Morgunblaðið - 12.10.2008, Side 45

Morgunblaðið - 12.10.2008, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 2008 45 Lögga, læknir og lögfræðingur Kippan ÞESSI LÖGGA LÍTUR ÚT FYRIR AÐ VERA NOKKUÐ HÖRÐ ÉG GÆTI BARIÐ HANN EF HANN VÆRI MEÐ AÐRA HÖNDINA FYRIR AFTAN BAK ÁTTU EKKI VIÐ AÐ ÞÚ GÆTIR BARIÐ HANN MEÐ AÐRA HÖNDINA Á ÞÉR FYRIR AFTAN BAK? AF HVERJU ÆTTI ÉG AÐ VILJA SLÁST MEÐ AÐRA HÖNDINA Á MÉR FYRIR AFTAN BAK REYK EÐA REYKLAUST? VINNUHUNDUR FRÁBÆRT! ÉG ÞARF SEM SAGT AÐ EYÐA ÖLLUM DEGINUM Í AÐ NUDDA SAMAN TVEIMUR SPÝTUM... EÐA HAFA SUSHI Í MATINN EINA FERÐINA ENN SLEPPTU! SNATI! SLEPPTU! MAÐUR Á ALDREI AÐ FÁ SÉR GÆLUDÝR SEM ER STÆRRA EN MAÐUR SJÁLFUR MARGRÉT, ÉG GET SÆTT MIG VIÐ FRAMHJÁHALD... EN AÐ ÞÚ SOFIR HJÁ SAMKEPPNINNI... Velvakandi FÓLK gengur um í þungum þönkum þessa dagana yfir ástandi þjóðarinnar og hugsar sitt ráð. En á svona stundum þarf að beita bjartsýninni og horfa á það sem fallegt er í kringum mann. Morgunblaðið/Kristinn Gönguferð í Hljómskálagarðinum Afturgengnar mið- aldir FLJÓTLEGA eftir landnám Íslands voru þjóðinni sett lög, er sennilega voru þau manneskjulegustu sem þekktust í Norð- ur-Evrópu. Landinu var skipt upp í goðorð og voru goðarnir 36. Goðarnir báru ábyrgð á lögunum og sáu um framkvæmd þeirra. Þeir settu niður deil- ur á sínu svæði, svör- uðu fyrir og vörðu þingmenn sína og sáu um að dómum væri fullnægt. Hér var vísir að lýðræði og voru lögin enn bætt á 1000 ára aldamótunum. Næstu 200 árin voru mjög frið- söm á okkar unga landi. Síðan skeður það að við flytjum inn frumstæðan kapítalisma, sem Nor- egskonungar brúkuðu og hinum ungu höfðingjasonum á vestan- og norðanverðu landinu þótti eft- irsóknarverður. Auðugir menn fóru að kaupa goðorð, völd og áhrif í ströngu kapphlaupi við kirkjuna. Á 13. öld voru lýðræð- isáhrif horfin að mestu, goðorðin komin á fáar hendur, framkvæmd laganna og viðskiptasamböndin. Kirkjan hlekkjaði fátæklingana í bókstaflegri merkingu, við kirkju- dyr, fyrir óhlýðni við yfirvöld þessa heims og annars. Þrátt fyrir það að friðsamir menn reyndu að milda áhrif kapít- alismans varð við ekkert ráðið og Ísland tapaði sjálfstæði sínu. Nú höfum við stórt hundrað þingmanna og aðstoðarmanna. Meiri hluti þeirra hverju sinni semur lög og leggur fram. Minni hlutinn er áhrifalítill, situr og fylgist með þing- störfum þegar þeir hafa tíma til. Allir samþykktu þeir hins vegar lög um eft- irlaun þingmanna sem eru í engu sam- ræmi við eftirlaun annarra landsmanna. Þeir lofuðu að breyta þessum lögum, en bíða í reynd eftir því, að loforðið gleymist í daganna önn, eða drukkni í voveiflegum atburðum. Það hefur nú gerst. Við höfum misst fjárræði, efnahagslegt sjálf- stæði eins og á miðöldum. Ætla þingmenn enn að ganga á undan með lélegt eftirdæmi? Vegna sóknarinnar að Davíð vil ég segja þetta: Ef Davíð á að víkja, hvað þá með seðlabankastjórana? Önnur spurning brennur á vörum flestra Íslendinga: Ætlar ríkisstjórnin að láta hina ungu for- ingja í fjármálalífinu sleppa með illan feng sinn og kaupréttarsamn- inga? Jóhannes Eiríksson prentari.        Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Félagsstarf eldri borgara Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans- leikur í kvöld kl. 20 danshljómsveitin Klassík leikur fyrir dansi. Námskeið í framsögn, upplestri og leikrænni tján- ingu, grunnatriði, er fyrirhugað, síðustu skráningardagar s. 588-2111. Félagsstarf Gerðubergs | Mánud. 13. október kl. 7.30 er Vilborg Dagbjartsd. gestur, pottakaffi í Breiðholtslaug, upp- haf viðburða sem verða í Breiðholti á næstunni af þessu tilefni. S. 575-7720. Furugerði 1, félagsstarf | Mánudagur: bókband, leikfimi og framhaldssagan. Hæðargarður 31 | Ókeypis tölvuleið- beiningar mánudaga og miðvikudaga kl. 13. Skapandi skrif mánudag kl. 16. Ætt- fræði þriðjudag kl. 16. Rekstrasjón verð- ur sunnudaginn 19. október kl. 15. Hljóm- sveit Hjördísar Geirs. Rúllugjald kr. 1000.- Uppl í síma 411-2790. Íþróttafélagið Glóð | Æfingar fyrir sýn- ingar í Kópavogsskóla á þriðjud. kl. 14.30-16.00. Á miðvikud. alm. hóp- dansar í Lindaskóla kl. 15-16.20 og ringó í Snælandsskóla kl. 19-20. Á fimmtud. línudans kl. 16.30-18 í Húnabúð. Uppl. í síma: 564-1490, 554-2780 og 554-5330. Korpúlfar Grafarvogi | Ganga á morgun kl. 10 frá Egilshöll. Korpúlfsstaðir, vinnustofur | Búta- saumur annan hvern mánudag kl. 13-16 (á morgun) Vitatorg, félagsmiðstöð | Haustfagn- aður verður fimmtud. 16. október og er hann öllum opin fólki á öllum aldri. Mat- ur, skemmtikraftar og dans við undirleik Vitatorgsbandsins. Húsið opnar kl. 17. Uppl. í síma 411-9450.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.