þetta bara áðan,alveg eins og þú örugglega.
Guðmundur Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Íbúðalánasjóðs, um yfirtöku sjóðs-
ins á íbúðalánum bankanna.
» Nú fá ríki heims og fjár-málastofnanir og ein-
staklingar tækifæri til að end-
urskipuleggja sig með visku,
hagsýni og hófsemi og um-
hyggju að leiðarljósi.
Karl Sigurbjörnsson , biskup Íslands.
» Það er mikilvægt fyrirmennta- og menningarstarf í
landinu að þessum fram-
kvæmdum verði haldið áfram.“
Hjálmar H. Ragnarsson , rektor Listahá-
skóla Íslands, en hann vonast til að áform
um byggingu skólans við Laugaveg verði
haldið áfram þrátt fyrir hremmingar í
efnahagslífinu.
» Við vorum ekki í vanskilum,vorum með nægt laust fé og
góða eignastöðu. En fyrirtækið
var tekið af okkur með valdi í
Bretlandi og við gátum ekkert
gert.“
Viðmælandi Morgunblaðsins í Kaupþingi,
eftir að Fjármálaeftirlitið tók við stjórn
bankans.
Það var rétt í þessum kringumstæðum.
» Við höfum líka áhyggjur afpeningum sem var verið að
flytja frá London, til Íslands,
fyrir nokkrum dögum.
Gordon Brown , forsætisráðherra Bret-
lands, varpaði ábyrgðinni á tapi breskra
sparifjáreigenda í Icesave á Íslendinga.
» Að sjálfsögðu.
Geir H. Haarde , forsætisráðherra, spurð-
ur hvort hann bæri fullt traust til Davíðs
Oddssonar seðlabankastjóra.
Ummæli vikunnar
Óttinn við óttann Der Spiegel
fjallar um sálfræðihliðar fjár-
málakreppu.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 2008 17
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Álfabakka 16, 109 Reykjavík sími 585-1300 www.heilsugaeslan.is
Bólusetning gegn inflúensu
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins vill vekja athygli almennings á því að skipulögð
bólusetning gegn inflúensu hefst á öllum heilsugæslustöðvunum mánudaginn 13. október 2008.
Hverjum er einkum ráðlagt að láta bólusetja sig?
Öllum sem orðnir eru 60 ára.
Öllum, bæði börnum og fullorðnum, sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og
lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
Starfsfólki heilbrigðisþjónustu og öðrum sem daglega annast fólk með aukna áhættu.
Þeir sem tilheyra ofangreindum hópum fá bóluefnið sér að kostnaðarlausu en greiða komu-
gjald samkvæmt reglugerð nr. 1265/2007. Í síðasttalda hópnum eru það þó einungis heilbrigðis-
starfsmenn sem ekki greiða fyrir bóluefnið. Fyrirkomulag bólusetningar getur verið mis-
munandi milli heilsugæslustöðva. Vinsamlegast leitið upplýsinga á vef Heilsugæslunnar
www.heilsugaeslan.is eða hafið samband við hlutaðeigandi heilsugæslustöð.
Heilsugæslan Árbæ, Reykjavík s: 585 7800
Heilsugæslan Efra-Breiðholti, Reykjavík s: 513 1550
Heilsugæslan Efstaleiti, Reykjavík s: 585 1800
Heilsugæslan Fjörður, Hafnarfirði s: 540 9400
Heilsugæslan Garðabæ s: 520 1800
Heilsugæslan Glæsibæ, Reykjavík s: 599 1300
Heilsugæslan Grafarvogi, Reykjavík s: 585 7600
Heilsugæslan Hamraborg, Kópavogi s: 594 0500
Heilsugæslan Hlíðum, Reykjavík s: 585 2300
Heilsugæslan Hvammi, Kópavogi s: 594 0400
Heilsugæslan Miðbæ, Reykjavík s: 585 2600
Heilsugæslan Mjódd, Reykjavík s: 513 1500
Heilsugæsla Mosfellsumdæmis s: 510 0700
Heilsugæslan Seltjarnarnesi s: 561 2070
Heilsugæslan Sólvangi, Hafnarfirði s: 550 2600
Heilsugæslan Lágmúla 4, Reykjavík s: 595 1300
Heilsugæslan Salahverfi, Kópavogi s: 590 3900
Búast má við að bólusetning geti veitt a.m.k. 70% vörn gegn sjúkdómnum auk þess sem hann
verður vægari hjá þeim í hópi bólusettra sem veikjast. Þeim sem leita vilja ráðgjafar er bent á
sína heilsugæslustöð.
Upplýsingar er að finna á vef Heilsugæslunnar, www.heilsugaeslan.is
Fræðsluefni um inflúensu má finna á vef Landlæknisembættisins, www.landlaeknir.is
Reykjavík 12. október 2008.
Leiðtogafundinum í Reykjavík lauk á þessum degi,
12. október, árið 1986.
Dagana 11. og 12. október 1986 sátu þeir Ronald Reagan Bandaríkja-
forseti og Míkhaíl Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, á fundum í Höfða
og ræddu afvopnunarmál.
Fyrirvari fundarins var mjög skammur, aðeins átta dagar. Íslend-
ingar brettu upp ermarnar og þegar þjóðhöfðingjarnir komu til lands-
ins var allt til reiðu. Athygli umheimsins alls beindist að Íslandi og höf-
uðborginni. Og athygli íslenskra sjónvarpsáhorfenda beindist að
hurðarhúninum í Höfða, en oft hefur verið hent gaman að því hversu
lengi myndavélinni var beint að hurð hússins, á meðan beðið var fregna
af fundinum.
Þegar fundinum lauk voru menn vonsviknir og töluðu um að ætl-
unarverkið hefði mistekist. En þessir dagar í Reykjavík árið 1986
reyndust örlagaríkir því fundurinn leiddi til þess að Reagan og Gorbat-
sjov undirrituðu gagnkvæmt afvopnunarsamkomulag árið 1987.
Á þessum degi …
Gangandi og hjólandi vegfarendur
þurfa að vera sérstaklega vakandi í
umferðinni. Sjónum er sérstaklega
beint að þeim á evrópska umferð-
aröryggisdeginum á morgun, mánu-
dag.
Umferðarstofa hefur ákveðið að
helga evrópska umferðarörygg-
isdaginn öryggi gangandi og hjól-
andi vegfarenda. Þessi hópur veg-
farenda hefur stundum verið
kallaður óvarðir vegfarendur þar
sem hvorki járngrind né -búr hlífir
þeim ef slys ber að höndum.
Fyrstu 7 mánuði þessa árs hafa
73 einstaklingar slasast í þessum
hópi vegfarenda. Þar af 10 sem slös-
uðust alvarlega. Í öllum tilfellum
var um að ræða gangandi en á
þessu tímabili slasaðist enginn á
hjóli.
Það að hjóla og ganga á ekki hvað
síst erindi núna þegar miklu skiptir
að fólk leiti sér leiða til sparnaðar
og eflingar á andlegri og líkamlegri
hreysti. Í því sambandi skiptir
miklu máli að öryggi þessara veg-
farenda sé eflt til muna, að mati
Umferðarstofu, sem segir gott að
hafa eftirfarandi í huga:
Þegar ökumenn taka beygju á
gatnamótum þurfa þeir að gæta
þess að veita gangandi vegfar-
endum og hjólreiðamönnum for-
gang þvert yfir þá akbraut sem ekið
er inn á. Þetta á líka við þegar ekið
er inn í eða út úr hringtorgum.
Ökumaður á að sýna gangandi
vegfarendum sérstaka tillitssemi og
víkja fyrir þeim. Og fyrsta reglan er
auðvitað að stansa fyrir gangandi
vegfarendum við gangbraut.
Gangandi vegfarendur verða
að gæta þess að grænt ljós logi fyrir
þá áður en þeir hætta sér yfir götu.
En verða samt að hafa varann á sér,
því sumir ökumenn virða ekki einu
sinni rauða ljósið!
Ökumenn eiga ekki að stansa
fyrir gangandi umferð á gangbraut-
arljósum nema gult eða rautt ljós
logi á móti þeim.
Í tilefni umferðaröryggisdagsins
verður lögregla höfuðborgarsvæð-
isins með sérstakt eftirlit með því
að gangandi vegfarendur virði um-
ferðarljós. Þá verður gætt að því að
ökutækjum sé ekki lagt ólöglega,
t.d. á gangstígum þar sem þau
hindra för gangandi og hjólandi og
skapa mikla hættu og óþægindi,
ekki hvað síst fyrir fatlaða og
blinda.
Öruggast er fyrir hjólreiðamenn
að halda sig á þar til gerðum stíg-
um. Kort sem sýnir hjólastíga á höf-
uðborgarsvæðinu má finna á
www.reykjavik.is. Og ekki er þá úr
vegi að kynna sér fræðslumynd um
öryggi hjólreiðamanna á www.us.is.
Á hjóli og tveimur jafnfljótum
Morgunblaðið/Golli
HÉR fara yngstu vegfarendurnir yfir gangbraut vel gallaðir í rigningunni
og njóta leiðsagnar þeirra sem eldri eru.