Morgunblaðið - 12.10.2008, Síða 25
menn gagnrýndu sína erlendu og
innlendu páfa og hægri menn sína,
þegar þeir fóru út af sporinu. Og
slík sjálfsgagnrýni varð þrátt fyrir
allt öflugri eftir því sem á leið. Nú
tala menn stundum eins og kalda
stríðið hafi byrjað um 1949 og hal-
dizt óbreytt alla tíð þar til það guf-
aði upp einn góðan veðurdag: púff
og allt búið. Það var ekki þannig.
Það var stöðug gerjun allan tímann.
Það sem mér finnst leiðinlegast
við pólitíkina á okkar tímum er ein-
stefnan í henni, að sagan sé á enda
og hafi náð fullkomnun í frjáls-
hyggjunni. Við sjáum nú framan í
þá fullkomnun þessa dagana og ekki
er hægt að segja að ásjónan sé
frýnileg.“
– Heldurðu að pólitíkin verði
næsta bókarefni þitt?
„Það er freistandi að velta fyrir
sér pólitískri sögu okkar aldar og
tengja hana við eigin reynslu. Þegar
ungur maður skrifar bók á hann allt
sitt undir því að vera eins og barn
og láta aðra heillast með sér af því
að honum er allt nýtt. Þegar gamall
maður skrifar bók ríður honum á að
ráðast gegn ofgnótt og óreiðu í hug-
arhúsum og komast að skýrri nið-
urstöðu um það sem er honum
kjarni máls.
Hvort nokkuð verður af slíkri
pólitískri og um leið persónulegri
sögu veit ég ekki nú. Það er svo
fljótt að fyrnast yfir hlutina. Og þá
getur reynzt jafnvel enn erfiðara að
finna hlutum stað en í glímunni við
Guð.“
Morgunblaðið/Kristinn
freysteinn@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 2008 25
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
Gareth Pugh er nýjasti breskihönnuðurinn sem slær í gegn.Hann tók við alþjóðlegu AN-DAM-tískuverðlaununum við
hátíðlega athöfn í París um síðustu helgi.
Franska ríkisstjórnin stendur á bak við
verðlaunin ásamt Pierre Bergé-Yves Sa-
int Laurent stofnuninni, lúxusrisanum
LVMH, Swarovski, Longchamp og fleir-
um. Verðlaunaféð er 150.000 evrur og
fer í að efla fatamerki hans. Verðlaun-
in þykja hafa mikla þýðingu í tísku-
heiminum en á meðal þeirra sem hef-
ur hlotnast þessi heiður eru hinn
belgíski Martin Margiela og hol-
lenska tvíeykið Viktor & Rolf.
„Að sýna á tískuvikunni í London
hefur verið frábært. En að fá nú
tækifæri til að njóta alþjóðlega um-
hverfisins í París á eftir að efla fyr-
irtæki mitt,“ sagði Pugh en hann
sýndi í fyrsta sinn í París á nýlið-
inni tískuviku.
Sýning hans á fatalínu vors og
sumars 2009 vakti athygli í tísku-
höfuðborginni. Fötin voru eins
og skúlptúrar í svörtu og hvítu.
Fyrirsæturnar voru með kraga í
anda Elísabetar fyrstu Eng-
landsdrottningar og má geta
sér til um að innblásturinn hafi
jafnt komið þaðan og frá
Stjörnustríðs-myndunum. Föt-
in minntu nefnilega á brynjur.
Fötin minntu líka á origami-
list og ýmis náttúruform
með brettum og fettum.
Efniviðurinn var leður,
plast, vínyll og satín.
BRESKI fatahönnuðurinn Gareth Pugh fæddist 31.
ágúst 1981. Hann byrjaði að vinna 14 ára gamall sem
búningahönnuður fyrir Enska ungmennaleikhúsið
(English National Youth Theatre). Hann var í ballett
frá 8-16 ára aldurs en valdi listferil fram yfir dans-
inn. Hann stundaði nám í fatahönnun við Sunderland-
háskóla og síðar hinn virta listaháskóla Central Saint
Martins í London. Hann útskrifaðist þaðan árið 2003
og vakti lokasýning hans athygli tímaritsins Dazed &
Confuzed, sem setti hann á forsíðuna aðeins nokkrum
mánuðum eftir útskrift.
Stuðningur tískuheimsins
„Mér finnst Gareth áhugaverður vegna þess að
fólk skilur ekki alveg hvað hann er að gera,“ sagði
Jefferson Hack, útgefandi Dazed & Confused, í ný-
legu viðtali við The Independent. „Ég féll strax fyrir
hönnun hans og ég var viss um að hann væri hæfi-
leikaríkur, annars hefði ég aldrei sett hann á for-
síðuna svona snemma á ferlinum. Ég gerði reynd-
ar ráð fyrir því að hann myndi væntanlega sýna
einu sinni á ári, kannski í galleríi, og framleiða
línu sem samanstæði af 10 flíkum sem seld-
ust fyrir um 50.000 pund hver. Núna er
það þó að verða sífellt skýrara hversu
mikilvægur hönnuður hann er og
hvaða stöðu hann gæti tekið sér innan
tískuheimsins.“
Til viðbótar kom það Pugh á kortið
að hann fékk tækifæri til að sýna á
tískuvikunni í London haustið 2005, sem
hluti af „Fashion East“, þar sem áherslan
var á unga hönnuði. Á þeim tíma var hann
þegar orðinn þekkt nafn í neðanjarðarmenn-
ingarheiminum og á meðal listaspíra Lund-
únaborgar.
Klæddi Kylie og Manson
Þrátt fyrir að það séu nokkur ár síðan hann vakti
fyrst athygli hafði hann ekki selt eina einustu flík þar
til fyrir átján mánuðum. Hann hafði þó séð um að
klæða Kylie fyrir Showgirl-tónleikaferðalagið og líka
fundið til fatnað á rokkarann Marilyn Manson.
Fyrsta einkasýning Pughs var í London á tískuvik-
unni á fatalínum hausts og vetrar 2006. Eftir það hef-
ur stöðugt bæst í aðdáendahóp hans. Breska Vogue
sagði vorlínu hans 2007 „ótrúlega og ómissandi“ og
einnig að hann væri „greinilega snillingur“. Hönn-
uðurinn á líka öflugan bakhjarl í Önnu Wintour, rit-
stjóra tískubiblíunnar bandaríska Vogue.
Hinn þekkti tískuljósmyndari Nick Knight hefur
starfað nokkuð með Pugh. „Gareth fylgir í kjölfar
hóps fólks sem er með sérlega persónulega sýn á
heiminn og hleypir manni í nýjan heim. Hann minnir
á John Galliano, Yohji Yamamoto, Alexander
McQueen eða Vivienne Westwood.“
Ekki amaleg samlíking það.
Hver er Gareth Pugh?
Verðlaunahafinn Pugh er hann tók á móti ANDAM-
verðlaununum í París um síðustu helgi.
Hermaður Í anda Stjörnustríðs.Líka klæðilegt Þessi kjóll er töff.Origami-list Óvenjulegur kragi. Flott Ekki abbast upp á hana!
Brynjaðar drottningar
AP
Andi hennar há-
tignar Elísabetar
fyrstu Englands-
drottningar svífur
yfir vötnum.