Morgunblaðið - 12.10.2008, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 2008 37
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Barnagæsla
Au pair
Íslensk/þýsk fjölsk. búsett við Dussel-
dorf, m. 2 börn, óskar eftir au pair
sem fyrst. Áhugasamar vinsamlegast
sendi uppl. á rafnar68@hotmail.com
Dýrahald
Til sölu fallegir labrador hvolpar
Ættbók frá HRFÍ fylgir með.
Uppl. í síma: 899 7614 og 566 7614.
Ferðalög
Íbúðir til leigu í Barcelona á
Spáni, hagstætt verð, Costa
Brava Playa de Aro, Baliares-
eyjan, Menorca Mahon, Vallado-
lid, www.helenjonsson.ws
Sími 899 5863.
Heilsa
GRUNNNÁMSKEIÐ Í EFT
(Emotional Freedom Techniques)
Námskeið verður: Helgina 1.–2. nóv.
á Hótel Loftleiðum.
EFT er árangursrík leið til sjálfsstyrk-
ingar. Hentar leikum sem lærðum
sem vilja styrkja og vinna að betri
líðan hjá sér og öðrum.
Viðar Aðalsteinsson
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT.
www.theta.is, sími 694 5494.
Einstaklings-, hjóna- og
fjölskyldumeðferð
Líður þér ekki nógu vel, hjónabandið í
molum eða sálin tætt? Tímapantanir í
síma 615-2161, Gréta Jónsdóttir,
Einstaklings-, hjóna- og fjölskyldu-
meðferð.
Aloe vera djús
Er náttúrulegur græðari sem læknar
innanfrá. Er í miklum metum hjá fólki
með liðagigt, húðvandamál, melting-
aróreglu, eflir afeitrun lifrarinnar og
er vatnslosandi. Dagmar s. 557 2398.
Geymslur
Tjaldvagna-, felli- og hjólhýsa-
geymslur
Upphitað húsnæði á höfuðborgar-
svæðinu til leigu fyrir tjaldv., felli- og
hjólhýsi. Uppl. í síma: 893-9777.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús.
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Stórglæsilegt sumarhús til leigu
Til leigu 97 fm sumarhús, þar af 25
fm milliloft. Húsið er staðsett í
Brekkuskógi, um 15 mínútna akstur
frá Laugarvatni. Þau gerast ekki mikið
flottari! Heitur pottur. Sími 841 0265.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Langar þig að læra spænsku?
Frú Mínerva reddar því! Grúskarinn
hefst 20. okt. Nánari upplýsingar á
www.fruminerva.is og í síma
552 3578.
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga. Vatns-
klæðning, panill, pallaefni, parket
o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði.
Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Málarar
Málningarvinna
Þaulvanur málari ætlar að bæta við
sig verkefnum. Inni og úti. Vönduð og
öguð vinnubrögð. Sanngjarnt verð.
Uppl. í síma 897 2318.
Ýmislegt
Úrval af mjög þægilegum dömuskóm
úr leðri og með skinnfóðri.
Litir: hvítt, beige, brúnt og svart
Stærðir: 36 - 41. Verð: 8.975.-
Vandaðir skór á góðu verði.
Misty skór Laugavegi 178
sími 551 2070
opið: mán - fös 10 - 18
lau 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Tískuverslunin Smart,
Grímsbæ / Bústaðavegi
Nýkomið – Buxur,
peysur, kjóll.
Kjóll, grár. St. S-XXL.
Peysa. Litir. svart, fjólublá, rautt,
græn. St. S-XXL, st. 42-56. Galla-
buxur, svartar, bláar. St. 36-54.
Sími 588 8050.
Mikið úrval
af hárspöngum og hálsklútum.
Skarthúsið, Laugavegi 12.
sími 562 2466.
Lífsorka. Frábærir hitabakstrar
Betra líf, s. 581 1380, Kringlunni.
Gigtarfélag Íslands, s. 530 3600,
Umboðsm. Hellu, Sólveig sími
863 7273. www.lifsorka.com
Bílar
Volfswagen GOLF 2002 til sölu
m/sóllúgu, álfelgur og fl. Toppbíll í
frábæru standi, eins og nýr, verð:
950.000, -lán 50%óverðtr..afb ca. 23
þús pr mán.Uppl.í síma 896 3362.
Árg. '07, ek. 32 þús. km
Subaru Legacy spec-b, óska eftir
yfirtöku á láni, rúmlega 5 m. Mánað-
arleg afborgun 90-100 þ. 1.2 milljónir
fylgja með í peningum. Vantar virki-
lega að selja bílinn. Hörður
s: 864-9988.
Hjólbarðar
Nagladekk undan Polo til sölu
Lítið notuð nagladekk undan Polo til
sölu, tilboð óskast. Upplýsingar í
síma 662-4156.
Húsviðhald
Þarftu að breyta eða bæta heima
hjá þér?
Eða þarftu aðstoð í nýbyggingunni?
Við erum til í að aðstoða þig við alls-
konar breytingar. Við erum til í að
brjóta niður veggi og byggja upp nýja,
breyta lögnum, flísaleggja eða
parketleggja og fl. Bjóðum mikla
reynslu og góð vinnubrögð.
Upplýsingar í s. 899 9825.
Einkamál
Stefnumót.is
"Þar sem Íslendingar kynnast". Ertu í
makaleit? Leitar þú nýrra vina? Vant-
ar þig dansfélaga? Ferðafélaga?
Göngufélaga? Spjallfélaga? Nýttu
þér vandaðan vef til að kynnast fólki
á þínum forsendum. Stefnumót.is
Vertu ævinlega velkomin/n.
Þjónustuauglýsingar 5691100
ÞAÐ ER efnahagskreppa á Ís-
landi í dag, þetta hefur ekki farið
framhjá neinum manni. Það er líka
tönnlast stöðugt á því að við þessar
aðstæður eigum við ekki að leita að
blórabögglum, heldur að þjappa
okkur saman og vinna okkur út úr
þessum ógöngum. Vissulega þurfum
við að standa saman á slíkri ögur-
stund, fréttirnar eru alls ekki já-
kvæðar þar sem þeir svarsýnustu
tala um gjaldþrot heillar þjóðar. En
þrátt fyrir að við stöndum saman þá
er klárt mál að þeir auðmenn sem
sigldu bönkunum í þrot eru ekki að
fara að bjóða okkur sína aðstoð. Þeir
sem áttu bankana eru ennþá auð-
menn og eiga eignir í öðrum félögum
upp á hundruð milljarða. Ætla þeir
að þjappa sér upp að okkur? Ætla
þeir að bjóðast til þess að selja aðrar
eignir sínar til að reyna að lágmarka
skaðann sem við almenningur verð-
um fyrir, vegna þeirra? Jaa…spyr
sá sem ekki veit… Þeir sem bera
ábyrgð í þessu máli eru fyrrverandi
eigendur bankanna: Björgólfur Thor
Björgólfsson, Jón Ásgeir Jóhann-
esson, Sigurður Einarsson, Pálmi
Haraldsson, Hannes Smárason,
Björgólfur Guðmundsson, Hreiðar
Már Sigurðsson og aðrir eigendur
sem höfðu áhrif á fjárfestingastefnu
þessara banka. Eignir þessara
manna á að frysta í einum logandi
grænum, enda væri með því verið að
gefa tóninn um að menn komist ekki
upp með að stinga milljörðum undan
þegar þjóðabúið riðar til falls.
Stjórnmálamenn bera líka mikla
ábyrgð í þessu máli og enginn sem
setið hefur í ráðherrastóli síðan ís-
lensku bankarnir voru einkavæddir
getur fríað sig ábyrgð, þeir sem bera
mestu ábyrgðina eru: Davíð Odds-
son, Halldór Ásgrímsson, Geir H
Haarde, Guðni Ágústsson, Val-
gerður Sverrisdóttir, Árni Mathie-
sen og aðrir þeir sem voru í rík-
isstjórn frá einkavæðingartímanum.
Margir embættismenn bera óbeint
ábyrgð en skorti lagaheimildir og
úrræði til að spyrna við fótum. Um
leið og hægist á ber okkur skylda til
að draga þetta fólk til ábyrgðar.
ÓSKAR STEINN GESTSSON,
verkamaður.
Hverjir bera ábyrgð?
Frá Óskari Steini Gestssyni
ÞEIR sem horfðu á fréttamanna-
fund ríkisstjórnarinnar í Iðnó í
gær (fimmtudag 9. okt.) gátu séð
að íslenskir fréttamenn voru okk-
ur til skammar, að mínu mati.
Margir sem ég hef rætt við eru á
sama máli. Fréttamenn voru
óundirbúnir og sumir jafnvel
dónalegir, eins og frægt er orðið.
Spurningar fréttamanna voru um
sömu klisjuna, þ.e. að koma skuld-
inni yfir á Seðlabankann vegna
ástandsins. Já, og hvort ekki þurfi
nú að huga að jafnréttismálum í
þessu ástandi sem nú ríkir. Hvað
með aðalmálin, hvað með það sem
skiptir máli núna á þessari
stundu? Það má alveg gagnrýna
marga í þessu máli og ég er þess
fullviss að þegar ölduna lægir
muni farið yfir atburði og málin
krufin til mergjar. En núna skipt-
ir máli að ná stjórn á ástandinu.
Það þarf að forgangsraða hlutum.
Ég er ekki að segja að jafnrétt-
ismál skipti ekki máli. Þau eru að
sjálfsögðu mikilvæg, en erum við
að ræða það núna? Auk þess sem
spyrjandi var augljóslega ekki bú-
in að kynna sér málin betur.
Bankastjóri Nýs Landsbanka er
kona. Af fyrrnefndum sökum varð
útkoma fundarins engin fyrir utan
þær yfirlýsingar Geirs og Björg-
vins sem mér fannst mjög gagn-
legar. Það er alveg augljóst að
þessir menn eru að vinna sína
vinnu vel og samvinnan til fyr-
irmyndar.
Þegar erlendu fréttamennirnir
tóku síðan við, kom bersýnilega í
ljós hversu mikill munur er á okk-
ar fréttamönnum og þeim. Er-
lendu fréttamennirnir voru kurt-
eisir, vel undirbúnir og með réttu
spurningarnar. Þar var talað um
atriði sem verulega skipta máli á
þessari stundu. Ábyrgðir og
tryggingar vegna viðskipta bank-
anna erlendis. Samskipti rík-
isstjórna viðkomandi ríkja og
fleira sem verulega skiptir máli.
Engin jafnréttismál voru rædd.
Nú er ég ekki að setja alla ís-
lenska fréttamenn undir sama
hattinn með þessari gagnrýni
minni. Þar eru margir góðir að-
ilar. En við almenningur krefj-
umst þess að fá alltaf vandaðan og
góðan fréttaflutning, og ekki síst
er það mikilvægt núna. Ég hef
skynjað það á þessum fundum í
vikunni sem ekki eru langir að út-
koman sé lítil. Það þarf að spyrja
réttu spurninganna svo eitthvað
málefnalegt komi fram.
Ég hvet okkar fréttamenn til að
taka sér tak og vanda vinnu sína.
Góða helgi.
GUÐMUNDUR JÚLÍUS
GÍSLASON,
Tjarnarbóli 10, Seltjarnarnesi.
Eru íslenskir fréttamenn vonlausir?
Frá Guðmundi Júlíusi Gíslasyni
Fréttir
í tölvupósti