Morgunblaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 5. O K T Ó B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
282. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
MENNING
SPÁÐI HRUNINU
Í NÝRRI BÓK
DAGLEGTLÍF
Góð menntun er
besta innistæðan
Fjórar saman
0
8
-
1
6
0
9
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Loksins fáanlegur
í sneiðum
Nýjungar!
Leikhúsin
í landinu >> 37
FYRIRSJÁANLEGT er að hluti
tekjustofna ríkisins, sem skiluðu rík-
inu 68 prósentum af tekjum sínum á
síðasta ári, muni lækka mikið eða
jafnvel næstum falla saman.
Þetta getur valdið miklum rekstr-
arerfiðleikum hjá ríki og sveitar-
félögum og bitnar að lokum á opin-
berri þjónustu. Halldór Halldórsson,
formaður Sambands íslenskra sveit-
arfélaga, segir stöðu margra sveitar-
félaga hafa farið úr því að vera
„ásættanleg“ í vera „mjög erfið“ á
skömmum tíma. „Það eru erfiðir
tímar framundan. Það gefur auga-
leið,“ sagði Halldór.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er rekstur stórra sveitarfé-
laga sem hafa staðið í mikilli upp-
byggingu á skömmum tíma líklegur
til þess að verða erfiður á næstu
misserum. Einkum eru það sveitar-
félög eins og Kópavogsbær, Hafnar-
fjörður, Akureyrarbær og Reykja-
víkurborg sem munu þurfa að grípa
til aðgerða vegna rekstrarvanda.
Staða ríkissjóðs hefur til þessa
verið öfundsverð í alþjóðlegum sam-
anburði. Ólafur Ísleifsson, lektor við
viðskiptafræðideild HR, segir ríkið
þurfa að bregðast við miklu tekju-
tapi. Þar komi tvennt til greina.
Draga úr framkvæmdum og hækka
skatta. magnush@mbl.is | 14
Mikill tekjusamdráttur
ÞAÐ eru ekki eingöngu stærstu glerhýsi sem kalla á athygli gluggaþvotta-
manna því smáverslanir þurfa líka sína þvotta. Sá sem lítur út um nýþveg-
inn glugga öðlast nýja, ferska sýn á veruleikann. Hörkulegar norðanáttir
eru alræmdar fyrir að sveipa rúður salti og skít en það er þó saklaust miðað
við norðanbálið sem nú geisar í hagkerfinu. En það þarf að þvo gluggana.
Ný og fersk sýn eftir þvotta
Morgunblaðið/Valdís Thor
LANDSBANKINN leitaði snemma
á þessu ári til tveggja breskra hag-
fræðinga. Þeir voru beðnir að
skrifa skýrslu um orsakir þess fjár-
málavanda sem steðjaði að Íslandi
og bönkum landsins.
Þau Willem Buiter og Anne Si-
bert sendu skýrslu sína til bankans í
apríl s.l. Þau komu svo til Reykja-
víkur og kynntu efni skýrslunnar á
fundi 11. júlí að viðstöddum m.a.
hagfræðingum Seðlabankans, fjár-
málaráðuneytisins, einkageirans og
háskólasamfélagsins.
„Vegna þess að íslenskir viðmæl-
endur okkar töldu plaggið of við-
kvæmt fyrir markaðinn þá sam-
þykktum við að birta það ekki
opinberlega,“ segir Buiter í bloggi
sínu frá 9. október s.l. | 8
Bankaskýrslan þótti of
viðkvæm fyrir markaðinn
Eftir Guðna Einarsson
og Bjarna Ólafsson
FJÁRMAGN sem Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn (IMF) getur mögulega lán-
að Íslendingum er ekki talið nægja til
að fullnægja fjármagnsþörf Íslands,
samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins. Því er talið að IMF muni t.d. ekki
leggjast gegn því að Ísland taki lán í
Rússlandi. Nú er unnið á mörgum
vígstöðvum að því að útvega fjár-
magn til að mæta brýnni fjárþörf Ís-
lands.
Washington og Moskva
Árni M. Mathiesen fjármálaráð-
herra átti fundi í gær í Washington
með tveimur af æðstu embættis-
mönnum IMF og einnig með fulltrúa
Bandaríkjanna í framkvæmdastjórn
sjóðsins. Hún tekur á endanum
ákvarðanir um lánveitingar hans.
Sendinefnd íslenskra embættis-
manna hóf í gær viðræður í Moskvu
við þarlend stjórnvöld um lánveitingu
Rússa til Íslands. Þeim viðræðum
verður haldið áfram í dag. Ekkert lá
fyrir í gær um stærð mögulegs láns
frá Rússum né tímasetningu, að sögn
Sigurðar Sturlu Pálssonar, formanns
nefndarinnar.
Seðlabankinn virkjaði í gær gjald-
miðlaskiptasamninga við seðlabanka
Danmerkur og Noregs, samtals 400
milljónir evra eða um 200 milljónir
evra frá hvorum seðlabanka.
Geir H. Haarde forsætisráðherra
sagði í síðustu viku í samtali við mbl.is
að stefnan hefði verið sú að virkja
ekki samningana nema upp kæmi
neyðarþörf fyrir gjaldeyri. Sagðist
Geir þá ekki sjá fyrir sér að sú þörf
myndi vakna á næstu dögum en ljóst
má vera af aðgerðum Seðlabankans
nú að raunin hefur orðið önnur.
Lán IMF full-
nægir ekki
þörf ríkisins
Gjaldmiðlaskiptasamningar við seðla-
banka Danmerkur og Noregs virkjaðir
Í HNOTSKURN
»Hópur sérfræðinga frá Al-þjóðagjaldeyrissjóðnum
hefur verið hér á landi undan-
farið.
»Seðlabankar Svíþjóðar,Noregs og Danmerkur
gerðu tvíhliða gjaldmiðla-
skiptasamning við Seðlabanka
Íslands 16. maí sl. Samtals
veita þeir aðgang að 1,5 millj-
örðum evra.
Bankakreppa | 2, 6, 12-15, 18-19
MEÐAL þeirra
sem koma nú
fram á tónlistar-
hátíðinni
Airwaves í fyrsta
sinn er sigursveit
Músíktilrauna,
Agent Fresco.
Söngvari sveit-
arinnar, Arnór
Dan Arnórsson,
bjó í Danmörku en var í fríi heima á
Íslandi þegar hann laumaði sér inn
á hátíðina í fyrsta sinn aðeins 16
ára gamall.
„Ég varð ástfanginn strax. Það
passar svo vel að hátíðin er alltaf á
sama tíma og gefið er kartöflufrí í
dönskum skólum þannig að ég hef
reynt að fara hvert ár eftir þetta.“
Í Morgunblaðinu í dag er farið
yfir merkustu atburðina á fyrsta
degi Airwaves. » 40
Arnór Dan + Airwaves =
ást við fyrstu sýn
Frá Airwaves
ÞÓRA B.
Helgadóttir,
aðalmarkvörður
kvennalandsliðs
Íslands, verður
ekki með lands-
liðinu í þeim
tveimur mikil-
vægu umspils-
leikjum sem
framundan eru
hjá stúlkunum
gegn Írlandi sökum þess að hún er
með einkirningasótt. Hefur hún að
læknisráði ákveðið að hvíla sig og
því verður mark Íslands varið af
varamarkmanni landsliðsins, Maríu
B. Ágústsdóttur. » Íþróttir
Úr leik með landsliðinu
vegna veikinda
Þóra B.
Helgadóttir
ÞEIR Stefán Már Stefánsson pró-
fessor og Lárus Blöndal hæstarétt-
arlögmaður segja í grein í Morgun-
blaðinu í dag, að þeir telji, að
innlánstryggingakerfin beri aðeins
ábyrgð á skuldbindingum eða
bankainnstæðum sem svari til þess
fjármagns, sem í þeim sé.
Í greininni segir, að hlutverk
Tryggingasjóðs hafi ekki verið að
takast á við bankahrun enda hefðu
þá framlög í hann orðið að nema
tugum prósenta af innlánum.
Hvetja þeir stjórnvöld til að kanna
vel allan lagagrundvöll áður en þau
semja við Breta og Hollendinga um
hundraða milljarða greiðslur. » 23
Er innlánaábyrgð bundin
við getu Tryggingasjóðs?