Morgunblaðið - 12.10.2008, Blaðsíða 44
44 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
1 4 9 2 5 3 8 7 6
3 7 6 8 9 1 5 2 4
2 8 5 7 6 4 3 1 9
9 5 8 1 4 6 2 3 7
4 2 7 5 3 8 6 9 1
6 3 1 9 2 7 4 5 8
7 9 4 3 8 2 1 6 5
8 1 2 6 7 5 9 4 3
5 6 3 4 1 9 7 8 2
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig
tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röð-
inni.
Sudoku
dagbók
Í dag er sunnudagur 12. október,
286. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Ég er Drottinn, það er
nafn mitt, og dýrð mína gef ég eigi öðr-
um né lof mitt úthöggnum líkneskjum.
(Jesaja 42, 8)
Víkverji er eins og barn að því leytiað hann er oft heillaður af því
sem hann skilur ekki. Hann skilur til
dæmis ekki lýsingar sem fylgja á
rauðvíni í verslunum ÁTVR: jörð –
tóbak – vanilla – reykur – og svo
framvegis. Hann veit ekki hvernig
tóbaksbragð lýsir sér í smökkun á
rauðvíni. Víkverji er samt heillaður af
þessum lýsingum og kaupir stundum
rándýrt rauðvín af því að lýsingin á
því er: súkkulaði og kirsuber. Svo fer
Víkverji heim og drekkur rauðvínið
en verður hvorki var við súkkulaði- né
kirsuberjabragð. Víkverja finnst
þetta leiðinlegt því hann lítur á sig
sem kúltúrmanneskju.
x x x
Þegar Víkverji drekkur rauðvíniðsem hann finnur ekki rétta
bragðið af hlustar hann gjarnan á
Mozart. Í hvert sinn þakkar Víkverji
Guði fyrir að hafa skapað Mozart.
Mozart er einfaldlega einn af uppá-
haldsmönnum Víkverja. Það skiptir
engu þótt hann sé dáinn. Það er alveg
sama hvað gengið hefur á hjá Vík-
verja, hvort sem hann er reiður, dap-
ur eða í uppnámi, alltaf færir tónlist
Mozarts honum ró og frið.
x x x
Víkverji hefur oft látið sig dreymaum að verða hetja. Það hefur
hann hins vegar aldrei orðið. Kreppan
hefur fært Víkverja óvænt tækifæri
til að sýna á sér nýja hlið. Víkverji er
nefnilega tilfinningamanneskja og
gjarn á að láta umhverfið koma sér í
uppnám. Þessa dagana er Víkverji í
átaki sem byggist á því að viðhalda
fullkominni innri ró í kreppunni. Þótt
Víkverji segi sjálfur frá þá hefur hon-
um tekist þetta í nokkra daga á
aðdáunarverðan hátt sem er mjög til
eftirbreytni. Hann er verulega mont-
inn af sjálfum sér. Eiginlega lítur
hann á sig sem hetju. Reyndar felldi
Víkverji hetjugrímuna þegar góðir
kunningjar hans misstu skyndilega
vinnuna. Víkverji hágrét við frétt-
irnar. Kunningjarnir tóku vinnumiss-
inum hins vegar eins og hverju öðru
hundsbiti. Þeir eru sannar hetjur í
huga Víkverja. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 gramur,
8 vísan, 9 mannsbragð,
10 sjávardýr, 11 hrein-
an, 13 rugga, 15 skæld,
18 jurt, 21 kraftur,
22 ekki djúp, 23 stétt,
24 órökstutt.
Lóðrétt | 2 huglaus, 3 út,
4 lýkur, 5 ótti, 6 viðauki,
7 vaxa, 12 umfram,
14 snák, 15 dúkur,
16 skakka, 17 rannsaka,
18 skjögra, 19 púkans,
20 slæmt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kímni, 4 þófta, 7 kíkja, 8 ólíft, 9 nár, 11 ræða,
13 gata, 14 skóli, 15 brek, 17 Lofn, 20 kal, 22 tukta,
23 ætlar, 24 rýran, 25 aðför.
Lóðrétt: 1 kíkir, 2 mokað, 3 iðan, 4 þjór, 5 flíka, 6 aftra,
10 ámóta, 12 ask, 13 gil, 15 bútur, 16 eykur, 18 orlof,
19 nárar, 20 kaun, 21 læða.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. Rf3 O-O
5. e4 d6 6. Be2 e5 7. Be3 Rg4 8. Bg5 f6
9. Bh4 g5 10. Bg3 Rh6 11. d5 Rd7 12.
Rd2 f5 13. exf5 Rf6 14. Rde4 Rxe4 15.
Rxe4 Bxf5 16. Bd3 g4 17. O-O Kh8 18.
He1 De7 19. Hc1 b6 20. b4 a5 21. a3
axb4 22. axb4 Bg6 23. c5 bxc5 24. bxc5
Ha5 25. De2 Ha4 26. Rc3 Bxd3 27.
Dxd3 Hb4 28. cxd6 cxd6 29. He4 Hxe4
30. Rxe4 Rf5 31. Dd1 h5 32. h3 Bh6 33.
Hc6 h4 34. hxg4
Staðan kom upp á öflugu alþjóðlegu
skákmóti sem lauk fyrir nokkru í
Montreal. Franski stórmeistarinn
Igor-Alexandre Nataf (2.534) hafði
svart gegn bandaríska kollega sínum
Varuzhan Akobian (2.610). 34…
Rxg3! 35. fxg3 Be3+ 36. Kh2 Dh7! hót-
ar riddaranum á e4 og opnar fyrir
sóknarmöguleika á h-línunni. 37. Dc2
hxg3+ 38. Kxg3 Bg1! og hvítur gafst
upp enda fátt til varnar.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Meistari að verki.
Norður
♠KG9652
♥876
♦9
♣ÁK8
Vestur Austur
♠ÁD87 ♠1043
♥10542 ♥D3
♦Á2 ♦G10764
♣D32 ♣G94
Suður
♠--
♥ÁKG9
♦KD853
♣10763
Suður spilar 3G.
Jeff Meckstroth, sá bandaríski
meistari, var við stýrið í 3G gegn tví-
burabræðrunum bresku, Jason og
Justin Hackett. Spilið er frá heimsleik-
unum, sem nú standa yfir í Kína. Út
kom hjarta upp í gaffalinn og Meckst-
roth fór inn í borð á ♣Á til að spila ♦9.
Tían frá austri, kóngur og ás. Vestur
freistaðist nú til að spila aftur hjarta og
suður fékk ódýran slag á ♥9. En meira
þurfti til. Meckstorth fríaði laufið með
kóng og öðru og vestur kom sér enn út
á hjarta. Einhverju varð austur að
henda og hann kaus að losa sig við
þrist og fjarka í spaða. Sem virðist sak-
laust, en þegar til kom reyndist dýrt að
hanga á spaðatíunni. Meckstroth spil-
aði litlum tígli og dúkkaði svo ♠10 þeg-
ar austur reyndi að sleppa þar út. Í lok-
in varð austur því að spila frá ♦G7 í
gegnum ♦D8 sagnhafa.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er fullt af fólki sem vill taka
þátt í þinni veröld. Þú getur ekki hleypt
því öllu inn – er það? Vertu opinn fyrir öll-
um og allt mun fara á besta veg.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Fólki gæti fundist þú bara vera að
slæpast, en þú ert tilbúinn í mikilræði við
minnstu ögrun. Ef þú heyrir af góðu tæki-
færi ertu stokkinn af stað.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það steðja að þér erfiðleikar – eða
hvað? Það er svo erfitt að dæma um það.
Hafðu vaðið fyrir neðan þig og vertu til í
að kýla þá kalda um leið og þeir birtast.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Ef þú ert smávegis öðruvísi en aðr-
ir geturðu huggað þig við það að þú getur
hjálpað öðrum að sjá hlutina í nýju ljósi.
Hver vill líka vera eins og allir aðrir?
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þér finnst jafngaman að nota heilann
og hverjum öðrum – en ekki til að leysa
krossgátu heldur lífsgátuna. Hugsaðu
minna, skemmtu þér meira.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Samræður þínar og vinna verða sí-
fellt truflaðar af óvæntum og áríðandi
verkum. Það gæti verið merki um að þú
sért á rangri leið. Endurskoðaðu vinnu-
áætlunina.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þótt þú sért mikið tískufrík og óður í
nýjustu línuna ertu ekki til í að hrúgast á
útsölu eða standa í röð. Þú ert svalur á því,
alltaf flottastur.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ástúðin sem þú finnur fyrir í
garð einhvers hefur líkamleg áhrif á þig.
Heilsan verður betri, skynfærin næmari
og þú meira aðlaðandi í augum þín sjálfs
og annarra.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Orkan er öll út og suður og allt
virðist misheppnast. Ef þú tekur nokkra
klukkutíma í að hreinsa til og skipuleggja
kemurðu í veg fyrir að þú missir af mik-
ilvægum smáatriðum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú neyðist til að sýnast við verk-
efni sem þér finnst ekki henta þér. Það er
furðulegt, en kannski bót í máli, að öðrum
líður jafnilla og þér, ef ekki verr.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Viltu stofna fyrirtæki? Þú ert
með góðar hugmyndir. Samræður við þína
nánustu kynda undir hugmyndafluginu.
Samvinna er líka góð fyrir sambönd.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Takmarkið er að öðlast hið svala
sjálfsöryggi þeirra sem þú lítur upp til. Þú
getur tamið þér hegðun sigurvegaranna
með því að hætta að gagnrýna sjálfan þig.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
12. október 1581
Vopnadómur var kveðinn upp
á Patreksfirði. Samkvæmt
honum áttu allir menn á Ís-
landi að eiga vopn. Dómurinn
komst aldrei í framkvæmd
nema á Vestfjörðum.
12. október 1683
Sigurður Snorrason böðull
fannst látinn í læk á Hvalfjarð-
arströnd. Jón Hreggviðsson
bóndi var grunaður um að
hafa myrt Sigurð og var
dæmdur fyrir það á Saurbæj-
arþingi 5. nóvember. Jón
komst af landi brott og var
sýknaður í Hæstarétti árið
1715. Hann er ein lykil-
persónan í Íslandsklukkunni
eftir Halldór Laxness.
12. október 1918
Katla gaus eftir 58 ára hlé.
„Ægilegur gufustrókur teygði
sig lengra og lengra upp að
fjallabaki og loks hljóp jökull-
inn með eldgangi miklum,
vatnsflóði og jöklaburði fram
yfir Mýrdalssand til sjávar,“
segir í lýsingu Gísla Sveins-
sonar sýslumanns. Gosið stóð í
þrjár vikur.
12. október 1962
Kvikmyndin „79 af stöðinni“
var frumsýnd í Háskólabíói og
Austurbæjarbíói í Reykjavík.
Hún var gerð eftir skáldsögu
Indriða G. Þorsteinssonar. Í
helstu hlutverkum voru Gunn-
ar Eyjólfsson, Kristbjörg
Kjeld og Róbert Arnfinnsson.
12. október 1998
Guðrún Katrín Þorbergsdóttir
forsetafrú lést, 64 ára að aldri.
Karl Sigurbjörnsson biskup
sagði í útfararræðu að hún
hefði vakið athygli „fyrir fág-
un og persónutöfra“. Allir
þjóðhöfðingjar Norðurlanda
voru við útförina.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
ARNAR Guðlaugsson fagnar í dag sextugsafmæli
sínu í kóngsins Kaupmannahöfn. Þangað fór hann
ásamt eiginkonu sinni, Bergþóru Ásmundsdóttur,
sl. þriðjudag. Sonur þeirra, Guðlaugur, býr í
Kaupmannahöfn ásamt fjölskyldu sinni þar sem
hann er atvinnumaður með handknattleiksliðinu
FCK. Guðlaugur fagnaði einmitt þrítugsafmæli
sínu í liðinni viku og tilefni heimsóknarinnar var
þannig tvöfalt afmæli feðganna.
Arnar hlær létt þegar hann er spurður hvernig
tilfinningin sé að vera erlendis á þessum síðustu og
verstu. „Maður bíður bara eftir að komast heim til
að vita hvað er að gerast,“ segir hann, en tekur þó fram að þau geti að
sjálfsögðu fylgst með málum á Íslandi í gegnum netið.
Stórafmælinu var fagnað í gærkvöldi á veitingastaðnum Gertruds
Kloster og Arnar tók fram að tíminn yrði látinn líða fram yfir mið-
nætti svo þetta yrði alvöru.
Arnar og Bergþóra hafa haft það gott í Kaupmannahöfn og meðal
annars fylgst með lífvarðaskiptum við Amalienborg og skoðað sig um
á Nýhöfn. „Svo fórum við að horfa á leik hjá Gulla. Þeir voru að spila
við Ajax og unnu tiltölulega létt. Þetta var baráttan um Kaupmanna-
höfn. Ajax er hitt liðið í Kaupmannahöfn í efstu deild hjá þeim hérna.“
Arnar og Bergþóra koma heim á morgun eftir að hafa eytt nokkr-
um góðum dögum með fjölskyldu sinni í kóngsins Köben. sia@mbl.is
Arnar Guðlaugsson er sextugur í dag
Horfðu á soninn spila
7 8 6 1 3
3 9 2 8
2 3 4
7 1 9
4 6
3 9 5
2 7 3
8 1 9 2
6 5 2 4 9
Frumstig
1 5 6 8
3 1
3 2 1
4 6 2 3
5 3 1 2 6 8
6 2 8 4
5 7 8
4 9
7 2 5 3
Miðstig
4 9 5
5 9 8 2
6 5
6 7 8
8 6 4 5
9 7 1
8 3
6 3 8 4
1 5 7
Efstastig
5 8 1 9 7 3 6 2 4
3 2 7 8 4 6 5 1 9
9 4 6 2 5 1 7 3 8
1 7 3 4 9 8 2 6 5
4 9 5 6 1 2 3 8 7
2 6 8 7 3 5 9 4 1
8 3 9 5 6 4 1 7 2
6 5 4 1 2 7 8 9 3
7 1 2 3 8 9 4 5 6
Lausn síðustu Sudoki.
6 8 2 7 3 9 1 5 4
7 4 5 6 1 8 2 9 3
9 3 1 4 5 2 8 7 6
8 7 4 1 6 5 9 3 2
5 6 9 8 2 3 7 4 1
2 1 3 9 4 7 5 6 8
4 9 7 2 8 6 3 1 5
1 5 8 3 9 4 6 2 7
3 2 6 5 7 1 4 8 9
;)
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum um fæðingarstað
og stund, þyngd, lengd
og nöfn foreldra, á netfangið
barn@mbl.is